Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Frá Æfingu barnaleikritsins Óvita í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið sýnir Óvita:
Elsti leikarinn á sjötugs-
aldri, sá yngsti sjö ára
Þjóðleikhúsið frnmsýnir
barnaleikritið Óvita eftir Guð-
rúnu Helgadóttur í dag, laugar-
daginn 28. janúar. í sýningunni
leika 29 leikarar, 9 fullorðnir og
20 börn. Flosi Ólafsson er elstur
leikaranna, á sjötugsaldri og
leikur smábarn í kerru. Yngsti
leikarinn er Melkorka Óskars-
dóttir, hún er sjö ára og leikur
elstu persónu verksins, sveita-
konu. Guðrún Helgadóttir skrif-
aði leikritið að beiðni Þjóðleik-
hússins í tilefrii Barnaárs Sam-
einuðu þjóðanna árið 1979 og
hlaut verkið bestu aðsókn
íslensks barnaleikrits, var sýnt
alls 56 sinnum, segir i fr-étt frá
Þjóðleikhúsinu.
í Óvitum er allt öfugsnúið. Böm-
in fæðast stór, en minnka með aldr-
inum. Foreldramir reyna að fá
bömin til að borða minna, svo að
þau verði lítil. Mömmur reyna að
spara með því að kaupa of lítil föt
á krakkana, því að „bömin minnka
svo hratt." Bömin leika fullorðna
og fullorðnir leika böm. Því eldri
sem leikarinn er, þeim mun yngri
persónu leikur hann.
Söguhetjumar, Guðmund og
Finn, leika þeir Þór Thulinius og
Halldór Bjömsson. Þeir verða vinir
þegar þegar Finnur strýkur að
heiman og leitar skjóls á heimili
Guðmundar án vitundar foreldra
þeirra. María Ellingsen leikur syst-
ur Guðmundar, Sigrún Waage er
Sirrý bekkjarsystir þeirra, aðrir
fullorðnir leikarar em Guðlaug
María Bjamadóttir, Helga Jóns-
dóttir, Randver Þorláksson, Öm
Ámason og Flosi Ólafsson.
í stærstu bamahlutverkunum em
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og
Haukur Karlsson sem leika foreldra
Guðmundar, Vaka Antonsdóttir og
Torfí F. Ólafsson leika foreldra
Finns og Sigríður Hauksdóttir leik-
ur móður Sirrýar. Auk þeirra koma
fram Erla Gunnarsdóttir, Grímur
Hákonarson, Hlín Diego, Hildur
Eiríksdóttir, Linda Marteinsdóttir,
Helga Sigmundsdóttir, Freyr Ól-
afsason, Alfrún Helga Ömólfsdótt-
ir, Melkorka Óskarsdóttir, Bergur
Sigurðarson, Orri Helgason, Oddný
Amarsdóttir, Helgi Páll Þórisson,
Hrafnkell Pálmarsson og Oddný
Ingimarsdóttir.
Leikstjóri Óvita er Brynja Bene-
diktsdóttir og Gylfi Gíslason teikn-
aði leikmynd. Þau sáu einnig um
fyrri uppfærslu verksins í Þjóðleik-
húsinu. Ljósahönnuður er Ásmund-
ur Karlsson.
Kristján Guðmimds-
son opnar sýninguna
„Teikningar 1972-1988“
Fyrsta boðssýningin á vegum Kjarvalsstaða
SÝNINGIN „Teikningar 1972-1988“ verður opnuð í vestursal Kjarv-
alsstaða í dag, laugardag, kl. 16.00. Öll verkin eru eftir Kristján
Guðmundsson og er hann fyrsti listamaðurinn, sem boðið er að
sýna verk sín að Kjarvalsstöðum. Menningarmálanefhd Reykjavíkur-
borgar samþykkti í fyrra þessa nýbreytni og fá alls þrír listamenn
að njóta þessa í ár. Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir í vor og Erró
mun setja þar upp sýningu í haust í boði Kjarvalsstaða.
Kristján var á sínum tíma einn
helsti fulltrúi SÚM-hópsins og
einna fyrstur til að tileinka sér
myndmál og aðferðir „konsept"-
listarinnar svokölluðu í byijun átt-
unda áratugarins. Sú list hefur
ávallt verið með einkar fræðilegu
sniði og stuðst við skýrar og afger-
andi forsendur. Allt frá upphafí
virðist list Kristjáns Guðmundsson-
ar fjalla um listina með stóm L-i,
hvort sem það er með jákvæðum
eða neikvæðum formerkjum. í fyrri
verkum listamannsins miðast allt
við að gera listina ekki Iist í hefð-
bundnum skilningi heldur hefta
hana og loka frá allri löngun,
ímyndun og hillingum, sem annars
gæfu henni vængi, segir í frétt frá
Kjarvalsstöðum. Verkin voru lokuð
utan um eigin kenningar og klifun.
Á síðustu árum hefur Kristján hins-
vegar opnað fyrir þátttöku áhorf-
andans í verkum sínum, líkt og
fleiri „konsept“-listamenn áttunda
áratugarins, og boðið honum að
njóta fagurfræðilegra unaðsemda
myndverksins. Merkingarkjaman-
um hefur verið sundrað og í stað
hans er komið, svo notuð séu orð
listamannsins sjálfs, „burðarafl
hráefnisins - staðbundin orka
þess“.
Orgel-
tónleik-
aríFrí-
kirkjunni
SUNNUDAGINN 29. janúar
klukkan 17.00 stendur Listvina-
félag Hallgrímskirkju fyrir org-
eltónleikum í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Hörður Áskelsson
organisti Hallgrímskirkju leikur
islenska og franska orgeltónlist.
Þessir tónleikar áttu upphaflega
að vera í Kristskirkju, en vegna
viðgerða á orgelinu þar voru
þeir fluttir í Fríkirkjuna. Allur
aðgangseyrir rennur í orgelsjóð
Hallgrimskirkju, en vonir standa
til að innan þriggja ára verði
lokið si.’íði 70 radda orgels fyrir
Hallgrímskirkju.
Verkin sem Hörður leikur eru
Tokkata eftir Jón Nordal, sálm-
forleikur eftir Þorkel Sigurbjöms-
son, E-dúr kórall nr. 1 eftir César
Franck, Sónata eftir Áskel Másson
og Gotnesk svíta eftir Leon Boell-
mann. Hörður lutti svipaða efnis-
skrá á þrennum tónleikum í Þýska-
landi sl. haust, m.a. á norrænni
orgelviku í Kartáuser-kirkjunni í
Köln. Við það tækifæri frumflutti
hann orgelsónötuna eftir Áskel
Másson, en hún var skrifuð að til-
hlutan Listvinafélags Hallgríms-
kirkju árið 1986 og er eitt viða-
mesta orgelverk íslensks tónskálds.
Sauer-orgel Fríkirkjunnar í
Reykjavík, sem smíðað var árið
1926, er stærsta orgelið í Reykjavík
Morgunblaðið/RAX
Kristján Guðmundsson, mynd-
listarmaður
myndir. Sum verkanna eru til sölu,
en önnur eru fengin að láni hjá
einstaklingum.
Sýning-
ar á ís-
lenskum
verkum
í Listasafni íslands standa nú
yfir sýningar á islenskum verk-
um í eigu safnsins.
í sal 1 em kynnt verk Jóhannes-
ar Kjarvals, Jóns Stefánssonar og
Gunnlaugs Schevings. Landlags-
málverk Þórarins B. Þorlákssonar
og Ásgríms Jónssonar em sýnd í
sal 2. Á efri hæð safnsins em sýnd
ný aðföng, málverk og skúlptúrar
eftir íslenska listamenn.
Leiðsögn um sýningar í húsinu í
fylgd sérfræðings fer fram á sunnu-
dögum kl. 15.00 og em auglýstar
leiðsagnir ókeypis.
Leiðsögn um „Mynd mánaðarins“
fer fram á fimmtudögum kl. 13.30.
Mynd janúarmánaðar er „Hjartað"
eftir Jón Gunnar Árnason. Lista-
safn íslands er opið alla daga, nema
mánudaga kl. 11—17 og er aðgang-
ur ókeypis.
Veitingastofa hússins er opin á
sama tíma.
(Fréttatilkynning)
M.S.-félagið:
20 ára af-
mælisrit
komið út
M.S.-félag íslands varð 20 ára á
liðnu hausti og í tilefni þess hef-
ur nú verið 'gefið út sérstakt af-
mælisrit.
Þar er að fínna ritsmíðar ýmissa
lækna, vísindamanna, M.S.-sjúkl-
inga og aðstandenda þeirra um
ýmislegt sem lýtur að sjúkdómnum,
lífí sjúklinganna og stöðu þeirra.
Forsíða afinælisritssins
Kristján er fæddur á Snæfells-
nesi, en uppalinn í Reykjavík. Hann
er sjálfmenntaður í myndlist og em
um það bil 25 ár siðan hann byij-
aði, að eigin sögn. Hann tók fyrst
þátt í sýningu árið 1967, sýningu
sem bar heitið „Ungir myndlistar-
rnenn" í Laugardalshöll og hefur
síðan sýnt víða, bæði hér heima
og erlendis. Kristján er nú búsettur
í Reykjavík. Hann bjó í Amsterdam
frá 1970 til 1979 og á Hjalteyri
við Eyjaíjörð frá 1979 til 1982.
Hann segist fást við margbreyti-
lega hluti í myndlistinni, teikning-
ar, olíuverk, skúlptúra og bóka-
gerð.
Sýning Kristjáns að Kjarvals-
stöðum er opin daglega frá kl.
11.00 til kl. 18.00 og stendur til
12. febrúar. Á sýningunni verða
hátt í 30 teikningar, allt abstrakt-
Hörður Áskelsson organisti.
með 36 raddir. Það var gert upp
og stækkað árið 1985 og hentar
mjög vel til flutnings á rómantískri
og nýrri orgeltónlist.
Þessir tónleikar em í röð áskrift-
artónleika Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn, en andvirði
þeirra rennur, sem fyrr segir, í org-
elsjóð Hallgrímskirkju.
(Fréttatilkynning)
Börn norðursins
Myndskreytingar úr
norrænum barnabókum
SÝNINGIN „Börn norðursins" verður opnuð í Norræna húsinu
sunnudaginn 29. janúar nk. kl. 14:00. Er þarna um að ræða sýn-
ingu á myndskreytingum úr norrænum barnabókum. Sýningin
er hingað komin á vegum Norræna hússins og Barnabókaráðs-
ins, en þetta er sama sýning og haldin var í Osló dagana 26. til
30. september 1988 í tilefiii 21. Alþjóðaþings IBBY þar. Þing
þetta bar yfirskriftina „Barnabókmenntir og nýju miðlarnir."
Skipuleggjendur og umsjónarmenn þingsins voru fúlltrúar IBBY-
deildanna á Norðurlöndum I sameiningu. Frá íslandi voru send
verk eftir Brian Pilkington, Önnu Cynthiu Leplar og Sigrúnu
Eldjárn.
í tengslum við þessa sýningu
era fyrirhugaðar ýmsar uppákom-
ur bæði fyrir börn og fullorðna.
Laugardaginn 4. febrúar hefst
ráðstefna á vegum IBBY í Norr-
æna húsinu kl. 13:00. Þar verða
haldnir fyrirlestrar um ýmsa þætti
barnamenningar. Meðan sýningin
stendur yfír lesa höfundar nokkr-
um sinnum úr verkum sínum frá
kl. 13:00—15:00 og sagnaþulir
segja sögur. Ennfremur gefst
börnum tækifæri til að kynnast
teiknimyndagerð, vinna við mynd-
list og leikræna tjáningu.
Fréttatilkynningar verða
sendar í skólana á höfuðborgar-
svæðinu og geta kennarar fengið
tíma fyrir hópa ef þeir óska þess.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
12. febrúar.
(Fréttatilkynning)