Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ- LAUGARDAGUR' 28’ ÍANÚAR 1989
Kópavogur:
Þorsteinsvaka
Þorsteinn Valdimarsson skáld.
síðastliðið haust og í tilefni af því
heldur Lista- og menningarráð
Kópavogs, Þorsteinsvöku til að
heiðra minningu hans.
(Fréttatilkynning)
Sjálfstæðisfélög-
in í Reykjavík:
Ráðstefiia
um borg-
armálefni
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík heldur ráð-
stefnu um borgarmálefhi í dag.
Fjallað verður sérstaklega um
sex afmarkaða málaflokka sem
vinnuhópar hafa undirbúið,
kynnt verða helstu viðfangsefiii
á vettvangi borgarmála og borg-
arfulltrúar verða á staðnum og
svara fyrirspurnum.
Baldur Guðlaugsson formaður
fulltrúaráðsins setur ráðstefnuna
kjlukkan 9.30. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson formaður undirbúnings-
nefndar kynnir tildrög og undirbún-
ing ráðstefnunnar og að því loknu
gera formenn starfshópa grein fyrir
vinnu hópanna og niðurstöðum
þeirra. Starfshópamir fjölluðu um
félags-, mennta- og menningarmál,
skipulags- og umhverfismál,
íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda-
mál, heilbrigðis- og hollustumál og
sjúkrastofnanir Reykjavíkurborgar,
umferðar- og bílastæðamál og al-
menningssamgöngur, atvinnumál
og nýsköpun atvinnulífs.
Davíð Oddsson borgarstjóri flyt-
ur ræðu að lokinni kynningu starfs-
hópanna. Umræður verða í hópun-
um og á meðan verður kynning á
málefnum borgarinnar. Þar munu
borgarfulltrúar og varaborgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins svara
fyrirspumunu
Ráðstefnan er haldin í Valhöll
við Háaleitisbraut 1, henni lýkur
klukkan 17.00 í dag.
Steinunn Helgadóttir
sýnir í Gautaborg
STEINUNN Helgadóttir grafik-
listakona heldur um þessar
mundir sína fyrstu sýningu í
Gallerí „Mors Mössa“ í Gauta-
borg.
Steinunn stundaði myndlist-
amám í Myndlistaskóla Reykjavík-
ur í einn vetur, á Akureyri í einn
vetur og að því námi loknu fór hún
í Myndlistarskólann í Gautaborg.
í Göteborgs—Posten er fjallað
um sýningu Steinunnar þann 14.
janúar sl. og eru myndir hennar
sagðar fjölbreytilegar, fíngerðar og
ljóðrænar. Steinunn leiti nýrra leiða
í myndsköpun sinni sem bjóði upp
á ýmsa tjáningarmöguleika, sem
listamaðurinn geti nýtt sér í fram-
tíðinni.
LISTA- og menningarráð Kópa-
vogs heldur Þorsteinsvöku, dag-
skrá um Þorstein Valdimarsson
skáld, á morgun, sunnudaginn
29. janúar, kl. 20.30. í Félags-
heimili Kópavogs í Fannborg 2.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Helstu dagskrárliðir eru þeir að
Eysteinn Þorvaldsson bókmennta-
fræðingur fjallar um skáldskap
Þorsteins og félagar úr Leikfélagi
Kópavogs flytja samfellda dagskrá
úr ljóðum hans og limmm undir
stjóm Guðrúnar þ. Stephensen.
Einnig verður flutt fjölbreytt tón-
list við ljóð skáldsins eftir Þorkel
Sigurbjömsson, Martin Hunger
Friðriksson, Marianne Meystre og
Jón S. Jónsson. Flytjendur eru
Elísabet Erlingsdóttir við undirleik
Kristins Gestssonar, Skólakór Kárs-
ness undir stjóm Þómnnar Björns-
dóttur og Samkór Kópavogs, sem
Stefán Guðmundsson stjómar.
Þorsteinn Valdimarsson var
fæddur 31. október 1918 í Bmna-
hvammi í Vopnafirði, en lést 7.
ágúst 1977, 59 ára að aldri. Hann
var gmðfræðingur að mennt, en
stundaði einnig tónlistarnám bæði
hér heima og erlendis. Aðalstarf
hans var lengstaf kennsla .við
Menntaskólann í Reykjavík og
Stýrimannaskólann, en einnig
fékkst hann mikið við þýðingar á
söngtextum og ópemm. Eftir hann
liggja átta ljóðabækur: Villta vor
(1942), Hrafnamál (1952), Heim-
hvörf (1957), Heiðnuvötn (1962),
Limmr (1965), Fiðrildadans (1967),
Yrkjur (1975) og loks Smalavísur,
sem út kom í október 1977, tveim-
ur mánuðum eftir andlát skáldsins.
Þorsteinn Valdimarsson bjó í
Kópavogi um tveggja áratuga skeið
og setti svip sinn á menningarlíf
bæjarins. Hann hefði orðið sjötugur
_________Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Barð-
strendingafélagfsins
Staðan í aðalsveitakeppni deild-
arinnar eftir 6 umferðir er þessi:
Þórarinn Ámason 117
Þorsteinn Þorsteinsson 111
Leifur Jóhannesson 107
Ingólfur Lilliendahl 100
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Það stefnir í hörkukeppni í aðal-
sveitakeppni deildarinnar. 14 sveitir
taka þátt í keppninni og em spilað-
ir 16 spila leikir.
Staðan eftir 6 leiki:
Ingólfur Jónsson 128
Daníel Halldórsson 119
Baldur Guðmundsson 111
Lilja Halldórsdóttir 104
Ingólfur Böðvarsson 102
Rafn Kristjánsson 99
Sæmundur Jónsson 98
Sigurleifur Guðjónsson 96
Spilað er á miðvikudagskvöldum
kl. 19.30 í Ármúla 40. Keppnis-
stjóri er Siguijón Tryggvason.
Bridshátíð um aðra helgi
Bridshátíð Flugleiða og BSÍ verð-
ur spiluð dagana 3.-6. febrúar. í
tvímenningnum, sem spilaður verðu
3.-4. febrúar, spila 48 pör, þar af
verða líklega 6 erlend pör. Spila-
mennskan hefst kl. 22.00 föstudag-
inn 3. febrúar og spilað til um
klukkan 01.00 um nóttina. Spila-
mennskan hefst aftur klukkan
10.00 þann 4. febrúar og spilað þar
til mótinu lýkur. Spiiað verður baró-
meter, tvö spil milli para. Sveita-
keppnin hefst klukkan 13.00 sunnu-
daginn 5. febrúar og verða spilaðar
4 umferðir (14 spila leikir). Spila-
mennskan í sveitakeppninni hefst
aftur klukkan 15.00 á mánudaginn,
6. febrúar og áætluð mótslok verða
um klukkan 23.00. Sveitakeppnin
verður með Monrad-sniði og alls
spilaðar 7 umferðir.
Erlendu spilaramir sem koma á
bridshátíð em austurísku spilaram-
ir Fucik-Kubak og Meinl-Berger.
Pakistaninn frægi, Zia Mahmood,
kemur með sveit sem skipuð verður
auk hans, þeim Billy Cohen, George
Mittelman og Mike Molson. Frá
Danmörku koma Kirsten Steen
Möller-Bettina Kalkemp úr sigurliði
Dana frá Ólympíumótinu. Með þeim
í sveit verða A-landsliðsmennimir
Steen Möller-Lars Blakset. Keppn-
isstjóri á mótinu verður Agnar Jörg-
ensen og mótsstjóri Sigmundur
Stefánsson.
Bridsmót í Lyngby
í Danmörku í júní
í tilefni af 50 ára afmæli danska
Bridssambandsins mun verða haldið
sérstakt afmælismót dagana 2.-4.
júní 1989 í Lyngby, sem er rétt
norðan við Kaupmannahöfn. Sjö pör
frá Danmörku, eitt frá Færeyjum
og 3 frá hvetju hinna Norðurland-
anna munu taka þátt í því. Brids-
sambandið auglýsir hér með eftir
sterkum pömm á þetta mót, og er
umsóknarfrestur til 3. febrúar.
Bridssamband fslands sér sér því
miður ekki fært að styrkja pörin
til fararinnar, en danska Bridssam-
bandið mun sjá um uppihald á
mótsstað. Nánari upplýsingar hjá
Bridssambandinu í síma 689360.
Bridsfélag Akureyrar
Lokið er 15 umferðum í Akur-
eyrarmótinu í tvímenningi. Spilaður
er barómeter, 5 spil milli para og
taka 26 pör þátt í keppninni. Staða
efstu para er þannig:
Sveinbjörn Jónsson —
Ólaflir Ágústsson 152
Reynir Helgason —
Tryggvi Gunnarsson 146
Hörður Steinbergsson —
ÖmEinarsson 131
Kristján Guðjónsson —
Stefán Ragnarsson 91
Anton Haraldsson —
Pétur Guðjónsson 83
Páll Pálsson —
Þórarinn B. Jónsson 47
Magnús Aðalbjömsson —
Pétur Jósepsson 47
Píanóleikarinn Diedre Irons og fíðluleikarinn Miha Pogacnik leika fyrir starfsmenn Álversins i steypu-
skála ÍSAL.
Diedre Irons og Miha
Pogacnik leika hér á landi
Píanóleikarinn Diedre Irons og
fiðluleikarinn __ Miha Pogacnik
munu hefja á íslandi hljómleika-
för um Evrópu nú i janúarlok.
Irons er frá Nýja-Sjálandi og
Pogacnik frá Bandaríkjunum. Ir-
Nafii féll niður
í fréttatilkynningu frá mennta-
málaráðuneytinu 16. janúar sl. um
skipun nefndar um flölmiðlakennslu
á öllum skólastigum féll niður nafn
Marteins Sigurgeirssonar grunn-
skólakennara.
Þetta leiðréttist hér með.
ons hefúr ekki áður komið til ís-
lands, en Pogacnik hélt tónleika í
Reykjavík i febrúar sl.
Miha Pogacnik er frumkvöðull að
stofnun alþjóðasamtakanna Idriart
(Institut pour le Développement des
Relations Interculturelles par l’Art),
sem árlega halda listahátíðir utan
hins vestræna heims til að auka
tengsl á milli austurs og vesturs,
norðurs og suðurs.
Sem dæmi um fyrirhugaðar lista-
hátíðir ársins 1989 má nefna, að 23.
til 28. apríl verður „Idriart-Festival"
í Tbilissi (Tíflis) í Georgíu sunnarlega
í Sovétríkjunum og 12. til 18. júlí
verður hátíð í Cuzco í Perú.
Á vegum Menningarsamtaka Hér-
aðsbúa munu Diedre Irons og Miha
Pogacnik halda tónleika á Egilsstöð-
um sunnudaginn 29. janúar kl.
17.00.
Á vegum Idriart-ísland verður í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í
Reykjavík hatdin kynning á starfsemi
Idriart-samtakanna ásamt kynningu
á hlustunarnámskeiði („Active List-
ening“) mánudaginn 30. janúar kl.
20:30. Kvöldið eftir, 31. janúar kl.
20:30, verða síðan lokatónleikar
þessarar heimsóknar í Gerðubergi. Á
tónleikunum þar (sem og á Egilsstöð-
um) verða leikin verk fyrir fiðlu og
píanó eftir Beethoven, Prokofiev,
Bartok og F. Schubert.
(Fréttatilkynning)
„Heimsmeistarakeppn-
in í maraþondansi“
Síðasta sýning
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
söngleikinn „Heimsmeistara-
keppnin í maraþondansi" í veit-
ingahúsinu Broadway í kvöld kl.
20.30 og er sýnigin sú allra
síðasta á söngleiknum.
Söngleikurinn fjallar um heims-
méistarakeppnina í maraþondansi í
Los Angeles árið 1935. Atburðir
verksins eiga sér að mestu stað í
stórum danssal, en einnig að hluta
niður við höfn. Fylgst er með keppn-
inni frá upphafi til enda og
skyggnst inn í örlög nokkurra kspp-
enda. Inn í atburðarásina fléttast
síðan vovéiflegir atburðir, mannleg-
ur harmleikur, segir í frétt frá LR.
Nítján leikarar taka þátt í söng-
leiknum. Verkið er eftir Ray Her-
man, sem byggði það á skáldsögu
eftir Horace McCoy. Karl Ágúst
Úlfsson þýddi leikinn og gerði söng-
texta og er hann jafnframt leik-
stjóri. Leikmynd og búninga gerði
Karl Júlíusson. Jóhann G. Jóhanns-
son útsetti og annast tónlistar-
stjórn. Lýsingu gerði Egill Öm
Ámason. Dansar eru eftir Auði
Bjamadóttur. Steppþjálfun var í
höndum Draumeyjar Aradóttur og
framkvæmdastjórn annaðist Kjart-
an Ragnarsson.
Pétur Einarsson í hlutverki Rocky Gravo.