Morgunblaðið - 01.03.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
23
Líbani dæmdur í ævilangt
fangelsi í Sviss fyrir flugrán
ZUrích. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
HUSSEIN HARIRI, 23ja ára flugræningi frá Líbanon, var nýverið
dæmdur í lífstíðar fangelsi í Sviss. Hæstiréttur dæmdi hann sekan
um morð, undirbúning morðs, morðtilraun, gíslatöku, ógætilega
meðferð sprengie&ia og eiturgasa, truflun á umferð og brot á
lögum um skotvopn. Lífstíðar dómur er 25 ár. Hariri gæti sloppið
með 15 ára varðhald ef hann hagar sér vel. Honum verður vísað
úr landi í 15 ár þegar hann hefúr afþlánað dóminn. Réttarhöldin
tóku þijá daga og voru gífurlegar öryggisráðstafnir gerðar vegna
þeirra en ekki kom til neinna vandræða.
Hariri rændi DC 10 vél Air
Afrique flugfélagsins á leið frá
Róm til Parísar í júlí 1987. 166
farþegar, einkum Frakkar, voru
um borð. Hann vildi fara til Beirút
en féllst á að lent yrði í Genf þeg-
ar honum var sagt að vélin hefði
ekki nægilegt eldsneyti til að
fljúga til Líbanon.
Öryggiseftirlit í molum
Ferð Hariris hófst í Brazzaville
í Kongó. Hann mútaði flugvallar-
starfsmanni þar með upphæð sem
samsvarar 350 krónum og komst
vandræðalaust í gegnum farþega-
og handfarangursskoðun með
skotvopn og sprengiefni. Flugmiði
hans var aðeins til Rómar en hann
sat sem fastast þegar vélin milli-
lenti þar og enginn fann að því
þótt hann héldi ferðinni áfram.
Samkvæmt vitnisburði eins far-
þega dormaði Hariri á leiðinni til
Rómar og velti því fyrir sér upp-
hátt úr svefni hvort hann ætti að
ræna vélinni eða ekki. Eftir flug-
tak í Róm náði hann henni á sitt
vald. Hann var með 562 grömm
af TNT bundin um sig miðjann
og ógnaði áhöfninni með byssu.
Hann krafðist þess að líbanskir
hryðjuverkamenn sem eru í haldi
í Vestur-Þýskalandi og Frakklandi
og líbanskir fangar í ísrael yrðu
látnir lausir. Hann tók vegabréf
af öllum farþegum og skipaði þeim
aftast í vélina. Síðan valdi hann
tvo Frakka, Xavier Beaulieu, sem
var 28 ára, og Sebastian Brethes,
21 árs, úr hópnum og lét þá sitja
frammi í. Hann kastaði teppum
yfir höfuð þeirra og hótaði að
myrða þá ef kröfur hans yrðu
ekki uppfylltar.
Farþegi illa leikinn
Segulbandsspóla með upptöku
á orðaskiptum flugmannanna við
flugtuminn í Genf var spiluð í
réttinum. Á henni heyrist sek-
únduvísirinn hreyfast. Nákvæm-
lega þremur mínútum eftir að
Hariri hafði gefíð yfirvöldum
þriggja mínútna frest tii að bregð-
ast við kröfum sínum segir flug-
maður: „Það var skotið aftur í.“
Hariri myrti Beaulieu. Foreldrar
og systkini hins látna fylgdust
með réttarhöldunum. Móðir hans
féll saman er hún heyrði orð flug-
mannsins.
Brethes sat með teppi yfir höfð-
inu í tvær klukkustundir og beið
þess að vera skotinn. Hann hefur
aldrei náð sér eftir það. Hann er
1974
15ARA
1989
sldóaferö um
páskana til
Selen
Selen er stærsta og vinsælasta skíöasvæöi
Svíþjóöar (rétt viö landamæri Noregs).
Búiö í góöum smáhýsum (2 svefnh. + stofa
+ eldhús + baö + þurrkklefi)
Veitingastaöir - verslanir - næturklúbbar.
Yfir 90 skíðalyftur (eitt skíöakort).
Veró kr. 33.975,-
F erðaskrifstofan
LAND OG SAGA
Laufásvegi 2 - sími: 91-27144.
Hussein Hariri.
þunglyndur, tollir ekki í vinnu og
á erfitt með að urqgangast fólk.
Hann upplifir hryllinginn aftur og
aftur.
Hariri hélt sig fremst í vélinni.
Farþegunum aftur í tókst að opna
dyr og flúðu í ofboði. Margir slö-
suðust er þeir stukku niður á flug-
brautina. Öryggissveit réðst þá inn
í vélina. Flugræningjanum hafði
verið tilkynnt að hann fengi að
fljúga til Beirút. Hann var viti sínu
fjær og örmagna. Flugþjónn lenti
í ryskingum við hann og fékk skot
í magann en öryggissveitinni tókst
að yfirbuga ræningjann.
Barn
borgarastyrjaldarinnar
Hariri hlýddi rólegur á dómsúr-
skurðinn og sýndi engin merki ið-
runar. Hann er sjíti og talið er að
Hisbollah öfgaflokkurinn hafi gert
hann út af örkinni, en hann vill
ekki staðfesta það. Hann ólst upp
í suðurhluta Líbanon í stórri og
samlyndri fjölskyldu. Hann fór
ekki varhluta af ófriðnum á svæð-
inu: ísraelski herinn myrti frænku
hans fyrir augunum á honum;
hann sá skriðdreka aka yfír ná-
granna sinn og son hans; átta vin-
ir hans voru myrtir og sjálfur var
hann í haldi ísraela í 10 mánuði.
Sálfræðingur kvað hann heilan á
geðsmunum en barn borgarastyij-
aldarinnar. Hann hefði tæplega
rænt flugvél og framið morð ef
hann hefði alist upp í Genf.
Hariri hafði svo mikið af skot-
hylkjum meðferðis að líklegt þykir
að hann hafi farið á mis við aðra
hryðjuverkamenn sem áttu að
hjálpa honum við flugránið. Sviss-
lendingar sitja nú uppi með óæski-
legan fanga og óttast að ofstækis-
menn grípi til sinna ráða til að
reyna að fá hann lausan. Sviss-
neskur starfsmaður Alþjóða
Rauða krossins í Suður-Líbanon
var tekinn gísl fyrr í vetur en var
látinn laus innan fárra daga.
Svissneskir embættismenn í Mið-
Austurlöndum eru nú varari um
sig en áður.
Hefilbekkir
SJOBERG 2000 BS
SJOBERG 1522 BS
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
MANNVIRKJAÞING
1989
8. mars 1989
að Hótel Sögu, Reykjavík
Ráðstefna um mannvirkjagerð á íslandi, með
megináherslu á framkvæmdir 1989.
Fjallað er um:
1. Mannvirkjagerð hverskonar
2. Fjármögnun
3. Framkvæmdaáætlun
4. Mannaflaþörf
5. Magntölur
6. Tækja- og vélakost
Þær upplýsingar sem koma fram á ráðstefn-
unni og önnur gögn eru sett í handbók um
mannvirkjagerð 1989 og afhent þátttakend-
um á ráðstefnunni.
15% AFSLÁTTUR
Aðilar að Byggingaþjónustunni
fá 15% afslátt á þátttökugjaldi.
Þátttökugjald er kr. 10.000.-
Innifalið í þátttökugjaldi er
handbók, morgunkaffi, hádegisverður
og eftirmiðdagskaffi.
0830 Gögn afhent
0900 Ávarp. Forsætisráöherra, Steingrímur
Hermannsson
0915 Erindi: Fjármögnun framkvæmda og fjárfesting
í mannvirkjagerö siöustu ára. Ástand og
horfur i ár: Póröur Friðjónsson, forstjóri
tjjóðhagsstofnunar.
0945 Erindi: Framkvæmdir hins opinber i mennta-
stofnunum, sjúkrastofnunum og öörum
slíkum mannvirkjum: Indriöi H. Þorláks-
son, fjárlaga og hagsýslustjóri.
1000 Erindi: Vega og brúarframkvæmdir: Snæbjörn
Jónasson, vegamálastjóri.
4. MARS
Tilkynna þarf þátttöku til
Byggingaþjónustunnar
Hallveigarstíg 1
sími 29266
fyrir 4. mars n.k.
BYGGINGA
ÞJONUSTAN
1015 Kaffihlé
1030 Erindi: Hafnarmannvirki. Hermann Guöjónsson,
vita og hafnarmálastjóri.
1045 Erindi: Ibúöabyggingar: Siguröur E.
Guömundsson, framkvæmdastjóri
Húsnæöisstofnunar ríkisins.
1115 Erindi: Orkuframkvæmdir: Kristján Jónsson,
forstjóri RARIK/Jóhann Már Mariusson,
aðstoöarforstjóri Landsvirkjunar.
1130 Erindi: Atvinnuhúsnæöi: Ármann Orn Ármanns-
son, forstjóri Ármannsfells hf.
Fyrirspurnir
1215 Hádegisverðarhlé
1345 Erindi: Framkvæmdir á vegum Pósts og sima:
Ólafur Tómasson, Póst- og simamála-
stjóri.
1400 Erindi: Framkvæmdir Reykjavikurborgar:
Þóröur Þ. Þorbjarnarson, borgarverk-
fræöingur.
1430 Erlndi: Framkvæmdir stærri sveitarfélaga:
Sigurður Björnsson, bæjarverkfræöingur
Kópavogs.
1500 Erindi: Viöhald og viögeröir mannvirkja: Björn
Marteinsson, yfirverkfræðingur Rann-
sóknarstofnunar byggingariönaöarins.
1515 Kaffihlé
1545 Fyrirspurnir
1615 Panilumræöur: Stjórnandi: Ragnar S.
Halldórsson, stjórnarformaöur ISAL
1730 Þingslit: Anton Bjarnason, forstjóri, formaöur
stjórnar Byggingaþjónustunnar.
Þingstjórn: Benedikt Davíösson, formaöur
Sambands byggingamanna
Hákon Ólafsson, forstjóri Rann-
sóknarstofnunar byggingariönaöarins
Kristján Guömundsson, bæjarstjóri í
Kópavogi