Morgunblaðið - 01.03.1989, Qupperneq 49
Í W I SHAM t^'.ruuv M! -H'ífflM i1M/..níMirnwiw
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1989
49
IttíMR
FOLK
■ ARSENAL var heppið að
halda jöfnu, 0:0, gegn Millwall á
Highbury í gærkvöldi í 1. deildar-
keppninni ensku.
■ GARY GiUespie var valinn í
skoska landsliðið fyrir leik liðsins
gegn Frakklandi á Hampden
Park í næstu viku. GiUespie hefur
ekki leikið með liðinu undanfama
mánuði vegna meiðsla.
■ MICHEL Platini, landsliðs-
þjálfari Frakka, hefur tilkynnt lið
sitt fyrir leikinn gegn Skotum.
Hann hefur aðeins valið einn ný-
liða, Thierry Laurey frá Sochaux,
sem er aðeins 18 ára.
■ RON Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Sheffield Wednes-
day, hefur keypt miðjumanninn
Carlton Palmer frá WBA fyrir
750.000 pund. Atkinson borgaði
450.0000 pund út og lét WBA fá
sóknarmanninn Colin West. Atkin-
son fékk fyrir skömmu tilboð frá
Celtic í Sigurð Jónsson. Stjórinn
svaraði því að hann vildi ekki selja
leikmenn fyrr en hann hefði keypt
aðra í staðinn.
■ MARCO Van Basten, leik-
maður AC Mílanó, er ekki hrifinn
af hugm}mdum sinna manna um
að leika „varlega" gegn Werder
Bremen í fyrri leik liðanna í Evr-
ópukeppni meistaraliða í kvöld. „í
Mflanó reynum við ávallt að sækja
og við viljum ná góðum úrslitum í
Bremen. Góð úrslit eru í mínum
huga aðeins sigur," sagði Basten.
■ MARK Lawrenson, fyrrum
leikmaður Liverpool og stjóri hjá
Oxford, flýgur í dag til Banda-
ríkjanna. Hann tekur við starfi
þjálfara hjá Tampa Bay Rowdies
í Flórída.
■ NORMAN Wbiteside, leik-
maður Manchester United, hefur
verið frá keppni vegna ökkla-
meiðsla í heilt ár. Nú er talið að
hann geti farið að leika á ný ein-
hvem næstu daga.
■ LEROY Rosenior, framheiji
West Ham, verður frá keppni
næstu vikumar. Hann hefur verið
skorinn upp vegna meiðsla á hné.
West Ham hefur vegnað illa í vetur
og nú gerast þær raddir æ hávær-
ari að liðið sé að reyna að kaupa
Frank Mc Avennie aftur frá Celtic.
HANDKNATTLEIKUR
Ævintýraferð landsliðsins
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik
lenti í miklum œvintýrum er það hólt
frá Parfs til Lúxemborgar í gœr, 6 leið
sinni til íslands eftir B-keppnina.
HJjj ópurinn var kominn út í rútu við hótel
sitt í útborg Parísar klukkan iiðlega
sjö í gærmorgun. Þegar bifreiðastjórinn
ætlaði að setja i gang gerðist ekkert. Þá
var flokkur manna sendur út til að ýta, það
tókst að ýta rútunni nokkra metra en þá
fór ailt loftið af stýrisbúnaði hennar! Hópur-
inn var þá sendur inn á hótei aftur meðan
viðgerð stóð yfir.
Eftir diykklanga stund var ailt komið í
samt lag og haldið var af stað. En Adam
var ekki lengi í Paradís. Ekki hafði verið
ekið lengi þegar ijúka fór úr mælaborði
bifreiðarinnar, og var íslendingunum þá nóg
boðið. Ekið var sem leið lá, með dyr bifreið-
arinnar opnar svo reykurinn færi beint út,
að höfuðstöðvum langferðamiðstöðvarinnar
og fengin ný bifreið. Það tók sinn tíma að
færa 5lan farangurinn milli bifreiða, en
þegar loks var hægt að halda af stað gekk
ferðin vel.
Vegna þessara tafa á ferð landsliðsins
seinkaði flugi Flugleiða frá Lúxemborg um
tvær og hálfa klukkustund. Beðið var eftir
landsliðinu og virtust fæstir farþeganna sem
biðu í flugstöðinni taka það nærri sér. Að
minnsta kosti var landsliðshópnum klappað
lof i lófa þegar hann gekk um borð í vélina.
Gunnar Kjartansson, gjaldkeri HSÍ, sést hér með
ávísun upp á 290 þús. kr. frá VISA, en fyrirtækið
hét 10 þús. kr. á hvert mark sem ísland skoraði í
úrslitaleiknum.
KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Urslit
samkvæmt
bókinni
ÞRÍR leikir fóru fram í íslands-
mótinu í körfuknattleik í gær-
kvöldi og voru úrslit samkvæmt
bókinni.
ASauðárkróki voru yfírbunðir
heimamanna miklir gegn ÍR-
ingum og þeir fognuðu sigri í
síðasta heimaleik vetrarins.
KR-ingar gerðu út um leikinn
gegn Þór á Akureyri á fyrstu 10
mínútum seinni hálfleiks, en þá
gerðu heimamenn aðeins sex stig.
í Njarðvík sigruðu heimamenn
Grindvíkinga aðeins með einu stigi,
en sigurinn var nánast öruggur all-
an tímann og eru Njarðvíkingár
ósigraðir á heimavelli í vetur.
Eyjólfur Sverrisson o
son, UMFT. Sturía <
: Haraldur Leifs-
ríygsson, ÍR.
Guðni Guðnason, KR. Teitur Öriygsson
og FViðrik Rúnarsson, UMFT. Guð-
mundur Bragason, UMFG. Valur Ingi-
mundarson og Sverrir Sverrisson
UMFT. Bjöm Steffensen og Ragnar
Torfason, IR.
GRUNNSTIG
* s
ISI
Námskeið fyrir leiðbeinendur barna og unglinga í íþrótt-
um verður haldið í íþróttamiðstöðinni í Laugardal um
næstu helgi og hefst föstudaginn 3. mars kl. 17.00.
Sér- og héraðssambönd ÍSÍ hafa fengið allar upplýsingar.
Skráning og upplýsingar hjá ÍSÍ í síma 83377.
Fræðslunefnd ÍSÍ.
INNANHUSSNIOT
Knattspyrnufélag ÍA hefur ákveðið að efna til móts í
innanhússknattspyrnu fyrir lið í 6. flokki sunnudaginn
5. mars nk. Hverju félagi er heimilt að senda tvö lið.
Fjöldi þátttökuliða er takmarkaður. Þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist í síðasta lagi föstudaginn 3. mars.
Nánari upplýsingar veitir Steinn Helgason í síma
93-13311 frá kl. 15-16 og 93-11899 á kvöldin.
Þór-KR UMFN-UMFG
68: 95 93 : 92
fþróttahöllinni Akureyri, íslandsmótið íþróttahúsinu Njarðvík, íslandsmótið í
í körfuknattleik, þriðjudaginn 28. körfuknattleik, þriðjudagmn 28. febrú-
febrúar 1989. ar 1989.
Gangur leiksins: 10:13, 23:33, 30:42, Gangur leiksins: 0:2, 9:2, 17:10,
41:43, 45:61, 49:62, 61:85, 68:95. 27:22, 30:32, 38:32, 44:38, 49:40,
Stig Þórs: Guðmundur Bjömsson 17, 58:48, 61:54, 69:54, 71:60, 79:76,
Eiríkur Sigurðsson 16, Bjöm Sveinsson 83:80, 88:88, 93:92.
12, Kristján Rafnsson 11, Þðrir Guð- Stig UMFN: Teitur Örlygsson 29, Frið-
laugsson 6, Þórður Kárason 2, Einar rik Rúnarsson 27, Friðrik Ragnarsson
Viðarsson 2, Jóhann Sigurðsson 1. 9, Kristinn Einarsson 9, Hreiðar Hreið-
Stig KR: Guðni Guðnason 23, Birgir arsson 4.
Mikaelsson 21, Matthías Einarsson 16, Stig UMFG: Guðmundur Bragason 31,
Ólafur Guðmundsson 10, ívar Webster Jón Páll Haraldsson 11, Steinþór
8, Jóhannes Kristbjömsson 7, Láms Helgason 10, Rúnar Ámason 9, Ástþór
Árnason 5, Hörður G. Gunnarsson 5. Ingason 9, Sveinbjöm Sigurðsson 8,
Áhorfendur: 14. Hjálmar Hallgrímsson 6, Ólafur Þór
Dómaran Kristján Möller og Ámi Jóhannsson 6, Eyjólfur Guðlaugsson 2.
Freyr Sigurlaugsson dæmdu þokka- Áhorfendur: 120.
lega. Dómarar: Gunnar Valgeirsson og
Bergur Steingrímsson.
UMFT-IR
105 : 80
íþróttahúsinu Sauðárkróki, íslands-
mótið í körfuknattleik, þriðjudaginn 28.
febrúar 1989.
Gangur leiksins: 11:4, 22:11, 24:20,
32:23, 44:25, 49:34, 62:39, 75:45,
81:56, 95:72, 105:80.
Stig UMFT: Eyjólfur Sverrisson 29,
Haraldur Leifsson 22, Valur Ingimund-
arson 20, Sverrir Sverrisson 16, Bjöm
Sigtryggsson 10, Kári Marísson 6,
Ágúst Kárason 2.
Stig ÍR: Sturia Öriygsson 18, Bjöm
Steffensen 13, Karl Guðlaugsson 12,
Ragnar Torfason 12, Gunnar Öriygs-
son 10, Jón Öm Guðmundsson 8, Bragi
Reynisson 4, Eggert Guðmundsson 1.
Áhorfendur: 280.
Dómarar: Brynjar Þorsteinsson og
Indriði Jósafatsson.
LEIKFIMI
FJOGURRA VIKNA NAMSKEIÐ
ERU AÐ HEFJAST
Hressandi^ mýkjandi og styrkjandi leikfimi,
v ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg. eða meira.
Sauna og ljós til upphitunar fyrir þær sem þjást af vöðvabólgum.
Hádegis- og morguntímar fyrir konur.
Herratímar í hádeginu.
Nuddari á staðnum.
Innritun og frekari upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 í síma 83295.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
Ármúla 32