Morgunblaðið - 09.05.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
Deilan um Fossvogsdal:
Ekki á móti rannsókn
á mengunarhættu
- segir Heimir Pálsson
„EG get ekki verið á móti því
að gerð verði könnun sem leggur
áherslu á að rannsaka hættu á
mengun,“ sagði Heimir Pálsson
forseti bæjarstjórnar Kópavogs
í samtali við Morgunblaðið, en í
ávarpi Sigmundar Guðbjarna-
sonar rektors Háskóla íslands,
sem hann flutti á fundi um vernd-
un Fossvogsdals, lagði hann til
að farið yrði að tillögu skipulags-
stjórnar ríkisins og óháðum aðila
falið að rannsaka fyrirsjáanleg
og líkleg áhrif Fossvogsbrautar
á umhverfíð.
Heimir sagði að stór munur væri
á því hvort hlutlausum aðila yrði
falið að rannsaka hættu af völdum
mengunar í dalnum eða hvort hlut-
Óspakseyri:
Hagnaður
af rekstri
kaupfélagsins
laus umferðarsérfræðingur væri
fenginn til að meta umferðarþörf-
ina. Sjálfur gæti hann ekki séð að
saman færi Fossvogsbraut og úti-
vistarsvæði. „Ef engin leið er til að
sannfæra menn í þessu efni nema
með því að fram fari mengunar-
rannsóknir og ef menn eru tilbúnir
til að láta sannfærast af þeim þá
verður að gera þær. Ég þarf ekki
þessar rannsóknir í þessu tilviki
vegna þess að ég legg önnur sjónar-
mið til grundvallar og það gera
þeir sem mæla fyrir verndun dals-
ins.
Við gætum auðveldlega búið til
reiknilíkan, sem sýndi að bráðnauð-
synlegt væri að búa til veg í Laug-
ardal en okkur dettur það ekki í
hug og vonandi dettur engum öðr-
um það í hug. Síðan finnst mér
skipta gífurlega miklu máli sú þekk-
ing og viðhorfsbreyting, sem orðið
hefur á undanfömum árum gagn-
vart umferð og umhverfi. Við get-
um ekki nema í einhvem takmark-
aðan áraljölda lokað augunum fyrir
þeirri þekkingu, sem nú liggur fyr-
ir um mengun frá umferð," sagði
Heimir. Sjá bls. 18.
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Feðgar við stjórn
Feðgamir Henning Á. Bjamason flugstjóri (t.v.) og
Úlfar Henningsson flugmaður (t.h.) vom við stjóm-
völinn í fyrstu áætlunarferð Aldísar, nýju Flugleiða-
þotunnar, sem farin var til Frankfurt í Vestur-
Þýzkalandi á sunnudag. Tekið var á móti þotunni
með viðhöfn í Frankfurt. Áhöfnin var leyst út með
/ fyrstu ferðinni
blómum og gjöfum. Páll Ásgeir Tiyggvason, sendi-
herra í Vestur-Þýzkalandi, heilsaði upp á áhöfnina
og skoðaði síðan þotuna ásamt fjölda erlendra gesta
og blaðamanna. Farþegar sem stigu um borð í Frank-
furt fengu allir afhent sérstök viðurkenningarskjöl
um þátttöku sína í ferðinni og lítið líkan af þotunni.
HAGNAÐUR varð af rekstri
Kaupfélags Bitrufjarðar á
Óspakseyri á síðasta ári, og að
sögn Sigrúnar Magnúsdóttur
kaupfélagsstjóra var félags-
mönnum, sem eru 35 talsins,
greiddur 7% arður eða afsláttur
af úttektum.
Heildarvelta kaupfélagsins var
um 60 milljónir króna á árinu
1988, og varð hagnaður af rekstr-
inum tæplega 1,5 milljón króna.
Sigrún sagði rekstur kaupfélagsins
hafa gengið vel undanfarin ár, og
útlit væri gott miðað við það sem
af væri þessu ári.
Sr. Þórirkveð-
ur söfhuðinn
Á hvítasunnudag klukkan
11 fyrir hádegi verður hátíð-
armessa í Dómkirkjunni þar
sem sr. Þórir Stephensen kveð-
ur söfnuðinn.
Tónlistardagskrá hefst
klukkan 10.30.
Fyrirsjáanleg aflaminnkun síðari hluta árs:
Hátt í 2.000 manns verða
án atvinnu í lok ársins
segir firamkvæmdasljóri Verslunarráðs íslands
VILHJÁLMUR Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands
telur að búast megi við verulegu atvinnuleysi í sjávarútvegi í haust
og fyrri hluta vetrar, jafnvel að 1.500 til 2.000 störf verði ekki
unnin síðustu þijá mánuði ársins. Áætlar hann að botnfiskaflinn
fyrstu fjóra mánuði ársins hafi verið 20—30 þúsund tonnum meiri
en á síðasta ári sem komi fram í samdrætti síðari hluta ársins auk
þess sem allur aflasamdráttur vegna minni heildarkvóta, alls um
40 þúsund tonn, þurfi að koma á sama tíma. Þetta kemur fram í
minnispunktum um efnahagsmál sem Vilhjálmur lagði fram á
stjómarfúndi Verslunarráðsins í gær.
Vilhjálmur segir að atvinnustigi með því að erlendu lánsfé hafi
í landinu hafi verið haldið uppi verið dælt inn í sjávarútvegsfyrir-
tækin auk hinnar góðu vertíðar.
Telur hann að greiðslustaða fyrir-
tækja í sjávarútvegi muni versna
mjög þegar líður á árið þegar
skuldbreytingu Atvinnutrygginga-
sjóðs er lokið og velta fyrirtækj-
anna minnkar vegna aflasamdrátt-
ar. Vilhjálmur býst við að gengið
verði fellt um 10% fram til ára-
móta og raungengi verði svipað
og á árinu 1987. Það dugi hins
vegar ekki til að snúa taprekstri
V erslunarbankinn:
Bent Sch. Thorsteinsson sel-
ur 5-6% hlut sinn í bankanum
Hlutabréfamarkaðurinn hf. hefur milligöngu um hlutabréfasöluna
sjávarútvegsins eða annarra út-
flutningsgreina í hagnað. Fyrir-
tæki í þessum greinum þoli ekki
þau afkomuskilyrði sem þeim eru
og verði að líkindum búin á þessu
ári. Því þurfi „að taka einn stóran
hring í haust eða vetur í skuld-
breytingum og hlutafjárkaupum í
fyrirtækjum og útflutningsgrein-
um,“ segir Vilhjálmur í skýrslu
sinni. Þá megi búast við miklum
kröfum um gengisfellingu þegar
greiðslustaða sjávarútvegsfyrir-
tækjanna fer að versna á síðari
hluta ársins. Einnig megi búast
við miklum kröfum um aukinn
aflakvóta þegar líður á árið.
Miðað við 10% gengisfellingu til
áramóta, þannig að gengið fylgi
launakostnaðarbreytingum, telur
Vilhjálmur að framfærsluvísitalan
muni hækka um 20—22% á árinu
og að meðalhækkun á verðlagi frá
síðasta ári verði um 20%. Hann
segir að ef heildarlaun breytist í
takt við nýgerða kjarasamninga
megi ætla að kaupmáttur atvinnu-
tekna á mann lækki um 7—8%.
BENT Sch. Thorsteinsson, fimmti stærsti hluthafi Verslunarbankans,
hefúr nú selt hlutabréf sín í bankanum, en þau samsvara á milli 5 og
6% hlutaíjár. Ekki hefur fengist gefið upp hverjir kaupendurnir eru,
en Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar Iðn-
aðarbankans og Hlutabréfamarkaðarins hf., hefur staðfest f samtali
við Morgunblaðið að Hlutabréfamarkaðurinn hafi haft milligöngu um
þessi viðskipti. Fyrir einungis þremur vikum seldi annar af stærstu
hluthöfum Verslunarbankans, Sigurður Njálsson, um 6% hlut sinn f
bankanum og var kaupandinn í því tilfelli Sjóvá-Almennar.
Athygli vekur að bæði Sigurður
Njálsson og Bent Sch. Thorsteinsson
hafa verið meðal eindregnustu sam-
einingarsinna í hluthafahópi Versl-
unarbankans og eftir að Sjóvá-
Almennar eignuðust hlut Sigurðar
Njálssonar hafa forsvarsmenn tiygg-
ingafélagsins gerst eindregnir tals-
menn sameiningar einkabankanna,
þ.e. Iðnaðarbanka og Verslunar-
banka og/eða Alþýðubankans. Bent
Sch. Thorsteinsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ástæð-
uraar fyrir því að hann seldi hlut
sinn í Verslunarbankanum væru
fyrátT ög' fr'elflSr áð"hánn"liéf3i 'léngi
barist fyrir sameiningunni innan
Verslunarbankans en þolinmæði sín
væri nú þrotin eftir að hafa talað
þar löngum fyrir daufum eyrum.
Ætlað er að tilgangurinn með
hlutabréfasölum þessara tveggja
stóru hluthafa sé ekki síst að auka
þrýsting á sameiningarviðræðurnar.
Viðræður hafa verið í gangi milli
Verslunarbanka og Alþýðubanka, og
einnig undirbúningsviðræður milli
fulltrúa Verslunarbanka og Iðnaðar-
banka. Ekki er talið útilokað að von
bráðar geti dregið til tfðinda í þessum
viðræðum, enda mun viðskiptaráð-
■Kerrálía'fágéTíð f skýii áð*éihkábánk- ‘
amir sem hér um ræðir, hafi nú tak-
markaðan frest til að ná saman og
síðan sameinast um kaup á Útvegs-
bankanum hf. Ella verður þeim
banka deilt á milli ríkisbankanna
tveggja, Landsbanka og Búnaðar-
banka, eða hann sameinaður þeim
síðamefnda.
Heildarhlutafé Verslunarbankans
var um áramót um 420 milljónir
króna og með útgáfu um 20% jöfnun-
arhlutabréfa er hlutafé hans nú um
504 milljónir. Kaupverð Sjóvá-
Almennra á hlutabréfum Sigurðar
Njálssonar var á bilinu 40-50 milljón-
ir, en nafnvirði þeirra í kringum 31
milljón. Á þeim tíma var auglýst
kaupgengi Hlutabréfamarkaðarins
hf. á bréfum Verslunarbankans 1,24
eða sem svarar til um 38 milljóna.
Yfírverðið sem Sigurður Njálsson
fékk þjá Sjóvá-Almennum fólst í því
að hér var um að ræða umtalsverðan
hlut í Versjunarbankanum sem færðj
'káúþáhdánúm taisverð áhrif innan
bankans. Sama má ætla að gildi um
hlutabréfasölu Bents Sch. Thor-
steinssonar. Nafnvirði bréfa hans eru
á bilinu 25-30 milljónir en kaupgengi
hlutabréfa Verslunarbankans hefur
á síðustu 3 vikum hækkað úr 1,24
í 1,28, sem þýðir að verðgildi hluta-
bréfanna á þeim markaði er á bilinu
32-35 milljónir. Þá ber að hafa í
huga að hér er um svo stóran hlut
að ræða í Verslunarbankanum að
honum fylgja umtalsverð áhrif og
þýðir væntanlega að Bent hefur selt
bréfin á enn hærra verði.
Sigurður B. Stefánsson hjá Hluta-
bréfamarkaðinum hf. vildi einungis
staðfesta að Hmark hefði komið
nærri þessum kaupum sem milli-
gönguaðili, enda væri hlutverk
Hmarks m.a. að stunda hlutabréfa-
miðlun. Hann vildi þó taka fram að
Hlutabréfasjóðurinn hf., sem er í
umsjá Hlutabréfamarkaðarins hf.
eða_ Hmarks^ _ hefði_ _hverjj _ komið.
nærri þessum kaupum.
Kæra í Ávöxt-
unarmálinu
NOKKRIR af kröfúhöfúm í
þrotabú Ávöxtunar hf. hafa sent
dómsmálaráðuneytinu kæru, þar
sem krafizt er skýringa á því,
hvemig það getí hafa viðgengizt
að óregla væri á sjóðum fyrir-
tækisins án vitundar bankaeftir-
lits Seðlabankans.
Ólafur Walther Stefánsson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu,
staðfesti að kæran hefði borizt, og
sagði að henni yrði svarað, en vildi
ekki geta um það nákvæmlega,
hvaða meðferð hún fengi. Þórður
Ólafsson, forstöðumaður bankaeft-
irlits Seðlabankans vildi ekki tjá sig
um málið þar sem það væri til
meðferðar. hjá ráðuneytinu. og. um-.. J
boðsmanni alþingis.