Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.03.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 TilþrifalítiU Tvíæringnr Myndllst BragiÁsgeirsson Annar Tvíæringur Félags íslenzkra myndlistarmanna að Kjarvalsstöðum gengur á fullu er þessar línur birtast almenningi og mun hann standa til fimmta marz. Segja verður hveija sögu eins og er og vissulega eru öllu meiri vænt- ingar gerðar til sýninga sem bera slíkt nafn en þessar tvær hafa risið undir, enda tengjast nafninu yfír- leitt viðamiklar myndlistarkynning- ar úti í heimi svo sem flestum mun kunnugt. Fyrir nokkrum árum var sú ákaf- lega vanhugsaða ákvörðun tekin, að leggja niður hina árvissu Haust- sýningar FÍM, en þær voru í eina tíð tvímælalaust einn merkasti list- viðburður ársins hér í borg. í stað þess var ákveðið að efna til sýning- ar innanfélagsmanna á tveggja ára fresti og nefna hana „Tvíæring", og er það orðrétt útlegging alþjóð- lega nafnsins „Biennal". Vanhugsuð var ákvörðunin fyrir það, að í fyrsta lagi hafði tekist að halda þessum listviðburði gangandi svo til óslitið um áratuga skeið, og I öðru lagi kallaði hin nýja fram- kvæmd eftir tvíefldum metnaði frá fyrra forminu, sem svo ekki virðist hafa verið fyrir hendi. í þriðja lagi hefur meðlimatala FÍM trúlega auk- ist dijúgum á skömmum tíma í samræmi við fjölgun myndlistar- manna og á ef að líkum lætur eftir að margfaldast á næstu árum. Einmitt síðasttalda staðreyndin ætti að hvetja til meiri umsvifa hvað slíkar framkvæmdir áhrærir, því að aldrei hefur þörfín verið meiri til einnar allsheijar árlegrar uppstokkunar, til að nokkuð yfirlit fáist yfír það helsta sem er að ger- ast í myndlist hérlendis — með marktækum innbyrðis samanburði. Stórsýningar verka ungs fólks á nokkurra ára fresti eru ekki nóg, og því hefur þörfín á einni mikilli allsheijarsýningu allra árganga, eða jafnvel metnaðarfullum tvíær- ingi aldrei verið meiri. Á slíkum sýningum kemur styrkleiki ýmissa myndlistarmanna greinilegast í ljós, en síður á einkasýningu eða minni samsýningum. Þetta er mönnum ákaflega vel ljóst erlendis og þess vegna er svo mikið um árvissar stór- sýningar af ýmsu tagi í gangi þar allan ársins hring. Og þetta er ekki einungis af hinu góða fyrir listamennina sjálfa held- ur einnig flölmiðla, umljallendur hvers konar, og ekki síst almenn- ing, því að slík framkvæmd gerir alla markvissa og heilbrigða yfírsýn svo miklu auðveldari. Hins vegar skapa allar þessar litlu einkasýning- ar hér á útskerinu ótrúlegan rugling og hringlandahátt, svo að fæstir Myndlistarmennirnir á FÍM-sýningunni. botna neitt í neinu og aðsókn fer þverrandi í heildina litið — jafnvel svo að það eru helst nánustu vinir og ættingar, sem rata á sumar sýn- ingar, svona líkt og á jarðarfarir, enda leiðir blómahafíð stundum hugann til þeirra, þótt slíkt sé síst tilgangurinn. Þemasýningar, sem nú eru fam- ar að tíðkast, eru góðra gjalda verð- ar einkum ef þær ná tilgangi sínum og skapa aukinn áhuga og forvitni. Stórsýningar mega hins vegar ekki bera alfarið keim af sýningum ákveðins listhóps eða kjama, svo sem var í eina tíð, enda stóijókst velgengi þeirra er það viðhorf var ofurliði borið varðandi Haustsýn- ingamar gömlu, og skipulega var gengið til verks f nokkur ár. Þá jókst traust manna svo til fyrirtæk- isins að almennari þátttaka og fjöldi innsendra verka hefur aldrei verið meiri í allri sögu félagsins. En fyrr en varði var sú uppsveifla gengin yfír og síðan hefur framkvæmdin yfírleitt verið fremur rislág þrátt fyrir ýmsar tilraunir er urðu að frekar lífvana umbrotum. Áhugaleysið hefur víst aldrei ver- ið meira en núna og tala innsendra verka í lágmarki — sýningarskráin er klén að ekki sé meira sagt, sömu- leiðis auglýsingaspjöldin utan dyra, og engin skilgreining sýningar- nefndar um framkvæmd og stefnu- skrá sér stað í skránni. Má alveg gera ráð fyrir, að aðstæðumar hafí þrengt sýningamefnd út í hom og sett hana í óyfirstíganlegan vanda, sem hún réði svo eðlilega ekki við. Hér á þróun félagsmála sinna stóra þátt í málum, en sú þróun hófst einmitt með hnignun Haustsýning- anna upp úr 1975, svo beint sam- band er hér á milli. Ég trúi ekki öðru en að allir metnaðargjamir íslenzkir myndlist- armenn vilji sterka og rismikla ár- lega stórsýningu, ég vísa enn einu sinni til þess og minni á, að frænd- um vomm Norðmönnum hefur tek- ist þetta í heila öld og einu ári bet- ur, og þar (í Ósló) sýningin er ótví- rætt myndlistarviðburður ársins og umQöllun í fjölmiðlum eftir þvf. Ekki er sérstakt tilefni til að fjöl- yrða um sýninguna í ár eða einstök verk, enda ekki á hreinu, út frá Eitt húsgagn List og hönnun Bragi Ásgeirsson Síðastliðinn laugardag kynnti húsgagnaverslunin Epal í Faxafeni 7 nýstárlega hönnun og verður hlut- urinn til sýnis í versluninni um skeið. Er hér um að ræða sófa, sem þeir innanhússarkitektamir Guð- rún Margrét Ólafsdóttir og Odd- geir Þórðarson eru höfundar að, og til að undirstrika nýjan stíl fengu Morgunblaðið/Emilla þau nýbylgjumálarann Þorlák Kristinsson til að mála hann í textíllitum. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem þessi verzlun kynnir nútíma hús- gagnahönnun því að hún hefur m.a. staðið fyrir kynningu á hinum þekkta hönnuði Ole Kortzau, sem ýmsum er ábyggilega í fersku minni. Það er skemmst frá að segja, að sófínn, sem er gerður úr svampi, klæddur með bómullardúk og fram- leiddur í aðeins tíu eintökum, er allóvenjulegur á að líta hér á norð- urslóðum. Minnir um sumt á Memphis-hópinn og gæti verið gerður undir beinum eða óbeinum áhrifum frá honum, en er þó öllu grófari, stórgerðari og norrænni í útliti. Hefur ekki yfír sér hina glæsi- legu og mjúku ítölsku línu og er stórgerðari og óbifanlegri formrænt séð. Þetta getur allt eins verið kost- ur, allt eftir því hvaða augum menn líta á hlutina og kunnu fulltrúar Memphis-hópsins, er hér voru á ferð og litu á gripinn, t.d. vel við árangurinn, sem hlýtur að teljast dijúg meðmæli. Kannski boðar þetta framtak uppsveiflu í gerð nútíma húsgagna á Islandi og væri æskilegt, að menn séu hér með á nótunum frá upp- hafi — hér er ekki til það fjármagn né bakgrunnur, sem þeir á ítalfu hafa auk staðsetningarinnar í hjarta Evrópu, og það gerir alla hluti margfalt erfíðari í fram- kvæmd. En tilraunin er þeim mun virðingarverðari, og ég er alveg viss um að að þessum sófum væri mikil ði f réttu umhverfí, auk þess, sem þeir eru vísir til að skapa sérstætt andrúmsloft í kringum sig. Og framtak hinna ungu hús- gagnaarkitekta lofar góðu og ber að þakka þeim hugrekkið og óska þeim velfamaðar. OFNHITASTILLAR OG BAÐBLÖNDUNARTÆKI Makaskipti Hef kaupanda að 4ra-5 herb. íbúð ásamt bílskúr á höfuðborgarsvæðinu í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð við Frakkastíg ásamt góðri milligjöf. Upplýsingar gefur: Hrafnkell Ásgeirsson hrl., Strandgötu 28, Hafnarfirði, símar 50318 og 54699. Stjórntæki í efnahagsráðstöfunum heimilisins. Gæta ítrustu sparsemi án þess að skerða þjónustuna. = HÉÐINN = seljavegi 2, sími 624260 gætir hófsemi SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.