Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 C 21 Miðjarðarhafið má heita á síðasta snúningnum í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum er varað við því, að mikil fólks- og ferðamannaQölgun í Miðjarðarhafslöndunum geti verið búin að eyðileggja alla strandlengjuna fyrir árið 2025. Eru ríkin hvött til að hafa með sér náið samstarf svo unnt verði að hafa eftir- lit með iðnaðar- og ferðamennskuþróuninni á þessum slóðum. Umhverfisvemdarnefnd SÞ (UNEP) hóf þessa athugun árið 1977 til að geta aðstoðað ríkin í náttúravemdarmálum en megin- niðurstaðan er sú, að ör fólksfjölg- un geti eyðilagt alla strandlengj- una, 25.000 mílna langa. Við Mið- jarðarhafíð búa nú 360 milljónir manna en búist er við, að um 2025 verði talan komin í 520 milljónir. Verður ijölgunin mest við sunnan- vert Miðjarðarhaf, í Afríku, og aðallega í borgum. „Meginástæða fólksijölgunar- innar er aukin fijósemi og þörfin á auknu vinnuafli eftir því sem iðnaðinum fleygir fram í þessum löndum,“ sagði talsmaður SÞ og hafði þá í huga ríki á borð við Egyptaland, Tyrkland, Líbýu og Marokkó. í könnuninni er ferðamenns- kunni einnig kennt um hnignun strandlengjunnar við Miðjarðarhaf. Hvergi í heiminum er hún meiri en þar og má nefna sem dæmi, að á árinu 1985 komu 100 milljónir ferðalanga til þessara ríkja eða þriðjungur allra þeirra, sem þá lögðu land undir fót. Ef fram heldur sem horfir má búast við, að 760 milljónir ferða- manna fylli strendurnar árið 2025 með alvarlegum afleiðingum fyrir umhverfið og vatnsbúskapinn í þessum heimshluta. Lundia furuhillur og húsgögn eru ein- föld í uppsetningu, stflhrein og sterk. TRAUSTAR HILLUR LUNDIA-furuhillur eru frábær hag- leikshönnun. Möguleikar á sam- setningu eru óendanlegir; þú raðar saman hillum, skápum, borðum og skúffum á þann hátt sem þér hent- ar best. Lundia SUNDABORG 7 • SlMI 680922

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.