Morgunblaðið - 28.01.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Blaðamannafundur
Jóhanns og Karpovs
Seattle, Washington. Frá Valgerði P. Hafstað.
Á FIMMTUDAG héldu Jóhann
Hjartarson og Anatoly Karpov
klukkustundar langan fund með
fréttamönnum á skrifstofu Vin-
áttuleikanefiidar Seattle-borgar.
Stórmeistaramir hittust ekki,
heldur svöruðu þeir fyrirspumum
fréttamanna á ensku hvor í sínu
lagi.
Bob Walsh, forseti Vináttuleika-
nefndarinnar sem einvígið heldur,
stjómaði fundinum og kynnti frétta-
menn fyrir Jóhanni, ellefta sterkasta
skákmanni heims. Fram kom á fund-
inum að Jóhann mun vera fyrsti út-
lendingurinn til að heyja einvígi við
Karpov, allir aðrir, sem í þá stöðu
hafa komist, hafa verið Sovétmenn.
Bandaríski stórmeistarinn Yasser
Seirawan var í hópi fundarmanna,
og hann spurði Jóhann: „Hvað þyrft-
ir þú að gera rétt og hvaða mistök
þyrfti Karpov að gera til að þú sigr-
aðir í einvíginu?" Jóhann brosti og
svaraði, „Ég þyrfti að fara rétt að
öllu, hann rangt að öllu.“ Þá kvað
við mikill hlátur í salnum.
Jóhann rakti síðan þá atburði sem
urðu til þess að efla skákáhujga
landsmanna: Velgengni Friðriks 01-
afssonar, sem á sjöunda áratugnum
var í hópi tíu sterkustu skákmanna
heims, þá heimsmeistaramót Fishers
og Spasskíjs í Reykjavík, og siðast
en ekki síst fjölgun íslenskra stór-
meistara á undanfömum árum.
„Nú eigum við sex stórmeistara,
aðeins 250.000 manna þjóð,“ sagði
Jóhann, „sem er mjög gott miðað
við fólksljölda, en þess skal getið að
við erum, ef út í það er farið, fremst
á öllu sviðum miðað við fólksfjölda."
Aftur kváðu við hlátrasköll.
Jóhann sagðist vonast til að ná
góðum árangri í einvíginu og „ég
vona,“ bætti hann við, „að mér tak-
ist að láta þær vonir rætast, sem við
mig eru bundnar á íslandi, þótt ég
viti að það verður þungur róður“.
Aðspurður hvort hann gæti nefnt
fréttamönnum eitt svið skáklistar-
innar þar sem hann væri Karpov
fremri sagðist Jóhann ekki geta það,
en bætti við að sig langaði til að
komast að því hvert það svið væri.
Þegar Jóhann hafði yfírgefið sal-
inn sagði Campomanes, forseti
FIDE: „Jóhann gleymdi að geta þess
að hann er Karpov fremri að einu
leyti: hann er yngri." Jóhann verður
26 ára að tveimur vikum liðnum, en
Karpov er 37 ára.
Skömmu seinna gekk Karpov í
salinn. Hann var heimsmeistari í
skák í 11 ár og er nú talinn næst-
besti skákmaður heims: aðeins
heimsmeistarinn Kasparov þykir
honum fremri.
Aðspurður hvort hann teldi Jóhann
eiga möguleika á að sigra sagði
Karpov: „Hjartarson er mjög sterkur
og reyndur stórmeistari, það er mjög
varasamt að vanmeta andstæðing
sinn. Hann sannaði styrk sinn í
fyrra."
Þegar fréttamenn inntu Karpov
eftir því hvemig hann teldi skynsam-
legast að búa sig undir skákeinvígi,
lagði hann áherslu á undir hve miklu
álagi keppendumir væm. Hann sagði
VEÐURHORFUR í DAG, 28. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Við Véstmannaeyjar er 952ja mb lægð sem hreyf-
ist norðaustur og 975 mb lægð á vestanverðu Grænlandshafi og
þokast hún austur. Þriðja lægðin er vestur við Nýfundnaland og
hreyfist hún allhratt í norðausturátt. Hiti breytist lítið í fyrstu en
veður fer heldur kólnandi þegar líður á nóttina. Aftur mun eitthvað
hlýna þegar líður á morguninn.
SPÁ: Suðaustan og síðar breytileg átt, víðast kaldi. Dálítil slydduól
um sunnan- og suðvestanvert landið í fyrstu en einnig í öðrum
landshlutum þegar líður á daginn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Allhvöss vestan- og norð-vestanátt með
éljum norðan-, vestan og suðvesanlands, en að mestu úrkomu-
laust annars staðar. Frost 8—9 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hvöss sunnan- og suðaustanátt. Rigning
eða slydda sunnan- og austanlands en úrkomulítið vestan- og
norðanlands. Hiti 4-5 stig.
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær aö ísl. tíma hltl vaður Akureyri +2 sjókoma Reykjavlk 0 snjókoma
Bergen 7 rigning
Helsinki 3 léttskýjað
Kaupmannah. 5 þokumóóa
Narssarssuaq +20 skýjað
Nuuk +16 alskýjað
Osló 5 súld
Stokkhólmur 5 þokumóða
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 6 mistur
Barcelona 14 léttskýjað
Bertín 3 mistur
Chlcago 2 heiðskfrt
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 3 þokumóða
Glasgow 11 rignlng
Hamborg 6 mistur
Las Palmas 19 hálfskýjað
London 10 mistur
Los Angeles 8 helðskfrt
Lúxemborg Madríd +2 hrímþoka vantar
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 16 hélfskýjað
Montreal +6 snjókoma
New York 4 skýjað
Orlando 14 þokumóða
Parls 8 heiðskfrt
Róm 11 þokumóða
San Dlego 10 heiðsklrt
Vfn +2 þokumóða
Washington 8 heiðskfrt
Winnipeg +9 heiðskfrt
Morgunblaðið/AP
Jóhann og Karpov hittust ekki á blaðamannafundinum sem þeir héldu
í fyrradag, helur svöruðu spurningum blaðamanna hvor í sinu lagi.
að vegna þess að hver skák væri fjög-
urra til sex klukkustunda löng, og
einbeitingar væri þörf hveija stund,
þá væri nauðsynlegt að vera and-
lega, jafnt sem líkamlega, vel undir-
búinn. Mikilvægast væri þó að fara
yfir skákir, einkum upphaf þeirra.
Karpov sagðist telja sig þekkja
bæði hinar veiku og sterku hliðar
Jóhanns í taflmennskunni. Hann var
spurður um þær skákir sem hann
hefur teflt við Jóhann síðastliðin tvö
ár, en Karpov vann tvær þeirra og
tvær enduðu með jafntefli. „Aðal-
vandinn er sá,“ sagði Karpov, „að
skilja sjálfan sig og sínar veiku hlið-
ar. Ef hann (Jóhann) skilur af hveiju
hann tapaði skákunum, þá er ég í
hættu staddur." Karpov brosti.
Sterkustu hlið Jóhanns sagði hann
vera miðtaflið.
Karpov lýsti yfir óánægju sinni í
sambandi við ósamræmi það sem nú
ríkir í tímatakmörkum skáka, annars
vegar í einvígi um réttindi til að tefla
við heimsmeistarann, og hins vegar
í heimsmeistaraeinvígi. Taldi hann
brýnt að samræma þessar tímatak-
markanir.
Á fundinum kom fram að Bob
Walsh, forseti Vináttuleikanefndar
Seattle-borgar, er nú að kanna
möguleika á því að Seattle sláist í
hóp þeirra borga sem boðist hafa til
að halda næsta heimsmeistaraeinvígi
í skák, en það verður háð á næsta ári.
Á fundinum var aðaldómari móts-
ins, Bandaríkjakonan Carol Jarecki,
kjmnt. Mun hún vera fyrsta konan
sem skipar slíka stöðu í einvígi sem
þessu. Aðstoðardómari einvígisins
verður Kínveijinn Lin Sing.
1
1985: Ný tóbaks-
vamartög tóku gildi
1977:Löggjöf
um tóbaksvamir.
Námskeiö
f sjónvarpl
Skýrsla
bandarlska
landlæknis-
ins kom út
1945:
Strlös-
lok
'80 '85 '88
-1000
Þeir sem reykja daglega (i8-69ára)
( 1985 f
40,0%
( 1987
8111111.
34
.7%:iS
TÓBAKS-
2000
1500
NOTKUN
ÍSLENDINGA
Tóbaksneysla hvers
fullorðins á ári
í grömmum, 1941-88.
Eitt gr. samsvarar
einni sígarettu.
1968-69:
Minnkandi
kaupmáttur
og þrengingar
I efnahagslffi
undanhaldi
Reykingar á
TÓBAKSNEYZLA íslendinga hef-
ur dregizt verulega saman síðan
árið 1984. Samkvæmt tölum ÁTVR
um sölu á tóbaki hefur tóbak-
sneyzla á hvern fullorðinn íbúa
dregizt saman úr 3.045 g árið 1984
í 2.651 g á síðasta ári. Þetta er
13% samdráttur.
í könnunum, sem Hagvangur hefiir
gert fyrir Tóbaksvamanefnd þrisvar
sinnum á ári síðan árið 1985, kemur
fram að þeim, seni reykja daglega,
hefur einnig fækkað mikið. Árið 1985
reyktu 40% 2.708 manna úrtaks að
staðaldri, en á síðasta ári var þessi
tala komin niður í 34,7%.
Kannanir meðal grunnskólanema
sýna að æ færri byija á reykingum.
Árið 1974, er tóbaksneyzla var í hám-
arki, gerði landlæknisembættið í
Reykjavík könnun á reykingavenjum
í skólum. Þá reyktu 32% 12-16 ára
grunnskólanema í Reykjavik, þar af
22,8% daglega. Árið 1986 kom hins
vegar fram í könnun borgarlæknis
að aðeins 12,6% sama aldurshóps
reyktu, þar af 9,2% daglega.
Samkvæmt upplýsingum frá
Krabbameinsfélaginu og ÁTVR hefur
samsetning tóbakssölunnar einnig
breytzt. Hlutur sígaretta hefur aukizt
mikið, og voru þær árið 1987 um 87%
af heildarsölunni miðað við 52% árið
1941. Sígarettur með síu eru nú um
90% allra seldra sígaretta miðað við
5% árið 1960. Tjara og nikótín í síga-
rettum hafa einnig minnkað á síðustu
árum, og til þess að fá sama dag-
skammt af þessum efnum, þarf að
reykja fleiri sígarettur. Engu að síður
dregst sala á sígarettuin saman, og
minnkaði um 10 tonn á síðasta ári.