Morgunblaðið - 13.01.1989, Blaðsíða 21
iMQRGUNgLAJÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989
21
Bandaríkjamenn
hætta við heræf-
ingar við Líbýu
Líbýumenn segja að vestur-þýsk fyr-
irtæki hafí aðstoðað við að reisa efíia
verksmiðjuna 1 Rabta
Washington, Nikosíu, New York, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
Bandarikjamenn ákváðu á miðvikudag að hœtta við á»t.lanir um
heræfingar á Miðjarðarhafi fyrir norðan Líbýu, þar sem banda-
riskar orrustuþotur skutu niður tvær libýskar herþotur fyrir viku.
Sendiherra Libýu hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að vestur-þýsk
fyrirtæki hefðu aðstoðað Líbýumenn við að reisa efiiaverksmiðjuna
í Rabta, sem Bandaríkjamenn segja að eigi að framleiða efiiavopn.
Talsmaður bandaríska vamar-
málaráðuneytisins, Bill O’Connel,
sagði að hætt hefði verið við heræf-
ingar, sem Bandaríkjamenn fyrir-
huguðu í nágrenni Líbýu í næstu
viku. Hann sagði að líklega yrðu
þær haldnar annarsstaðar á Mið-
jarðarhafinu. Hann vildi ekki svara
því hvort ákvörðunin hefði verið
tekin vegna kvartanna Líbýu-
manna.
Sendiherra Líbýu hjá Sameinuðu
þjóðunum, Ali Trakei sagði á mið-
vikudag að heræfíngar Bandarfkja-
manna undan ströndum Líbýu
„gætu orðið stórhættulegar." Hann
kvaðst ánægður með þá ákvörðun
Bandaríkjamanna að hætta við þær.
Vestur-þýskir embættismenn
hafa sagt að fram hefðu komið
sannanir fyrir því að vestur-þýsk
fyrirtæki hefðu aðstoðað Líbýu-
menn við að reisa efnaverksmiðjuna
og talsmaður stjómarinnar, Fried-
helm Ost, vildi hvorki játa því né
neita f gær. Vestur-þýsk stjómvöld
höfðu í rúma viku vísað á bug ásök-
unum Bandaríkjamanna um að
vestur-þýsk fyrirtæki hefðu veitt
þessa aðstoð. Nú hafa þau hins
vegar tilkynnt að eftirlit með út-
flutningi verði hert og fyrirskipað
nokkrum vestur-þýskum fyrirtækj-
um að hætta við útflutning til
Líbýu.
„Vestur-Þjóðveijar veittu okkur
aðstoð, ekki aðeins við verksmiðj-
una í Rabta heldur einnig aðrar
verksmiðjur," sagði Ali Treiki
sendiherra í viðtali við CBS-sjón-
varpið. Hann ítrekaði hins vegar
að í efnaverksmiðjunni ætti aðeins
að framleiða lyf.
Hryðjuverkahópar Baska:
Frakkar handsama
aðalleiðtoga ETA
Bayonne, Frakklandi. Reuter.
JOSE Antonio Urruticoechea Bengoechea, leiðtogi baskneska
hryðjuverkahópsins ETA, var handtekinn í gær er hann var á ferð
á vélhjóli sinu skammt £rá Bayonne f Suður-Frakklandi á miðviku-
dagskvöld. Honum tókst að skjóta einu skoti er menn úr sérsveit
lögreglunnar réðust til atlögu og á honum fannst handsprengja.
Yfirvöld á Spáni hafa fagnað handtökunni og munu fára fram á
að Urruticoechea verði framseldur.
Um sama leyti vom fjórir af
liðsmönnum ETA handteknir í
íbúð sem Urruticoechea hafði ver-
ið í og um morguninn voru aðrir
fímm handteknir í borginni Poiti-
ers og fundust vopn í íbúð fólks-
ins. Að sögn lögreglu hafa yfir-
völd í Frakklandi og á Spáni nú
mikinn viðbúnað vegna ótta um
að ETA láti til sín taka til að sýna
að samtökin hafí ekki verið lömuð.
Síðastliðna tvo áratugi hafa
ETA-liðar drepið um 600 manns
í baráttu sinni fyrir sjálfstæði
Baskalands á Norður-Spáni. Á
sunnudag lýsti ETA yfír einhliða,
15 daga vopnahléi til að knýja á
um að spænsk stjómvöld hefji við-
ræður við hryðjuverkasamtökin.
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Otvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
SÖMPÖáQtDgKLOir
Vesturgötu 1 6,
sími 13280
///*///-
| pjjil
E ilomberc J
vaskar í
stáli og hvítu.
15 gerðir.
Hagstætt verð.
Góðgreiðslukjör.
Einar Farestveit & Co .hff.
BORQARTÚNI28, SÍM118995.
Lelö 4 stoppar vlA dymar
Aðeins samdrátturá íslandi
Þessi tafla birtist í breska tímaritinu Economist fyrir nokkrum dögum og sýnir annars vegar hagvöxtinn
í aðildarrikjum OECD, Efiiahags- og franifarastofnunarinnar, á liðnu ári og hins vegar áætlaðan hag-
vöxt á þvi, sem nú er nýbytjað. ísland er yst til vinstri á töflunni og eins og sjá má er það eina ríkið þar
sem samdrætti er spáð.
Skoðanakönnun í Noregi:
Rúmur þriðjungur vill aðild að EB
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÍFELLT fleiri Norðmenn vilja
nú að landið sæki um aðild að
Evrópubandalaginu. í nýrri skoð-
anakönnun segjast 35% vera þvi
fylgjandi, 30% andvígir en aðrir
eru óákveðnir. í september voru
aðeins 24% fylgjandi aðild en 43%
á móti. Talið er að aukin umræða
um aðild að EB hafi valdið þvi að
fleiri segjast nú styðja aðild.
Árið 1972 var haldin þjóðarat-
kvæðagreiðsla um málið og greiddu
þá 53,5% atkvæði gegn aðild að
bandalaginu. Síðan hefur lengst af
verið hljótt um málið. Síðastliðið
haust hóf Hægriflokkurinn, sem var
fylgjandi aðild 1972, aftur umræðu
um aðild og hefur einn norskra
stjómmálaflokka tekið skýra af-
stöðu; flokkurinn vill enn sem fyrr
að Noregur gangi í EB. Með þessu
hefur flokkurinn þvingað aðra flokka
til að gera upp hug sinn fyrir þing-
kosningar sem verða næsta haust
en flestir þeirra hefðu vafalaust vilj-
að bíða með slíkt - átökin 1972 ollu
miklum innbyrðis deilum í mörgum
þeirra og hefur varla fennt yfir þær
enn.
Norska Gallup-stofnunin hefur
kannað hug landsmanna til aðildar
síðan 1986 en fram til þessa hefur
hlutfall EB-fylgjenda aldrei verið
hærra en 25%. Breytingin núna verð-
ur því til þess að málið verður mjög
ofarlega á baugi í kosningabarát-
tunni.
Hæst er hlutfall stuðningsmanna
EB í borgaralegu flokkunum. 58%
af kjósendum Hægriflokksins styðja
aðildina og 55% kjósenda Framfara-
flokksins. Meðal kjósenda stjómar-
flokks jafnaðarmanna er enn sem
fyrr meirihluti gegn aðild. 31% era
á móti, 29% með aðild en 41% era
enn óákveðnir.
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Vrtfe\?>s'a °íare^aÖ —'
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15, hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega
RlKISSKATTSTJÓRI