Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 26

Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 Saga bílsins á Islandi kvikmynduð ÞÁTTUR bílsins í þjóðlífínu er viðfangsefhi heimildarmyndar, sem þeir hafa byijað gerð á Hjálmtýr Heiðdai, Finnbogi Her- mannsson og Ásgeir Sigurgests- son. Samkvæmt kostnaðaráætlun er gert ráð fyrir að myndin kosti Qórar milljónir króna. Sótt verð- ur um styrk til verksins til Kvik- myndasjóðs. + Istuttu samtali sagði Finnbogi að myndin ætti að fjalla um sögu bílsins allt frá því fyrsti bíllinn kom til landsins skömmu eftir aldamótin. Til að mynda verður fjallað um hingaðkomu Ford T-módelsins árið 1913, opnun hálendisins með til- komu kraftmikilla hertrukka eftir hernámið. Þá verður fjallað um bílinn sem stöðutákn og þjónusta við bifreiðir, svo sem viðgerðarsaga hans, rekin. „Við teljum okkkur vera að bjargá ákveðnum menning- arverðmætum. Það hefur ekki áður verið gerð heimildarmynd, þar sem þáttur bílsins í nútímasögunni er skilgreindur," sagði Finnbogi. Hann og Hjálmtýr eru nýbúnir að ljúka gerð 50 mínútna heimildar- myndar um síldarævintýrið á Djúpuvík. Að myndinni hafa þeir unnið undanfarin fimm ár og hafa þeir til þess meðal annars notið styrks úr Kvikmyndasjóði. Myndin heitir fullu nafni: Af síld við erum orðin rík á Ingólfsfírði og- Djúpuvík.„Myndin er tilbúin og sjónvarpið veit af henni. Ef það semst um skikkanlegt verð er ekk- ert til fyrirstöðu," sagði Finnbogi aðspurður um hvenær almenningur mætti vænta þess að sjá myndina. Hann sagði að eðlilegast væri að Ríkissjónvarpið fengi myndina til sýningar, þar sem Stöð 2 næðist ekki á Ströndum. ÍSLENSKAR FRÉTTASTEFNUR 1. Ásgeir Friðgeirsson fjölmiðlafræðingur hefur gert sam- anburðarkönnun á aðalfréttatímum Útvarps, Sjónvarps og Stöðvar 2. í fyrstu grein af íjónini um fréttastefnu þessara Qölmiðla er rætt við Boga Ágústsson frétta- stjóra Sjónvarps um helstu niðurstöður könnunarinnar er varða hans stofnun. Bogi sagði að sér kæmi það ekki á óvart að fréttamat stöðv- anna væri ólíkt, en af um rúmlega þijátíu fréttum í kvöldfréttatím- um voru að jafnaði einungis §órar sem voru birtar á öllum stöðvun- um þremur. Það má segja að þá viku sem athugunin fór fram sam- einaði einungis Bogi Ágústsson: „Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar eiga að færa okkur svipmeiri og stílhreinni fréttatíma...“ Hafskip, skák, vandi frysti- húsa, þjóðar- gjaldþrot Steingríms Hermannsson- ar og Linda Pétursdóttir fréttastofurnar þijár. Hann sagði að þetta benti til þess að fréttastofumar væm mjög sjálfstæðar í fréttaöflun og að mikil áhersla væri lögð á einkaf- réttir. Hann sagði að ástæða þessa væri m.a. að hér á landi væri ekki ein fréttastofa sem þjón- aði öllum fjölmiðlum eins og t.d. Press Association gerir í Bretlandi og RITZAU í Danmörku. Bogi vildi ekki leggja mat á það hvort þetta væri slæmt eða óæskilegt. Hann dró í efa þær niðurstöður blaðamanns að Stöð 2 legði meiri áherslu á erlendar fréttir en Sjón- frétta hefði minnkað á síðustu ámm. Hann taldi ástæðuna vera þá að framboð af innlendum frétt- um hefði aukist. Hann nefndi það sem dæmi að fyrir örfáum ámm héfði það varla þekkst að frétta- menn biðu þess fyrir utan stjórn- arráðið að ríkisstjórnarfundi lyki. Nú væri það BAKSVIP eftir Asgeir Fridgeirsson næsta daglegt brauð. Þegar hann var spurður um hvort hann væri hlynntur þessari þróun svaraði hann því til áð það væri alltaf matsatriði hvort leggja ætti meiri eða minni áherslu á það sem gerðist í eigin samfélagi eða á erlendri gmnd. Bogi samþykkti það að frétta- gildi margra innlendra frétta- mynda væri lítið og talaði hann sjálfur um útvarpsfréttir með myndum. Hann sagði að á frétta- stofunni væm hreinlega ekki nægjanlega margir starfsmenn til þess að vinna allar fréttir eins vel og óskandi væri. Hann hafnaði þeirri kenningu að sjónvarps- Fréttastefm Sjónvarps mótost ekki afsamkeppnisaðttum Fréttastefna er eitthvað sem sjaldnast er tími til að ræða um í hvunndagsamstrinu, að sögn fréttastjóra Sjónvarps. Því fór þó ijarri að honum þætti slík umræða eitthvað óeðlileg. Hann vildi hins vegar ekki að viðtalið snerist ein- göngu um aðalfréttatíma Sjón- varps því einnig væm vel heppn- aðar fréttir í dagskrárlok. Þegar talið barst að því að fréttamat Sjónvarps væri áþekk- ara fréttamati Útvarps en Stöðvar 2 jánkaði Bogi því að margt væri líkt með skyldum en bætti þó við að líklega væri til einskonar RÚV-hefð. Raunar taldi hann að þeirrar hefðar gætti einnig hjá Stöð 2 því áhrifamestu starfs- menn fréttastofunnar þar hefðu á sínum tíma unnið hjá RÚV. Hann sagði að það lýsti sér m.a. í þeirri ánægjulegu staðreynd að sam- keppni sjónvarpsstöðvanna væri á - segir Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins Við samanburð á aðalfréttatímum Sjónvarps, Útvarps og Stöðvar 2 dagana 14.—19. nóvember kom m.a. í Ijós að: I Fréttamat fréttastofanna er ólíkt. ■ Heildarsvipur á aðalfréttaþáttum er óljós. ■ Fréttagildi innlendra fréttamynda er rýrt. ■ Fréttaval og fréttaröðun Sjónvarps er áþekkara Útvarpi en Stöð 2. ■ Erlendum fréttum er síður sinnt í Sjónvarpi en Útvarpi og Stöð 2. ■ Beinharðar fréttir mjög áberandi í fréttum Sjón- varps og fáar mannlífsglefsur. sömu forsendum, en ekki alls óskyldum eins og fréttasamkeppni útvarpsstöðvanna. „Fréttastefna Sjónvarps mótast ekki af sam- keppnisaðilum," sagði Bogi. varpið. Hann taldi að hefði Stöð 2 greint betur frá erlendum at- burðum í tiltekinni viku væri sú vika ekki dæmigerð. í máli hans kom fram að hlutfall erlendra fréttamenn sem flestir koma af blöðum og útvarpi kynnu ekki að skrifa fyrir sjónvarp því þeir væru enn að skrifa eins og þeim var upphaflega kennt. Hörðu fréttimar hafa forgang hjá Sjónvarpinu en forvitnilegar mannlífsfréttir verða oftast út- undan. Boga þótti þetta miður og taldi að með agaðri vinnubrögðum og festu væri unnt að vinna á þessu bót. Hann gat þess að fyrir dyrum stæðu skipulagsbreytingar sem m.a. miðuðu að því að auð- velda framkvæmd markaðrar fréttastefnu. Hann sagðist vonast til að yfirbragð fréttatímans yrði við breytingarnar svipmeira og stílhreinna. Bogi Ágústsson sagði hins vegar að hann gerði sér fulla grein fyrir því að það kostaði sitt að gera hlutina eins og best yrði á kosið. Alvora lífsinseða dreifbýttsfyndni Yið erum heppin sem eigum heima úti á landi. Við getum viðast hvar heyrt í útvarpi, sjónvarp sést sums staðar og sam- göngutæki af ýmsu tagi gera okkur kleift að skoða blöðin, jafnvel sam- dægurs og lesið er upp úr þeim fyrir okkur í sumum útvörpunum. Sumir verða að vísu að láta sér lynda að skoða blöðin frá því í gær eða fyrradag - eða úr hinni vikunni og það er ekki lakara. Þá er efni þeirra nefnilega orðið eins konar sagnfræði. En við erum heppin á fleiri vegu. Við höfum það nefnilega umfram aðra að eiga landsmála- blöð. Þeir kalla þau að minnsta kosti því nafni í gamla útvarpinu. Þegar ekkert er annað til að drepa útvarpstímann og engin blöð koma út, lesa þeir úr landsmálablöðum! í blöðunum eru samkvæmt því engin landsmál. Ein undantekning er á þessu og hún er hér á Akureyri. Hér höfum við Dag, sem er núorðið talinn með blöðunum. Það stafar að vísu eingöngu af því að hann kemur út daglega. Stundum eru þeir hjá útvarpinu svo heppnir að finna í landsmála- blöðum greinar eftir valinkunna hreppstjóra eða bæjarstjómarmenn þar sem þeir fjalla um efnahagsmál á svipaðan hátt og formaður flokks- ins í Reykjavík gerði nokkrum vik- um fyrr. Þá er lesið lengi, því þetta er svo fjarskalega líkt því sem gæti staðið í blöðunum sjálfum. Hafi eini vinnuveitandinn á útgáfu- staðnum farið á hausinn, frystihú- sið brunnið til kaldra kola eða kirkj- an í sókninni fokið út í veður og vind er líka lesið um það, enda kunnuglegt úr gömlum fréttatím- um. Hafi bömin á staðnum hins vegar búið til þriggja hæða snjó- hús, bóndi orðið fyrir því að missa traktorinn sinn í skurð og ort um það vísu, héraðslæknirinn skotið ijúpu og bóndinn líka ort vísu um það, er það sjaldnast lesið. Það kemur þó að vísu fyrir, en þá fylg- ir því sérstakur tónn, eins og verið sé að lesa upp úr Islenskri fyndni. Ekki er heldur sagt frá orðaskiptum prófasts og meðhjálpara vestur í Djúpi um það hvort kirkjuhurðin hafí verið rík í stöfum eða föst í falsi, nema ef tíðindamaður úti á landi geri það af sérvisku sinni einni. Og ég held að mörgum frétta- fræðingnum þyki það óskaplega “dreifbýlislegt". Þetta em ekki fréttir! Ég held hins vegar að það sé alrangt að líta á litlu blöðin víðs vegar um land sem annars flokks fjölmiðla. í þeim er ef til vill meira af því sem skiptir í raun og vem máli en í stóm miðlunum, sem stundum, til dæmis í svonefndri gúrkutíð, em meira og minna fullir af lítt merkilegu uppfyllingarefni. Við lifum ekki endalaust á efna- hagsmálum eða blaðri um fínt fólk í útlöndum sem við þekkjum ekki neitt. Lifið á landinu er ekki að smjatta og kjamsa á ófömm eða óláni fólks - og vera fyrstur að því, eins og allrafínast þykir hjá sumum blöðum, útvörpum og sjón- vörpum. Vissulega er stundum smjattað í litlu blöðunum, en aldrei af annarri eins áfergju og þegar sumir tiðindamenn fyrir sunnan komast í feitt (!). í litlu blöðunum er sláttur þjóðarhjartans. í þeim er það sem venjulegt fólk hugsar og gerir og það sem þessu sama venju- lega fólki þykir mikilvæg- ast, hvað sem háskóla- numið fréttamat segir. Staða þessara litlu blaða er yfirleitt erfið. Upplagið er lítið, tekjur rýrar. Oft er þeim haldið úti af áhuganum einum saman í sjálfboðavinnu fárra manna. Oft þarf að sækja langan veg til að fá þau prentuð og sett. Þá er efni þeirra ekki splunkunýtt þegar þau birtast, en samt skipta þau miklu máli. Bæði fyrir íbúa útgáfuhéraðsins og líka þá fjölmörgu sem brottfluttir eru og sólgnir í tíðindi „að heiman". Þau eru þá líka eins konar sagn- fræði. Þó að ýmsir tali í kæruleysistóni um litlu blöðin ættu þeir að gæta að hversu langt þeir ganga. Og þó að Halldór lýsi Norðurhjaranum á Djúpvík á skoplegan hátt í Guðs- gjafarþulu held ég að hann sé ekki að gera lítið úr þessum menningar- þætti. Alls ekki. Sverrir Páll Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.