Morgunblaðið - 13.01.1989, Page 31

Morgunblaðið - 13.01.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989 31 Hjördís Péturs- dóttir - Minning Fædd 11. ágúst 1926 Dáin 2. janúar 1989 Kveðja frá Inner Wheel klúbbi Kópavogs í dag kveðjum við Hjördísi Pét- ursdóttur, sem lést 2. janúar sl. Hún hefði tekið við forsæti í klúbbnum okkar nú í vetur, hefði henni enst líf og heilsa til. Hjördís vann ötullega að stofnun klúbbsins og var alltaf gott að leita til hennar um aðstoð. Hún var hress og lífsglöð kona og hafði hlýlegt við- mót. Hún hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og fór ekki dult með þær, þegar það átti við. Það var okkur ljúft að starfa með henni og því er sárt að kveðja. Við þökkum Hjördísi innilega sam- verustundimar og samstarfið og sendum Páli og dætrum þeirra hug- heilar samúðarkveðjur. Alda Sveinsdóttir Mig setti hljóða er ég heyrði dánartilkynningu Hjördísar vinkonu minnar í útvarpinu. Ég rauk í símann og hringdi til Sigrúnar vin- konu okkar og saman hlustuðum við á tilkynninguna flutta í annað sinn. Ég segi Hjördís vinkona mín, því þótt við hittumst sjaldan í seinni tíð og stundum ekki heilu árin, þá vor- um við miklar vinkonur og vissum alltaf hvor af annarri. Við kynntumst í gagnfræðaskóla og vorum daglega saman í mörg ár. Ég átti góða vinkonu fyrir, Sig- rúnu Þorsteinsdóttur, og kynntust þær í gegnum mig og urðu miklir mátar. Eftir að við lukum skóla og fómm að vinna úti, var stutt á milli okk- ar. Hjördís hjá Skipaútgerð ríkisins, Sigrún í Verðanda og ég f Ing- ólfsapóteki. Þetta vom yndisleg ár með mik- illi gleði og hamingju. Við vomm stríðsáraunglingar en komumst vel frá því öllu saman. Eftir stríð þegar aftur opnaðist til Norðurlanda fóm þær Sigrún og Hjördís til Kaup- mannahafnar og lærðu snyrtingu. Ég brá mér svo á eftir þeim og fór á húsmæðraskóla. Þama vomm við þrjár samtíða og var það góður tími. Þegar þær Sigrún og Hjördís komu heim, stofnuðu þær snyrtistofuna „írisi" og var hún ein af þeim fyrstu í Reykjavík. Nú tók alvaran við. Við giftumst og fómm við Hjördís af landi brott um árabil. Þegar við komum aftur heim sáumst við af og tii, oftast er hún og maður hennar, Páll Hann- esson, fóm um Norðurland og heim- sóttu mig að Fosshóli. Ég minnist góðra stunda sem unglingur þegar hún átti heima á Ásvallagötunni. Þar var manni vel tekið. Björt er minningin um heimil- isfólkið: Þórönnu, Pétur, Pálma og Önnu systur hennar sem öll em horfin yfir landamærin miklu. Þama var góður andi og man ég enn bökunarlyktina úr eldhúsi Þórönnu en hún var mikil húsmóðir og skar ekki við nögl sér að gera okkur gott. Við vomm glaðar á þessum ámm og finnst mér að við höfum alltaf verið í góðu skapi og hlæjandi. Hlýjar em minningamar og gott að verma sér við þær nú, er árin færast yfír. Við Bjami sendum Páli, Þórönnu, Hólmfríði og þeirra fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu vinkonu minnar. Bíbi í dag, föstudaginn 13. janúar, kveðjum við Hjördísi Pétursdóttur, Grænutungu 3, Kópavogi, er lést í Landspítalanum þann 2. janúar síðastliðinn. Hjördís fæddist á Akureyri þann 11. ágúst 1926, en ólst upp í Reykjavík frá 10 ára aldri. Hjördís var yngst fjögurra systkina og kveður hún þennan heim síðust þeirra. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Páll Hannesson verkfræðingur í Kópavogi. Sem tengdasonur Hjördísar, varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast henni vel, og hef því ótalmargra ánægjulegra samvem- stunda að minnast. Þau vom döpur á svip elstu bamabömin og fullorðna fólkið, þegar sest var til borðs á aðfanga- dagskvöld, en þá vomm við vön að borða öll saman, hjá ömmu og afa í Grænutungu. Sæti húsmóðurinnar var autt. Stórt skarð var höggvið í íjolskylduna, skarð sem ekki verð- ur fyllt aftur. Og þó að eftirvæntingin hjá böm- unum væri mikil út af jólagjöfunum, var hugurinn hjá ömmu upp á Minninff: Helga S. Zoega Fædd 19. september 1917 Dáin 6. janúar 1989 Hvað bindur vom hug við himins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þð allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi ei saka. (Einar Ben) Fréttin um andlát tengdamömmu kom eins og reiðarslag. Þó við vitum að lífíð og dauðinn ferðist saman og þetta sé leiðin okkar allra þá er það alltaf jafn sárt að sjá á burt kærum ástvini. Það er erfítt að kveðja ástkæra tengdamóður og vinkonu, sem alltaf var hægt að ræað við og alltaf átti hún góð ráð og hlý orð. Aldrei æðraðist hún yfir þeim erfíðleikum sem hún þurfti sjálf að ganga í gegnum á lífsleiðinni Hún stóð alltaf eins og klettur við hliðina á tengdapabba í hans veikindum, hún hafði óbilandi kjark og ótakmarkað starfsþrek, uppgjöf var ekki til í hennar „orðabók". Það Q<mir pitt Hmmi hpcrnr Vinn r£flQt iit í það fyrir tveimur og hálfu ári að festa kaup á íbúðinni í Álakvísl. Það þótti mörgum í stórt ráðist. En hún lét ekki deigan síga, og það var stór og mikil gleðistund í desem- ber sl. þegar þau hjónin fengu af- salið af íbúðinni í hendumar. Nú höfðu þau eignast þessa litlu Paradís, yndislega íbúð sem hentaði svo vel þeirra aðstæðum og lítinn fallegan garð sem Helga lagði alla sína alúð í og naut að vera þar öll- um stundum, þegar færi gafst. Helga var vel Iiðin og hvers manns hugljúfí sem henni kynntust hvort sem var í vinahóp eða á vinnu- stað. Ég vil þakka þessari yndislegu konu fyrir öll árin sem ég þekkti hana, allar samverustundimar og öllu því sem hún miðlaði mér af sínum viskubrunni. Við fjölskylda hennar kveðjum hana með sárum söknuði, en mest- ur er söknuður elsku tengdapabba sem sér á bak svo ástríkum og trygKum lífsförunaut og var öll hans stoð og styrkur síðastliðin ár. En við eigum í hugum okkar minnmmi nw rrAAo r\rr Aofrflro lrown Landspítala. Innst inni óskuðum við þess öll, að henni myndi takast að sigra í þeirri hörðu baráttu sem hún átti í. Og þegar eldri dóttursonur hennar var spurður hvers hann hlakkaði mest til jólanna, var svar- ið: Að amma kæmi heim af spítalan- um fyrir jól. Amma í Grænó, eins og bama- bömin kölluðu hana, var í miklu uppáhaldi hjá þeim. Þau sóttu mik- ið í að fara til hennar í heimsóknir í Grænutunguna, og ósjaldan fóm þau með þeim norður í Vatnsdal þar sem fjölskyldan hafði nýlokið við að byggja sér sumarbústað. Þar undi Hjördís sér vel, við gönguferð- ir, útivem og gróðursetningu tijá- plantna. Bamabömin sakna ömmu sinnar mikið, en minningamar em óteljandi og dýrmætar. Ég vil þakka tengdamóður minni allar þær ánægjulegu stundir sem við fjölskyldan áttum saman, bæði hér heima og þann tíma er hún dvaldi hjá okkur er við bjuggum í Englandi. Ég vil þakka henni alla hlýjuna, og velvildina í minn garð, því alltaf var hún boðin og búin að bjóða aðstoð, ef hún hélt við þyrft- um þess með. Það vom ánægjulegar stundir sem við eyddum saman, síðustu tvö sumrin, þegar við vomm að vinna að frágangi og gróðursetningu í Vatnsdalnum, því ekkert var Hjördísi eins hugleikið og að koma upp sælureit fyrir fjölskylduna á þessum stað, enda gekk hún í það af krafti og eldmóði, sem henni einni var lagið, að skipuleggja og stjóma verkinu. Ég minnist hennar með hlýhug og þakklæti, um leið og ég þakka henni samfylgdina. Ég bið Guð að styrkja Pál tengdaföður minn í sorginni, svo og dætumar og bama- bömin. Blessuð sé minningin um Hjördísi Pétursdóttur. Guðmundur S. Stefánsson sem áfram mun lifa í hugum okkar. Blessuð sé hún um alla eilífð. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopullt er, það stefnir í æðri leiðir. Og upphimin fegri’ en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben) F.lan iimnðAUíf Fyrir 3 áram hittumst við nokkr- ar konur í Kópavogi sem höfðum það áhugamál að stofna félagsskap er hafði það að markmiði að þjálfa einstaklinga til jákvæðra lífsvið- horfa og styrkja hæfileika til mann- legra samskipta. Ein af þessum konum var Hjördís Pétursdóttir sem við kveðjum hér í dag. Hún stóð á tímamótum í lífí sínu, hafði lokið uppeldishlutverk- inu og dregið saman vinnu sína, eða eins og hún sagði sjálf, hafði hún tíma til að sinna eigin hugðarefn- um. Við eram minnugar þess er hún sagði eitt sinn: „Ég fann fljótt að þama var félagsskapur, sem gat gert mikið fyrir mig, ef ég sjálf vildi leggja mig fram.“ Með þessu var hún ekki aðeins að efla sjálfa sig heldur ekki síður að aðstoða okkur hinar sem nú minnumst góðra stunda í hennar félagsskap. Þar má af mörgu taka en við nefn- um sérstaklega ferð norður í land í heimsókn í „litla ríkið" hennar þar sem við mættum sérstakri gestrisni og síðan þátttaka í Landsþingi ITC á Akureyri. Þetta vora ógleym- anlegar stundir. Okkur langar að vitna aftur í hennar eigin orð: „Það verður gam- an, þegar sjálfstraustið er komið á það stig að ég bókstaflega hlakka til að takast á við hvaða verkefni sem er.“ Nú bíða hennar ný verk- efni sem við vitum að hún leysir af sama áhuga og natni og allt sem hún tók að sér. Að lokum viljum við Fífukonur þakka Hjördísi sam- fylgdina sem var því miður alltof stutt. Eftir sitja góðar minningar. Við sendum flölskyldu hennar inni- legar samúðarkveðjur: ITC FIFA, Kópavogi. Hjördís Pétursdóttir lést 2. jan- úar sl. Hún fæddist á Akureyri 11. ágúst 1926, dóttir hjónanna Péturs Péturssonar kaupmanns og Þór- önnu Pálmadóttur. Eftirlifandi eig- inmaður hennar er Páll Hannesson verkfræðingur. Eignuðust þau tvær dætur, Þórönnu eiginkonu mína og Hólmfríði sem gift er Guðmundi Skúla Stefánssyni. Ég minnist tengdamóður minnar sem konu sem lagði ríka áherslu á að hlú að fjölskyldu sinni. Hún veitti dætram sínum af mikilli ástúð allt sem hún vissi að var þeim fyrir bestu, og hún kenndi þeim að trú- mennskan væri dyggð sem bæri að rækta með sér. Sömu ástar og hlýju fengu tengdasynimir svo að njóta þegar þeir bættust við fjölskylduna. Hjördís vann um langt árabil utan heimilis, fyrst sem snyrtisérfræð- ingur en það starf hafði hún lært sem ung stúlka í Kaupmannahöfn og síðar við skrifstofustörf. Seinast starfaði hún við hlið eig- inmanns síns í fyrirtæki þeirra. Hún gekk að öllum verkum af miklum krafti og vandvirkni. Hjördís átti oft við vanheilsu að stríða, en aldrei heyrðist hún kvarta og ætíð virtist hún hafa viljastyrk til að komast yfír veikindi og áföll. Þó var svo komið fyrir u.þ.b. átta áram að hún varð heilsunnar vegna að hætta að starfa að heiman. Hún sýndi bamabömum sínum mikla umhyggju og áhuga og var ætíð boðin og búin til að gæta þeirra. Þar stend ég í mestri þakk- arskuld við hana því um árabil sinnti ég störfum úti á landi sem varla hefði verið mögulegt hefði aðstoðar hennar ekki notið við. Er hætt við að ærið oft hafi verið horft fram hjá því í önnum hversdagsins, að hún var að taka að sér verk- efni, sem kraftar hennar leyfðu ekki. Viljastyrk Hjördísar er mjög vel lýst með gönguferð sem hún fór með okkur sl. sumar að skoða Blöndugil. Ekki er akfært að gilinu vegna stórþýfra móa, svo þangað er um 2 km ógreiðfær gönguleið yfir móann og örlar ekki á göngustíg, nema kindagötum á stöku stað. Þrátt fyrir að hún hafi ekki getað stundað gönguferðir í mörg ár gekk hún alla þessa leið án þess að hún hefði á orði að fyrra bragði að hún væri þreytt. Tvö undanfarin sumur átti Hjördís sér paradís, sem ég hygg að hafí verið henni betri en hana hafði órað fyrir. Það var sumarhús sem þau Páll létu reisa norður í Vatnsdal. Fyrir þann mikla kraft og ósérhlífni sem henni var eðlileg- ur stendur nú fullbúið hús á Undir- felli í minningu hennar. Þar naut hún þess að vera í friðsæld og geta verið með Páli og afkomendum sínum, hvort sem var eitt bam eða fjölskyldur beggja dætranna um skemmri eða lengri tíma. Þar er hafinn vísir að skógrækt, sem hún horfði til með tilhlökkun. Seinasta ferð hennar þangað var í nóvember- byijun, þegar gróðursett vora 5 grenitré, jafnmörg bamabömunum. Ég þakka fyrir þau ár sem ég naut samfylgdar Hjördísar og ég þakka fyrir þá handleiðslu sem bömin fengu, þau hafa misst mikið. Hún var þeim ekki aðeins amma, hún var þeim einnig félagi og trún- aðarvinur, sem taldi þeim ekkert of gott en gleymdi aldrei að minna þau á að meðlætið er ekki sjálfsagt. Blessun fylgi minningu Hjördís- ar. Þorsteinn Óla&son Útför móður okkar, IÐUNNAR I. SIGURÐARDÓTTUR, er andaðist 1. janúar, hefurfarið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Haldor G. Haldorsen, Sigurður Örn Jónsson. t Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur okkar, systur og bamabarns, HERU BJARGAR EMILSDÓTTUR, Réttarholtsvegi 61. Emil Sigurðsson, Lára Einarsdóttir, Árni Elvar Emilsson, Borghildur Emilsdóttir og fjölskylda, Einar Bjarg Helgason og fjölskylda. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EMILS ÁSGEIRSSONAR bónda, Gröf, Hrunamannahreppi. Eyrún Guðjónsdóttir, Guðjón Emilsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðrún Emilsdóttir, Guðmundur [. Pálsson, Áshildur Emilsdóttir, Þorsteinn J. Jónsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.