Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTT1R SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
C 45
GOLF
Gífurleg aukning á
einuári — eneruvell-
irnir að yfirfyllast?
FJÖLGUNIN f golfklúbbunum á Reykjavíkursvæðinu á þessu ári er slík, að henni má helzt líkja
við sprengingu. Fyrir utan þann fjölda sem hefur komið á golfvellina og kannski gripið í fþróttina
endrum og sinnum, hafa á f immta hundrað nýir félagar bæzt í hópinn á höf uðborgarsvæðinu,
þ.e. hjá Golfklúbbi Reykjavfkur, Keili í Hafnarfirði og hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. Þár
hef ur aukningin orðið hlutfallslega mest: 142 félagar voru þar í ársbyrjun, en 87 bættust við f
sumar, svo Kjölur telur 229 félaga núna. Þess ber að gæta að Hlíðarvöllur í Mosf ellsbæ er ennþá
aðeins 9 holu völlur. Með sama áframhaldi, gæti orðið fullskipað þar á næsta ári. Hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur í Graf arholti hef ur fjölgað um það bil úr 700 í 1000 og væri sú aukning ekki fær, ef
GR hefði ekki aðstöðu á Korpúlfsstöðum einnig, þar sem er að vísu fremur f rumstæður æfinga-
völlur, en gagnast að minnsta kosti byrjendum ágætlega, svo og þeim sem eru f golfi einkum sér
til hressingar. Hjá Keili í Hafnarfiði hefur orðið fjölgun úr 307 í 331, en þar fyrir utan kom tals-
verður hópur í haust og bætist hann væntanlega við fólagatalið á næsta ári. Hvaleyrarvöllurinn er
18 holur og þvf telst ekki þröngt setinn bekkurinn þar ennþá. Talið er fullskipað á miðlungstórum
18 holu velli, þegar félagatalan er komin í 600. Þess ber þó að gæta, að íslenzkir kylfingar virð-
ast vera mun virkari og fara oftar í golf í viku hverri yfir sumartímann en gerist almennt í ná-
grannalöndunum.
Menn hafa reynt að velta fyrir
sér ástæðum fyrir þessari
skyndilegu ásókn í golfíð. Þar á
ugglaust hlut að máli áróður fyrir
útivist og hreyfíngu
og ekki ér ólíklegt
að ágætir golfþættir
á Stöð 2 sfðastliðinn
vetur og framá sum-
ar hafí ýtt undir
marga og vakið
blundandi áhuga.
Þeir hafa séð sem
er, að þarna er
ákjósanleg íþrótt,
jafnt fyrir unga sem gamla og hef-
ur í för með sér útivist, hreyfingu,
félagsskap og skemmtun.
Meinið er, að með áframhaldandi
aukningu sem raunhæft er að gera
ráð fyrir, stefnir f neyðarástand á
þeim völlum, sem fyrir eru. Einkum
er það í Reykjavík, sem skórinn er
farinn að kreppa að. í Nesklúbbnum
eru 300 félagar, hann rúmar ekki
meira, er lokaður og ekki bætt við
félögum, nema einhverjir hætti sem
fyrir voru. Annar 18 holu völlur
hefði þurft að vera tilbúinn núna
til að taka við aukningu næstu ára,
en þvf miður er ekki að sjá, að
nein endurbót verði þar næsta ára-
tuginn. Menn hafa lengi horft á
stórkostlegt og nærtækt golfvallar-
land fyrir 9 holu völl á Keldnatún-
inu, sem einungis er nýtt til hey-
skapar, Ifklega handa hrossum.
Þótt borgin hafí gefið fyrirheit um
land undir 18 holu völl á ösku-
haugasvæðinu við Gufunes, er þess
að gæta, að það verður að öllum
Ifkindum ekki afhent með jarðvegi
fyrr en 1992 og má þá augljóst
vera, að þar verður ekki nothæfur
golfvöllur fyrr en um aldamót. Hér
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Sigurðsson
skrifar
hafa einhveijir sofið á verðinum,
en afsökun er það þó, að aukning-
una á þessu ári sá enginn fyrir.
Ánægjuleg aukning
Sú aukning er ánægjuleg. En
ánægjan getur orðið blendin fyrir
þá sem eldri og reyndari eru í fþrótt-
inni, þegar búið er að taka alltof
marga byijendur á völlinn - og því
miður virðast þeir sjaldnast fá leið-
sögn f siðareglum. Meðal annars
vegna þess hve áskipað er í Grafar-
holti, hefur staumurinn ekki sízt
legið upp f Mosfellsbæ, þar sem
bæjarfeður hafa sýnt meiri stórhug
og framsýni en dæmi eru um ann-
arsstaðar frá, með því að láta gull-
fallega landspildu næst sundunum
undir völlinn. Að sjálfsögðu hefði
verið fýsilegt byggingarland þarna;
jafnvel freistandi að róta þar öllu
upp vegna nærtækrar malartekju.
En það hefur ekki hvarflað að þeim,
sem ráða málum í Mosfellsbæ.
Þarna er að sjálfsögðu útivistar-
svæði, öllum opið, og alger náttúru-
paradís með órofnu útsýni yfír Fló-
ann og sundin. Það eitt skyggir á,
að hér er aðeins landrými fyrir 9
holu völl, sem er frábærlega iagður
í landið, spennandi golfvöllur með
hæðum, giljum og vatni á einum
stað. Tiltölulega fámennur golf-
klúbbur hefur á skömmum tíma
unnið stórvirki, ekki aðeins á vellin-
um, heldur einnig f frágangi utan
brauta og skógrækt.
Nú hafa þeir Kjalarmenn áform
um viðbótarland fyrir 9 holu völl
út með ströndinni. Það er f landi
Blikastaða; er f einkaeign og verður
án efa mjög dýrt. Þótt samningar
tækjust, er bjöminn aðeins að hálfu
unninn. Eftir stendur að landið er
óræktað og kallar á kostnaðarsam-
ar framkvæmdir. En takist þetta
er margt sem bendir til, að Hlíðar-
völlur í Mosfellsbæ verði framúr-
skarandi golfvöllur sem bæjarfélag-
ið getur verið stolt af.
Nesklúbburinn á ekki margra
kosta völ til stækkunar á vellinum,
en hefur þó fengið vilyrði fyrir við-
bótarlandi, þar sem til þessa voru
kartöflugarðar og fisktrönur. Þetta
svæði nær að tjöminni og gæti rúm-
að æfíngasvæði og kannskj 3 holur
til viðbótar, en hefur ekki úrslita-
áhrif á hugsanlega fjölgun í klúbb-
num.
Hvaleyrin er komin inná skipulag
sem golfvöllur í Hafíiarfirði og er
óhætt að segja, að skilningsríkara
viðhorf hafí ríkt í bæjarstjóm Hafn-
arfjarðar gagnvart þessu íþrótta-
mannvirki nú á sfðustu árum.Á
tvítugsaftnæli klúbbsins í fyrra, var
Keili veitt viðbótarland uppi í Hval-
eyrarholtinu undir golfskála, sem
sárlega vantar, svo og grýtt land-
svæði við Sædýrasafnið sáluga, þar
sem nú er verið að aka í mold og
er ætlunin að verði æfingasvæði.
Skálabygging uppi í holtinu mun
einnig kalla á skipulagsbeytingu á
vellinum, venjan er a.m.k. sú að
hægt sé að hefja leik og enda sem
næst skálanum.
Það er gleðiefni að geta sagt frá
því, að Oddfellowreglan hefur látið
teikna golfvöll í Urriðakotslandi,
sem reglan á og er hjá Urriðavatni
milli Hafnaifyarðar og Garðabæjar.
Svæðið blasir við þegar farinn er
svoneftidur Flóttamannavegur frá
Vffilstöðum til Hafnarfjarðar. Þetta
glæsilega framtak Oddfellowregl-
unnar ætti að geta orðið til að
bæta úr því vandræðaástandi, sem
óneitanlega er komið upp nú þegar
f Reykjavík.
Hlutfallslega varð mest aukning hjá golfklúbbnum í Mosfellsbæ.
til Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Gunnar S. Guðmundsson
Myndin er tekin við skálann þar og sést út á sundin og
Morgunblaðið/Gunnar S. Guðmundsson
Það er daamt um óvenjulegan skilning og framsýni, að Mosfellsbær lét fal-
lega spildu meðfram sundunum undir 9 hoiu golfvöll. Hluti hans sést á þess-
ari loftmynd og Mosfellsbær í baksýn.
Urriðakotsvöllur verður sam-
kvæmt teikningu Hannesar Þor-
steinssonar 18 holur, 6.400 metra
langur og þarmeð lengstur golfvaila
á Islandi. Að auki verður þama
smávöllur með 9 par-3 holum, stórt
æfíngasvæði og að sjálfsögðu golf-
skáli. Framkvæmdir eru hafnar að
einhveiju leyti, þar á meðal um-
fangsmikil skógrækt , en ætlunin
er að næsta vor verði sáð f brautir
og byrjað að ganga frá flötum, svo
líklegt er nú talið, að hægt verði
að leika golf á þessum velli að ein-
hveiju leyti eftir rúm tvö ár, eða
sumarið 1991. Ætlunin er, að þarna
verði stofnaður golfklúbbur, sem
verður öllum opinn.
GoHklúbbur án vallar
Golfklúbbur var stofnaður í
Garðabæ fyrir rúmum þremur árum
og hefur hann þá sérstöðu að vera
einasti golfklúbbur landsins, sem
engan hefur golfvöllinn. Stofnendur
þessa félags höfðu augastað á lftt
nýttum eða alveg ónotuðum túnum
við Vífilstaði, sem ákveðið hefur
verið að verði opið útivistarsvæði.
Að vfsu er ekki fjölbreytt landslag
þama, en teikning af golfvelli ligg-
ur fyrir og í ljósi mikillar flölgunar
f golfinu, veitir ekki af honum.
Rætt var um, að Golfklúbbur
Garðabæjar stæði að þessu f félagi
við fólk úr heilbrigðisstéttum. Málið
hefur staðið fast og strandað fyrir
þvergirðing einhverra í heilbrigði-
skerfinu og hvorki hafa heilbrigðis-
ráðherra né bæjarstjóm Garðabæj-
ar borið gæfu til að höggva á þann
hnút.
Kylfingar á Reykjavíkursvæðinu
eiga að vísu í önnur hús að venda
þegar allt um þrýtur. Hægt er að
fara suður í Leiru og enginn er
svikinn af Hólmsvelli, sem telst nú
einn af þremur mestu og beztu
golfvöllum landsins ásamt Grafar-
holtsvelli og Jaðarsvelli á Akureyri.
Glæsilegur nýr golfskáli og stórvel
byggður golfvöllur gerðu m.a.
mögulegt, að þar var haldið Norður-
landamót í golfi á síðastliðnu sumri.
Á Hólmsvelli er auk þess bezta
æfingasvæði á öllu landinu. Erlend-
is þætti ekki tiltökumál, þótt aka
þyrfti í hálftíma til að komast á
góðan golfvöll. Örlítið lefigra er að
skreppa til Grindavíkur, en þar hef-
ur verið lagður tilbreytingarríkur
og skemmtilegur 9 holu völlur með
einhveijum beztu flötum á voru
landi.
Flolrl velllr
Með því að bregða undir sig betri
löppinni og halda austur yfir Fjall,
er hægt að leika á hinum nýja 9
holu golfvelli Selfyssinga á Ölfusár-
bökkum. Þar hefur verið unnið stór-
virki á skömmum tfma og völlurinn
verður betri með hveiju árinu. Auk
þess er búið að fá viðbótarland og
teikna seinni 9 holumar. Strandar-
völlur í Rangárþingi er einnig stór-
virki fárra manna; eiginlega óskilj-
anlegt afrek. Með smávægilegum
endurbótum og lengingum er hann
kominn I flokk alvöru golfvalla, þar
sem hægt er að halda meiri háttar
mót.
Annar kostur og mun nær höfuð-
borginni, sem brátt verður að veru-
leika, er golfvöllur í Hveragerði.
Þar var golfvöllur og klúbbur hér
fyrr meir, sem iognaðist útaf, þegar
hann missti landið, en hefur nú
verið endurreistur og golfvöllur hef-
ur verið teiknaður I landi Gufudals,
ofan við Hveragerði, mestanpart á
ræktuðu landi og golfskáli getur
orðið í einu af þeim húsum, sem á
staðnum eru.
Á Akranesi er 9 hoiu völlur, en
félagar þar hafa augastað á land-
spildu í áttina að Akrafjalli og teikn-
ing liggur fyrir af 9 holum til við-
bótar á þeirri spildu. Þessari umleit-
an hefur verið tekið með velvild í
bæjarstjóm Akraness og má búast
við að framkvæmdir hefjist áður
en langt um líður. Viðbót er einnig
fyrirhuguð hjá Golfklúbbi Akur-
eyrar. Sunnan við hinn nýrri hluta
vallarins hefur klúbburinn yfirráð
yfir tilbreytingarríku og áhuga-
verðu landi fyrir 9 holu völl til við-
bótar við 18 holu völlinn, sem kylf-
ingar þekkja. Óhætt er að segja,
að reksturinn hjá golfklúbbi Akur-
eyrar hafi verið með óvenjulegum
glæsibrag. í fyrravetur var unnið
stórvirki í golfskála félagsins eftir
bruna, sem þar varð, og jafnframt
byggð glæsileg vélageymsla og
verkstæði. Akureyri getur sannar-
lega verið stolt af golfklúbbnum þar
og vellinum á Jaðri. Á öðrum stöð-
um þekki ég ekki nóg til mála, en
bendi á í lokin, að eftirminnilegt
er að leika á golfvelli Sauðárkróks;
ekki sízt fyrir flatir, sem teljast að
minnsta kosti mjög góðar á íslenzk-
an mælikvarða. Einnig þar hefur
fámennt félag unnið stórvirki.
Af þessari upptalningu má sjá,
að ýmislegt er að gerast, sem ætti
að gleðja kylfinga og ýta undir
ennþá frekari þátttöku í golfíþrótt-
inni. Smám saman síast það innúr
höfuðskelinni á bæjar- og sveitar-
stjómarmönnum, að sú almenn-
ingsíþrótt sem mest vex á vorum
dögum, þarf að fá boðlega aðstöðu.
Og með því að hafa þar um leið
opin útivistarsvæði eins og tíðkast
á almenningsvöllum í Bretlandi, eru
slegnar tvær flugur í einu höggi
og öllu fremur þó þijár, því þar sem
lagður er golfvöllur, fer einnig fram
náttúmvernd.