Morgunblaðið - 13.01.1989, Side 4

Morgunblaðið - 13.01.1989, Side 4
4 MORGUNBIAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 Fulltrúar ríkis og BSRB efiia til vinnufunda ÞRÍR ráðherrar, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, J6n Sigurðsson viðskiptaráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra áttu könnunarviðræður við forystumenn BSRB í gær fyrir komandi kjarabaráttu. Ráðherrarnir ræddu þær efnahagsráðstafan- ir, sem rikisstjórnin hyggst grípa til á næstu vikum og BSRB-menn reifuðu sínar hugmyndir. Ákveðið var að stofina til frekari funda í næstu viku og verður næsti vinnufundur þessara aðila væntanlega haldinn nk. þriðjudag. „Við fórum vítt og breytt yfir efnahagssviðið á fundinum í gær. Ráðherramir kjmntu okkur þann vanda, sem ríkisstjómin stendur nú frammi fyrir og við kynntum þeim þann vanda, sem við teljum að launamenn standi frammi fyrir. Fyrst og fremst var verið að afla upplýsinga og miðla upplýsingum. Við lögðum áherslu á að við höfnuð- um frekari kjaraskerðingu, heldur vildum við sækja fram til bættra lífskjara," sagði Ögmundur Jónas- son í samtali við Morgunblaðið í gær. Samningsréttur BSRB-manna er hjá einstökum aðildarfélögum bandalagsins. Forystu bandalagsins var eingöngu falið að kanna hvað væri á döfínni hjá stjómvöldum og í ljósi þess sem þar kemur fram, munu einstök aðildarfélög móta sína stefnu og þá taka afstöðu til þess hversu náið samstarf þau munu hafa í komandi kjarabaráttu, að sögn Ögmundar. „Við lögðum á það ríka áherslu á að það sé ýmislegt sem máli skipti þegar rætt er um lífskjör. Við þyrftum að sjálfsögðu hærri kauptaxta, en við myndum að sjálf- sögðu fylgjast með öðmm málum í leiðinni og í því sambandi var sér- staklega minnst á vaxtamálin. Ég varaði eindregið við vaxtahækkun, þvert á móti þyrfti að lækka þá. Ég tel að raunvextir í landinu hafí verið allt of háir allt of lengi. Það kom greinilega fram hjá ráðherrun- um að ríkisstjómin hefur áhyggjur af peningamálunum í landinu," sagði Ögmundur. Formaðurinn sagði að ekki hefði verið farið mjög náið inn á neitt einstakt svið. Þetta hefði ekki verið samningafundur á neinn hátt heldur könnunarviðræður eingöngu. BSRB hefur ekki mótað sér stefnu gagn- vart Atvinnutryggingasjóði eða ákveðið hvort lífeyrissjóður samtak- anna muni taka þátt í skuldbreyt- ingum með milligöngu sjóðsins, að sögn Ögmundar. „Persónulega tel ég þó að með tilkomu Atvinnu- tryggingasjóðs séu menn famir að feta sig inn á rétta braut, að taka á vanda einstakra fyrirtækja og hverfa frá hrossalækningastefn- unni, sem fólst í gengisfellingum. Sú leið er einfaldlega of dýr og felur í sér kjaraskerðingu fyrir al- menning," sagði formaður BSRB að lokum. VEÐUR / / / , / / / / / ////// / ' /DAG kl 12.Q0:, , , / Heimild: Veðurstofa islands /////// / (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer) VEÐURHORFUR í DAG, 13. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Yfir Grænlandshafi er kyrrstaða 958 mb lægð sem grynnist. Um 1.700 km suðvestur af Vestmannaeyjum er vaxandi 975 mb lægð, sem hreyfist allhratt norðaustur. Hiti breytist lítið f fyrstu en þegar líöur ó nóttina fer að hlýna, fyrst sunnanlands. SPÁ: Á morgun Iftur út fyrir austan-átt á landinu allt að 11—12 vindstigum á Suðaustur-landi en hægari f öðrum landhlutum. Rign- ing verður ó Suðaustur-landi slydda eða snjókoma ó Norðaustur- og Austur-landi og vestan með Suður-ströndinni en er þurrt að mestu annarstaðar. Heldur hlýnandi veður í bili, einkum um landið austan-vert. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG: Norðan- og norðvestan-átt og frost um allt land. Él á Noröur og Norðaustur-landi en annars þurrt. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestan-átt og fremur kalt. Él á Suður og Vestur-landi en annars þurrt. Lóttskýjað á Norðaustur og Aust- s. Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■|0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El ~ Þoka = Þokumóða ’, ’ Suld OO Mistur —j- Skafrenningur jl^ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma httl vsAur Akursyri +1 léttskýjað Reykjavlk +2.4 enjóél Bargen 6.8 tkúr Helelnkl 2 rignlng Kaupmannah. 4 þokumóða Nareaareeuaq +16 skýjað Nuuk +14T tkýjað loisridi. 6 skýjað Stokkhólmur 3 skýjað Þórehöfn 4 skýjað Algarve 16 skýjað Amaterrfam 7 þokumóða Barcolona 13 mlstur Bariln 4 þokumóða Chlcago +0.6 léttskýjað Feneyjar 6 þokaruðnlngur Frankfurt 4 þokumóða Glaegow 6 ekúr Hamborg 6 léttskýjað Lat Palmat 17 lóttskýjað London 9 rignlng Loe Angelee 8 helðsklrt Lúxemborg 6 ekýjað Madríd 8 mietur Malaga 18 mistur Mallorca 17 léttekýjað Montreal +12 skýjað New York 4 alekýjað Oriando 16 þoka 'París 8 alskýjað Róm 12 þokumóða San Diego 10 heiðtkirt Vln 0.7 þokumóða Washlngton 3 rignlng Wlnnlpeg +17 altkýjað Morgunblaðið/Sverrir Frá fundi forsvarsmanna BSRB og þriggja ráðherra í gær. Frá vinstri eru Haraldur Hannesson varaformaður BSRB, Bjöm Arnórs- son hagfræðingur BSRB, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson Qármálaráðherra. Brunatryggingar húsa í Reykjavík: Bent var á að bæta endurtryggingar Borgarráð ákvað óbreytt fyrirkomulag VTO ÚTBOÐ vegna enduraýjunar endurtryggingasamninga Húsa- trygginga Reykjavíkur, á síðasta ári, skrifaði framkvæmdastjóri íslenskrar endurtryggingar h/f, Bjarai Þórðarson, borgarráði bréf og lagði til að gerðar yrðu breytingar á endurtryggingavemd Húsa- trygginga Reykjavíkur. Hann taldi þessa verad ónóga, með tilliti til þess ef til stórbruna kæmi eða óvenju mörg og dýr brunatjón yrðu sama árið. Fyrirtækið tók þó ekki þátt í útboðinu. Við afgreiðsiu málsins í borgarráði var samþykkt að endurnýja fimm ára samning við Almennar tryggingar um endurtryggingar húsa í Reykjavík. Jón G. Tomasson borgarritari staðfesti að þessar athugasemdir hefðu borist og að loknum umræð- um hefði verið samþykkt að end- umýja fyrri samning við Almennar tryggingar enda hefði aldrei orðið .nálægt þvj jaftvstórt brunatjón í Reýkjavík og varð á Réttarhálsi í síðustu viku. Borgarritari sagði að endurtryggingar húsnæðis í borg- inni væm tvíþættar. Annars vegar væri samningur, sem miðaðist við að þegar heildarbmnatjón í borg- inni næðu l,05%o(prómill) af trygg- ingarverðmæti tæki endurtrygging við og bæri ábyrgð á sjöföldu þessu lágmarki. Endurtryggingar tækju samkvæmt því við þegar heildartjón næðu 330 milljónum króna og bæm skaða upp að um 2,6 milljörðum. Þegar því marki væri náð, bæm Húsatryggingar Reykjavíkur ábyrgð að nýju. „Það hefur aldrei fyrr hillt undir það að á þennan samning reyni," sagði Jón G. Tóm- asson. Hann sagði að annar endur- tryggingasamningur gilti vegna einstakra bmnatjóna. Hann miðist við að Húsatryggingar bæti fyrstu 25 milljónir í einstökum brana, þá taki endurtryggjandi við og bæti næstu 150 milljónir. Þar fyrir ofan reyni aftur á Húsatryggingar Reykjavíkur, allt þar til fyrrgreindu samningsmarki um 330 milljóna heildarbmnatjón sé náð. Þetta er talið að muni gerast í fyrsta skipti í 34 ára sögu Húsa- trygginga Reykajvíkur í framhaldi af Réttarhálsbrananum en Jón G. Tomasson sagði þó of snemmt að fullyrða um það enn sem komið væri. Hann sagði að í athugasemd- unum hefði verið bent á að á und- anfömum áram hefðu risið í borg- inni fasteignir, sem þættu svo verð- mætar að einn bmni gæti kippt stoðum undan heildarendurtrvgg- ingavemd^í borginni þad árið. I því sambandimefndi Jón að branabóta- mat Kringlunnar einnar nálgaðist fyrrgreint heildarharhark endur- trygginga. Aðspurður hvaða áhrif Réttar- hálsbraninn mundi hafa fyrir Húsa- tryggingar Reykjavíkur sagði Jón að ljóst væri að Húsatryggingar myndu þurfa framlög frá Borgar- sjóði á næsta ári. Iðgjaldatekjur á þessu ári væra áætlaðar 98,4 millj- ónir króna og, þótt uppgjör síðasta árs lægi ekki fyrir, væri reiknað með að til væra um 60 milljónir í sjóðum stofnunarinnar. Hann sagði að nú væri verið að skoða breytingu á endurtryggingavemdinni. Einnig ynni nú Branamálastofnun og borg- in að athugun á hvemig bæta mætti eftirlit með branavömum. Jón G. Tómasson sagðist vilja benda á, að þótt Húsatryggingar Reykajvík yiðu nú fyrir áfalli, hefði þetta fyrirkomulag skilað borgarbú- um veralegum ávinningi á liðnum áram. „Borgarbúar hafa notið þessa í lágum iðgjöldum og í því að Húsa- tryggingar Reykjavíkur hafa tekið veralegan þátt í því að efla brana- vamir í borginni. Til dæmis hefur rekstrarafgangi verið varið til að bæta tæki og búnað slökkviliðs og einnig hefur veirð lagt fram fé til reksturs þess,“ sagði Jón G. Tómas- son borgarritari. Sendiráð Sovétríkjanna; Leyfi fyrir nýj- um móttökudiski Bygginganefnd Reykjavíkur hefiir veitt skrifstofú viðskipta- fúlltrúa Sovétríkjanna leyfi til að setja móttökudisk fyrir gervihnattaútsendingar á svalir hússins að Túngötu 24. Fyrir nokkram áram var settur upp móttökudiskur á svölum húss sendiherra Sovétríkjanna á homi Túngötu og Hólavallagötu. Stað- setning hans olli deilum, þar sem hann þótti of áberandi, og ekki var veitt leyfí fyrir honum. Sam- kvæmt upplýsingum Gunngeirs Péturssonar, skrifstofustjóra byggingafulltrúans í Reykjavík, hefur ekki enn verið veitt leyfi fyrir þeim skermi, en hann er engu að síður enn á svölunum. Gunn- geir segir það mál vera í höndum utanríkisráðuneytisins. Hins vegar hafí leyfí fyrir skermi á svölum hússins að Túngötu 24 verið veitt þar sem lítið beri á skerminum þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.