Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 42

Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 42
42 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 nmnmn '„'Eg get e-icki munois \>ab’ Eru bbkhald- arar „v'ms-tri heili'ý' e£a„haegri heiLi"?" Boltarnir þínir eru alltaf Ég er kvölin ... of snöggfir. HÖGNI HREKKVÍSI Bréfritara Snnst tímabært að stofnað verði félag eldri borgara í Kópavogi. Stoftium félag eldri borgara í Kópavogi Kæri Velvakandi. Nú hef ég heyrt að það standi til að stofna Félag eldri borgara í Kópavogi og gladdi þetta mig mik- ið. Þetta er gert í góðri samvinnu við Félag eldri borgara í Reykjavík og hefur komið upp sú hugmynd að stofna landssamband allra félaga aldraðra sem starfa í landinu. Það hefur sýnt sig að fólk hefur mikið gagn af að vera í svona félögum og það getur meðal annars fengið afslátt í mörgum verslunum og af allskonar þjónustu. Mér finnst orðið tímabært að stofna svona félag í Kópavogi en þar fer fullorðnu fólki stöðugt fjölgandi og þetta félag yrði eins og í Reykjavík fyrir alla sem orðnir eru 60 ára. Fullorðinn Kópavogsbúi Arka niður þrjá, Mogg- anumtilaðná Velvakanda hefur borist þessi vísa frá aðila sem kýs að kalla sig „Næstum jafnaldra Mogg- ans.“ Flesta morgna ársins daga arka ég niður þijá, Mogganum til að ná. Marga morgna verða það þó Þrisvar sinnum „þijá“ Styrkir fætur, veikir fætur arka niður þijá, arka niður þijá, Mogganum til að ná. Á FÖRNUM VEGI Valur Fannar og Anna Aðalsteins- dóttir: „Svipta hann dómara- hempunni." Morgunblaðið/Svérrir A Afengiskaup opin- berra starfemanna Mikil umræða um hlunnindi opinberra starfsmanna hefiir orðið á síðustu dögum í kjölfar meintrar misnotkunar handhafa forsetavalds á heimild til kaupa á áfengi á kostnaðarverði. Við hittum Gísla Guðmundsson á fömum vegi og spurðum hann álits á málinu. „Mér fínnst rétt að háttsettum opinberum starfsmönn- um sé auðveldað þegar þeir sinna störfum í þágu hins opinbera eins og móttökum og þess háttar, en þetta mál er alveg forkastanlegt. Menn eiga ekki að misnota aðstöðu sína á þennan hátt og mál forseta hæstaréttar er vægast sagt óeðli- legt í alla staði.“ Otrúlegt „Það er ótrúlegt að menn skuli komast upp með svona lagað," sagði Ásrún Vilbergsdóttir. „Ann- ars er ágætt að þetta mál skuli hafa komist upp, því það er a.m.k. til vamaðar. Svona hlutir verða til þess að ríkistekjur minnka, og al- menningur greiðir brúsann. Fólk í svona háum embættum ætti að sjá sóma sinn í að misnota ekki aðstöðu sína á þennan hátt.“ Ætli við yrðum ekki rekin ? „Nú, það á auðvitað að svipta Morgunblaðið/Sverrir Ásrún Vilbergsdóttir: „Til varn- aðar.“ manninn dómarahempunni!" sagði Valur Fannar, sem við hittum í Austurstræti ásamt Önnu Aðal- steinsdóttur. „Það segir sig sjálft að það er ekki eðlilegt að menn kaupi svona mikið magn án þess að hafa í raun ástæðu til þess,“ Víkverji skrifar Víkveiji kom fyrir nokkru á vinnustað þar sem útvarp var hátt stillt, starfsfólkið hlustaði af athygli og virtist hafa þó nokkra skemmtan af. Víkveiji lagði við hlustir og heyrði að hér var á ferð grinþáttur, sem honum virtist að mestu byggður á bjöguðu málfari og rangri málnotkun. Málshættir voru „stílfærðir" og rangt farið með orðtök. Vafalaust var hér verið að skopast að ambögunum, eða þeim, sem láta þær sér um munn fara, en hræddur er Víkveiji um að það komist illa til skila. Þvert á móti fínnist mörg- um þetta sniðugt — og fari að hafa það eftir. Víkveiji fékk þetta einmitt stað- fest í liðinni viku. Móðir 12 ára stúlku sagði honum að dóttir henn- ar afskræmdi iðulega kunn orðatil- tæki í tilsvörum. Fyrst hélt hún að telpa væri að gantast með þessu, en komst svo að því að hún hafði ekki hugmynd um hvemig orðatil- tækin eru rétt. Aðspurð hvaðan hún hefði þetta málfar vitnaði hún í fyrrnefndan útvarpsþátt. Það getur verið varhugavert að vera skemmti- legur á kostnað tungunnar. Þar má tilgangurinn ekki helga meðalið. XXX * Arátta manna að apa hver eftir öðrum er mikil — og á það ekki síst við um tungutak. Víkverji hlustaði eitt sinn á símaviðtalsþátt í útvarpi þar sem einn viðmælandi stjómanda sagði „ókei“ í tíma og ótíma. Og nær allir þeir sem á eft- ir komu „ókei-uðu“ í sífellu. Ef til vill finnst einhveijum þetta óþarfa nöldur, íslenskan sé það rót- gróið mál að hún eigi auðvelt með að standa af sér öll erlend áhrif og misnotkun af ásettu ráði. Vonandi að svo sé, en samt er rétt að vera vel á verði og bjóða ekki hættunni heim að ástæðulausu. XXX að fór aldrei svo að íslending- ar, sem dvöldu í Tælandi um tíma í. haust, fengju. ekki fréttir að heiman í þarlendu blaði. Við þeim blasti á einni erlendu fréttasíðunni í „Bangkok Post": „Reykjavík hafn- ar hundum." í fréttinni var skýrt frá því að í allsheijaratkvæða- greiðslu um hundahald þar í borg hefði mikill meirihluti (tilgreindur í prósentum) lýst sig andvígan því. Síðan eru tíunduð þau ummæli borgarstjóra að borgarstjórnin gæti ekki vikið sér undan að taka tillit til þess meirihlutavilja, sem þar kom fram. Síðar var í sama blaði önnur frétt frá íslandi. Skýrt var frá orðsend- ingu Jóns Baldvins til utanríkisráð- herra Bandaríkjanna varðandi hvalamálið. Oft hefur viljað brenna við að fijálslega hafi verið farið með sann- leikann i fréttum frá íslandi í er- lendum blöðum, en svo var ekki að þessu sinni, frá öllu var rétt skýrt. Fréttamatið speglar aftur á móti hvað þarlendum þykir áhugaverðast og í frásögur færandi frá eyjunni lengst norður í höfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.