Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 Deilt um lögmæti nýrrar vísitölu: Samvinnusjóði Islands stefiit vegna breytts vísitölugrunns <*2_____________________ Strætisvagnar Kópavogs: Fargjöld hækka um 25% BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt að hækka fargjöld Strætisvagna Kópavogs um 25% frá og með deginum í dag, 1. mars. Síðast voru fargjöldin hækkuð í janúar 1988. Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar einstakt gjald fullorðinna úr kr. 40 í kr. 50, spjald með 5 miðum á kr. 200 verður hér eftir með 4 miðum og 1000 króna spjald, sem áður var með 31 miða, verður nú með 25 miðum. Einstakt gjald bama hækkar úr kr. 15 í kr. 20 og spjald með 18 miðum á kr. 200, verður með 13 miðum. Ellilífeyrisþegar með lögheimili í Kópavogi fá frítt með vögnunum en aðrir greiða kr. 350, fyrir spjald með 20 miðum. Borgarráð: Rafinagn hækkar um 10% BORGARRÁÐ hefur samþykkt samhljóða að hækka gjaldskrá Rafmagnsveitu Reykjavikur um 10% frá og með 10. mars. Þá var samþykkt að hækka gjaldskrá sundstaða um 12,5% að jafhaði samkvæmt tillögu meirihlutans en tillaga íþrótta- og tómstunda- ráðs gerði ráð fyrir 25% hækkun. Ágreiningur varð um hækkun á gjaldskrá dagvistarheimila um 22,7%—33,3% og var tillögunni visað til umfjöllunar i borgar- stjóm á fimmtudag. Hækkun á gjaldskrá sundstaða tekur gildi frá og með deginum í dag. Verð á einstökum miða fyrir fullorðna hækkar úr kr. 80 í kr. 90, eða um 12,5% og einstakir miðar bama hækka úr kr. 40 í kr. 45, eða um 12,5%. 10 fullorðinsmiðar hækka úr kr. 720 í kr. 810, eða um 12,5%, 10 bamamiðar hækka úr kr. 230 í kr. 260, eða um 13% og 30 fullorð- insmiðar hækka úr kr. 1.800 í kr. 2.000, eða um 11,11%. Árskort fullorðinna hækka úr kr. 10.400 í kr. 11.700 eða um 12,5% og kosta frá 1. mars kr. 9.750. Ars- kort bama hækka úr kr. 3.900 í kr. 4.400 eða um 12,82% og kosta frá 1. mars kr. 3.650. Fyrirtækjakort hækka úr kr. 1.800 í kr. 2.000 eða um 11,76%. 5 miðar í vatnsrenni- braut kosta áfram kr. 100. Hert eftirlit með umferð LÖGREGLAN i Reykjavík hefur aukinn mannafla í umferðareftir- liti strax eftir 1. mars, að sögn Böðvars Bjarnasonar lögreglu- stjóra. Dómsmálaráðuneytið hef- ur sent lögreglustjórum bréf þar sem lögð er áhersla á þörf þess að endurskipuleggja eftirlit með ölvuðum ökumönnum. Þá er óskað eftir eftirliti með þvi að ungmenn- um undir tvítugu verði ekki selt áfengt öl á vínveitingastöðum. „Við fáum ekki aukinn mannafla vegna þessa," sagði Böðvar, „en málið verður leyst með tilflutningi á mannafla til umferðareftirlits." Hann kvaðst ekki telja tímabært að grípa til sérstakra löggæsluaðgerða vegna bjórsins fyrr en að liðnum nokkrum vikum eða mánuðum þegar séð yrði hver áhrif þessara breytinga yrðu. Hann kvaðst þó eiga von á að meira yrði um ölvunarakstur en áður. BALDUR Guðlaugsson hæsta- réttarlögmaður stefndi í gær Samvinnusjóði íslands hf. fyrir hönd Arna Árnasonar fram- kvæmdasfjóra vegna þess að Samvinnusjóðurinn greiddi verðbætur fyrir febrúarmánuð samkvæmt nýjum vísitölu- grunni. Verðbæturnar koma á skuldabréf með einn gjald- daga, í febrúar. Krafist er að verðbætur verði greiddar sam- kvæmt þeim vísitölugrunni sem í gildi var, þegar stofiiað var til skuldarinnar. Mismun- urinn er 931,23 krónur, sem verðbætumar eru lægri, sam- kvæmt nýja vísitölugrunnin- um, heldur en þær hefðu verið miðað við eldri grunn. Baldur sagði í samtali við Morg- unblaðið að málið væri höfðað annars vegar til þess að fá úr því skorið hvort hinn nýi vísitölu- grunnur sé löglegur, þar sem umbjóðandi háns telur að lög um verðbætur (Ólafslög frá 1979) leyfi ekki að launavísitala sé lögð til grundvallar eins og nú er gert. Hins vegar vill hann fá úr því skorið, ef breytingin telst lögleg, hvort breytingar á vísitölugrunn- inum geti tekið til skuldbindinga LANDSBANKINN, Útvegs- bankinn, Alþýðubankinn og sparisjóðir hækka vexti í dag í átt til samræmis við vexti ann- arra banka. Landsbankinn hækkar vexti af yfirdráttarlán- um um 3% og víxilvexti um 3,5% eftir að hafa haldið að sér hönd- um um nokkurt skeið. Verslun- arbankinn sem hefúr haft frumkvæði að vaxtahækkunum að undanförnu hefúr hins veg- ar tilkynnt um frekari hækkan- ir til Seðlabanka. Landsbankinn hækkar vexti af sem til var stofnað áður en hinn nýi grunnur tók gildi. Morgunblaðið hefur ekki haft spumir af fleiri málshöfðunum vegna þessara vísitölubreytinga. Auk Samvinnusjóðsins er stefnt almennum sparisjóðsreikningum úr 8% í 10% og nafnvextir af Kjörbók miðað við heilt ár hækka úr 17,1% í 19,2%. Vextir af víxlum hækka úr 14% í 17,5%, vextir af jrfirdrátt- arlánum úr 17,5% í 21,5% en hækk- un á vöxtum almennra skuldabréfa tekur gildi á næsta vaxtatímabili. Útvegsbankinn hækkar vexti á al- mennum sparisjóðsreikningum úr 8% í 10%, víxilvexti úr 18% í 20% og vexti af óverðtryggðum skulda- bréfum úr 16% í 17,5%. Hvað sparisjóði snertir verður m.a. hækkun á víxilvöxtum úr 18% Balasjov vann Fjarkamótið ÚRSLITIN í Fjarkamótinu í skák urðu þau, að efstur varð Balasjov með 9'/2 vinning af 13 möguleg- um, Margeir Pétursson varð í 2. sæti með 9 vinninga og þriðji Helgi Ólafsson með 8V2 vinning. í 4. til 5. sæti urðu Jón L. Árna- son og Eingom með 8 vinninga hvor. I 6.-8. sæti urðu Þröstur Þór- hallsson, Karl Þorsteins og Tisdall með 6V2 vinning hver. í 9. til 10. sæti urðu Waltson og Hannes Hlífar Stefánsson með 6 vinninga, 11. var Hodgeson með 5'/2 vinning, 12. Sigurður Daði Sigfússon með 5 vinninga og í 13. til 14. sæti voru Björgvin Jónsson og Sævar Bjama- son með 3 vinninga hvor. í síðustu umferð urðu úrslit þau að Balasjov vann Tisdall, Margeir vann Karl, Eingorn vann Sævar, Watson vann Björgvin og Jón L. vann Sigurð Daða. Helgi og Hannes Hlífar gerðu jafntefli, sem og Þröst- ur og Hodgson. Seltjarnarnes: Hitaveitan hækkar um 15% BÆJARSTJÓItN Seltjarnamess hefúr samþykkt hækkun á hita- veitugjaldi um 15% frá og með 1. maí. Samþykkt hefur verið fjárhags- áætlun vatnsveitunnar, sem gerir ráð fyrir þessari hækkun, miðað við óbreyttar forsendur. til réttargæslu Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra og Seðlabanka Islands. Stefnan var birt Sam- vinnusjóðnum í gær og verður málið þingfest næstkomandi þriðjudag fyrir bæjarþingi Reykjavíkur. í 20% jafnframt því sem breytingar verða á vöxtum Trompbókar. Verslunarbankinn hækkar víxil- vexti úr 20% í 22%, vexti af yfir- dráttarlánum úr 25% í 26% og kjör- vexti almennra skuldabréfa með lægsta álagi úr 19,5 í 22,5. Þá hækka jafnframt sparisjóðsvextir úr 9% í 11% og nafnvextir af Kaskóreikningi hækka úr 18,11% í 19,25%. Alþýðubankinn hækkar vexti af Sérbók úr 15,6% í 19,9% svo og vexti af yfirdráttarlánum úr 23% í 25% og kjörvexti af al- mennum skuldabréfum úr 17,5% í 19%. Skipið barðist utan í kletta - segir Benedikt Sverrisson, farþegi með Álftafelli SU „TOGARINN barðíst þó nokkurn tíma utan í ldetta eða sker, að ég held utan við Gvendaraesfles," sagði Benedikt Sverrisson, skipstjóri á Hafnarey. Benedikt var farþegi með togaranum Álfta- felli SU frá Stöðvarfirði í fyrrakvöld þegar hann strandaði við mynni FáskrúðsQarðar. Nokkur göt komu á fiskilest Álftafellsins vegna strandsins og fossaði sjór inn um þau en var dælt jafiióð- um úr skipinu við bryggju á Fáskrúðsfirði. Einnig vann kafari að því að þétta skipið í gær. Sjópróf verða að öllum líkindum á Eskifirði á fóstudaginn. „Við vorum flestir niðri í borð- sal Álftafellsins þegar það strand- aði,“ sagði Benedikt Sverrisson. Hann sagðist hafa farið upp í brú skipsins og sent út neyðarkall til skipa og björgunarsveita. Einnig hefðu þeir, sem voru um borð í skipinu, farið strax I flotbúninga. Hann sagðist ekki hafa séð land vegna dimmu og éljagangs. „Við losuðum okkur við toghlerana ef við skyldum þurfa að bakka. Rat- sjáin datt út en ég sendi út staðar- ákvörðun eftir lóran. Þegar skipið losnaði aftur frá landi fór ratsjáin hins vegar aftur í gang,“ sagði Benedikt. Hann sagði að hálftími til klukkutími hefði liðið frá því að Álftafellið strandaði þar til það var komið aftur frá landi. Skipið hefði rekið í suðaustur frá landi. „Lestin var að verða full af sjó og það var uppundir fjörutfu gráðu halli á skipinu. Maður var farinn að velta fyrir sér hvar best væri að keyra því upp í land ef Hoffellið næði okkur ekki I tæka tíð. Hoffellið náði hins vegar að fara undir Álftafellið bakborðs- megin til að það færi ekki yfir og kom einnig dælu yfir til okk- ar, en hún hafði ekki undan,“ sagði Benedikt Sverrisson. Benedikt sagði að í rauninni vissi enginn nema skipstjóri Álfta- fellsins hvað raunverulega hefði gerst þegar skipið strandaði. Morgunblaðið náði ekki tali af skipstjóra Álftafellsins í gær. Vaxtahækkanir taka gildi í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.