Morgunblaðið - 28.01.1989, Side 12

Morgunblaðið - 28.01.1989, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989 1 Menningarsjóð- ur útvarpsstöðva Sinfóníuhljómsveitin - Ríkisútvarpið eftir Jón Þórarinsson I Morgunblaðinu í dag birtist stutt athugasemd frá Herði Vil- hjálmssyni, fjármálastjóra Ríkisútvarpsins, vegna fréttar sem verið hafði í blaðinu 22. þ.m. um starfsemi Menningarsjóðs út- varpsstöðva. Fréttin var að mínum dómi skilmerkileg og greinargóð, enda beinast aðfínnsl- ur Harðar ekki að henni heldur eingöngu að vinnubrögðum sjóðs- stjómarinnar. Það vill svo til að ég sat í sjóðs- stjóminni frá upphafí og fram undir síðustu áramót, tilnefndur af útvarpsráði, og ber því að mínu leyti fulla ábyrgð á störfum henn- ar. Ég á erfítt með að sætta mig við þá hugsun að Hörður Vil- hjálmsson telji mig þar hafa bmgðist Ríkisútvarpinu á ein- hvem hátt, þótt orð hans verði naumast skilin á annan veg, og því hlýt ég að gera stuttlega grein fyrir málinu eins og það kemur mér fyrir sjónir. Höfuðatriði í athugasemd fjár- málastjórans er að framlög sjóðs- ins til rekstrar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands séu „eingöngu færð af framlagi Ríkisútvarpsins" og sé það rangt að hans áliti. „Þau rekstrarframlög á að taka af óskiptu fé sjóðsins." M.ö.o. tel- ur hann að einkastöðvamar, sem engrar þjónustu njóta af hálfu Jón Þórarinsson er í lögunum skýrt fram tekíð að úr sjóðn- um skuli greiðast hlut- ur Ríkisútvarpsins af rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar, og Ríkisútvarpið er eitt nefiit sem væntanlegur flytjandi þess efiiis sem hún hefiir að bjóða.“ Sinfóníuhljómsveitarinnar, eigi að standa undir rekstri hennar hlut- fallslega að jöfnu við Ríkisútvarp- ið sem eitt situr að öllu því mikla og dýrmæta efni sem hljómsveitin lætur í té á ári hveiju. Þessa kröfu hef ég ekki treyst mér til að setja fram eða reyna að rökstyðja í sjóðsstjóminni, og lái mér það hver sem vill eins og málum er háttað. Ríkisútvarpið hefur verið rekstraraðili Sinfóníuhljómsveitar íslands frá fyrstu tíð og hefur haft af því mijcinn sóma. Um það veit ég að við Hörður Vilhjálmsson erum sammála. Þrátt fyrir flaust- ursleg ákvæði um Menningarsjóð útvarpsstöðva í útvarpslögunum frá 1985 mun ekki hafa verið ætlunin að breyta þessu, enda er í lögunum skýrt fram tekið að úr sjóðnum skuli greiðast hlutur Ríkisútvarpsins af rekstrarkostn- aði hljómsveitarinnar, og Ríkisút- varpið er eitt nefnt sem væntan- legur flytjandi þess efnis sem hún hefur að bjóða. Hljómsveitin hefur engar starfsskyldur gagnvart öðr- um útvarpsstöðvum, og hefur sá skilningur verið áréttaður 19. jan- úar 1988 í ráðuneytisbréfí, sem ég veit að Herði er kunnugt. Samkvæmt lögum um Sin- fóníuhljómsveit íslands frá 1982 er hlutur Ríkisútvarpsins í rekstr- arkostnaði hennar 25%. Þetta hefur ekkert breyst við setningu útvarpslaganna og tilkomu Menn- ingarsjóðs útvarpsstöðva. Ég veit heldur ekki betur en að enn sé í gildi samningur, sem undirritaður var 29. desember 1984, um það hvað Ríkisútvarpið ber úr býtum í skiptum sínum við hljómsveitina. Þó að 25% af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar sé að vísu nokkuð há upphæð, hygg ég að færa megi að því gild rök að samningurinn sé Ríkisútvarpinu hagstæður, þegar alls er gætt. Með þökk fyrir birtingu. 26. janúar 1989 Jón Þórarinsson Höfundur er tónskáld. Um vagnatöku stj órnarformanns eftír Sigurð E. Haraldsson Óþarft er að fara mörgum orðum um þá staðreynd, að augu flestra eru að opnast fyrir því að umhverfi er ekki óumbreytanlegt. Það er raunar í fjölmörgum tilvikum við- kvæmt og unnt að breyta til hins verra sé ekki gætt fyllstu varkámi. Þetta er augljósast í náttúrunnar ríki. En það gildir sömuleiðis í öðr- um tilvikum. Þeir sem takast á við skipulagsmál í borgum og bæjum hafa nú hliðsjón af vemdarsjónar- miðum við alla skipulagsvinnu. Gamalgróin borgarhverfi eru við- kvæm vilji menn ekki raska stöðu þeirra og hag ber að gæta að hveiju skrefí, sem stigið er til meiriháttar breytinga. A þetta er bent að gefnu tilefni. Formður stjómar strætisvagna Reykjavíkur, Siguijón Fjeldsted, ritar grein í Morgunblaðið 10. des- ember sl. sem ber þess glögg merki, að hann kann ekki þá formúlu, sem að var vikið hér á undan. Svo virð- ist sem stjómarformaðurinn tali í umboði allrar stjómar strætisvagn- anna, í öðrum stjómarmönnum hef- ur ekki heyrst um þau mál, sem Siguijón ræðir í umræddri grein. Ég er þó ekki einn um þá skoðun, að erfitt sé að trúa því að hann komi á framfæri einróma áliti stjómarmanna í þessum greina- skrifum. Siguijón nefnir umrædda grein Laugavegurinn og strætó. Ekki verður sagt að ritsmíð formannsins sé gleðiefni þeim sem láta sig mál- efni Laugavegarins og miðborgar- innar einhveiju varða. Markmið greinarinnar virðist einkum vera að slæma til framkvæmdastjóra samtakanna Gamli miðbærinn, Ast- bjamar Egilssonar. Mér þykir ómaklega að honum vegið, Ástbjöm er þekktur að atorku og einlægni í sínum störfum. En í skrifum þessa forsvarsmanns SVR kemur ýmis- legt fram, sem varla verður komist hjá að gera athugasemdir við. Siguijón kemst m.a. svo að orði: „Reynsla mín er sú að bestur árang- ur á lausn ágreiningsmála fæst með beinum persónulegum og málefna- legum viðræðum, þar sem skipst Sigurður E. Haraldsson „Mér eru viðbrögð Sig- urjóns Fjeldsted minn- isstæð. Hann svaraði orðrétt: Eg er ákveðinn í að taka vagnana af Laugaveginum. Eftir þetta svar formannsins drógum við óskina um fund með honum til baka. Fyrirætlun hans kom síðan til fram- kvæmda efitir áramótin en af viðræðum við hann varð ekki. Séu formerki eitthvað þessu lík, sem þessi ráðamaður um al- mannasamgöngur set- ur áður en hann tekur að ræða málin, er vand- séð að viðræður við hann þjóni tilgangi.“ er á skoðunum og vandamálin lögð á borðið." Þetta þykir mér undarleg klásúla hjá formanninum að feng- inni reynslu. Það er ekki nýtt að akstur almenningsvagna um Laugaveginn beri á góma. Ég og fleiri kaupmenn við Laugaveginn minnumst margra funda með Eiríki Ásgeirssyni, fyrrum forstjóra SVR, um vandamál, sem upp hafa komið. Eiríkur heitinn var hréinskiptinn maður og mikill húsbóndi á stór- býli strætisvagnanna. Það er ljúft að minnast Eiríks Ásgeirssonar og margra heimsókna til hans á Kirkjusand. En hann féll frá í miðri starfsönn og nýir herrar tóku við JÚSAHÖLOÍ Ljósmynd/Snorri Snorrason stjómartaumunum. Svo var það fyrir jól, líklega fyrir tveimur árum, að það fréttist að taka ætti alla vagna af Laugaveginum. Við hugð- umst ræða þessa ákvörðun við stjórnarformann SVR og ég hringdi til hans í því augnamiði að koma á viðræðufundi. Mér era viðbrögð Siguijóns Fjeldsted minnisstæð. Hann svaraði orðrétt: Ég er ákveð- inn í að taka vagnana af Laugaveg- inum. Eftir þetta svar formannsins drógum við óskina um fund með honum til baka. Fyrirætlun hans kom síðan til framkvæmda eftir áramótin en af viðræðum við hann varð ekki. Séu formerki eitthvað þessu lík, sem þessi ráðamaður um almannasamgöngur setur áður en hann tekur að ræða málin, er vand- séð að viðræður við hann þjóni til- gangi. Það kemur réttilega fram í grein Siguijóns að áður en hann tók vagn- ana af Laugaveginum var vagn þar á ca. 3ja mínútna fresti. Nú er vagn á eftirmiðdögum, þ.e. á þeim tíma þegar flestir era þar á ferð, á 15 mínútna fresti. Og ítreka má að á kvöldin og um helgar aka vagnar alls ekki Laugaveginn. Stjómar- formaður SVR kallar þetta sér- þjónustu og kemst svo að orði að aðrir myndu ekki „fúlsa“ við slíku. Hvað á maðurinn við? Heldur hann í raun að rétt væri að beita ein- hveiju ámóta annars staðar í borg- inni, þ.e. að þeir sem þar eiga hlut að máli borgi styrk til strætisvagn- anna fyrir málamyndaþjónustu, eins og nú er á Laugaveginum. Það gæti verið að „fúlsað" yrði við slíku víðar en þar. Það kom fram í frétt í dagblaðinu Tímanum 29. desember sl. að far- þegum SVR hefði fækkað um eina milljón milli tveggja síðustu ára, sem sagt um tvær milljónir á tveim- ur áram. Séu vinnubrögð stjómenda strætisvagnanna, eins og við á Laugaveginum höfum kynnst þeim nú að undanfömu, dæmigerð fyrir viðhorf til þjónustu við farþega og þýðingarmikið borgarhverfí, þá er ekki undranarefni þótt farþegum fækki. Siguijón Fjeldsted drepur á það í greinarlok, að veralegum fjármun- um hafi verið veitt til breytinga og lagfæringa á Laugaveginum. Sem betur fer má merkja, m.a. af þess- um framkvæmdum, að aðrir hafí betri skilning á mikilvægi mið- borgarhverfanna en þeir sem sitja stjómarfundi SVR. Það skýlir ekki á nokkum hátt forráðamönnum strætisvagnanna. Og því er ekki að leyna að verk þeirra hljóta að kalla á harkalegri viðbrögð en enn hefur mátt sjá, grípi borgaryfirvöld ekki fram fyrir hendur svo misvit- urra stjómenda. Siguijón Fjeldsted víkur að byggingu ráðhúss við tjömina í grein sinni. Hvort sú framkvæmd ein sér sannar eitthvað umfram það að borgaryfírvöld hafa metnað og reisn til að eignast loks þak yfír höfuðið, sem samboðið er okkar fallegu höfuðborg, mætti flalla um þótt síðar verði. Vonandi kemur ekki á daginn, að um svipað leyti og ráðhúsið rís af granni verði miðborgin svipt einni af sinni feg- urstu fjöðrum, með því að gera Hótel Borg að þingmannakontór. Höfundur er kaupmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.