Morgunblaðið - 02.04.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRIL 1989
<¥l
lendu hins vegar allan ferðapak-
kann, er fundið út hvað kostar að
kaupa dvölina hjá erlendu skrifstof-
unni og ferðast á eigin vegum til
áfangastaðarins og heim aftur. í
þeim dæmum er miðað við Super
Apex fargjald Flugleiða til Luxem-
burgar, báðar leiðir, og bílaleigubíl
að auki. Bíllinn er metinn á 15
þúsund krónur á viku (Ford Sierra
kostar 14.400 krónur á viku). Ekki
er tekið tillit til afslátta eða flug-
vallaskatta, þar sem þær upphæðir
hafa óveruleg áhrif á samanburð.
Sama er að segja um sérstakan
kostnað í sumarhúsum og íbúðum
sem greiðist á staðnum og er yfir-
leitt á bilinu 2.000 - 3.000 krónur
á viku.
Niðurstöðumar eru birtar í með-
fylgjandi töflum. Reynt var að velja
sambærilega kosti og almennt er
miðað við eftirsóttasta tíma ársins.
þau rúmi 4-6 manns og hafi eitt
svefnherbergi. í þessu tilviki er
munurinn fólginn í því, að í húsun-
um er kompa, lítið annað en skápur
(kallað „cabinet“ í samningi ferða-
skrifstofunnar við eigendur hú-
sanna). Önnur ferðaskrifstofan
kallar þetta svefnherbergi, hin telur
kompuna ekki með.
í ljósi þessa skal áréttað að þessi
athugun á verði ferðaskrifstofanna
byggir á tiltækum upplýsingum frá
þeim sjálfum, um verð, aðbúnað,
þjónustu og staðsetningar.
Einhliða munur
Þessi athugun leiðir í ljós nánast
einhliða mun á verði, innlendu
ferðaskrifstofunum í óhag. Þeirra
verð er yfirleitt talsvert hærra held-
ur en ef farið er á eigin vegum.
Aðeins þegar seldur er aðgangur
að sumarhúsum í Þýskalandi, án
kostnað, áður en ferðin verður dýr-
ari en pakkaferð með innlendri
ferðaskrifstofu. Hér er ekki kannað
hvort hægt er að ferðast þangað
fyrir þær upphæðir, en fram kemur
í viðtali við Knút Óskarsson að ekki
verður Spánarferðin ódýrari með
því að fljúga til Luxemburgar og
kaupa ferðina þaðan.
A Miðjarðarhafsströnd Frakk-
lands eru íbúðirnar og húsin leigð
viku í senn, bæði hjá innlendu og
erlendu skrifstofunum. Þau inn-
lendu eru allt frá 13% upp í um
130% dýrari. Þess ber þó að geta
að mikill munur mun vera á húsun-
um, þótt þau eigi það yfirleitt sam-
merkt að vera þrengri og með lak-
ari aðbúnaði en islendingar eiga að
venjast, að sögn ferðaskrifstofu-
manna.
Tvö dæmi eru tekin af ferðapökk-
um innlendu ferðaskrifstofanna til
Verö með flugi (Super Apex kr. 19.150 á mann, 6 fullorðnir) Verð meöflugi og bílá kr. 15.000 áviku
1 vika 2 vikur 3 vikur 1 vika 2 vikur 3 vikur
238.000 306.000 372.000
255.150 301.500
138.580 143.180 146.050 177.200 205.480 153.580 158.180 161.050 207.200 250.480
133.786 137.100 141.220 159.300 185.620 148.786 152.100 156.220 189.300 230.620
142.840 148.380 181.860 215.340 157.840 163.380 211.860 260.340
137.500 145.400 160.100 175.900 182.700 206.400 152.500 160.400 190.100 205.900 227.700 251.400
133.246 139.892 • 151.592 164.884 169.938 189.876 148.246 154.892 181.592 194.884 214.938 234.876
ÞYSKALAND
2 VIKUR í júlí og/eða ágúst
Miðaðvið6 fullorðna (* 4fullorðnir Svartiskógur (Daun Eifel) ) Weissenháusser Strand (noröurströndin) Verð meö flugfari, Super Apex Lux Verö með flugfari og bílaleigubíl Verð á mann
Innlendar ferðaskrst. Fj. i Herb. Verð ibúð fj. m2 6fullorönir Fj. í Herb. Verð íbúð fj. m2 6fullorönir 6 fullorönir (*4 fullorönir) á kr. 15.000 áviku=kr. 30.000 fyrir 2 vikur
a. 6 2 65- 228.600 innifalið 258.600 43.100
b. 4-6 3 95 62.400 2-7 3 83 70.400 177.300 185.300 207.300 215.300 34.600 35.883
c. 2—6 3 60.200 175.100 205.100 34.183
d. 4—6 3 60.800 4-8 91 93.600 208.500 175.700 238.500 205.700 39.750 34.283
Erl. feröaskrifs a. 4-6 76 39.700 • 154.600 184.600 30.767
b. * íbúð * hús 6 3 69 43.220 4 2 40 M7.712 4 44 *58.844 158.120 •124.312 •135.444 188.120 ‘154.312 •165.444 31.353 38.578 41.361
c. 6 61.280 176.180 206.180 34.363
Antibes Cap d’Agde La Grande Motte
Fj.i ibúð Herb.- Verð á ib. fj. m' iviku Fj. i Herb - Verðáib. ibúð fj. nT iviku Fj.i Herb - Verðáib. íbúð fj. m' iviku
4-6 1 51.500 56.300 4 1 37.800 40.700
6 6 ?h 27 36.266 2h 36 42.260 45.470 3-4 1* 26 16.955 17.835 4 2 24.790 26.040 6 n 35 24.708 31.890 4-5 2h 40 28.570 37.970
6 45 26.920 38.860
AUSTURRÍKI
Skíöaferö fyrir tvo í tvær vikur í báöum tilvikum er um sama skíðasvæöi aö ræða og sömu skíöalyftur. Timi: febrúar 1989. Verð
Innl. feröskr.st. Flug Kef-Salzburg-Kef, hótel, 1 fæöi, feröir til og frá flugvelli í Austurríki Flug Kef-Salzburg-Kef, gisting í pensionati, feröir aö og frá flugvelli 151.400 103.000
Á eigin vegum Flug Kef-Salz.-Kef 47.000 Hótel m. morgunmat 19.615 Bílal.bíll í 2 vikur 16.000
Samtals 82.615
Hins vegar er ávallt umdeilanlegt
hvað eru sambærilegir kostir, eins
og fram kemur í viðtölum við ferða-
skrifstofumenn. Raunar er ekki
hægt að ganga úr skugga um það,
nema með því að fara á hvern og
einn stað og sjá með eigin augum.
Hér er hins vegar farin sú leið að
velja saman staði, (bæi, þorp, hér-
uð), og lýsingar á húsum og íbúðum
eins og þær koma fram í kynning-
arbæklingum. Því kann að vera að
á þeim kostum sem bornir eru sam-
an, sé munur varðandi aðbúnað og
aðstöðu umfram það sem lýst er í
töflunum, en sá munur kemur ekki
berlega í ljós þegar kynningarefni
ferðaskrifstofanna er skoðað. Á
hinn bóginn kom í ljós í samtölum
við ferðaskrifstofumenn að lýsingar
þeirra á sömu húsunum gátu verið
all mismunandi. Til dæmis þegar
lýst er sumarhúsum í Frakklandi
og ein ferðaskrifstofa lýsir húsun-
um sem 6-7 manna með tveimur
svefnherbergjum. Önnur ferðaskrif-
stofa lýsir sömu húsum þannig, að
ferða og fararstjórnar, standast
þær samanburð.
Athyglisvert dæmi er skíðaferð
fyrir tvo til Austurríkis. Heimildar-
maður Morgunblaðsins fór ásamt
maka á þeim kjörum sem lýst er í
töflunni. Ferðaskrifstofan bauð
tvær útgáfur af ferðinni, annars
vegar á fyrsta flokks hóteli og þá
var hálft fæði innifalið, hins vegar
á ódýrara hóteli, svokölluðu „pensi-
onati," og þá var fæði ekki innifa-
lið. Heimildarmaður blaðsins hafði
bílaleigubíl til umráða allan tímann
og hann bjó á ódýru hóteli í tveggja
manna herbergi með baði. Flogið
var til sama flugvallar í Austurríki
og dvalið á sama skíðasvæði og
notaðar sömu skíðalyftur og verið
hefði, ef ferðin hefði verið keypt
hjá ferðaskrifstofunni.
200 þús. í ferðakostnað
í Spánarferðunum getur ferða-
kostnaður fjögurra manna hóps á
eigin vegum farið upp í 100 - 200
þúsund krónur, fyrir utan dvalar-
dvalar í sumarhúsi í Hollandi. Ódýr-
ari pakkinn er 3.840 krónum ódýr-
ari heldur en ef farið er á eigin
vegum og leigður bíll allan tímann,
þtjár vikur, miðað við dýrasta kost-
inn hjá erlendu ferðaskrifstofunum.
Í öðrum tilvikum er ódýrara að fara
á eigin vegum, samkvæmt þessari
athugun. Munurinn fer upp í um
112 þúsund krónur á ódýrasta kost-
inum á eigin vegum og þeim dýrari
með innlendri ferðaskrifstofu. Mun-
urinn eykst ef bætt er bílaleigu-
kostnaði við innlenda dæmið. Óll
eru húsin í einhvers konar orlofs-
húsabyggð. Annað innlenda dæmið
og að minnsta kosti eitt erlent, eru
um svonefnd „lúxusþorp" með mikl-
um þægindum og margvíslegum
baðstöðum og leikvöngum.
Hvað skýrir muninn?
í viðtölum, sem fylgja þessari
grein, skýra ferðaskrifstofumenn
þann mun sem kom í ljós á ferða-
kostnaði með íslenskum ferðaskrif-
stofum og erlendum. í ljós kemur
Enginn vafi að
ferðaskrifstofur
eru of margar
ÞRÍR forsvarsmenn ferðaskrifstofa voru spurðir álits á niðurstöðnuum
sem hér birtast. Þeir voru einnig spurðir hvort þeir teldu æskilegt
að ferðaskrifstofum fækkaði hér, hvort hagræða mætti í rekstrinum,
í hverju samkeppnin felst, hvort íslenskar ferðaskrifstofur selji of
dýrt og margs fleira. Rætt var við Karl Sigurhjartarson formann Fé-
lags íslenskra ferðaskrifstofa og framkvæmdastjóra Pólaris, Tómas
Þór Tómasson hjá Samvinnuferðum/Landsýn og Knút Óskarsson hjá
Urvali. Þeir voru allir sammála um að ferðaskrifstofurnar reyni að
selja sem ódýrastar ferðir, að samkeppnin sé hörð og að ferðaskrif-
stofur séu of margar hér. Svörin fara hér á eftir og skýra sig sjálf.
KARL
SIGURHJARTARSON
Það blandast engum hugur um
að ekki þarf þennan fjölda ferða-
skrifstofa hér.
Könnun á hagkvæmni þess að
selja farseðla í umboðssölu sýndi
að það er mjög óhagkvæmt. Um-
boðslaunin eru 9%, en kostnaður
um 12%. Mjög lítill munurvará litl-
um og stórum ferðaskrifstofum. Þá
vaknarsú spurning hvað vinnst
með sameiningu. Eg kannast ekki
við að samruni hafi verið skoðaður
á milli ferðaskrifstofa, á hinn bóginn
hafa ferðaskrifstofur í tvígang
sundrast á undanförnum misser-
um.
Það eitt að nýir aðilar koma inn
á markaðinn þýðirekki endilega
stækkun markaðarins, samanber
að nú er samdráttur, en ferðaskrif-
stofum hefurfjölgað.
íslendingar krefjast meiri og betri
fararstjórnar en útlendingar. Þegar
þeirfara fyrstu ferðirnar velja þeir
gjarnan sólarlandaferðir af því að
þær eru með fararstjórn. Þær hafa
þjónað ákveðnu uppeldishlutverki
og nú fara börnin oft með foreldrun-
um og verða sjálfstæðari ferða-
menn síðar.
Ég er alls ekki sannfærður um
að niðurstöðurykkarséu réttar. Ég
tel að íslenskar ferðaskrifstofur séu
ekki dýrari. Þegar ég hef kannað
þetta hafa mínar niðurstöður verið
að sólarlandaferðir okkar séu ekki
dýrar. Engin ástæða er til að ætla
að það hafi breyst, hækkanir á milli
ára hafa verið minni en kostnaðar-
hækkanir.
Islenskarferðaskrifstofur vinna á
minni álagningu en erlendar. Hér
eru færri milliliðir, heildsalinn og
smásalinn eru sami aðili, það vegur
upp á móti óhagstæðari innkaup-
um.
Það tíðkast hvergi nema á Is-
landi, að ferðaskrifstofur þjóni fjár-
mögnunbarhlutverki.
Það er óhjákvæmilegt að einhver
samdráttur verði, greinilegt að
samdráttur er í allri neyslu.
TÓMAS ÞÓR
TÓMASSON
Sumarhúsin okkar í Hollandi eru
ekki venjuleg sumarhús, heldur
sæluhús. Þau eru öðruvísi upp
byggð og miklu meira lagt í húsin
sjálf en alla jafnan. Þau eru vel
búin, á lokuðu svæði og vel hugsað
um allt umhverfi. Þar er miðbæjar-
kjarni líkt og í Kringlunni og fjöl-
breytileg tómstundaaðstaða. Þessi
hús eru eðlilega dýrari en venjuleg
sumarhús;
Fararstjóraþjónusta og ferðir að
og frá flugvelli í sumarhúsin í Hol-
landi kosta um 4.500 krónur á
mann.
Super Apex þarf að kaupa með
löngum fyrirvara og honum er ekki
hægtaðbreyta.
Fólk getur dottið inn á hótel og
fengið herbergiá spottverði. Við
því er ekkert að gera, slíkt er alltaf
aðgerast.
Við þurfum að senda telex,
hringja og greiða starfsfólki laun
þegar við pöntum hótelherbergi.
Barnaafsláttur hjá erlendum
ferðaskrifstofum er oftast nánast
enginn.
10-15 ferðaskrifstofur eru að
berjast um bróðurpartinn af mark-
aðnum. Það er allt of mikill fjöldi á
ekki stærri markaði.
Til lengri tíma litið hefði fækkun
ferðaskrifstofa sennilega í för með
sér verðlækkun. Hagræðing gildir á
þessu sviði eins og öðrum.
í leiguflugferðum okkar munar
mikið um hvert laust sæti vegna
þess hve fá þau eru. Við höfum
hreinlega ekki efni á að fljúga með
auð sæti eða selja þau á útsölu.
Erlendarskrifstofur með breiðþotur
í förum munar mun minna um að
selja fáein sæti á spottmarkaði, en
sá markaður er ákaflega ótryggur.
KNÚTUR
ÓSKARSSON
Á Miðjarðarhafsströndinni er
okkar verð bara það sem ég fæ frá
Frökkunum og af því fáum við hlut.
Við leggjum ekkert á það, það er
sama verð og Frakkarfá sjálfir.
Ibúðir í Frakklandi eru undan-
tekningarlaust minni, þrengri og
verr búnar en í Mið- og Norður-
Evrópu. Þar er líka mjög mikill mun-
ur á milli fyrirtækja. í sumum tilvik-
um getum við dregið eitt, jafnvel
tvö, svefnplássfrá, miðað við þær
upplýsingar sem við fáum. Eitt her-
bergi er jafnvel ekki annað en skáp-
urtil að liggja í.
Mikilvægast er að gefa sem rétt-
astar upplýsingar. Ég vil heldur að
aðstæður komi farþegum þægilega
á óvart heldur en öfugt. Við lifum
ekki af þessa samkeppni nema með
því að fá sama farþegann til okkar
aftur og aftur og það gerir hann
ekki nema hann sé ánægður.
í Daun Eifel seljum við á sama
verði og er útsöluverð í Þýskalandi.
Við tökum ekki einu sinni álag fyrir
fararstjóra sem við erum með á
staðnum.
Það versta sem hendirfyrirtæki
eins og þetta er að láta viðskipta-
vininn uppgötva að hann getur
sloppið ódýrar með því að kaupa
Apex miða og fara á eigin vegum.
Ég er ekki að segja að við viljum
ekki græða eins og við getum, en
það verður að vera innan þeirra
marka að við hrekjum ekki við-
skiptavininn frá okkur.
Ibúðir okkar á Royal Mediterrano
hótelinu á Mallorca kosta 58 þús-
und. Ef þú ert í Luxemburg og kaup-
iraf LuxAirdvöl á sama hóteli
þarftu að borga 44 þúsund krónur.
Þá þarftu að fá farið til Luxemburg-
ar og heim aftur á 14 þúsund til
að sleppa á sama verði.
Herbergi fyrir tvo á fjögurra
stjörnu hóteli kostar 83.500 hjá
okkur og 70.658 hjá Lux Air á sama
hóteli.
Á Kýpur bjóðum við lúxushótelí-
búðir á L'Onda Beach. Þriggja vikna
ferð, án fæðis, kostar 110.600
krónur á tímabilinu 20 júlí til 10
ágúst. Með Lux Air kostarferð með
dvöl á sama hóteli og hálfu fæði
122.800, á sama tíma.
Framantaldir staðir eru þeir dýr-
ustu sem boðið er upp á í sumará-
ætlun okkar. Þetta sýnirað það er
miklu ódýrara að kaupa ferðina hjá
okkur heldur en hjá Lux Air á háann-
atíma.
Ég er ekki í vafa um, að þótt
ferðaskrifstofum fækki töluvert hér,
þá mundi samkeppnisaðstaða við-
skiptavina ekki skaðast.
Til nokkurra ára litið mundi ferða-
verð lækka við fækkun ferðaskrif-
stofa, vegna minni auglýsinga-
kostnaðarog betri samninga um
flug og hótel og hagkvæmni í rekstri
skrifstofanna sjálfra getur aukist.