Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 48
48 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 vJ* Skíðaferð er ævintýri! OgSalzbun er omotstæðlleg. Vikuverðfrákr. 19*900 Vetrarfrí í austurrísku Ölpunum, á skíðum í heimsins bestu brekkum...það er sannarlega engu líkt! í hinum dýrlegu fjallabæjum er Ioftið tært og heilnæmt og þar muntu kynnast heillandi <>.• stemningu sem líður þér seint úr minni. Mayrhofen, Zell am See og Kitzbiihel eru staðirnir þrír sem Flugleiðir bjóða ferðir til. Beint áætlunar- flug er vikulega til Salzburg. Að kynnast Salzburg er öllum minnisstætt, borgin er fádæma falleg og notaleg. Tónlistin svífur yfir vötnum, þú finnur aðlaðandi kaffihús og freistandi veitingastaði. Viðkoma í Salzburg er sjálfsögð ef þú vilt krydda ferðalagið á skemmtilegan hátt. * Miðað er við staðgreiðsluverð og fjóra saman í íbúð á Landhaus Heim. Brottför: 17/12, 24/12, 31/12, 7/1, 14/1 og 21/1. Allar nánari upplýsingar færðu á sölu- skrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100. FLUGLEIÐIR FERDASKRIFSTOFAN ÚRVAL - fólk sem kann sitl fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900 LAND OG SAGA HF. - SAGALAND TRAVEL LAUFÁSVEGUR 2 * 101 REYKJAVÍK- SÍML 27144 <TTC<TMTM< Hallveigarstíg 1, Sími: 28388 FERÐASKRIFSTOFA FÍB DOPGAPIUNI 33 tOS RVK SIMAP 29997 & 622970 FERÐASKRIFSTÖFAN POLARIS Kirkjutorgi4 Sími622 011 arandi VESTURGÖTU 5 • REYKJAVÍK • SÍMI 622420 FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐAlSTR/fTI 16 101 REYKJAVÍK SÍMI 621490 Til heiðurs afruglara heimilisins Mlkið má maður vera þakk- látur fyrlr að hafa klofið það á sínum tíma að eignast myndlykil. Ef ég má segja mitt álit, þá held ég að þau ósköp sem spýtast framan í mann gegnum afrugla- rann sé áhrifa- mesta aðför að íslensku heila- búi sem reynd hefur verið. Þess ber að geta að afruglar- inn er sterkt tæki. Minn er margbúinn að detta i gólfið með braki og brestum og háum dynkjum, meira að segja hefur hann dottið útum glugga, og ef eitthvað er þá verður hann betri við hvert högg. Þannig að hvað slitþol og endingargæði varðar er enginn svikinn sem ákveður að slá til og kaupa sér afruglara. Sálin í honum og lnnrætið er svo annar hand- leggur; það má líkja honum við heilsuhraust rakkapakk. Sumsé, burtséð frá hvað þetta er sterkt tæki, þá er með ólík- indum hvað þetta litla tól getur gengið fram af manni. Truflað, skapraunað og móðgað mann, æ ofan í æ. Mér er enn í fersku minni bíómyndin sem subbað- ist útúr tólinu á nýársnótt og þá lá nú svo beint við að kveikja á afruglaranum til þess að geta hangið vakandi þessa heilögu ■ nótt og ég segi það hér og nú, það er hægara sagt en gert að slökkva á tækinu úr því það er komið í gang. En að tæpu ári síðar skuli maður skammast sín fyrir að lofa unglingum og eldra fólki að njóta afruglarans með manni, að leyfa sér að skjóta skjólshúsi yfir fólk til þess að horfa á annað eins drasl og birtist gegnum rugla- rann eitt helgarkvöldið, það er fjandi hart. Enda stóðu ungl- ingsgreyin upp áður en yfir lauk og sögðu: Þetta er búið að vera alveg meiriháttar leiðin- legt, maður er orðinn þroska- heftur eftir kvöldið. Þá var liðið búið að sitja yfir fegurðarsam- keppni í tvo klukkutíma. Og þegar unglingar sitja glottandi með hæðnisglósur yfir beinni útsendingu á fegurðarkeppni þá veit ég ekki hveijir hafa gagn eða gaman af þessu. En ekki tók betra við. Ekki aldeilis verið að sleikja fýluna úr fólki ef það hélst ekki við yfir fegurðarkeppninni. Næsta atriði var bíómynd í þessum dúr: Nokkrar djarfar stúlkur ákveða að halda sundlaugar- boð. Þær bjóða nokkrum roskn- um kaupsýslumönnum og fer þá ýmislegt öðruvísi en ætlað er og fjör að færast í leikinn. Með aðalhlutverk i þessari skemmtilegu mynd fara fjöl- margar stúlkur sem prýtt hafa miðopnu hins virta tímarits Playboy. Þegar sýningu þessar- ar dirfskufullu myndar, eins og stendur í sýningarskrá, lauk var hlaupln illska í liðið. Önnur eins pest í myndlíki kæmist ekki með aðra löppina inn nokkursstaðar í heiminum, nema ef vera skyldi í stofur íslenskra myndlyklaeigenda. Það sem þó tók við verður ekki eytt orðum i: hundurinn fékk ekki einu sinni að horfa á það, hann hefði fengið kúltúráfall, orðið klámfenginn og ofbeldis- hneigður. Lauk svo þessu hryllilega ómenningarkvöldi, allir stóðu upp dáldið verri manneskjur, búnir að fá nóg af svívirðilegri aðför að litlu heilabúunum í bili. Verst hvað afruglarinn er vandað tæki. eftir Sigríði Holldórsdóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.