Morgunblaðið - 09.05.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
7
Icefood ’89:
Aukin áherzla lögð
á neytendamarkaðinn
Matvælasýningin Icefood ’89 stendur nú yfir í Laugardalshöllinni.
Eitt helzta einkenni sýningarinnar, er aukin áherzla á hollustu mat-
væla annars vegar og hins vegar mikil sókn framleiðenda inn á neyt-
endamarkaðinn, bæði hér heima og erlendis. Samhliða sýningunni er
„sjvarréttaveizla” í samvinnu við nokkur hótel og veitingahús í
Reykjavík. Sýninguni lýkur næstkomandi föstudag.
Síldarréttir hf. kynna meðal ann-
ars nýjungar í síld, kryddsíld og
maríneraða síld í sýrðu grænmeti og
sömu síldartegundir í ferskri epla-
sósu og ferskri bananasósu. Egill
Gr. Thorarensen, framkvæmdastjóri,
síldarrétta, segir viðtökurnar við
þessum nýjungum betri en við nokk-
urri annarri nýjung, sem hann hafi
kynnt. Síldarréttir framleiða ýmsar
tegundir síldarrétta auk reykts og
garfins lax og silungs svo dæmi séu
nefnd. Egill segist nú hyggja á land-
vinninga erlendis og í því skyni hafi
sérstakar umbúðir verið hannaðar.
Sýningin gefi honum kost á sam-
böndum við erlenda kaupendur og
því taki hann þátt í henni.
Frostmar hf, kynnir fjórar gerðir
tilbúinna fiskrétta, ýsu með ýmsum
hætti og tvenns konar sjávarrétta-
súpur. Bæði súpumar og fiskréttirn-
ir eru tilbúnir til neyzlu eftir upphit-
un í örbylgjuofni eða venjulegu ofni
og duga sem heil máltíð fyrir einn.
Kristján E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, segir viðtökur góðar
og markaðssetningu erlendis vel á
veg komna. Lengst séu samningar
komnir við Finna, en prufusending
hafi einnig farið vestur um haf. „Það
hefur verið skortur á mat, sem er
sérstaklega búinn til eldunar í ör-
bylgjuofnum. Þessum ofnum fer nú
mjög fjölgandi og við ætlum okkur
að vera tilbúnir til þess að fylla upp
í tómarúmið og sjá fólki, bæði erlend-
is og hér heima, fyrir þægilegum og
góðum mat í þessu skyni,“ sagði
Kristján.
Hafnarberg hf. í Þorlákshöfn er
ný fiskréttaverksmiðja, sem sérhæfir
sig í framleiðslu á fiski í neytendaum-
búðum. Góðgætispakkinn er nafnið
á frystum ýsubitum í 400 og 600
gramma pökkum og eifls kílóa pakk-
ar eru að koma á markaðinn. Karl
Sigmar Karlsson, framkvæmdastjóri,
segir Hafnarberg stefna á útflutning
og verið sé að vinna að ákveðnu
verkefni fyrir Frakka. Þar sé um að
ræða pökkun í 6 kílóa öskjur, en eins
kílós öskjur komi síðan þar í stað.
Fyrirtækið er byggt upp með út-
flutning í huga, en jafnframt fram-
leitt fyrir heimamarkað. í framtíðinni
er stefnt á framleiðslu tilbúinna fisk-
rétta.
12 fyrirtæki innan Félags
íslenzkra iðnrekenda taka þátt í sýn-
ingunni. Þau sýna saman á 300 fer-
metra svæði. Markmið þeirra er að
kynna fyrir neytendum íslenzka
framleiðslu og gefa þeim tækifæri á
að bera saman vöruúrval og gæði
við erlendan varning eins og segir í
kynningu FÍI. Þar segir ennfremur:
„Islenzku fyrirtækin búa öll við harða
samkeppni og sívaxandi innflutning-
ur hefur gert það að verkum að
markaðshlutdeild innlendrar fram-
leiðslu hefur farið minnkandi undan-
farin ár. A tímum samdráttar og
vaxandi atvinnuleysis vilja fyrirtækin
því vekja athygli á mikilvægi þess
að neytendur velji íslenzkar vörur
þegar þess er kostur.“
Sanitas leggur nú vaxandi áherzlu
á efnagerð og framleiðslu á ýmis
konar sósum til matreiðslu og með
mat. Sósurnar, mæjones, sinnep,
tómatsósa, remúlaði og fleira, eru
framleiddar undir vörumerkinu Sana
og að sögn Rúnars Björgvinssonar,
markaðsstjóra, er innihald þeirra
fituminna og sósurnar því heilsusam-
legri en flestar sambærilegar sósur.
Sú staðreynd hafi þegar skilað sér í
góðum viðtökum, bæði hjá neytend-
um og veitingahúsum. Framhaldið
sé því frekari þróun, einkum á um-
búðum.
Nói - Sírús kynnir fjórar nýjar
tegundir af fylltu súkkulaði og rauð-
an tópas auk fieiri tegunda sælgæt-
is, svo og lakkrís í fyrsta sinn. Sig-
urður B. Sigurðsson, markaðsstjóri
fyrirtækisins, segir þessa sýningu
n\jög mikilvæga fyrir sælgætisiðnað-
inn, sem stáridi höílúm fæti rneðal
annars vegna sérstaks vörugjalds á
framleieðsluna. Þetta vörugjald hafi
verið kallað sérstakt sætindagjald
og því ætlað að stýra neyzlunni.
Hins vegar vilji það svo til, að af
10.000 til 12.000 tonna innflutningi
af sykri árlega noti sælgætisiðnaður-
inn aðeins um 800 tonn. Miklu meira
fari ýmsar mjólkurafurðir og bakk-
elsi, sem ekki beri þetta gjald.
Morgunbiaðið/Bjami Karl Sigmar Karlsson með góðgætispakkann.
Egill Gr. Thorarensen kynnir nýja síldarrétti.
Innflytjendur eiga líka sína full-
trúa a'sýningunni. Meðal þeiira er
fyrirtækið Karl K. Karlsson. í inn-
flutningi leggur fyrirtækið áherzlu á
hollustu, lágt innihald kolesterols og
salt og rotvarnarefni eru ýmist engin
eða í lágmarki að sögn Ingvars J.
Karlssonar. Fyrirtækið kynnir ýmsar
nýjungar svo sem sérstök kryddhrís-
gijón, brauðrasp, hrökkbrauð, pasta
ogýmsar sósur. Mikið af varningnum
er þannig útbúið að ekki er hægt
að opna umbúðirnar og loka þeim
aftur án þess að það sjáist.
Mikil áherzla er lögð á kynningu
matvælanna og eru á staðnum mat-
reiðslumeistarar bæði að utan og
héðan, sem sýna listir sínar og hvað
gera megi úr ýmsu hráefni. Þá selja
mörg fyrirtækjanna vöru sína á
kynningarafslætti.