Morgunblaðið - 02.04.1989, Qupperneq 16
4
Ikfi
HÖFUÐBORG MORÐA í BANDARÍKJUNUM?
og allir berjast gegn öllum — salan
er í höndum margra lítilla glæpa-
flokka, sem bítast um gróða, yfir-
ráðasvæði og viðskiptavini. Bent er
á að þegar Detroit var „höfuðborg
glæpa í Bandaríkjunum" hafí eitur-
Iyijaverzlunin verið óskipulögð og
morð útbreidd, en morðunum hafí
fækkað þegar einn tiltekinn hópur
tók völdin.
Flest fórnarlömbin í Washington
falla í væringum eiturlyfjasala inn-
byrðis og þegar eiturlyijasalar og
viðskiptavinir þeirra rífast um við-
skiptin. Talið er að a.m.k. 60% allra
morða í Washington eigi rætur að
relqa til eiturlyijasölu og morðingj-
amir og fórnarlömb þeirra em yfír-
leitt ungir, svartir karlmenn.
Nokkrir lögregluforingjar telja
morðölduna góðs viti. „Skítseiðin
drepa hvert annað,“ segja þeir.
„Því skyldi okkur ekki standa á
sama um það?“
Um 75% þeirra sem em hand-
teknir í Washington hafa neytt eit-
urlyfja, allt frá einni tegund upp í
★
★
Eiturlyjjastríb steinsnarfrá Hvíta húsinu
eftir Guðm. Halldórsson
ÞEGAR GEORGE BUSH
forseti sefur geisar
miskunnarlaust strið steinsnar
frá Hvíta húsinu I Washington,
sem er orðinn einn hættulegasti
staður landsins. Eiturlyf,
fátækt og eymd hafii breytt
hverfúm blökkumanna í
höfúðborg Bandaríkjanna og
alls hins vestræna heims I
blóðugan vígvöll.
Blökkumennirnir, sem eru um
70 af hundraði borgarbúa,
standa í fremstu víglínu eins
grimmilegasta ófriðar
glæpamanna, eiturlyfjasala og
morðingja í sögu
Bandaríkjanna. Hverfi þeirra í
suðaustur- og norðausturhluta
borgarinnar hafa verið lýst
hættusvæði og útlendingum er
ráðlagt að fara ekki þangað.
Washington, sem
heimamenn nefna
stundum „mikil-
vægustu borg ver-
aldar" og „heim-
kynni lýðræðisins",
hefur tekið við þeim
vafasama heiðri af
Detroit að vera kölluð „höfuðborg
morða í Bandaríkjunum“ — Murder
Capital, USA. Þótt þrisvar sinnum
færra fólk búi í Washington en í
Chicago voru fímm sinnum fleiri
myrtir í höfuðborginni í fyrra en í
Chicago á mesta morðárinu í sögu
þeirrar kunnu glæpaborgar. Fleiri
morð voru framin í Washington á
hvem íbúa í fyrra en í nokkurri
annarri bandarískri borg og hvergi
hafa verið framin eins mörg morð
í sögu Bandaríkjanna á friðartím-
um.
„Þjóðarsmán“
Æ fleiri Bandaríkjamenn telja
ástandið í Washington „þjóðar-
smán“. Háværar kröfur eru uppi
um að herlið verði sent til borgar-
innar til að koma á lögum og reglu
eins og gert var eftir morðið á
Martin Luther King 1968. Borgar-
stjómin hefur verið ráðþrota og
ekki hefur verið nóg gert til að
stemma stigu við auknum glæpum,
en það kann þó eitthvað að vera
að breytast.
Fyrir dymm stendur róttæk end-
urskipulagning á embætti saksókn-
arans í District of Columbia (DC),
sem nær yfír sjálfa borgina Wash-
ington (úthverfín teygja sig inn í
Daglegur viðburður f Washington: handtekinn vegna eiturlyfja.
fimm. Aðeins í tveimur öðmm borg-
um Bandaríkjanna hefur kókaín náð
eins mikilli útbreiðslu. Fíkniefnið
PCP er hvergi eins útbreitt og að-
eins í einni annarri borg er heróín
jafnútbreitt. Þar við bætist krakk.
Fyrir nokkram ámm neyttu aðeins
kvikmyndastjömur og rokktónlist-
armenn kókaíns, en nú hefur al-
menningur greiðan aðgang að
krakki, sem kostar aðeins 10-20
dollara skammturinn (nokkur
hundmð krónur).
Krakkið er vinsælast meðal
ungra og fátækra blökkumanna.
Margir þeirra ganga í þjónustu eit-
urlyfjasala og verða auðsveipir
þrælar þeirra. Þeir fá 4.000 dollara
á viku fyrir að selja eiturlyf á götun-
um, en aðeins fjóra dollara á tímann
fyrir að afgreiða á hamborgarastöð-
um.
„Morðtíminn“
Sagt er að þegar mest sé að
gera hjá eiturlyfjasölunum sé eins
mikil ös og í kjörbúðum á aðalanna-
tíma þeirra á laugardögum. En
þótt eitursalan sé áberandi em við-
skiptin, sem fara oft fram á götu-
hornum eða í grennd við ijölbýlis-
ríkin Virginíu og Maryland). Um
30 nýir saksóknarar verða ráðnir
og þar með verða þeir 240 alls,
fleiri en í nokkurri annarri borg
Bandaríkjanna. Nýlega lýsti borg-
arstjómin yfír neyðarástandi og
lagði til að komið yrði á útgöngu-
banni unglinga eftir kl. 11 á kvöld-
in í þijá mánuði. Eiturlyijaneyzla,
undirrót glæpanna, er einkum út-
breidd meðal unglinga og reynt er
að koma í veg fyrir að þeir lendi í
klandri.
Útgöngubann hefur verið reynt
áður og gefizt vel í Los Angeles,
Fíladelfíu og víðar, dregið úr of-
beldi og fækkað unglingum á göt-
unum. Hins vegar hafa mannrétt-
indahópar lagzt gegn því að út-
göngubann verði fyrirskipað í
Washington. Yfirmaður lögreglunn-
ar þar er því einnig mótfallinn og
telur að með því yrðu teknar upp
sömu aðferðir og beitt sé gegn
blökkumönnum í Suður-Afríku.
Ýmsir em líka vantrúaðir á að
útgöngubann sé framkvæmanlegt.
Öll fangelsi eru yfirfull og lögreglan
er svo fámenn að hún hefur lítt
getað ráðið við hópa glæpamanna,
sem ganga um götur borgarinnar
vopnaðir vélbyssum. Vegna
þrengsla í fangelsum höfuðborgar-
innar hefur orðið að flytja dæmda
eiturlyfjasala í fangelsi á vestur-
ströndinni.
Washington er oft kölluð „DC“
eftir skammstöfuninni á District of
Columbia. Sumir lögreglumenn
borgarinnar segja að skammstöfun-
in tákni „Dodge City“, hina gömlu
„höfuðborg kúrekanna“ í villta
vestrinu. Þeim virðist fúlasta al-
vara, enda virðist oft hending ráða
því hveijir em myrtir. Fyrir kemur
að unglingar fremji morð til þess
eins að komast yfir útvarpstæki,
en önnur morð em hins vegar hrein-
ar aftökur. Marion Barry borgar-
stjóri sagði nýlega að hinir myrtu
væm fórnarlömb glæpaflokka, sem
veldu sér skotmörk að vel hugsuðu
Vegatálmi í noröausturhluta
Washington: „striðssvæði.“
máli. „Washington er ekki Dodge
City,“ bætti hann við.
„Krakkstríð“
Morðaldan hófst í nóvember
1987, þegar fyrstu eiturlyfjasalarn-
ir komu frá New York til að selja
„krakk,“ sem er búið til úr kók-
aíni. Síðan hafa eitursalar frá
Miami og jafnvel Jamaica bætzt í
hópinn.
Margir telja að ein helzta ástæða
þess að morðum hefur fjölgað eins
ört og raun ber vitni sé sú að eitur-
lyijasalan er ekki skipulögð. Enginn
einn maður stjórnar viðskiptunum
hús, svo flókin að starf lögreglunn-
ar virðist oft vonlaust.
Venjulega hefur eiturlyijasalinn
tvo vitorðsmenn. Annar þeirra
stendur á götuhorni, nær í kaup-
anda og sendir hann til hins aðstoð-
armannsins, sem tekur við pening-
unum. Sjáífur bendir eiturlyfjasal-
inn kaupandanum aðeins á felustað-
inn, t.d. girðingu, tré eða bílhræ.
Aðalviðskiptin fara fram frá mið-
nætti til kl. 3 að nóttu og sá tími
er kallaður „morðtíminn“. í fyrra
voru 378 myrtir í Washington, sem
er 600.000 manna borg, og þar af
vom 370 blökkumenn. Á sama ári
féllu 280 Palestínumenn og 12 ísra-
elsmenn í uppreisninni á herteknu
svæðunum í Israel. Á fyrstu tveim-
ur mánuðum þessa árs vom 100