Morgunblaðið - 27.11.1988, Page 24

Morgunblaðið - 27.11.1988, Page 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ rispur SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 í ANDLITÍ LANDSINS L andið er kraf tmikið með sterkum andstæðum í náttúrufari, myndrænt og mótað af afli ægis, elds og íss. Myndirnar spanna mynni Ölfusárósa, Breiðamerkurjökul, Skeiðarársand og strandlengjuna á Snæfellsnesi, en tækni nútímans liefur lagt leið sina inn í myndefnið með tilkomu flugvél- arinnar sem kemur við sögu i öllnm myndunum. Flugvélin hefur leikið stórt hlutverk í möguleikum landsins barna á undanförnum árum til þess að kynnast landinu nánar, sjá það sem engum hefur verið fært í gegn um aldanna rás öðrum en fluglinum fljúgandi. Andlitið i Ölfusárósum er svipmikið eins og landið sjálft, Kjarvalskt. Jökulsprungurnar í Breiöamerkur- jökli eru hrikalegar, en það býr yfir þeim ákveöin ti^n, reynsla þess sem lifir og hrærist ■ umhverfi smu í takt við þá möguleika sem tilveran ætlast til. Jökulböndin gefa af sér Jökulsár- lónið og Jökulsá á Breiðamcrkur- sandi, farveg náttúruauðBndarinnar sem breytir landinu endalaust. Vatna- kerfi Skeiðarársands hríslasl um sandflákana og minnir um margt á smásjármynd af birkilaufi. Brimhnefinn á strönd Snæfellsness er dæmigerður fyrir hið síkvika kög- ur landsins, hafölduna sem leikur lögin sín á strandhörpuna með óend- anlcgum tilbrigðum í tónum, allt eftir stærð og gerð gr jótsins sem gefur hljóminn. — á.j. Ljósmyndir: Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.