Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 1
56 SIÐUR B
102. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugslysið í Svíþjóð:
Kunnir stjóramála-
menn meðal látimia
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORSETI sænska þingsins gerði í gær hlé á þingstörfum þegar ljóst
var orðið, að þrír þingmenn og borgarfiilltrúi í Stokkhólmi hefðu
farist með flugvélinni, sem hrapaði í gærmorgun við Oskarshamn
í Suður-Sviþjóð. Með vélinni fórust 16 manns, flugmennirnir tveir
og 14 farþegar.
Flugvélin lagði upp frá Arlanda
við Stokkhólm klukkan níu um
morguninn og átti að lenda í
Oskarshamn klukkustund síðar.
Virtist allt vera með felldu þar til
Bretiand:
Enginn
kaldur
samruni
St. Andrews. Frá Gudmundi H.
Frímannssyni, fréttaritara Morgnn-
blaðsins.
Vísindamenn við Harwell-
vísindastöðina telja nú endan-
lega ljóst, að um engan kaldan
samruna frumeindanna sé að
ræða.
Fyrir nokkru lýstu tveir efna-
fræðingar því yfir að þeim hefði
tekist að framkalla samruna við
stofuhita. Venjulega hefur verið
talið að kjarnasamruni geti ein-
ungis átt sér stað við svipað
hitastig og á sólinni. Hefði þessi
uppgötvun reynst á rökum reist
hefði hún getað haft gífurlega
þýðingu fyrir orkuframleiðslu
mannkynsins.
Dr. David Williams, sem
stjórnar þeim hópi sem rannsak-
að hefur tilgátuna um kaldan
samruna, segir að hvorki hafi
mælst aukinn hiti né geislun í
tilraunum þeirra. Þessar niður-
stöður eru taldar sérstaklega
marktækar vegna þess að til-
raunin var unnin í samvinnu við
Martin Fleischmann prófessor,
sem var annar þeirra, sem töldu
sig hafa mælt aukna orku þegar
rafstraumi var hleypt í gegnum
þungt vatn, og að það gæti ekki
stafað af neinu nema kjarna-
samruna.
„Við teljum að tilraunir okkar
séu fyllilega sambærilegar við
tilraunir Fleischmanns og Pons
en við notuðum miklu næmari
mælitæki. Miðað við upphaflegu
tölurnar ættum við að hafa séð
verulega orku nú þegar. Þetta
hefur ekki gerst,“ sagði Will-
iams.
vélin var að koma inn til lendingar,
að hún ofreis og hrapaði. Sprenging
varð í vélinni þegar hún skall til
jarðar og flakið eitt eldhaf á samri
stundu. Rannsókn er hafin á orsök-
um slyssins en vélin var af gerðinni
Beechcraft 99 og tók 16-20 far-
þega.
Lík þeirra, sem fórust, voru svo
illa leikin af eldinum, að erfitt var
að bera á þau kennsl en upplýst
hefur verið, að meðal farþeganna
voru John-Olle Persson, borgarfull-
trúi í Stokkhólmi og frammámaður
í flokki jafnaðarmanna; Anna Wo-
hlin-Andersson, þingmaður Mið-
flokksins; Hans Rosengren, þing-
maður jafnaðarmanna, og Anders
Andersson, þingmaður Hægri-
flokksins. Voru þau öll í þingnefnd
um póst- og fjarskiptamál.
Flugslysið er það mesta í Svíþjóð
frá árinu 1977 þegar Vickers Vis-
count-flugvél hrapaði í íbúðarhverfi
fyrir utan Stokkhólm með þeim
afleiðingum, að 22 létu lífið.
Reuter
Slökkviliðsmenn kanna hér flak sænsku flugvélarinnar en þegar
tekist hafði að slökkva eldinn var ekkert eftir heillegt nema stélið.
Þetta er mesta flugslys í Svíþjóð í 12 ár.
Evrópubandalagið:
Fordæma villimann-
legar hótanir Irana
Madrid, London, Beirut. Reuter.
Evrópubandalagið fordæmdi í gær írani fyrir að hvetja Palestínu-
menn til að myrða óbreytta borgara á Vesturlöndum og talsmaður
breska utanríkisráðuneytisins sagði, að leiddi þessi áskorun til árása
á breska þegna yrðu iranskir ráðamenn gerðir ábyrgir fyrir þeim. EB
hefúr jafnframt lofað viðbrögð Palestínumanna, sem hafa vísað „þess-
um eitruðu ráðum“ Irana á bug.
„þessum eitruðu ráðum“ á bug. Segj-
ast þeir ekki ætla að vinna að sínum
málum með hryðjuverkum auk þess
sem þeir eigi vinum að fagna á Vest-
urlöndum.
Kosningar í Panama:
Hermenn
flarlægðu
kjörgögn
Panamaborg, Washington. Reuter.
TALNINGU atkvæða í forseta-
kosningunum i Panama, sem
firam fóru á sunnudag, miðaði
lítt í gærdag og eru fréttir um,
að á mörgum kjörstöðum hafl
kjörgögn verið fjarlægð í fyrri-
nótt. Frambjóðandi stjórnar og
stjórnarandstöðu hafa báðir lýst
yfir sigri en bandarískir eftirlits-
menn með kosningunum segja,
að sfjómarandstaðan hafl unnið
yfirburðasigur.
Talningu átti að réttu lagi að
Ijúka í fyrrinótt en starfsmenn yfir-
kjörstjómar gerðu í gær hlé á störf-
um sínum vegna þess, að þeim bár-
ust engin kjörgögn utan af lands-
byggðinni. Evrópsk sendinefnd,
sem fylgdist með kosningunum,
segist hafa fréttir um, að hermenn
hafi ráðist inn á kjörstaði í fýrri-
nótt og haft kjörgögnin á burtu
með sér.
Carlos Duque, frambjóðandi
stjórnar Manuels Noriega hers-
höfðingja, og Guillermo Endara,
frambjóðandi sfjómarandstöðunn-
ar, hafa báðir hrósað sigri, en
bandarískir eftirlitsmenn segja, að
óháðar skoðanakannanir kaþólsku
kirkjunnar í Panama meðal fólks,
27.000 manns, sem kom út af kjör-
stöðum, sýni, að stjórnarandstaðan
hafi unnið með 68% atkvæða gegn
23%.
Stuðningsmenn stjómarandstöð-
unnar efndu í gær til mótmæla-
göngu í Panamaborg til að „slá
skjaldborg um sigurinn“ en her-
menn tóku á móti fólkinu með því
að skjóta af byssunum upp í loftið.
Leiðtogar göngumanna féllust á að
biðja fólk um að hætta mótmælun-
um en þrátt fyrir það tóku hermenn-
irnir að skjóta að því og særðist
panamskur sjónvarpsfréttamaður
alvarlega.
1 yfirlýsingu Evrópubandalagsins
sagði, að með því að skora á Pal-
estínumenn að drepa breska, franska
og bandaríska borgara hefði Ali
Akbar Rafsanjani, forseti íranska
þingsins, gerst sekur um villimann-
legt athæfi og var því jafnframt
fagnað, að Palestínumenn skyldu
hafa vísað áskorununum á bug.
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði, að íranskir ráðamenn
yrðu sjálfir taldir ábyrgir fyrir hugs-
anlegum árásum á breska þegna og
jafnframt tilkynnti hann, að eftirlit
í breskum flughöfnum hefði verið
aukið.
Það var sl. föstudag, sem Rafsanj-
ani skoraði á Palestínumenn að beij-
ast fyrir sjálfstæði sínu með því að
drepa fólk á Vesturlöndum, ræna
flugvélum og sprengja upp verk-
smiðjur í eigu vestrænna fyrirtækja.
Sagði hann, að oft væri erfitt að
nálgast Israela sjálfa en Vestur-
landabúar lægju þeim mun betur við
höggi. Talsmenn PLO, Frelsissam-
taka Palestínumanna, og fulltrúar
annarra fylkinga þeirra hafa vísað
Ungverskir kommúnistar:
Kadar vísað úr miðstjórninni
Búdapest. Reuter.
MIÐSTJÓRN ungverska komm-
únistaflokksins ákvað i gær að
setja Janos Kadar, formann
flokksins og fyrrum ráðamann í
landinu í rúma þrjá áratugi, á
eftirlaun og var honum jafn-
framt vísað úr miðstjórninni. Var
frá þessu skýrt í fréttum ung-
verska útvarpsins.
Janos Kadar varð leiðtogi komm-
únistaflokksins eftir að sovéskir
skriðdrekar höfðu bælt niður upp-
reisn Ungveija árið 1956 en veik
fyrir Karoly Grosz í maí í fyrra. í
tilkynningunni sagði, að bág heilsa
Kadars hefði ráðið mestu um en
vitað er, að Kadar var orðinn að
verulegu vandamáli fyrir ímynd
kommúnistaflokksins. Hann býst til
að heyja kosningabaráttu og vill
losa sig við sem flest, sem minnir
á ábyrgð hans á endalokum upp-
reisnarinnar.
Fyrsta fijálsa dagblaðið
Reuter
Kosningatíðindi, dagblað Samstöðu, óháðu verkalýðsfélaganna 5 Póll-
andi, hóf göngu sína í gær og er jafnframt um að ræða fyrsta fijálsa
dagblaðið í Austur-Evrópu í rúm 40 ár. Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, tók raunar þannig til orða í forsíðugrein, að út væri komið
fyrsta fijálsa dagblaðið allt „frá bökkum Saxelfar til stranda Kyrra-
hafsins". Andófsmaðurinn Adam Michnik heldur hér á blaðinu en í
því var gerð grein fyrir öllum frambjóðendum stjórnarandstöðunnar
í þingkosningunum í næsta mánuði.