Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 28

Morgunblaðið - 28.01.1989, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR, 28. JANÚAR 1989 Lagmetisiðnaður á Norðurlandi eystra: Allir hafa misst spón úr aski sínum vegna hvalveiðimálsins * i FORRÁÐAMENN lagmetlsiðn- aðar á Norðurlandi eystra hafa þungar áhyggjur vegna þeirra frétta, að vestur-þýska verslun- arkeðjan Aldi Siid hefur ákveðið að rifta samningum sínum um kaup á niðurlagðri rækju við Sölustofnun lagmetis. Þeir sögðu að hvalveiðar Islendinga stefndu öllum markaðsmálum í stórvoða og einn sagði að honum fyndist það „engin stjórnkænska að keyra beint í sjáIfsmorð“, eins og íslensk stjómvöld gerðu með því að neita að stöðva hvalveiðar. Hroki ráðamanna Kristján Jónsson, framkvæmda- stjóri K.Jónsson og co. hf., sagði að fyrirtæki hans hefði þegar af- greitt um helming 300 milljóna króna pöntunar við Aldi-verslanak- eðjuna. „Þessa pöntun átti að af- greiða á síðari hluta síðasta árs og fyrri hluta þessa," sagði hann. „Við töpum því 150 milljón króna við- skiptum ef af þessu verður, auk þess sem við höfðum reiknað með að þeir keyptu einnig af okkur rækju síðari hluta þessa árs. Samn- ingamir hafa yfirleitt verið til eins árs í senn. Það eru engir aðrir markaðir fyrir þessa vöru. Við selj- um að vísu svolítið af niðursoðinni rælq'u til annarra landa, en þá í annarri mynd. Þða eru mismunandi reglur eftir löndum. Þýskaland er eina landið sem ég veit um þar sem notað er svo mikið af niðursoðinni rækju, en flest önnur lönd vilja hana frysta. Verslanir Aldi-keðj- unnar eru ekki búnar mikið undir frystivörur." Kristján sagði að eflaust væri hægt að endurheimta _ markaðinn, ef hvalveiðar hættu. „Ég veit ekki hversu lengi menn ætla að bíða,“ sagði hann. „Ég held að það verði að fara að taka málin öðrum tökum en hingað til. Að mínu viti hafa ráðamenn sýnt mikinn hroka í sam- bandi við þetta hvalastríð. Ég veit ekki hvar þetta getur endað, hvort menn ætla að bíða þar til allir markaðsmöguleikar fyrir íslenskar útflutningsvörur er horfnir. Ef við leggjum af þessar hvalveiðar þá myndi birta yfir, ekki aðeins í lag- metisiðnaðinum, heldur hjá mörg- um öðrum. En mér sýnist það ekki vera á dagskrá." Kristján sagði að fyrirtæki hans væri með um 150 milljónir króna bundnar vegna viðskiptanna við Aldi. „Það er bæði framleitt og frá- gengið magn, umbúðir, hráefni og fleira." K. Jónsson hefur sagt 15 starfs- mönnum upp vegna Aldi-málsins. Nú vinna hjá fyrirtækinu um 90 manns. Pólstjarnan hætt rækjuframleiðslu Fyrirtækið Pólstjaman á Dalvík hætti rækjuframleiðslu síðastliðið haust, þegar fyrirtækið missti við- skiptasamning sinn við vestur- þýska fyrirtækið Tengelmann. Sú ákvörðum Tengelmann að hætta að kaupa niðursoðna rækju héðan var vegna hvalveiða íslendinga. Jón Tryggvason, framkvæmdastjóri, sagði að fyrirtækið hefði aldrei framleitt fyrir Aldi, en þó selt einn og einn gám til verslanakeðjunnar. „Við hættum að sjóða niður rækju síðastliðið haust og sögðum þá upp 15-17 manns," sagði Jón. „Við seld- um áður rækju til Þýskalands fyrir 25-30 milljónir á ári og það var megnið af okkar framleiðslu. Við erum nú að búa okkur undir að sjóða niður lifur og við það munu starfa 15 eða 16 manns. Lifrina seljum við til Kanada og Rússlands og markaður er nægur. Hvort áróð- ur gegn hvalveiðum á eftir að hafa áhrif á þann markað veit ég ekki. Ég veit bara að við erum búnir að spila rassinn úr buxunum. Við hefð- um átt að hætta hvalveiðum í eitt ár, alla vega fram að næsta fundi hvalveiðiráðsins og nota tímann til að vekja athygli á okkar málstað," sagði Jón Trygvason, fram- kvæmdastjóri Pólsljömunnar. Keyrt beint í sjálfsmorð Jóhannes Egilsson, fram- kvæmdastjóri Egilssíldar á Siglu- firði, sagði að fyrirtæki hans, sem framleiðir reykta síld, seldi ekkert á Þýskalandsmarkað. „Við seljum til Ítalíu, Rússlands og dálítið til Bandaríkjanna. Við misstum samn- ing við bandarískt fyrirtæki í haust, vegna áróðurs Greenpeace-manna. Ef sá samningur hefði gengið eftir, hefði það þýtt sölu á um 60 tonnum árlega til þess aðila, að verðmæti um 10-15 milljónir. Mér finnst eng- in stjómkænska í því að keyra okk- ur beint í sjálfsmorð, að hætti sjálfs- morðsflugmanna. Það er bara vaðið beint í byssukjaftinn. Það verður að verjast með öðru lagi og þá í samvinnu við Norðmenn, Japani og Sovétmenn. Og það var til dæmis ekki notað í áróðursskyni þegar hvalimir komu í loðnunætumar í haust og rifu þær.“ Hjá Egilssíld starfa nú 18-20 manns, en Jóhannes sagði að hann hefði getað bætt við starfsfólki ef viðskiptin við Bandaríkjamenn hefðu ekki tapast. Minjasafii Akureyrar: Miðlum þekkingu frá einni kynslóð til annarrar - segir Guðný Gunnarsdóttir safiivörður „SAFNIÐ er vei búið munum, en Qárskortur háir þvi nokkuð, eins og öðrum söfnum. Stærsta verkef- nið framundan er endurskráning safnsins," sagði Guðný Gunnars- dóttir, sem var ráðin safhvörður að Minjasafhi Akureyrar á sfðast- liðnu hausti. Guðný er Reykvíkingur og starfaði í sjö ár við Árbæjarsafn. Hún stund- aði nám í þjóðháttafræði og fomleifa- fræði í Lundi í Svíþjóð, en lagði síðan stund á mannfræði og undanfarin tvö ár var hún við framhaldsnám í Kanada. „Þegar ég kom heim aftur í ágúst á síðasta ári var staða safn- varðar á Akureyri laus og ég sótti um. Hingað kom ég í október og líkar vél,“ sagði hún. Minjasafn Akureyrar var stofnað 1962, á 100 ára afmæli Akureyrar- kaupstaðar. Safnhúsið Kirkjuhvoll var keypt það ár og viðbygging við safnið reis 1978. Safnið er rékið af Akureyrarbæ, Eyjafjarðarsýslu og Kaupfélagi Eyfirðinga, en Mjólkur- samlag KEA átti frumkvæðið að stofnun þess. Tveir starfsmenn eru í fastri vinnu við safnið, en að auki er ráðið starfsfólk til gæslu á sumr— in. „Hér eru margir munir úr sveitun- um í kring, auk þess sem við eigum safn gripa iðnaðarmanna. Hér er því ágæt heildarmynd sveitar- og bæjar- menningar fyrr á tímum," sagði Guðný. „Vandamál safnsins er skort- ur á geymslurými, en við erum að reyna að finna leið til að bæta úr því.“ Vistheimilið Sólborg: Starfsfólk safnaði 1,5 milljón- um til sundlaugarbyggingar HÓPUR starfsfólks á vistheimilinu Sólborg tók sig til síðastliðið haust og hóf Qársöfnun, svo unnt væri að ljúka byggingu sundlaugar heimil- isins. Byggingin hófst árið 1983. Starfsfólkinu tókst að safha um 1,5 miiyónum og í gær var féð afhent á samverustund hjá heimilisfólki. Enn vantar um 700 þúsund til að Ijúka við bygginguna. í tll d ■h&MWzk Rakel Bragadóttir, fulltrúi, er í forsvari fyrir starfsmennina. „Það er okkur starfsfólkinu óskiljanlegt að sundlaugarbyggingin skuli látin standa ófúllgerð ár eftir ár,“ sagði hún. „Byijað var á byggingunni 1983 og hún hefur nær eingöngu verið reist fyrir gjafa- og söfnunarfé. Eina opinbera framlagið er 1,5 milljón, sem framkvæmdasjóður fatlaðra lagði fram. Lionsklúbbur Akureyrar gaf 420 þúsund, Lionsklúbburinn Huginn 200 þúsund og svo má geta þess að níundi bekkur Gagnfræða- skólans gaf 100 þúsund krónur, sem , krakkamir söfnuðu sjálfir. í haust vantaði þó enn 2,2 milljónir til að fullgera laugina. Það á aðeins eftir að ganga frá sundlaugarbotni og búningsherbergjum, flísaleggja og útbúa aðstöðu fyrir þjálfun." í ágúst sl. fannst fimm starfs- mönnum Sólborgar nóg komið og ákváðu að hefja söfnun. „Við sendum fyrirtækjum og sveitarfélögum bréf og fórum fram á fjárstuðning. Alls tókst okkur að safna 1,5 milljónum króna, en enn vantar 700 þúsund. Við getum þó hafíð framkvæmdir nú og vonandi rætist úr framhald- inUj“ sagði Rakel. A vistheimilinu Sólborg eru 42 vistmenn, en sundlaugin mun ekki aðeins nýtast þeim, heldur og öðrum þroskaheftum á Akureyri og ná- grenni. Nú fara vistmenn í sund hálfa stund einu sinni í viku, í Þela- merkurlaugina. Það er hins vegar útisundlaug og aðeins hluti vist- manna getur nýtt sér hana. Sjúkra- þjálfari hóf störf við Sólborg þann 10. janúar sl., í fyrsta sinn frá þvi að vistheimilið tók til starfa fyrir um 20 árum. Rakel sagði að starfskraft- ar sjúkraþjálfarans nýttust ekki sem skyldi, fyrr en sundlaugin væri kom- in í gagnið. „Vonandi tekst okkur að ná endum saman og ég vil gjam- an fá að koma að póstgírónúmeri söfnunarinnar, 544-655,“ sagði Ra- kel Bragadóttir. Morgunblaðið/Rúnar Þór Starfsmenn Sólborgar, sem safnað hafa 1,5 milljónum svo ljúka megi við sundlaugarbyggingu vistheimilisins, afhentu féð í gær á samverustund heimilisfólksins. Á myndinni afhendir Rakel Braga- dóttir Sigrúnu Sveinbjömsdóttur, framkvæmdastjóra svæðisstjórnar málefna fatlaðra á Noðurlandi eystra, upphæðina. Á milli þeirra er Kristján Magnússon, forstöðumaður Sólborgar. f forgrunni er Svav- ar Jensson, sem hafði meiri áhuga á ljósmyndaranum en afhending- unni. Minjasafnið er opið alla daga á sumrin, en aðeins á sunnudögum yfir vetrartímann. „Við sitjum þó ekki auðum höndum hér á vetuma, því í fyrra hófst safnkennsla fyrir böm í grunnskólum. Við bjóðum upp á sérstakar sýningar og verkefni sem tengjast námsefni bamanna og von- um að þannig verði kennslan meira lifandi. Nú erum við til dæmis með verkefni um ull og tóvinnu. Nemend- ur koma þá hingað, fá að grípa ! snældur og kamba og svo sýnum við þeim klæði, sem unnin voru á heimil- um fyrr á tímum. Við fáum hingað . fólk sem kann réttu handbrögðin og þannig vinnur safnið að því að miðla þekkingu frá einni kynslóð til annarr- ar.“ Guðný sagði að hún teldi fulla þörf á að tengja skólana betur við söfnin. „Heimsóknir í söfn gætu ver- ið liður í samfélagsfræði. Þá er vert að minnast á að nú er mikil umræða um íslenskuna; hvort henni sé að hnigna. Heimsóknir í söfn skýra oft þau orðatiltæki, sem við notum dag- lega án þess að velta fyrir okkur hvað þau þýða. Þannig skýrir verk- efni grunnskólanema í ullar- og tó- vinnu til dæmis hvað það þýðir þeg- ar talað er um að „teygja lopann". Og ef bömin hafa gaman af slíkum lifandi verkefnum þá held ég að ástæðulaust sé að óttast um framtíð safnanna, því bömin koma aftur sem gestir síðar." Guðný sagði að hana langaði nú til þess að koma upp farandsýningu, með munum af Víkingasýningunni, sem nú er á Þjóðminjasaftiinu. „Við gætum verið með sýninguna hér á Akureyri og kynnt skólanemum hana. Síðan væri hægt að senda munina áfram, til dæmis til Húsavík- ur og svo koll af kolli. í grunnskólun- um læra bömin um landnám íslands, en Minjasafnið á enga muni frá þeim tíma. Við höfum aðallega muni 18. og 19. aldar bændasamfélagsins. Þessi hugmynd um farandsýningu er þó enn á frumstigi." Ferðamenn, bæði erlendir og inn- lendir, eru helstu gestir Minjasafns- ins. „Við verðum að reyna að fá heimamenn til að kynna sér safnið og það getum við til dæmis gert með því að setja upp sérstakar sýningar, svo fólk hafi eitthvað nýtt að líta á. Það er oft talað um að söfnin séu dauð og lítt áhugaverð, en til þess að hægt sé að breyta til verður að hafa peninga og þeir eru af skomum skammti á íslenskum söfnum. Starfs- fólk safnanna er mjög áhugasamt og á margar góðar hugmyndir, en ef peningana vantar þá er oft erfitt um vik,“ sagði Guðný Gunnarsdóttir safnvörður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.