Morgunblaðið - 13.01.1989, Side 14

Morgunblaðið - 13.01.1989, Side 14
1 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 14 Minning: Þorgeir Jónsson bóndif Gufúnesi Fæddur 7. desember 1903 Dáinn 5. janúar 1989 í dag verður Þorgeir Jónsson bóndi í Gufunesi jarðsunginn ffá Langholtskirkju, og greftraður í Lágafellskirlq'ugarði. Eg kynntist Þorgeiri ekki fyrr en hann var kominn á efri ár og aldrei mikið. Hins vegar eru mér þessi kynni einkar minnisstæð. Ég kynntist fyrst dóttursyni hans og nafna og síðan gamla Geira, eins og hann var gjaman kallaður í hópi okkar þeirra sem kynntumst honum fyrir tilstilli Þorgeirs Örlygssonar, til aðgreiningar nöfnunum. Mér þótti merkilegt að komast að raun um að innan borgarmarkanna var bóndi á við Þorgeir Jónsson. Ekki vegna þess að ég vissi ekki að til væru bændur í Reykjavík, heldur hins að sá gamli virtist svo gjörsam- lega ósnortinn af borgarlífinu sem þó var rétt við bæjardyr hans að eins hefði hann getað hafa búið ævi sína fjarri öllu þéttbýli. Búskap- urinn átti hug hans allan, einkum hestar svo sem landsfrægt er. Sveitamanni eins og mér þótti sér- stök reynsla að komast í kynni við þennan Reykjavíkurbónda og eiga nokkrar eftirminnilegar stundir í Gufunesi bæði við heyskap og skepnuhirðingu. Auk þess að vera merkilegur bóndi var Þorgeir sérstæður og margbrotinn maður, harðjaxl og bam í senn. Skemmtilegur og hlýr en með erfiða lund og uppstökkur. Ógleymanlegt er þegar hann eitt sinn við heyhirðingu reiddist við nafna sinn út af einhverju sem okk- ur þóttu smámunir og ég búinn að gleyma, tók einu dráttarvélina sem í notkun var og ók heim á bæ til að jafna sig. Við stóðum nánast verklausir í flekknum á meðan. Eftir nokkra stund kom blessaður akandi aftur, þá búinn að jafna sig og skein eins og sól í heiði. Þegar eitthvað þurfti að skreppa í bíl, þótt stutt væri, fór hann gjam- an að syngja og þá yfirleitt Hvað er svo gíatt, og víst er, að í þau fáu skipti sem skoðað varð, var sýnilegt að karlinn gamall naut ómældrar kvenhylli. Hrossin bar að nálgast með hlýju fasi og hafa með brauð handa þeim, því að þau áttu alltaf að hlakka til þess að sjá manninn í næsta sinn. Það duldist engum sem á horfði að þar voru skepnur sem stóðu hjarta gamla Geira næst. Enda munu fá hross jafn auðveld í umgengni og hrekkjalaus og þau sem hann hefur fóstrað, þótt þau geri stundum frek- lega kröfu til brauðsins, en þrekið virðist líka óbilandi. Nú hafa hrossin í Gufunesi misst eiganda sinn og einkavin, böm föð- ur, afa og langafa og tengdaböm tengdaföður. Reykjavík sér nú á bak þekktasta og merkasta bónda sínum og er stórum fátækari fyrir vikið. Þeim sem mest hafa misst skal vottuð sérstök samúð, en allir þeir sem þekktu Þorgeir í Gufunesi sakna vinar í stað. Friðgeir Björnsson Viku af viku, nótt og napran dag dauðans engill söng þitt vöggulag; söng og skenkti sárra kvala vin, söng og spann þitt hvíta dáins Iín. Loks kom heilög hönd, sem um þig bjó, himnesk rödd, er sagði: Það er nóg! (Matthías Joch.) Með þessum orðum úr erfiljóðum Matthíasar Jochumssonar vil ég minnast tengdafoður míns, Þorgeirs Jónssonar í Gufunesi, sem nú hefur hlotið hinstu hvfld. Með stakri virð- ingu þakka ég honum allt sem hann gaf mér og kenndi. Hafdís Þorgeir Jónsson bóndi í Gufunesi lézt þann 5. janúar sl. 85 ára að aldri. Hann fæddist í Varmadal á Kjalamesi, semjafnframt voru hans æskustöðvar. Foreldrar hans voru Salvör Þorkelsdóttir og Jón Þor- láksson. Föður sinn missti hann árið 1916. Eftir það annaðist móðir- in heimilið með aðstoð bama sinna. A yngri árum var hann meðal fremstu íþróttamanna landsins, mikill glímumaður, vann Grettis- beltið sem glímukóngur íslands. Þá fékk hann fegurðarverðlaun í glímu á Alþingishátíðinni 1930. Hann lauk prófi sem íþróttakennari frá íþróttaháskóla í Danmörku. Bóndi var hann alla sína starfstíð. Lengst af bjó hann í Gufu- nesi, eða frá 1937 þar til yfir lauk. Var hann því jafnan kenndur við Gufunes, meðal kunningja oftast nefndur Geiri í Gufunesi. Hann átti marga afbragðs góða hlaupa- og skeiðkappreiðahesta. Margir, sem komnir era á efri ár, muna eftir hlaupahryssunni Drottn- ingu. Sérgrein hans var reyndar skeiðið. Ég held að það sé ekki á neinn hallað, þótt ég telji þá Varma- dalsbræður, Þorgeir og Jón, snjöll- ustu skeiðreiðmenn landsins á sínum tíma. Þeir áttu úrvals vekr- inga eins og Flugu, Randver o.fl. Af seinni tíma skeiðhestum koma upp í huga minn Nasi, Óðinn og síðar Þór. Sl. sumar keppti Guðný, dóttir Þorgeirs, á Þór, 17 vetra í 250 metra skeiði á Amarhamri, Kjalamesi, í vonsku veðri, rigningu og roki, en völlurinn hálfgert forað. Þar lá hann báða sprettina undir öraggri stjóm hennar. Henni kippir í kynið. I hrossaræktinni var hann athug- ull, farsæll og náði góðum árangri. Af stóðhestum hlaut t.d. Kolbakur frá Gufunesi fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi 1981. Á fjórðungsmóti 1985, á Víðivöllum í Reykjavík sýndi Þorgeir stóran ræktunarhóp með Kolbak í fararbroddi, sem hann sjálfur sat af virðuleik, þá kominn á níræðisaldur. Kjmni mín af Þorgeiri vora vegna hesta og hestamennsku. Fyrir til- viljun fór ég út í hestamennsku fyrir rúml. tveimur áratugum, en sem bam og unglingur hafði ég vanist hestum, því að faðir minn átti þá gæðinga. Það var á vordög- um 1966, sem ég keypti fyrsta hest- inn, bleikálóttan. Hann var ættaður fi-á Þorgeiri. Annar maður átti hann reyndar þá, en hélst ekki á honum vegna vilja. Það var mér mikið lán að eignast slíkan gæðing. Örviljug- ur var hann, þrekið með eindæmum, skapmikill en þó með viðkvæma lund, áræðinn, en kunni þó ávallt fótum sínum forráð. Þessi hestur kenndi mér mikið. Ég hef stundum leitt hugann að því að margt væri líkt með honum og Þorgeiri, þótt með sitt hvora móti væri. Hann varð 29 vetra og er heigður í landi mínu. Annan hest fékk ég frá Þor- geiri nokkra síðar, þegar konu mína vantaði hest. Hann er brúnstjöm- óttur, sonarsonur hins fræga Nökkva frá Hólmi. Hann sagðist hafa keypt hann sem folald vegna þess hve vel sér hefði litist á hann. Þessi hestur hefur einnig rejmst einkar vel, gangsamur, viljugur, lundgóður og traustur. Nú er hann 26 vetra, óbilaður, sinar hreinar sem á ungum hesti. Ég nefni þetta til þess að sýna fram á að frá Þor- geiri komu oft framúrskarandi hest- ar og eins hversu traustir og end- ingargóðir þeir gátu verið. Þorgeir var afar glöggur á hesta og fljótur að sjá út kosti þeirra og eðli. Þorgeir var vel af manni gerður, þrekvaxinn, sterkur vel, harðdug- legur, hjálpsamur, drenglyndur og með hæfustu hrossaræktarmönn- um. Hann var oft sérstakur en skemmtilegur í tilsvörum, svo að frægt var meðal hestamanna. Sem dæmi krafta hans vil ég nefna að Gunnar Bjamason, fyrr- verandi hrossaræktarráðunautur getur þess í bók sinni Ættbók og saga, 1. bindi, að eftir að hann hefði fest kaup á stóðhestinum Nökkva frá Hólmi, þá á 4. vetri, hefði hann komið honum í vörzlu hjá Þorgeiri í Gufunesi. Ætlunin var að fá stjóm Búnaðarfélags ís- lands til þess að kaupa hestinn til nota á Hólabúinu, en þá stóð nokk- ur styr um hestinn. Kom þá félags- stjómin til þess að skoða Nökkva. Þorgeir sýndi þeim hestinn og reið honum. Dáðust þeir að þessum vel- skapaða og föngulega grip, sem sýndi ágætar hrejrfíngar og ljúfan vilja. Til þess að sýna þeim hversu taugasterkur og lundgóður hann væri, hefði Þorgeir farið undir hest- inn, beygt sig saman í knjám, sett herðar undir kvið Nökkva og ljrft honum svo að allir fætur vora á lofti. Þá hefði stjóm Búnaðarfélags- ins hlegið. Hesturinn verið keyptur og sendur norður. Af dugnaði hans má geta þess að Þorgeir lét sig ekkert muna um að gera skeiðvöll í Gufunesi og efndi til kappreiða. Með Þorgeiri Jónssjmi er horfinn af sjónarsviðinu maður hreinskipt- inn, frábær hestamaður og mikil- hæfur hrossaræktarbóndi. Hákon Jóhannsson Þorgeir Jónsson, bóndi í Gufu- nesi, var sonur Jóns Þorlákssonar (1873-1916), bónda í Varmadal á Kjalamesi, og konu hans, Salvarar Þorkelsdóttur (1875-1965). Jón var sonur Þorláks Jónssonar, bónda í Varmadal og konu hans, Geirlaugar Gunnarsdóttur, en Salvör dóttir Þorkels Ingjaldssonar frá Glóra á Kjalamesi og konu hans, Bjargar Sigurðardóttur frá Álfsnesi á Kjal- amesi. Foreldrar Þorgeirs eignuðust átta böm: Ágúst (1900-1978), rannsóknarlögreglumann og kaup- mann, Lára (1902-1903), Þorgeir (1893-1989), Jón (f. 1905), bónda í Varmadal, Björgvin (1907-1955), glerslípunar- og speglagerðarmann, Sigríði (f. 1909) saumakonu, Ástu (f. 1910), sem búsett er í Banda- ríkjunum og Lára (f. 1913). Faðir Þorgeirs dó úr lungnabólgu árið 1916, aðeins 42 ára að aldri, frá sjö bömum á aldrinum 2-15 ára. Ágúst var þá 15 ár, Þorgeir 12 ára, Jón 10 ára, Björgvin 8 ára en dætumar þijár enn yngri. Hreppsnefndin bauð eklq'unni með bömin sjö að þeim yrði tvístrað en hún kvaðst ekki þurfa að tala við nefndina ef aðstoð væri boðin fram í slíku formi. Stóð móðir Þorgeirs í sömu sporam og fræg kona nokkr- um áratugum síðar, Monika Helga- dóttir á Merkigili í Skagafírði, kon- an í dalnum með dætumar sjö og son að auki. Bjó ekkjan áfram í Varmadal ásamt bömum sínum í röskan áratug og naut þar fyrst og fremst aðstoðar harðduglegra bama sinna. Þorgeir þurfti því snemma að taka til hendi, m.a. við jarðabætur. Þrátt fyrir brauðstritið var mikill íþróttaáhugi á bænum og urðu bræðumir allir góðir glímu- menn. Þorgeir var þó fremstur þar og þótt víðar væri leitað enda varð hann glímukappi íslands tvö ár í röð, 1927-1928, og þá jafnframt handhafi Grettisbeltisins. Hlaut hann árið 1928 einnig viðurkenn- ingu fyrir fegurðarglímu, Stefnu- homið, en því fylgdi titillinn Glímu- snillingur Islands. Voru þeir ekki margir sem urðu samtímis Glímu- kappi og Glímusnillingur íslands. Um þetta lejrti varð Þorgeir einnig íslandsmeistari í kúluvarpi og kringlukasti. Setti hann íslandsmet f kringlukasti, svo og í kúluvarpi með báðum höndum og kringlu- kasti með báðum höndum. Skömmu síðar eða laust fyrir 1930 keyptu Þorgeir og Jón bróðir hans Varmad- alinn og stofnuðu til félagsbús. Bjó Þorgeir þar um skeið ásamt konu sinni, Guðnýju Guðlaugsdóttur (1905-1952). Þau giftu sig 5. jah- úar 1929 þannig að Þorgeir hefur andast á 60. brúðkaupsdegi sínum. Tilviljanir lífs og dauða era marg- brejdilegar en ætla má að um fagn- aðarfundi hafí verið að ræða. Eftir nokkurra ára búskan í Varmadal fluttust Þorgeir og Guðný um 1935, að merkisbýlinu Sunnuhvoli í Reykjavík. Stóð bær- inn þar sem nú era gatnamót Há- teigsvegar og Þverholts. Bjuggu þau þar nokkur ár. Um eins árs skeið, 1937-1938, bjuggu þau í Viðey en hófu síðan búskap í Gufu- nesi árið 1938. Þorgeiri og konu hans varð sjö bama auðið. Þau era Jóna ritari, gift Eysteini Jónssyni vélstjóra, Reykjavík; Margrét, búsett á Long Island f Bandaríkjunum; Þóra, gift Örlygi Hálfdánarsjmi bókaútgef- anda, Seltjamamesi; Guðný, starfs- maður hjá Kaupfélagi Borgfírðinga, gift Bjama Jóhannssjmi verk- smiðjustjóra, Borgamesi; Guðlaug- ur, giftur Hafdfsi Þórhallsdóttur bamagæslumanni, Kópavogi; Ragnheiður bankastarfsmaður, gift Emi Marinóssyni, skrifstofustjóra Landsvirkjunar, Seltjamamesi og Guðný Björg tölvuritari, gift Þór Sigþórssjmi, forstjóra Ljrfjaverslun- ar ríkisins, Seltjamamesi. Auk þess átti Þorgeir síðar með Málfriði Ólafsdóttur soninn Jóhann- es (f. 1963) vélvirkja er býr með Sólrúnu Jóhannsdóttur skrifstofu- manni. Alls era afkomendur Þorgeirs nú 59 talsins. Þorgeirs Jonssonar verður minnst fyrir margt, afrek í fijálsum íþróttum og glímu á yngri áram, búskap alla tíð, m.a. hálfa öld í Gufunesi þar sem fegurðin við Sundin blá mun aftur njóta sín inn- an tíðar er sorphaugar Reykjavíkur- borgar hverfa, og ræktun lands- frægra skeið- og stökkhesta. Þeir sem þekktu Þorgeir ekki aðeins úr fjarlægð vissu að hann lék eins og Mozart á töfraflautu er gat svipt burtu dranga og vakið fögnuð. Tónamir úr flautu bóndans í Gufunesi vora hnjrttin orð og til- svör, oft á eigin kostnað, ekki ann- arra. Jafnvel þeir sem leika á töfra- flautur hætta þó leik sínum um síðir en tónamir enduróma. Og jafnvel glímukóngar og víkingar falla fyrir Elli kerlingu — Þorgeir nú, Egill forðum__— en orðstír deyr aldregi. Jón Ögmundur Þormóðsson Þorgeir Jónsson bóndi í Gufunesi lést á sjúkrahúsi fimmtudaginn 5. janúar sl. en hann hafði átt við vaxandi vanheilsu að stríða undan- farin misseri. Það er mál manna að hér hafi orðið mikill héraðsbrestur er svo kunnur og vinsæll maður sem Þor- geir var fellur frá. Hann var fjöl- hæfur maður á mörgum sviðum en ævistarfið var bóndinn og ræktun- armaðurinn, eins og þeir gerast bestir á Islandi. Hann rak bú sitt vel og um- gekkst búfé sitt sem vini og fylgd- ist gjöria með daglegum háttum þess og heilbrigði enda var bú hans jafnan gagnsamt og afurðagott. Ræktun fénaðar var honum mjög svo hugleikin og frægur varð hann af hrossum sínum og átti marga gæðinga sem komu vel fyrir bæði í kappreiðum og á kjmbótasýning- um. Þá átti hann jrfirleitt afburða- góðar kýr og eignaðist ég nokkrar frá Þorgeiri sem reyndust mér og fleiram vel og sama mátti segja um sauðfé ættað frá honum. Þorgeir fæddist í Varmadal þ. 7. desember 1903 ocr vnr hriftii f röð hinna mannvænlegu bama þeirra hjóna Salvarar Þorkelsdóttur og Jóns Þorlákssonar bónda þar. Systkini Þorgeirs vora Ágúst, Lára er lést á bamsaldri, Jón, Björgvin, Sigríður, Ásta og Lára yngri fædd 1913. Mikill og merkilegur ættbogi er kominn frá þeim Salvöra og Jóni •' og stundum kölluð Varmadalsætt á sama hátt og afkomendur systur Jóns, Sigríðar í Álfsnesi, og bróður hans Skafta Þorlákssonar er lengi bjó í Knútskoti. Þeir era margir afkomendur þessara þriggja bama Þorláks Jónssonar, f. 1841 d. 1918, og Geirlaugar Gunnarsdóttur sem bjuggu allan sinn búskap í Varma- dal. Þorgeir hóf búskap í félagi við Jón bróður sinn í Varmadal og bjuggu þeir þar saman þar til þeir seldu jörðina 1933. Þá fluttist Þor- geir að Sunnuhvoli og síðan í Við- ey, en 1938 settust þau Guðný að í Gufunesi til frambúðar. Þorgeir kvæntist Guðnýju Guð- laugsdóttur þ. 5. janúar 1929 og flutti Þorgeir brúði sína að Varma- dal. Guðný fæddist 31. desember 1905, dó 13. desember 1952. Á 60 ára brúðkaupsafmæli þeirra þ. 5. janúar sl. kvaddi hún svo Þorgeir til sín jrfir móðuna miklu og al- mættið sameinaði anda þeirra á ný svo eftirminnilega. Þeim hjónum varð 7 bama auðið, en þau era Jóna gift Eysteini Jóns- sjmi vélstjóra og eiga þau 4 böm og eitt að auki sem Jóna átti með fyrri manni sínum. Þá Margrét sem gift er Robert Petersson en þau eignuðust 5 böm og bjuggu í Bandaríkjunum en maður hennar er nú látinn. Þóra er gift Örlygi Hálfdánarsjmi bókaútgefanda og eiga þau 4 böm. Þá er Guðný eldri gift Bjama Jóhannssjmi verk- smiðjustjóra í Borgamesi og eiga þau 5 böm. Guðlaugur bifreiða- stjóri í Kópavogi er kvæntur Haf- dísi Þórhallsdóttur en þau eiga 4 böm. Ragnheiður er gift Emi Mar- inóssyni skrifstofustjóra hjá Lands- virkjun og eiga þau 4 böm. Guðný jmgri Björg er gift Þór Sigþórssjmi forstjóra Lyfjaverslunar ríkisins og eiga þau 3 böm. Yngst bama Þor- geirs og áttunda er Jóhannes sem Þorgeir eignaðist með Málfríði Ól- afsdóttur eftir að hann varð ekkill. Skyldulið og afkomendur Guðnýjar og Þorgeirs era orðnir allfjölmennur hópur eða um það bil 60 manns, og er vel heppnað atgervisfólk sem lætur að sér kveða í starfi og leik svo sem það á kjm til. Kunnugt er það að Þorgeir var hinn mesti afreksmaður á íþrótta- sviðinu og kom það í ljós á bams- aldri að óvenjulegur léttleiki og kraftur var í snáðanum í Varmadal sem seinna þróaðist með áhuga og æfingum að verða í tölu afreks- manna, einkum í glímu og fijálsí- þróttum að óglejmidum frábæram árangri í íþróttum hesta. Þrek og þrautseigja einkenndi allt hans líf í leik og starfi. Fátt gerðist af til- viljun eða án markmiðs og þessu var fylgt eftir af viljakrafti og ólg- andi skapi sem hann virkjaði sér til góðs árangurs. Þorgeir var frækinn íþróttamað- ur og m.a. glímukóngur íslands, en þessi þáttur í lífí hans er meiri en svo að hægt sé að rekja að gagni í stuttum minningarorðum. Hann var ávallt harður keppnismaður og spurði yfirleitt einskis nema að leikslokum. Hann kunni vel að meta drengskap enda aðalsmerki hans sjálfs, drengskapur svo af bar. Er leiðir okkar skiljast nú er mér það nærtækast að rifja nokkuð upp um fyrstu samskipti okkar Þorgeirs f Gufunesi er hann var ungur bóndi í Varmadal og þá orðinn víðkunnur íþróttamaður. Hann átti erindi að Reylq'um, mun ég þá hafa verið innan 10 ára aldursins, en þá var Guðný þénandi stúlka á heimilinu og varð seinna eiginkona hans. Heimsóknir Þorgeirs að Reykjum vora alls ekki öllum að skapi því Guðný var íðilfögur og prúð stúlka sem ýmsir aðrir litu hýra auga. Við bömin á heimilinu fylgdumst vel með þessum gestakomum svo sem títt var um krakka á þessum áram. Okkur leist vel á Þorgeir og átti hann þar góða meðmælendur. Bamslegt hugmyndaflug okkar sett.i hann hpo-ar f Rtaft f snmanhnrft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.