Morgunblaðið - 28.01.1989, Síða 44

Morgunblaðið - 28.01.1989, Síða 44
. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 28: JANÚAR 1989 ;í44 mmm * Ast er ... . . . staðfest með hjónabandi. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved • 1989 Los Angeles Times Syndicate 1710 TARMOVOSK' Með morgnnkaffinu Eftir að ég sagði frá mat- argerðinni þinni og slapp við að fara á námskeið fyrir ekkjumenn ... HÖGNI HREKKVlSI Frétt ársins Til Velvakanda. Eldhúsið stendur, en íjósið er fallið Finnst mér það vera ekki neitt Gjörið svo vel og gangið inn allir, giska ég á að kaffíð sé heitt. (Höf. óþekktur að því er ég veit best.) Það hefur löngum verið talið til ðyggða að sýna bjartsýni, þó hún verði að teljast barnaleg á stundum, séu menn ekki í „samningum" vinnu- markaðar eða frammi fyrri „skattin- um“ tíðkast að bera sig mannalega. Er siíkt háttur flestra þjóða. En eitt er að tjalda sínu að alþjóðasið eða grobba fyrir almættinu sem er öllu alvarlegra. Hvað eftir annað, í ýms- Látið úti- ljósin loga Blaðberar Mogunblaðsins hafa beðið Velvakanda að koma því á framfæri við áskrifendur að þeir moki snjó af tröppum sinum og láti útiljósin loga á morgnana. Margir blaðberar eru eldra fólk og hefúr stundum legið við slys- um þegar verið er að fara með blaðið upp svellaðar tröppur fyr- ir birtingu. Yrðu blaðberar mjög þakklátir ef ákskrifendur sæju sér fært að verða við þessum til- mælum. um söfnuðum eða heimspekihópum, hefur verið haldið fram einstæðu hlutverki Islendinga, „að frá íslandi muni það koma sem snúi við glötun- arstefnu og leysi þar með móður jörð úr álagafjötrum ráðandi menn- ingar“. Líður vart sá mánuður að ekki megi rekast einhvers staðar á í fjölmiðlum ritað um þetta mikil- vægasta hlutverk Frónveija. En hver skyldi vera „frétt ársins 1988“, um það má sjáífsagt enda- laust þrátta. Ég sendi eina smáúr- klippu sem víst fáir tóku eftir. Bæta má við að auk allra náttúrulegra lífríkja, er fyrirþjóðin þarna eitthvert elskulegasta fólk sem á jörðinni hef- ur gengið í bráðustu útrýmingar- hættu líka. Svæði stærra en Islandi nemur blæs upp í algera eyðimörk árlega. Það rignir sýru sem eyðir mann- virkjum. Skógarnir, árnar, vötnin og sjórinn sjálfur eru að deyja. Krabba- mein sem stafar af geislun er að verða faraldur sums staðar. Skordýraeitur fínnst í mörgæsun- um við Suðurskautslandið af- skekkta, lifrin í úthafshvölum sem fara milli Færeyja er orðin óneyslu- hæf vegna kvikasilfursinnihalds. Enginn maður veit um heildarmagn ólöglega losaðra eiturefna í haf- djúpin. Enginn er skortur á verk- efnalausum áhöfnum flutningaskipa og báta, einnig bágur rekstur margra skipafélaga. Venjulegar steinolíutunnur og plastpokar eru margfalt ódýrari en sérhönnuð ílát fyrir skaðleg efni og dýrt að eyða þeim sérstaklega, ef það er þá ann- ars unnt. Mengun frá þéttbýlli svæð- um nálgast nú óðum stijálbýlasta land Evrópu. Er „patent" lausn á vandamálum manna í daglegum samskiptum, t.d. í stórborgum, nú í sjónmáli? Lögmál móður náttúru (hluta af Guði) verða ekki brotin endalaust og maðurinn upphefur sig ekki lengi yfir þau. Oft hefur verið beðið eftir frelsara, en nú er fyllilega tímabært að sá eða þeir íslensku taki að sýna sig eins og strikateikningarnar spá, svo að lífríki bláu plánetunnar verði bjarg- að. Fresturinn til þess er orðinn mjög stuttur. Bjarni Valdimarsson Leikreglur Karvels Til Velvakanda. Ein hlægilegasta grein sem lengi hefir birst á prenti er grein Karvels Pálmasonar, alþingismanns Vest- firðinga, í Dagblaðinu 26. janúar sl. Innihaldið er gott nokk, en messa hans um leikreglur lýðræðisins minnir á fleira, sem ekki er að finna í greininni, og vekur hlátur kunn- ugra, nema kannski Sighvats. Sennilega hefir Karvel ekki munað eftir þessu lítilræði í svipinn, ann- ars er líklegt, að hann hefði enga grein sent til birtingar. Þó er það ekki víst því mikil sannindi felast í gömlu kenningunni um flísina og bjálkann. íslendingar vilja meina að undir- staða lýðræðisins í landi þeirra sé löggjafarsamkundan, dómstólarnir og framkvæmdavaldið. Þótt ekki verði á milli greint er augljóst að Alþingi er grundvöllurinn. Þess- vegna má öllum augljós vera sú staðreynd, að leikreglumar um kosningar til löggjafarsamkun- dunnar eru forsenda þess að lýð- ræði geti talist ríkjandi með þjóð- inni. Allt sem lýtur að meðferð þeirra leikreglna er því mikilvægast. Og stjómmálaflokkarnir, sem stjórnar- skráin heimilar þegnunum að stofna, eiga að standa dyggan vörð um þær og lýðræðið. Stjórnmálaflokkarnir hafa hver hjá sér komið sér upp aðferð til að velja menn til framboðs til Alþing- is. Þar sem prófkjörin eru undan- fari að vali á löggjafarsamkunduna er jafn mikilvægt að „leikreglur lýðræðisins" séu í heiðri hafðar í þeim kosningum. Þetta hefír tekist misjafnlega, og engum mistekist jafn hrapallega í meðferðinni og Karvel Pálmasyni. Þetta vita allir Vestfirðingar. Þess vegna hlæja þeir nú ailir hátt — nema Sighvatur. Melamaður Víkyerji skrifar ættir Gísla Jónssonar cand. mag. um íslenzkt mál í Morg- unblaðinu hafa vakið verðskuldaða athygli. Víkveiji les þá reglulega. Þeir sameina það tvennt, sem gefur þáttum sem þessum gildi, að vera í senn fróðlegir og skemmtilegir. Gísli hefur gott lag á því að tengja ábendingar og fróðleik, sem hann vill koma á framfæri, atvikum úr daglegu lífi fólks. Hann kryddar mál sitt kímni, sem sótt er í skrif og skraf í landinu, og lætur á stund- um fjúka í kviðlingum. Enginn vafi er á því að þættir Gísla Jónssonar, sem teygja sig nú upp fimmta hundraðið, eiga ríku- legt erindi við fólk á Iíðandi stundu. Víkveiji er sannfærður um það — og heyrir reyndar á samræðum kunningja um þættina — að áhrif þeirra eru mikil, enda fer Morgun- blaðið víða. Dæmi eru þó um hið gagnstæða, því miður. Að höfundur hafi ekki haft erindi sem erfiði — enn sem komið er. En töpuð orusta þýðir ekki endilega tapað stríð. xxx Bifreiðin gegnir mikilvægu hlut- verki í daglegu lífí flestra ís- lendinga. Við erum dæmigerð bíla- þjóð. Lætur nærri að tvær bifreiðar séu á hveija tvo einstaklinga í landinu. Bandaríkjamenn, einir þjóða, eru „ríkari“ en við að þessu leyti. Það segir sig sjálft að flestir Is- lendingar leggja leið sína á benzín- sölur. Þar kaupa þeir eldsneyti á farkostina, allt að því fjórum sinn- um dýrara í verði en Bandaríkja- menn, svo samanburður sé gerður við aðra bílaþjóð. Ástæða hins him- inháa verðs er sú að milli 60 og 70% þess eru skattar til ríkisins. En það var ekki ætlunin að fjalla um skattastefnu Ólafs Ragnars Grímssonar né vaxandi hlutdeild ríkisins í almennu verðlagi, það er í endanlegu verði vöru og þjónustu í landinu. Á benzínsölum blasir við ljótur blettur á móðurmálinu: super- benzín. I móðurmálsþætti Gísla Jónssonar 12. júlí 1986 er vakin athygli á því í bréfi frá lesenda að þetta orð, superbenzín, hafi verið þýtt kraftbenzín í teiknimynda- þætti fyrir böm í sjónvarpi þegar árið 1985. Gísli leggur síðan til að menn taki upp orðið kraftbenzín. Þetta orð hefur ekki náð yfirhönd- inni enn sem komið er. xxx Máske telja olíufélög það utan síns verkahrings að skjalda móðurmálið. Sé svo er það misskiln- ingur. Þau eru hluti, meira segja allnokkur hluti, af daglegu lífí Is- lendinga, og hafa skyldum að gegna sem slík. Þegar þau auglýsa vöm sína, t.d. á benzíntönkum, þá eiga þau að „tala“ til viðskiptavina sinna á þeirra eigin móðurmáli, ekki er- lendum tungum. Það er að segja ef þau vilja sýna viðskiptavinum sínum háttvísi. Sú er skoðun Víkverja. Þessvegna eru það tilmæli Víkveija til allra þeirra, sem hlut eiga að máli, að orðið superbenzín verði sett til hliðar hjá olíufélögum og benzínsölum. I stað þess mætti nota orðið kraftbenzín. Háttvísi í orðbragði laðar frekar að viðskipta- vini en hið gagnstæða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.