Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Vandamálin
hrannast upp
Vandamálin hrannast upp
óafgreidd hjá núverandi
ríkisstjóm. Sú ákvörðun ráð-
herranna, að Póstur og sími
skuli greiða 250 milljónir
króna í ríkissjóð þýðir, að
stofnunin þarf að hækka
gjaldskrá sína til þess að geta
staðið skil á þessari skatt-
heimtu. Sú hækkun á gjald-
skrá Pósts og síma leiðir til
hækkunar á lánskjaravísi-
tölu, sem þýðir hækkun á
skuldum húsbyggjenda.
Landsvirkjun var rekin
með tapi á síðasta ári og
stjómendur fyrirtækisins
telja að hækka þurfí gjald-
skrá þess um 30%. Jafnframt
vom Rafmagnsveitur ríkisins
reknar með miklu tapi á
síðasta ári og stjómendur
þess fyrirtækis telja að
hækka þurfí gjaldskrá þess
til viðbótar við þá hækkun,
sem leiðir af hækkun Lands-
virkjunar. í báðum tilvikum
þýðir þessi hækkun á orku-
verði hækkun á lánskjaravísi-
tölu og skuldum húsbyggj-
enda.
Sú flárhæð, sem ráðgerð
er í fjárlögum til niður-
greiðslu á búvöm, dugar ekki
til þess að halda óbreyttu
búvömverði. Að óbreyttu
mun það því hækka, sem aft-
ur leiðir af sér hækkun á láns-
kjaravísitölu og skuldum hús-
byggjenda.
Aburðarverksmiðjan þarf á
mikilli hækkun áburðarverðs
að halda. Sú hækkun leiðir
af sér umtalsverða hækkun á
búvöm, sem aftur þýðir
hækkun á lánskjaravísitölu
og skuldum húsbyggjenda.
Allar þessar hækkanir koma
til viðbótar þeim skattahækk-
unum, sem ríkisstjómin beitti
sér fyrir i lok desember og
byxjun janúar og kemur
óþyrmilega við skattgreið-
endur auk þess sem þessar
skattahækkanir þýða hækk-
un á lánskjaravísitölu og
hækkun á skuldum húsbyggj-
enda.
Á meðan „Róm brennur“
svo að vitnað sé til orða
Steingríms Hermannssonar
við annað tækifæri, situr
ríkisstjómin á rökstólum og
deilir um vexti og gengi.
Sumir ráðherrar vilja afnema
vaxtafrelsi. Einn ráðherra er
því gjörsamlega andvígur.
Sumir ráðherrar vilja mikla
gengislækkun. Aðrir ráðherr-
ar vilja litla gengislækkun.
Enn liggur engin niðurstaða
fyrir en stefnt er að því að
svo verði um þessa helgi,
hvort sem það verður í raun
eða ekki.
Ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar hafði tæki-
færi til þess sl. haust, eftir
stjómarslitin, að grípa til al-
mennra efnahagsráðstafana
vegna þess, að hún hafði þá
byr meðal almennings. Það
tækifæri er gengið stjóminni
úr greipum. Andstaðan gegn
henni vex dag frá degi. Það
blasir við, að engin samstaða
er innan þessarar ríkisstjóm-
ar um gmndvallarþætti efna-
hags- og atvinnumála. Þess
vegna er hætta á því, að að-
gerðir hennar verði tómt kák.
Þótt ekki sé æskilegt eða
heppilegt að steypa þjóðinni
út í kosningar, þegar miklir
erfiðleikar steðja að eins og
nú, er þó ljóst, að það er betri
kostur en að aðgerðalítil og
ráðlaus ríkisstjóm sitji mán-
uðum saman og rífíst inn-
byrðis. Núverandi ríkisstjóm
er að lílg'ast æ meir þeirri
vinstri stjóm, sem hrök-
klaðist frá haustið 1979 eftir
að hafa starfað í tæpt ár og
allt logaði í sundurlyndi milli
stjómarflokkanna, þeirra
sömu flokka og mynda þá
ríkisstjóm, sem nú situr. Þá
var það Alþýðuflokkurinn,
sem kvað upp úr með það,
að ekki væri hægt að halda
því samstarfí áfram.
Talsmenn Alþýðuflokksins
hafa haldið því fram síðustu
misseri, að flokkur þeirra
væri öðrum ábyrgari. Jón
Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, heldur enn uppi bar-
áttu gegn því, að horfíð verði
til fortíðarinnar í vaxtamál-
um. Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokks-
ins, var einn þeirra manna,
sem hafði forystu um að ijúfa
stjómarsamstarfið 1979.
Staðan nú er að verða sú
sama og haustið 1979. Hver
verður afstaða formanns Al-
þýðuflokksins nú?
Stj órnar-Kreppan
eftir Þorstein Pálsson
Undanfamar vikur hafa farið
fram all sérkennilegar stjómar-
myndunarviðræður. Þessar viðræð-
ur hafa varpað ským ljósi á þá
stjómarkreppu sem við búum nú
við. Um leið sýna þær vonleysið í
röðum forystumanna ríkisstjómar-
flokkanna fjögurra að þeir skuli,
eftir aðeins þriggja mánaða setu,
hefja viðræður við fímmta flokkinn
um myndun nýrrar ríkisstjómar.
Stjómarkreppan kemur fram í
ýmsum myndum. í fýrsta lagi er
rétt að hafa í huga að ríkisstjómin
hefur fram til þessa ekki haft meiri-
hluta í báðum deildum Alþingis. í
því efni hefur hún þurft að reiða
sig á kænsku Stefáns Valgeirsson-
ar.
í annan stað kemur stjórnar-
kreppan fram í því að núverandi
stjórnarflokkum tókst ekki að semja
um ýmis veigamikil mál og stefnu-
atriði, sem eru því í lausu lofti. Það
hefur hins vegar verið afsakað með
tímaleysi í haust þegar stjómin var
mynduð.
Þriðja mynd stjómarkreppunnar
er að vísu af öðrum toga. Hún birt-
ist í því að stefna stjómarinnar
miðar að því markvisst að koma
hér á kreppu í íslensku atvinnulífí.
Ríkisstjómin er kennd við Steingrím
Hermannsson, en lýtur í raun for-
ystu Ólafs R. Grímssonar. Hann
fylgir kreppustefnu til þess að ná
pólliltískum undirtökum í atvinnu-
lífínu.
Grundvallaratriði utan *
stjórnarmyndunarviðræðna
Athyglisvert er að stjómarmynd-
unarviðræðumar síðustu vikur hafa
eingöngu snúist um að tryggja
ríkisstjóminni meirihluta í báðum
deildum í þeim tilgangi að gera
hana óháða kænsku Stefáns Val-
geirssonar. Ekkert sýnist hins veg-
ar hafa verið rætt, a.m.k. ekki í
alvöru, um að breyta vinstri kreppu-
stefnu. Og engum tíma virðist hafa
verið varið í að ræða um lausn á
þeim stóm ágreiningsmálum sem
ekki var unnt að semja um við
myndun þeirrar ríkisstjómar sem
enn situr.
Við myndun núverandi ríkis-
stjómar tókst hvorki Framsóknar-
flokki né Alþýðuflokki að fá ákvæði
inn í stjómarsáttmálann um aðild
Islands að Atlantshafsbandalaginu
né heldur um vamarsamninginn við
Bandaríkin. í fyrsta skipti í 40 ár
hefur utanríkisráðherra enga sam-
eiginlega eða samningsbundna
stjómarstefnu að styðjast við. Yms-
ir hafa af þessu áhyggjur einkan-
lega með tilliti til ístöðuleysis Al-
þýðuflokksins á öllum öðmm svið-
um þjóðmála.
í stjómarmyndunarviðræðum
síðastliðið haust náðist heldur ekki
samkomulag um afstöðu íslands til
hugsanlegrar aðildar að samkomu-
lagi við Atlantshafsbandalagið um
byggingu nýs varaflugvallar. Al-
þýðubandalagið hefur því augljós-
lega neitunarvald um þetta mikil-
væga atriði og hefur lýst því yfír
að það ætli að beita þ'ví valdi, þó
að næsta öruggt megi telja að
meirihluti sé á Alþingi fyrir slíku
samstarfí.
Loks fékk Alþýðubandalagið því
framgengt í stjómarmyndunarvið-
ræðum síðastliðið haust að það
hefði neitunarvald um hugsanlega
samninga við erlenda aðila um nýja
stóriðju og nýjar stórvirkjanir í
tengslum við slíka samninga. En
eins og menn rekur eflaust minni
til var það eina krafa Alþýðuflokks-
ins í þessum stjómarmyndunarvið-
ræðum að skýrt ákvæði kæmi inn
í stjómarsáttmálann um stefnu-
mörkun í þessu efni. Formaður
Framsóknarflokksins varð að kaupa
aðild Alþýðubandalagsins því verði
að snúa Alþýðuflokkinn niður með
þessa höfúðkröfugerð.
Fleiri með bundnar hendur
í álmálinu?
Öll þessi mikilvægu mál eru því
í uppnámi. Það sýnir metnaðarleysi
forystuflokksins fyrir þessum
stjómarmyndunarviðræðum að
hann hefur ekki gert tilraun til
þess að leiða þessi mál til lykta.
Og það staðfestir pólitíska uppgjöf
Alþýðuflokksins að hann hefur ekki
nefnt þessi mál einu orði í nýjum
stjómarmyndunarviðræðum. Hin
nýja forysta Borgaraflokksins sýn-
ist heldur ekki hafa munað eftir
því að takast á við þennan þátt
stjómarkreppunnar.
Það er öruggur meirihluti fyrir
álmálinu á Alþingi, ef Alþýðu-
bandalagið væri ekki í þeirri að-
stöðu að getað kúgað meirihlutann.
Gangi Borgaraflokkurinn inn í
ríkisstjórnina án samninga um
skýra stefnumörkun í þessu veiga-
mikla framfaramáli em færri þing-
menn en áður með fijálsar hendur
en að sama skapi fleiri bundnir
neitunarvaldi Alþýðubandalagsins.
Ég ætla ekki að leiða neinum
getum að því hver verður niður-
staða af þessum stjómarmyndunar-
viðræðum sem nú hafa staðið í þijár
vikur án árangurs. Hitt virðist alveg
augljóst að jafnvel þó að þær leiði
til myndunar nýrrar ríkisstjórnar
leysir það aðeins einn þátt þeirrar
stjómarkreppu sem við búum nú
við. En veigamestu þættir hennar
verða enn óleystir. Það er enginn
vandi fyrir þá aðila sem að þessum
stjómarmyndunarviðræðum standa
að pakka einhveijum af kröfum
Borgaraflokksins inn í silkipappír
nánari athugana. En þriggja vikna
viðræður sýna glöggt að enginn
stjómarmyndunarflokkanna hefúr
gert minnstu tilraun til þess að fá
botn í hina eiginlegu stjómar-
kreppu, sem snýst um sameiginlega
stjómarstefnu.
Málefni gegn gaspri
Talsmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa undanfarna mánuði verið í
mjög eindreginni, en um leið mál-
efnalegri, andstöðu við stefnu nú-
verandi vinstri stjómar. Um leið
hafa þeir sýnt fram á hvaða mögu-
leika islenska þjóðin á undir merkj-
um fijálslyndrar umbótastefnu. Það
hafa því verið dregnir fram mjög
skýrir kostir í stjómmálaumræðum
undanfamar vikur.
A fyrstu vikum núverandi stjóm-
arsamstarfs vorum við ásakaðir af
ýmsum fyrir að láta ráðherrana
komast upp með allar stóryrðayfir-
lýsingar sínar og gaspur. Við tókum
hinsvegar þá ákvörðun að láta
stjómarandstöðuhlutverkið ekki
draga okkur niður í svað ábyrgðar-
leysis og marklausra yfírlýsinga.
Við trúðum því að með heilsteyptum
málflutningi ynni Sjálfstæðisflokk-
urinn sér best traust hjá fólkinu i
landinu.
Skoðanakannanir sýna nú mjög
verulega fylgisaukningu Sjálfstæð-
isflokksins. Eg vil þó minna menn
á að úrslit í stjómmálaátökum fást
ekki í skoðanakönnunum heldur
Þorsteinn Pálsson
„Þetta nýjasta klúður
er hins vegar enn eitt
dæmið um stjórnar-
kreppuna og ráðleysi
Framsóknarflokksins
gagnvart forystu A-
flokkanna í efiiahags-
og Qármálum. Og þótt
svo fari að A-flokkarnir
verði neyddir til að fall-
ast á gengisbreytingu
er eins víst að hún verði
ónóg og öll orkan fari
í fjölgun sjóða og deilur
um fækkun banka.
Klúðurmálin ætla að
koma hvert af öðru eins
og lægðirnar utan af
hafí.“
kosningum. En þær kannanir sem
birtar hafa verið að undanförnu
gefa til kynna að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafí á ný náð fyrri styrkleika.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé
fyrst o g fremst að þakka markviss-
Meiriháttar
samkomulag
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
í öllum bægslagangi stjómvitr-
inganna sem skammta okkur frelsi
og skammta okkur brauð gleymast
auðvitað meginmál. Þannig vakti
það enga athygli að samkomulag
hefur náðst við Grænlendinga um
gífurlega mikilvæg samskipti á
sviði hafréttar- og fiskveiðimála
sem ryðja úr vegi síðustu hindmn-
inni fyrir því að þjóðimar við hin
nyrstu höf, allt frá Noregs- og Skot-
landsströndum til Kanada, vemdi
þau nytji og rækti í sameign og
samstarfi. Helst þyrfti þó sú auglýs-
ingahirð sem sífellt er á ferð og
flugi, landshluta og heimshoma á
milli, að hafa snefíl af tilfinningu
fyrir því að hún á að gæta íslenskra
hagsmuna og kynna sér undirstöðu-
atriði einróma stefnumörkunar Al-
þingis í hafréttarmálum í einn ára-
tug. Nú skilst manni t.d., að slíkur
aragrúi fyrirfóiks telji sig ómissandi
á fundi Norðurlandaráðs að leggja
verði niður störf Alþingis á meðan.
Skyldi einhver í hópnum fínnast
sem einbeitir sér að því að kynna
mál málanna?
Samkomulag íslendinga, Norð-
manna og Grænlendinga sem nú
hefur verið gert snertir að vísu beint
aðeins loðnuveiðar, en að líkum
lætur að í kjölfarið fylgja samning-
ar um allar aðrar fiskveiðar ef
menn nenna að standa í „smámál-
um“ í frístundum frá því að baxa
við að koma fyrirtækjum og fjöl-
skyldum á hausinn. Helgi Ágústs-
son skrifstofustjóri utanríkisráðu-
neytisins hefur raunar leyft mér að
greina frá því, að strax að lokinni
úndirskrift samkomulagsins hafi
menn byijað að tala um víðtækari
samninga, þ.á m. um karfann.
Við íslendingar einir megum
stunda botnvörpuveiðar á Reykja-
neshrygg á milli 200 og 350 mílna.
Við eigum helmingsrétt til fískveiða
í 200 mílna efnahagslögsögu um-
hverfís Jan Mayen. Við eigum hafs-
botnsréttindi utan 200 mílna okkar
„Grænlandssamningnr-
inn er mikilvægnr
vegna þess að í anda
hans er unnt um aldur
og ævi að útiloka allar
veiðar Evrópubanda-
lagsþjóða, Japana og
annarra Qarlægra
þjóða í norðurhöfum.
Þetta er meiriháttar
eins og krakkarnir
segja.“
og Jan Mayen og ekkert hygg ég
að vanti nema grænt Ijós til að
Norðmenn og Danir hrindi með
okkur í framkvæmd þeirri íslensku
tillögu að „loka“ svo til öllu hafs-
botnssvæðinu utan 200 mílna lög-
sögu landanna frá Svalbarða suður
til Færeyja. Samninga við Breta,
Færeyinga og íra um Rockall-
Eyjólfúr Konráð Jónsson
svæðið er auðvelt að gera ef menn
nenna því.
Grænlandssamningurinn er mik-
ilvægur vegna þess að í anda hans
er unnt um aldur og ævi að útiloka
allar veiðar Evrópubandalagsþjóða,
Japana og annarra ijarlægra þjóða
í norðurhöfuni. Þetta er meiriháttar
eins og krakkarnir segja. Hitt er
aumingjaháttur þegar íslenskir
menn eru að tuða á þvf hérlendis
og erlendis að EB heimti hér fisk-
veiðiréttindi þótt það hafi legið fyr-
ir í mörg ár að ráðamenn þar í
sveit hafi aðeins farið fram á rabb
(dialog) um málin.
Hötundur er alþingiamaður Sjálf-
stæðisflokks fyrir Reykjavíkur-
kjördæmi.
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1989
Frá viðræðum Borgaraflokks og stjórnarflokkanna. Morgunbiaðií/Ámi Sæberg
um, málefnalegum málflutningi þar
sem hvorttveggja hefur verið gert
í senn, að sýna fram á veilur núver-
andi stjórnarstefnu og kosti fijáls-
lyndrar umbótastefnu.
Þegar til lengdar lætur eru það
ekki leikfléttumar og bellibrögðin
sem ávinna mönnum traust í stjóm-
málum heldur markviss málflutn-
ingur og staðfesta.
Borgaraleg- samstaða
Það er athyglisvert að núverandi
ríkisstjórn hefur á aðeins þremur
mánuðum misst þriðja hvem stuðn-
ingsmann. Flokkarnir fjórir sem að
stjóminni standa em greinilega í
minnihluta meðal þjóðarinnar og
jafnvel þó að fímmta flokknum yrði
bætt við yrði slík fimmflokka ríkis-
stjóm einnig í minnihluta á meðal
þjóðarinnar samkvæmt þessum
könnunum.
Vel má vera að formenn A-flokk-
anna muni hafa erindi sem erfiði
við sameiningu flokka sinna eða um
mjög nána málefnalega samvinnu.
En það er á hinn bóginn mjög at-
hyglisvert að því meiri hávaði sem
er í formönnum A-flokka um þessa
sameiningu virðist fylgi vinstri
flokkanna minnka og samstaða
borgaraaflanna um fijálslynda um-
bótastefnu eflast og styrkjast.
I áramótagrein hér í Morgun-
blaðinu byijaði ég að fjalla um
nauðsyn þess að borgaraleg fijáls-
lynd öfl styrktu stöðu sína í þeim
tilgangi að komalí veg fyrir að sú
kreppustefna sem núverandi vinstri
stjóm fylgir næði að grafa um sig
í þjóðlífinu.
Það hefur verið mjög ánægjulegt
að fínna góðar undirtektir við þetta
sjónarmið og það eykur sannarlega
á ánægjuna að fá það staðfest í
skoðanakönnunum að þjóðin vill
fylkja sér undir þetta merki og
koma í veg fyrir að áfram verði
haldið á þeirri braut sem nú hefur
verið mörkuð.
Þegar meirihluti fólks lætur það
álit í ljós í skoðanakönnunum að
rétt sé að ganga til kosninga þýðir
það í raun og veru að fólk lítur
almennt svo á að við búum við
stjómarkreppu sem ekki verði leyst
með öðrum hætti. Augljóst er að
minnsta kosti að myndun nýrrar
fimmflokka ríkisstjórnar breytir
litlu sem engu um þá staðreynd að
hér er stjómarkreppa.
Fyrir atvinnulífíð eða
ríkissjóð?
Eins og á stendur er gengis-
breyting óumflýjanleg. Það er al-
gengt að stjómarandstaða segi við
slíkar aðstæður að breyta megi
gengi krónunnar án þess að það
komi nokkurs staðar við. Slíkur
málflutningur er óábyrgur og í raun
réttri skrum.
Þegar atvinnulífið, útflutnings-
framleiðslan og samkeppnisiðnað-
urinn eiga við jafn mikinn vanda
að etja eins og nú á sér stað að
verður ekki úr því bætt nema þjóð-
in öll taki á sig byrðar um tíma.
Það á ekki að gera með skatta-
hækkunum, sem veikja atvinnulífíð
heldur gengisbreytingu sem örvar
það. Þannig sköpum við meiri verð-
mæti og tryggjum betri lífskjör
þegar til lengri tíma er litið.
Núverandi ríkisstjóm hefur að
mati Alþýðusambandsins leitt 7%
kjaraskerðingu yfir fólkið í landinu
með skattahækkunum einum sam-
an. Og þá er ekki farið að gera
ráðstafanir til þess að bæta afkomu
atvinnuveganna.
Ríkisstjómin segir með öðrum
orðum við fólkið í landinu: Við telj-
um nauðsynlegt að skerða lífskjör
ykkar með skattahækkunum til
þess að bæta afkomu ríkissjóðs.
Sama ríkisstjórn segir á hinn bóg-
inn: Við teljum fráleitt að gera ráð-
stafanir til þess að bæta afkomu
atvinnuveganna í landinu af því að
það kann að hafa áhrif á kaup-
máttinn um sinn.
En fólkið sem er að missa atvinn-
una veit að gengi krónunnar er
rangt skráð.
Núverandi ríkisstjóm virðist
haldin þeirri trú að lífæð þjóðarbú-
skaparins sé í ríkissjóði. Hún virðist
ekki gera sér grein fyrir því að
þessi lífæð er í atvinnufyrirtækjun-
um í sjávarplássunum.
Eitt klúðrið enn
Svo virðist sem flest mál sem
ríkisstjómin hefur einhver afskipti
af á annað borð verði að meirihátt-
ar klúðurmálum. Eitt ljósasta dæm-
ið þar um er sú ákvörðun sem tek-
in var í byijun þessarar viku að
breyta gmndvelli lánskjaravísi-
tölunnar. Nú má vafalaust um það
deila hvemig setja eigi saman
tommustokk eins og lánskjaravísi-
talan í raun og veru er. En vinnu-
brögðin við þessa ákvörðun em með
miklum eindæmum.
í fyrsta lagi er nú tekin ákvörðun
með reglugerð um breytingu á láns-
kjaravísitölu, en fyrir aðeins örfáum
vikum hafði ríkisstjómin komist að
þeirri niðurstöðu og kynnt hana í
þingskjali að lánskjaravísitölunni
væri ekki unnt að breyta nema með
lögum. Þessi óvandaða málsmeð-
ferð hefur nú leitt til mikillar rétt-
aróvissu á þessu sviði og ríkisstjóm-
in á yfír höfði sér langvarandi mála-
ferli. Og á meðan helst óvissu-
ástandið og getur haft mjög skaðleg
áhrif fyrir spamaðinn í landinu.
í annan stað er rétt að hafa í
huga að fyrir aðeins mánuði gerði
ríkisstjómin samninga við lífeyris-
sjóðina í landinu til nokkurra mán-
aða um kaup á skuldabréfum. Þar
var beinlínis um það samið að gamla
vísitalan skyldi gilda á umsömdum
samningstíma. Þetta var sérstak-
lega tekið fram vegna þeirrar óvissu
sem ríkisstjómin hafði þá skapað
með ómarkvissum yfírlýsingum um
hugsanlegar breytingar á vísitölu-
gmndvellinum.
Nú kemur á daginn að ríkis-
stjómin hefur haft í hyggju að
bijóta þessa samninga sem hún
hefur gert við lífeyrisþegana í
landinu. Talsmenn lífeyrissjóða og
verkalýðsfélaga hafa af eðlilegum
ástæðum mótmælt þessu gerræði
kröftuglega. Því verður tæpast trú-
að að óreyndu að ríkisstjómin muni
ekki láta undan. Þó að ríkisstjómin
hafi ekki þá sjálfsvirðingu að vilja
standa við samninga sem hún hefur
gert, þá hefur Alþingi íslendinga
þá sjálfsvirðingu að líða ekki þá
ríkisstjóm sem brýtur samninga við
lífeyrisþegana í landinu.
Forsætisráðherra hefur undan-
famar vikur safnað saman skýrsl-
um og beitt sér fyrir ákvörðunum
um aukaatriði til þess að draga fjöð-
ur yfír það að innan ríkisstjómar-
innar er ekki samstaða um raun-
hæfar aðgerðir til þess að treysta
rekstur útflutningsatvinnuveganna
og samkeppnisiðnaðarins.
Þetta nýjasta klúður er hins veg-
ar enn eitt dæmið um stjómar-
kreppuna og ráðleysi Framsóknar-
flokksins gagnvart forystu A-flokk-
anna í efnahags- og fjármálum. Og
þótt svo fari að A-flokkamir verði
neyddir til að fallast á gengisbreyt-
ingu er eins víst að hún verði ónóg
og öll orkan fari í fjölgun sjóða og
deilur um fækkun banka. Klúður-
málin ætla að koma hvert af öðm
eins og lægðimar utan af hafi.
Höfímdur er formaður Sjálfstæð-
isílokksins.
Orðstír þýsks fyrirtækis í veði
vegna hvalveiðisteftiu íslendinga
V estur-Þýskaland:
ZUrich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgnnblaðsins.
„ÍSLENSK stjórnvöld hafa ekkert aðhafst til að kynna ste&iu sína í
hvalveiðimálum í Vestur Þýskalandi. Við skrifuðum því íslenska sendi-
ráðinu í Bonn bréf og óskuðum efftir upplýsingum um hvað íslending-
ar hyggjast fyrir,“ sagði GUnter Thiemann, Cramkvæmdastjóri Aldi Siid,
í samtali við Morgunblaðið í gær. Iceland Waters, dótturfyrirtæki
Sölustofiiunar lagmetisins í Vestur Þýskalandi, fékk afrit af bréfinu
og þar kemur ffram að Aldi Siid hyggst ekki panta fieiri vörur frá
fyrirtækinu.
„Aldi hafa borist þúsundir mót-
mælabréfa gegn hvalveiðistefnu ís-
lendinga vegna kaupbannsherferð-
ar Grænfriðunga gegn íslenskum
sjávarafurðum," sagði Thiemann.
„Viðskiptavinir okkar mótmæla að
við verslum með íslenskar vörur og
orðstír fyrirtækisins er í veði vegna
máls sem kemur okkur ekkert við.
Islenskar rækjur eru enn á boðstól-
unum í verslunum okkar. Við bíðum
greinagóðs svars frá íslenskum
stjómvöldum áður en við stígum
næsta skref." Theimann vildi ekki
staðfesta að Aldi Siid væri hætt
viðskiptum við Sölustofnun lagmet-
isins.
Karl-Heinz Jakubowski, fram-
kvæmdastjóri Iceland Waters í V-
Þýskalandi, sagði að 60 til 70% við-
skipta Iceland Waters þar í landi
væru við Aldi. „Aldi Nord hefur enn
ekki látið frá sér heyra,“ sagði
hann, „en Iceland Waters tapar um
7.5 milljónum v. þýskra marka (um
202.5 millj. ísl. kr.) í árlegri veltu
við að missa viðskiptin við Aldi
Súd.“ Hann sagði að Karstadt versl-
unarkeðjan og hluti af Edika-keðj-
unni væru hætt viðskiptum við Ice-
land Waters út af hvalamálinu.
Tengelmann hætti þeim í fyrra eins
og kunnugt er. Jakubowski sagðist
vera nýkominn úr söluferð til Aust-
urríkis. „Tvö fyrirtæki sem ég hafði
samband við í Vín sögðust ekki
hafa áhuga á viðskiptum með ísl-
enskar sjávarafurðir vegna baráttu
Grænfriðunga í Vestur Þýska-
landi."
Aldi sendir mótmælabréfín sem
því berast til sendiráðs íslands í
Bonn. „Grænfriðungar hafa skipt
um baráttuaðferð og tekið Aldi fyr-
ir eftir að þeir sáu að það þýddi
ekkert að benda fólki á að skrifa
og hringja hingað í sendiráðið eins
og þeir gerðu í sumar og haust,"
sagði Páll Ásgeir Tryggvason,
sendiherra. „Við förum í gegnum
bréfín sem berast hingað frá Aldi
og svörum þeim sem fólk hefur
sest niður við að skrifa. Það eru
nokkur bréf á dag. En við getum
ekki staðið í að svara fjölrituðum
mótmælabréfum sem Grænfriðung-
ar dreifa, mörg þeirra hafa ekki
einu sinni heimilisfang."
Barátta Grænfriðunga hefur
einnig beinst gegn Iglo fyrirtækinu
sem selur frystan físk. Talsmaður
þess sagði að Iglo hygjjðist ekki
hætta viðskiptum við Islendinga.
„Við erum með íslensk þorsk-, ufsa-
og karfaflök í 300 gramma pakkn-
ingum í vöruúrvali okkar en það
er ekki nema um hálft prósent af
fiskinum sem við erum með,“ sagði
hann. „Það kemur fram á pökkun-
um hvort að um íslenskan fisk er
að ræða og við látum viðskiptavini
okkar ráða hvort að þeir kaupa
íslenskan fisk eða ekki. Islendingar
voru okkur innan handar fyrir
nokkrum árum þegar það var hör-
gull á fiski. Það kom okkur vel og
við viljum ekki loka hurðinni á þá
núna þegar á móti blæs." Hann
sagði að Iglo bærust um 20 mót-
mælabréf vegna hvalveiða íslend-
inga á dag. „Við svörum þeim og
útskýrum okkar afstöðu."
Fulltrúi í vestur-þýska sjávarút-
vegsráðuneytinu sagðist hafa heyrt
á fímmtudag að Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, hefði
hug á að heimsækja starfsbróður
sinn í Bonn dagana 6. til 8. apríl
næst komandi.