Morgunblaðið - 28.01.1989, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.01.1989, Qupperneq 23
1 : MÖRGUNBLAÐIÐ lADGÁRDÁ'GUR 28. JANÚÁR ‘1989 23 Hryðjuverkaalda á Grikklandi: Stj órnin ákveður að grípa til aðgerða 65 milljónir króna settar til höf- uðs morðingja ríkissaksóknara Aþena. Reuter. HAFIN er herferð á hendur hryðjuverkahópum í Grikklandi í því skyni að uppræta marxíska skæruliðahópa sem hafa mikið látíð að sér kveða í landinu undanfarin ár og skutu meðal annars á þijá ríkissaksóknara síðastliðnar tvær vikur. Einn þeirra, Anastasios Vernardos, lést af skotsárum fyrir utan heimili sitt síðastliðinn mánudag. Skyndifundur æðstu embættis- manna landsins, undir stjóm Andre- as Papandreous forsætisráðherra, tilkynnti í gær að gripið yrði til eftirtalinna ráðstafana í baráttunni við skæruliðahópa: 200 milljónir drakma, jafnvirði 65 milljóna ísl. króna, verða lagðar til höfuðs til- ræðismönnum saksóknaranna, lög- reglu verður tafarlaust látin 600 vélhjól, 200 bflar og nútímatækni- búnaður í té og vegabréfseftirlits- stöðvar verða tafarlaust tölvuvædd- ar. í tilkynningu, sem gefin var út í lok fundarins sagði: „í ljósi þess hversu alvarlegt ástandið er hvetur ríkisstjómin alla borgara, án tillits til pólitískrar eða hugmyndafræði- legrar afstöðu þeirra, að aðstoða við að koma á friði og spekt í þjóð- félaginu." Auk þess verður komið á fót sjálf- stæðri deild innan lögreglunnar sem mun eingöngu beita sér gegn hryðjuverkahópum. Talsmenn lögreglunnar hafa löngum kvartað undan því að tækjakostur og vopn sé úr sér geng- inn og á engann hátt sambærilegur við útbúnað þann sem Byltingar- samtökin 17. nóvember hafa yfir að ráða. Samtök lýstu ábyrgð á morðtilræðinu við tvo saksóknara á hendur sér. Marxistar úr hermdar- verkasamtökunum Fyrsti maí kveð- ast bera ábyrgð á morðinu á Vem- ardos. Ræður Reagans og end- urminningar geftiar út New York. Reuter. BANDARÍSKT útgáfufyrirtæki hefúr náð samningi við Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, um útgáfii á endurminningum hans og ræðum. Blaðafúlltrúi fyrirtækisins, sem nefiiist Simon and Schuster, skýrði frá þessu f gær en vildi ekki láta uppi hversu há höfundarlaun Reagans yrðu. Að sögn blaðafulltrúans verða ræður Reagans gefnar út á þessu ári en ekki liggur fyrir hvenær endurminningar hans koma fýrir almenningssjónir en Reagan mun þegar hafa tekið til við skriftirn- ar. Nancy, eiginkona hans, hyggst einnig rita endurminningar sínar og mun bók hennar að líkindum" koma út í október. Heimildarmenn Reuters-frétta- stofunnar vom sammála um að samningurinn væri feitur biti fyr- ir útgáfufýrirtækið því fullvíst væri að bækur Reagans kæmu til með að seljast vel. Þeir hinir sömu kváðust búast við því að Reagan, sem er 77 ára að aldri, fengi ekki minna en eina milljón Banda- ríkjadala (um 50 milljónir ísl. kr.) í höfundarlaun. Aðrir töldu upp- hæðina mun hærri og sögðu fimm milljónir dala (um 250 milljónir ísl. kr.) ekki fjarri lagi. Fullyrt hefur verið að David Stockman, fyrrum fjármálastjóri Reagans, hafi fengið tvær milljón- ir dala (um 100 milljónir ísl.) í höfundarlaun fyrir umdeildar end- urminningar sínar og vitað er að þeir Donald Reagan, sem í eina tíð var skrifstofustjóri forseta- embættisins og skýrði fyrstur manna frá stjömuspekiáhuga for- setafrúarinnar, og Larry Speakes, fyrrum talsmaður forsetans, hafa auðgast vel á bókum sínum. handa þér, ef þú hittir á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! Aðalstræti 9 - Kringlunni SAMCWAÐA/SJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.