Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 28
28 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
GÁRUR
eftir Elínu
Pálmadóttur
Að njóta listar úr ódýru sæti
að ku vera hlutverk listar-
innar að vernda mannlnn á
tölvuöld. Sé það rétt verður
varla sagt annað en að við Reyk-
víkingar eigum dijúgt varnarlið.
Að minnsta kosti á þessum
árstíma. i höfuðborginni eru
opnaðar 5-6 málverkasýningar
um hveija helgi, tugur leiksýn-
inga er í gangi og margir tónleik-
ar af ýmsu tagi i
hverri viku. Allt
saman ákaflega
merkilegt og
flest í sérflokki,
eins og glöggt má
sjá af viðtölum i
blöðum og öllum
útvarpsþáttum
við þá sem gerst
mega vita, fram-
leiðendur sjálfa.
Alveg makalaust
hve mikið
nokkrir tugir
þúsunda list-
njótenda komast
yfir á skömmum
tíma. Auðvitað í samræmi við
ltfnaðarhætti þessarar skorpu-
þjóðar. Til að ná neytendum
verður að grípa þá frá því þeir
koma úr sumarleyfum og skólar
byija og fram að desember, þeg-
ar svífur að jólaandinn með
glöggveislum, jólafundum fé-
iaga, hreingerningum og bakstri
og jólabækur drifa að. En svo
sem víðar gengur mannfólkinu
verst að ráða við veðrið, þyngar-
lögmálið og timann. í slíku fá-
menni verður tíminn dálítið
knappur til að ná öllu sem fram
er boðið svona í einni bendu.
Liklega ekki mikið við þvi að
gera.
Ekki virðist
auraleysið baga
listunnendur að
ráði, enda kostar
ekki allt mikið.
Það dýrara fær
litlu minni að-
sókn. Gáruhöf-
undur er svo
heppinn að hafa
einfaldan smekk
og situr gja'rnan
hinn ánægðasti
á efri svölum í
Þjóðleikhúsinu
fyrir 700 kr. i
stað 1500 kr.
þegar óperur og
söngleikir eru á sviðinu. Að ekki
sé talað um skrautsýningar á
borð við Æfintýri Hoffmanns.
Þar hljómar söngur og tónlist
nefnilega engu síður og jafnvel
betur en inni undir svölum
niðri. Ekki hafa víst margir svo
einfaldan smekk. Sem betur fer,
því alltaf má ganga að miðum á
uppseldar sýningar.
Vel á minnnst, skrautsýning-
ar! Þær voru í tisku og þóttu
ómissandi í eina tíð á félagasam-
komum um landið og í skólum,
þar sem blandaðri dagskrá var
komið upp í samkomuhúsum.
Sjónvarpið hefur aftur fært þjóð-
inni ámóta samkomur í þættin-
um „Hvað er á seyði?“ í sjón-
varpinu á sunnudagskvöldum.
Á leiklistarárum Gáruhöfundar
fram að 12 ára aldri, heilluðu
„skrautsýningar" með glitsviði
og skrautbúningum áhorfend-
ur.„Deyjandi svanurinn" var
hluti af dagskránni i leikför með
Stúkunni Æskunni um Suður-
nes, með hvítklæddri yngismey
blakandi handleggjum á skraut-
legu gylltu sviði og vonda veiði-
manninum á gægjum til hliðar
meðan kvæðið var lesið með
dramatískum tilburðum. Að
visu ekki til að nefna í sama
orði og glæsisýninguna Æfin-
týri Hoffmanns, en grunnhugs-
unin sú sama, að hrífa áhorf-
endur með gliti og skrauti á sviði
og búningum. Og einmitt í
slíkum skrautsýningum er mað-
ur svo vel settur með allt sviðið
í fjarvidd ofan frá. Til að sjá
bróderi á búningi eða annað
smálegt má bara bregða upp
leikhúskíki, ef vill.
Að fá miða á uppselda sýn-
ingu hljómar líkt og að geta upp
á því hvað‘sé í tómum poka. í
pokanum er ekkert, en á aug-
lýstu uppseldu sýningunum i
Þjóðleikhúsnu eru oftast laus
sæti - á efri svölum. Svona geta
svörin við gátum verið viðsjál.
Víðast erlendis er jafnan troð-
fullt uppi á efstu svölum á eftir-
sóttum og uppseldum sýning-
um. Sjálf náði ég í slikan miða
(fyrir 7,50 pund) á efsta bekk á
löngu útseldri sýningu á „Hættu-
leg kynni" i Pallace leikhúsinu
í London um daginn með þvi að
mæta í von um að einhver leik-
húsgesta forfallaðist, eftir að
umboðsmaður hótelsins hafði
gefist upp á að útvega miða. Sem
betur fer, þvi með slíkum milli-
lið getur eftirsóttur miði farið í
40 pund. En þessi sýning var
svo frábærilega leikin að hvert
orð í flóknum og hárnákvæmum
samræðum barst vel upp á efsta
bekk og leikari hvarf aldrei sýn.
Svona nákvæm blæbrigði í ieik
og flutningi er aðall breskra
leikhúsa og byggir á langri hefð
og kunnáttu. Verður forvitnilegt
að sjá hvort það næst jafn vel á
sýningu á þessu sama leikriti frá
1780 (sjá mynd) í Þjóðleikhús-
inu hér síðar í vetur.
Þrátt fyrir gróskuna komast
ekki allir islenskir listamenn að
á okkar litla listamarkaði, eins
og ijóslega má sjá af þeim fjölda
ungs fólks sem er að hasla sér
völl erlendis, svo sem líka kem-
ur fram í viðtölum og fréttum
af tónleikum og sýningum ís-
lendinga erlendis. Einkum þeg-
ar þeir koma og leyfa löndum
sinum að heyra og sjá það sem
þeir eru að flytja úti í heimi. Þá
er hátíð í bæ! Og nú erum við
meira að segja orðnir veitendur
til helmslistarinnar - megnum
orðið að ala, undirbúa og kosta
til náms fólk, sem kemur fær-
andi hendi á heimsmarkaðinn?
Ekki í þeim fróma tilgangi ein-
um„að bera hróður jslands" eða
réttara sagt veita íslendingum
eitthvað til að hreykja sér af,
heldur einfaldlega til að leggja
skerf í þá deiglu sem heimslistin
er. Svo við getum hætt að vera
bara þyggjendur þeirrar sigildu
iistar, sem skapast hefur á um-
liðnum öldum, en erum að byija
leggja í púkkið líka. Ætli fari
ekki að verða óhætt að sleppa
sígildrl viðmiðun við fólksfjölda
líka.
SiÖKUN GEGN STREIiU
Leiðbeinendur:
Jóhann Ingi Gunnarsson,
sálfræóingur
Sæmundur Hafsteinsson,
sólfræðingur
Vöðvaspenna - tímaskortur - stöðug þreyta - höfuðverkir
- pirringur - svefntruflanir: Kannast þú við einkennin?
Kvöldnómskeiðin vinsælu að fara af stað aftur.
Þátttakendur koma saman eitt kvöld í viku. Kennsla í hópum
og einstaklingsráðgjöf.
Látið skrá ykkur strax hjá Heilsugarðinum í síma 656970.
O
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
WÍiMÍt
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
VINNUFLOTBÚNINGURINN
ísAcOr
Kaplahrauni 12, 220 Hafnarfirði Sími 54044
r K0MDU TIL 0KKARÞAR
SEMBÍLA VÖRUINNKA UPIN
B0RGA SIG
naust
BORGARTUNI26, SIMI622262
STEARNS ifs 580
VARAHLUTIRI
Hentar öllum sjómönnum, rjúpna-
skyttum, snjósleðafólki,
hestamönnum, verktökum
og veitustofnunum.
Tvöfalt ytra byrði á hnjám og
sitjanda.
Rennilásar á skálmum.
Uppblásanlegur höfuðpúði.
Mikið vasapláss.
Hetta sem hindrar ekki sjónsvið.
Þyngd aðeins 2,3 kg.
Fáanlegur í stærðum frá „XS“
til „XXXL“.
Viðurkenndur af Strandgæslu USA
til notkunar á heimskautasvæðum.
HÁTÍDLEG STUND
LÝSIR TILVERUNA
Ijósmynd geymiroggledur
barnamyndir (frá 2-3 mánada)
fjölskyldumyndir
brúdkaupsmyndir
tiskumyndir. . .
.. . í stúdiói eða heimahúsum.
Studio 76 gerir þínar hugmyndir
að veruleika.
Suðurlandsbraut 22 2h.
Ath. sama verð á laugardögum.
Timapantanir i sima 680676