Morgunblaðið - 13.01.1989, Qupperneq 44
SIMANUMER
606600 Æk
, TRYGGINGAR
Siöumúla 39 • Slmi 82800
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Réttarháls 2:
Bygginga-
nefiid óskar
eftir upplýs-
ingumum
breytingar
Bygginganefiid Reykjavík-
urborgar samþykkti á fiindi
sínum í gær að fela byggingar-
fulltrúanum í Reykjavík að
senda hönnuðum og bygginga-
meisturum hússins á Réttar-
hálsi 2 bréf þar sem óskað verði
eftir upplýsingum um þær
J^reytingar sem gerðar hafe
verið á húsinu, vinnuteikningar
og hvort eftirlit hafi verið frá
hendi hönnuða.
Hilmar Guðlaugsson formaður
bygginganefndar segir að í fyrsta
lagi sé verið að leita eftir því hvort
gerðar hafí verið breytingar á
húsinu frá samþykktum uppdrátt-
um, og þá hveijar þær hafí verið
og hvenær þær hafí verið gerðar.
öðru lagi væri óskað eftir uppiýs-
'ngum um hvaða vinnuteikningar
hafí verið gerðar umfram þær
teikningar sem áritaðar hafa verið
af byggingafulltrúa, og í þriðja
lagi væri óskað eftir upplýsingum
um hvort hönnuðir hússins hafí
haft eftirlit með breytingunum.
4
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÞORRA UNDIRBÚNINGUR
Nú er vika i þorra, en hann hefst fostudaginn
20. janúar og er fjórði mánuður vetrar að
fomislenzku timatali. Það er ævagömul venja
að hafa einhvem mannfágnað á heimilum
fyrsta dag þorra og heilsa honum með virkt-
um. Víða stendur því undirbúningur þorra-
haldsins nú sem hæst. Þessi mynd var tekin I
gær í Múlakaffi, þar sem menn hafa síðustu
dagana unnið baki brotnu við að búa til þorra-
matinn. Á myndinni sjást hvar þeir Sigurður
Ólafsson kjötiðnaðarmaður og kokkamir
Ragnar Sverrisson og Ingvi B. Jónsson standa
við trogin hlaðin þorramat.
Togari
færður
til hafnar
SeyðisQörður
VAUÐSKIPIÐ Óðinn fierði tog-
arann Ásbjöra RE 50 til hafhar
á Seyðisfirði siðdegis i gær
vegna meintra ólöglegra veiðar-
fiera.
Varðskipið kom að togaranum
við veiðar út af Glettinganesflaki
kl. 15 í gær. Að sögn Ómars Karls-
sonar stýrimanns á Óðni reyndust
veiðarfæri togarans vera með of
smáa möskvastærð samkvæmt
mælingum varðskipsmanna. Komið
var með togarann til hafnar á Seyð-
isfírði kl. 22 í gærkvöldi.
Garðar Rúnar
Sigur gegn
Búlgörum
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik hafoaði í öðru sæti á
Eyrarsundsmótinu, sem lauk i
Helsingor í Danmörku i gær-
kvöldi. ísland vann Búlgariu
22:17 í síðasta leiknum, en Danir
og Svíar gerðu 19:19 jafotefli.
Sjá bls. 43.
Aðspurður sagði Hilmar að brot
gegn bygginganefnd hefði í för
með sér áminningu til viðkom-
andi, en ef um gróft brot væri að
ræða gæti það leitt til réttinda-
sviptingar.
Sjá á bls. 12 samtal við Viðar
Halldórsson framkvæmda-
stjóra Gúmmívinnustofunnar
og á bls. 4 frétt um Húsa-
tryggingar Reykjavíkur.
Óvissa um álagningu nýja vörugjaldsins:
Iðnfyrirtæki fresta því
að skrifa út reikninga
MIKIL óvissa hefor ríkt meðal
iðnfyrirtækja um álagningu
hins nýja vöragjalds sem lagt
var á fyrir síðustu áramót. I dag
Útgerð Mánabergs:
Ríkismatið bæti
800 kílóa sýnatöku
Útgerðarfélagið Sæberg á Ólafifirði hefur leitað aðstoðar lög-
manns Landssambands islenskra útvegsmanna til að fá greitt fyrir
sýni, sem starfsmenn Ríkismats sjávarafurða tóku af afla frystitogar-
ans Mánabergs í desember. Alls tóku matsmenn um 800 kiló af fryst-
um ftökum, að verðmæti um 130 þúsund krónur.
Útgerð Mánabergs þykir sýna-
taka þessi óeðlileg og í bréfí útgerð-
arinnar til Ríkismatsins kemur
fram, að útgerðin vill fá fískinn
bættan. Þvi hefur Ríkismatið hins
vegar hafnað. Jónas Haraldsson,
lögmaður LÍU, sagði að hann ætti
eftir að kynna sér málið nánar.
Hann kvaðst þekkja dæmi þess að
menn hefðu kvartað yfír óeðlilegri
sýnatöku, en ekki í líkingu við að
tæpt tonn aflans sé tekið. „Ég ætla
að hafa samband við Ríkismat
sjávarafurða og óska eftir nánari
skýringu á því hvort tæpt tonn af
físki telst hæfílegt magn,“ sagði
Jónas.
Gunnar Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri Sæbergs sagði þetta
vera í fyrsta sinn sem Ríkismat
sjávarafurða skipti sér nokkuð af
þeim og því vissi hann ekki hvað
teldist eðlileg sýnataka. „Við höfum
ekki fengið það upp hvað verið er
að athuga. Við seljum okkar afurð-
ir í gegnum SH og hafa fulltrúar
þaðan séð um gæðaeftirlitið hjá
okkur. Fulltrúar Ríkismatsins birt-
ust héma þegar Mánabergið var
að koma að landi. Þeir sögðust vera
opinberir starfsmenn og mættu,
samkvæmt einhverri lagagrein,
taka sýni. Þeir tóku þessi 800 kg.
og sendu suður. Þeir höfðu síðan
samband við mig fyrir skömmu og
voru þá búnir að skoða hátt á ann-
að hundrað kg og máttum við nálg-
ast það magn í Fiskvinnsluskólan-
um í Hafhafírði sem ég og gerði.
Flökin nýtast okkur hinsvegar ekki
sem fryst afurð lengur," sagði
Gunnar.
er fyrirhugaður fimdur með
folltrúum Qármálaráðuneytis,
ríkisskattstjóra og Landssam-
bands iðnaðarmanna til að ræða
álagningu vöragjaldsins. Að
sögn Þórleifs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Landssambands
iðnaðarmanna, reyna fyrirtæki
að draga að skrifa út reikninga
meðan ekki er vitað hvemig
vöragjaldið kemur út og við
samninga reyna þau að hafa
sérstaka fyrirvara.
Þórleifur sagði að ekki lægju
fyrir endanlegar reglur um skil-
greiningu á heildsöluverði hjá fyr-
irtækjum sem seldu mjög flókna
framleiðslu, samkvæmt tilboði eða
sem undirverktakar. Þá lægi ekki
fyrir hvemig ætti að koma í veg
fyrir uppsöfnun vörugjalds af hrá-
efnum í endanlegu verði en ýmist
yrði þar um að ræða endurgreiðslu
eða niðurfellingu.
„Fyrirtæki í flókinni framleiðslu,
t.d. málmiðnaði, tréiðnaði og blikk-
smíði, þurfa að átta sig á hvemig
þau eiga að skilgreina sína fram-
leiðslu miðað við tollskrámúmer.
Vegna þess eiga þau í erfíðleikum
með að skrifa út reikninga þar sem
ekki er vitað á hvaða stofn vöm-
gjaldið á að leggjast auk þess sem
Qöimargar skilgreiningar em á því
hvað sé-gjaldskylt og hvað ekki.
Það er talað um að vinna á bygg-
ingarstað eigi ekki að vera gjald-
skyld. Þjónusta og viðgerðir eiga
ekki að vera með vömgjaldi heldur
einungis fullunnin vara, en það er
oft skilgreiningaratriði hvenær
framleiðslu lýkur í verksmiðju eða
á verkstæði og hvenær vinna hefst
á byggingastað. Það em svona
vafaatriði sem ekki hefur þurft að
hugsa mikið um áður.“
Þórleifur sagði að mikið hefði
verið leitað til Landssambandsins
um upplýsingar svo og til embætta
tollstjóra og skattstjóra eða jafnvel
til fjármálaráðuneytisins. Menn
hefðu hins vegar ekki getað svarað
ýmsum spumingum fyrirtækjanna
og framkvæmdin virtist nokkuð
langt frá því að vera ljós.
í athugun að fá
meira bólueftii
ÍSLENSK heilbrigðisyfirvöld
kanna nú hvort möguleiki er á
að fá viðbótarmagn af bóluefni
gegn inflúensu til landsins með
stuttum fyrirvara. Bóluefoið er
framleitt í franskri lyfjaverk-
smiðju. Heilbrigðisyfirvöld
sendu skeyti til verksmiðjunnar
í gærkvöldi og er búist við að
svar frá lyfiaframleiðendunum
liggi fyrir í dag.
„Eftirspum eftir bóluefni er mik-
il um leið og vart verður inflúensu
í hvaða landi sem er. Þá er eins
og allir ijúki upp til handa og fóta
til að láta bólusetja sig og það sama
gerðist hér í gær,“ sagði Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Samkvæmt dreifibréfí landlækn-
isembættisins sem sent var út á
meðal lækna í októbermánuði sl.,
átti bólusetningum að vera lokið í
nóvembermánuði. „Bólusetning er
jú í eðli sínu forvamaraðgerð. Samt
sem áður viljum við láta á það reyna
hvort hægt er að fá meira bóluefni
til landsins. Ef efnið á að hafa ein-
hveija þýðingu fyrir fólk, þarf það
helst að liggja fyrir strax í byrjun
næstu viku því reynslan sýnir að
inflúensa breiðist tiltölulega hratt
út á milli manna," sagði Guðjón.
Sjá bls. 2.: Gíforleg eftirspurn
eftir bóluefoi gegn inflúensu.
Rafinagnslaust
í Breiðholti
RAFMAGNSLAU ST varð í hluta
Breiðholtshverfis og á Vatn-
sendahæð í gærkvöldi vegna bil-
unar á háspennustreng í dreif-
ingarstöð á milli Höfðabakka-
brúar og Vesturbergs.
Samkvæmt upplýsingum Raf-
magnsveitu Reykjavíkur varð bilun-
in kl. laust fyrir kl. 21 í gærkvöldi
og stóð hún í 50 mínútur. Ekki er
vitað um orsakir bilunarinnar.