Morgunblaðið - 01.03.1989, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.03.1989, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989 FRÉTTABRÉF STÓRSTÚKU ÍSLANDS UM ÁFENGIS- OG BINDINDISMÁL Bíndindísmenn í mikilli sókn Bindindismenn í mikilli sókn Samkvæmt Gallup-skoðana- könnun, sem framkvæmd var hér á íslandi dagana 13-17 janúar 1989, neyta 23,1% íslendinga á aldrinum 15—17 ára ekki áfengis. Hér er um mikla fjölgun bindindis- manna að ræða. Benda má á að þar með eru íslendingar komnir fast á hæla Bandaríkjamönnum. En þar hafa bindindismenn lengi verið hlutfallslega fjölmennastir á Vesturlöndum eða um þriðjungur þjóðarinnar. Fræðsluherferð Stórstúkunnar og landlæknis Undanfarin ár hefur landlæknir, Ólafur ólafsson, aðstoðað Stór- stúku íslands í fræðslu um skað- semi áfengis. Haldnir hafa verið fjölmargir opnir fundir víða um land, þar sem Ólafur hefur sjálfur mætt ellegar fulltrúar hans. Þá hafa skólar verið heimsóttir. Nýj- asta dæmið er frá Keflavík, þar sem allar deildir 8. og 9. bekkja voru heimsóttar af heilsugæslufólki og bindindismönnum. Þetta er okkar hlutur Árið 1979 sendi Alþjóðaheil- brigðisstofnunin frá sér áskorun til aðildarþjóða sinna að draga úr áfengisneyslu. 1981 tók Alþingi íslendinga undir þessa áskorun. Hins vegar hafa efndimar verið á alit annan veg. 1979, á alþjóðlegu bamaári, lengdi þáverandi dóms- málaráðherra opnunartíma vínveit- ingahúsa án þess að nokkur bæði hann um það. Árið 1954 var eitt vínveitingahús starfandi í landinu. 1980 vom þau 34. 1. janúar 1989 voru þau 148. 1983 vom 3 áfengis- útsölur í Reykjavík og 6 úti á landi. 1. janúar 1989 em 4 áfengisútsölur í Reykjavík og 12 úti á landi. 1985 heimiiar Alþingi bmggun sterkra vína. 1988 er bruggun og sala áfengs öls einnig leyfð. Öllum tillög- um sem miða að minnkandi vímu- efnaneyslu er drepið á dreif saman- ber 19 manna nefiid Gunnars Thor- oddsens. Á þessum ámm leggur borgarstjóm Reykjavíkur áfengis- vamanefnd sína niður. Sem sagt, stefna íslenskra stjómvalda hefur verið og er að auka áfengisneyslu landsmanna og hunsa allar aðgerð- ir sem stefna í öfuga átt. Öll loforð svikin Sem kunnugt er lofuðu bjór- aðdáendur stórauknum fjárveiting- um til áfengisfræðslu með tilkomu bjórsins. Öll hafa þau loforð verið svikin. Jafnvel aðalhvatamennimir verða að viðurkenna að enginn áhugi er á Alþingi fyrir slíkum málum samanber nýlega grein eftir Jón Magnússon, varaalþingismann, en eins og allir vita var Jón einn af flutningsmönnum bjórfmm- varpsins. Jón segir: „Þegar umræð- ur stóðu sem hæst um bjórmálið á Alþingi vom allir sammála um að nauðsyn bæri til að efla forvamar- starf og fræðslu um áfengismál áður en bjórinn yrði lögleiddur. Þannig lögðu bæði stuðningsmenn og andstæðingar bjórs sérstaka áherslu á virkt forvamarstarf og áróður. Þegar fmmvarpið um bjór- inn var orðið að lögum kom til kasta rikisstjómarinnar og framkvæma eða láta framkvæma sem nauðsyn- legt þótti í forvömum og fræðslu. Þegar þetta er skrifað er mér ekki kunnugt um neitt átak hafði verið gert í þessum málum. Ég veit held- ur ekki til þess að nokkurt átak sé á döflnni." Bragð er að þá bamið fínnur. Frá bindindismóti í Galtalækjarskógi. Birgir DýrQörð Er Alþingi samkoma sem beygir sigfyrir hagsmunum Einn þeirra manna, sem harðast beittu sér gegn áfengum bjór, var Birgir Dýifyörð, varaþingmaður Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra. Ég hitti Birgi fyrir skömmu og lagði fyrir hann eina spumingu. „Heldur þú að það verði auð- velt fyrir íslendinga að losna við bjórinn?" Svarið kom um hæl: „Nei. Áfengur bjór er kominn til að vera á ísiandi. Þar eru of miklir hags- munir í veði.“ H.J. Verjumst því böli sem áfengi bjórinn veldur eftir séra Bjöm Jónsson Fyrir nokkrum árum var ég á ferðalagi erlendis sem fararstjóri milli 20 og 30 unglinga á aldrinum 14—19 ára. Við heimsóttum nokkur Evrópulönd og áttum mjög skemmti- lega ferð. Meðal annars komum við til Kaupmannahafnar og dvöldum þar í nokkra daga. Á laugardags- kvöldi fórum við í hinn fræga skemmtigarð þeirra Hafiiarbúa, Tívolí. Þar var margt um manninn og margt að sjá. Á einum stað var þar unglingadansleikur og munu þátttakendur i honum hafa verið um 3 þúsund. Eins og eðlilegt var langaði islensku unglingana til að koma þangað inn og fá sér snúning. Af ókunnugleika töldum við fararstjór- amir, — en með mér var starfs- bróðir minn úr Reykjavík, fararstjóri annars unglingahóps, — að ekkert væri athugavert við þátttöku okkar fólks i þessum dansleik. Nokkrar stúlkur fóru inn, en komu von bráðar út aftur og voru greinilega miður sín. Þeim hafði augsýnilega fundist andrúmsloftið þama inni eitthvað örðuvísi en þær höfðu fyrirfram búist við, eitthvað meira en lítið lævi bland- ið. Við fararstjóramir brugðum því á það ráð að kaupa okkur sjálfir inn til þess að sjá með eigin augum, hvað þama væri að gerast. Og þeirri sjón, sem við okkur blasti þegar inn kom, gleymi ég aldrei. Á gólfínu var ein iðandi kös. En á pöllunum í kring um dansgólfíð sátu unglingar, allt niður að fermingaraldri, að því er við giskuðum á, — flestir við bjór- drykkju. Sumir lágu sofandi fram á borðin, aðrir veltust um á gólfínu í spýju sinni. í garðinum utan við þetta danshús voru piltar og stúlkur ömur- lega á sig komin, I ástaratlotum, sem voru ógeðslegri en orð fá lýst. Á meðan við gengum þama um sáum við konur, vafalaust mæður skimandi eftir bömum sínum. Þama komu lögreglumenn með sjúkrabörur og báru út unglingsstúlku, sem fallið hafði í öngvit og fengið krampakast. Alls staðar var hræðilegt um að lit- ast á þessum stað, sem auglýstur var sem skemmtistaður æskunnar. Það var greinilegt, að þama var það áfengi bjórinn, sem réð ferðinni og hafði völdin. Og nú er áfengur bjór orðinn stað- reynd hér á okkar landi. Bíður okkar sú grátlega sjón sem við blasti á hinum danska unglingadansleik í Tívolí forðum? Eigum við hér heima eftir að sjá aðra eins niðurlægingu íslenskrar æsku og við fararsijóram- ir urðum -vitni að þessa minnilegu kvöldstund. Víst gæti svo orðið, þegar bölöld áfenga bjórsins hefir verið veitt yfír okkur af fullum krafti. En vonandi verður þess þó langt að bíða. Ég Séra Björn Jónsson veit, að meðal æskufólksins okkar eru margir sterkir stofnar, sem ekki láta blekkja sig eða brjóta. Og ekki trúi ég öðru en að margir foreldrar og uppaléndur vilji snúast sameigin- lega til vamar áður en váboðinn hefír náð að vinna sitt voðaverk. Besta vömin er fordæmið, sem birtist í algjöru bindindi, bæði á áfengan bjór og aðra sterkari drykki. Sameinumst á þeim grundvelli, góðir íslendingar. Stærra gæfuspor getum við ekki stigið. Áfengi drepur hundrað sinnum fleiri Englendinga en ólögleg vímuefiii Það er ekki að ástæðulausu að bæði á þingi íhaldflokksins á Bret- landi og Verkamannaflokksins var það álit manna að áfengisneysla væri alvarlegasta vandamálið sem Bretar ættu nú við að stríða. Rann- sóknir þar í landi leiða í ljós að meira en helming dauðsfalla tán- inga má rekja til áfengisneyslu. Það eru einkum umferðarslys þar sem ölvun kemur við sögu sem verða fólki innan 24 ár að fjör- tjóni. Aukin drykkja unglinga á Englandi stafar m.a. af því að þeir byija að neyta áfengis æ yngri. Derek Rutherford hjá Rann- sóknarstofnun áfengismála segir að rannsóknir sýni að meira en flórði hver 13 ára drengur drekki þrisvar í viku og að rúmlega helm- ingur 11 ára drengja og tæpur þriðjungur telpna á þeim aldri drekki að minnsta kosti einu sinni í viku. Neysluvenjur foreldra eru taldar ráða mestu um þessa öfug- þróun. Breska ríkistjómin ver einungis IV2 milljón sterlingspunda til áfengisvama. Hins vegar lætur hún 17 milljónir í vamir gegn ólög- legum vímuefnum. Tjónið sem þau efni valda, er þó ekki nema brota- brot af þeim hörmungum sem áfengisdrykkja leiðir yfír Englend- inga. Ólögleg vímuefni valda um 250 dauðsföllum á ári, áfengi 25.000. T

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.