Morgunblaðið - 09.05.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
9
SIEMENS-^aed/
TRAUSTUR OG AFKASTAMIKILL
ÞURRKARIFRÁ SIEMENS
íslenskar fjölskyldur í þúsundatali telja SIEMENS
þvottavélar og þurrkara ómissandi þægindi. Þú getur
alltaf reitt þig á SIEMENS.
WT
33001
■ Hægt að leiöa loft út frá
öllum hliðum.
■ Þurrkar mjög hljóðlega.
■ Tímaval upp í 140
mínútur.
■ Hlífðarhnappur fyrir
viðkvæman þvott.
■ Tekur mest 5 kg af
þvotti.
■ Verd kr. 39.500,-
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
sem sparikort
Fyrirhafnarlaus sparnaður
Útvegsbankir
cinn og Kreditkort hf. hafa gert með sér sam-
komulag sem gerir þér kleift að nota Eurocard kreditkort-
ið til að leggja inn á Spariábótareikning Útvegsbankans.
Hvers vegna Spariábót
Þessi nýjung Útvegsbankans, sem er bundin við Spari-
ábót, veitir eigendum sínum hærri vexti fyrir mánaðar-
legan sparnað.
Spariábótareigandi fær t.d. strax samanburð við 4,5%
raunvexti ístað 3,5% á venjulegum Ábótarreikningi. Það
er því vel þess virði að reyna.
Spariábót með Eurocard
Hafðu samband við Útvegsbankann. Þar göngum við frá
samkomulagi um Spariábót. Lágmarksupphæo er 5.000
krónur og er dreginn af Eurocara kortinu pínu í hverjum
mánuði. Fáðu frekari upplýsingar hjá Útvegsbankanum.
úo -
<3Q Utvegsbanki Islandshf
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^íöum Moggansú_
itifr
KsgjtoáMS?
Járnblendið á Grundartanga:
Hugvit star&manna skap-
ar helming hagnaðarins
Hugviti kastað á glæ?
Nýlega var vakin athygli á því í forystugrein Morgunblaðsins
að forráðamenn Járnblendifélagsins á Grundartanga telja, að
félagið hafi hagnast um 250 til 300 milljónir króna á síðasta
ári vegna þess hugvits sem beitt var við framleiðsluna.
Ástæða er til að staldra enn við þessa athyglisverðu stað-
reynd og er það gert í Staksteinum í dag með því að vitna
í erindi sem Jónas Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður, flutti
um verðmæti hugvits og þekkingar á fundi verkfræðinga og
tæknifræðinga fyrir skömmu.
Lítil aðgæsla
I upphafi máls síns um
hugvit og þekkingu lýsti
Jónas Aðalsteinsson hrl.
þeirri skoðun og rök-
studdi hana, að þekking
og hugvit væru fjár-
hagslega mjög verðmæt
gæði, sem við Islendingar
keyptum dýru verði er-
lendis frá. Síðan sagði
hann:
„En fáum við íslend-
ingar ekki einnig tekjur
af eigin hugviti?
Ég held, því miður, að
það sé afar lítið um það
að íslenskir aðilar haldi
þannig á hugviti sínu og
þekkingu að það nýtist
þeim á hliðstæðan hátt
og þekking á sama sviði
eða hliðstæðu sviði nýtist
erlendum aðilum. Ég tel
að menn séu almennt
sammála um þessa álykt-
un mína. Ég hef mjög
lengi reynt að átta mig á
því hvernig á þessu
stendur. Ég hef að sjálf-
sögðu skoðað löggjöf
okkar og alþjóðasamn-
inga á þessu sviði og sam-
kvæmt löggjöfinni og
samningunum höfiim við
alla möguleika að lögum
til að nýta okkur þekk-
ingirna og veija hana.
Löggjöfina er einnig ver-
ið að bæta eins og fram
hefur komið á þessum
fimdi.
Hver er þá ástæðan
fyrir því, að Islendingar,
þessir gáfuðustu menn á
byggðu bóli, njóla ekki
arðs af hinum verðmætu
hugmyndum sínum nema
í mjög takmörkuðum
mæli?
Niðurstaða hugleið-
inga minna er sú að hér
komi þjóðarlöstur okkar
Islendinga okkur mjög í
koll — það er að segja
sá löstur, að við getum
nánast ekki þagað yfir
nokkrum hlut. Við bók-
staflega komumst ekki
hjá þvi að segja öUum það
hvað við séum „klárir“,
hvað við séum að gera,
hvemig við fórum að
því, sem sagt við dreifúm
hugviti okkar og þekk-
ingu tíl sérhvers aðUa,
sem viU á okkur hlusta
og með því að rjúfa við
grundvaUarforsendu
þess að unnt sé að gera
hugvit og þekkingu að
markaðsvöru, en sú for-
senda er leyndin.“
Forsenda
lagaverndar
Jónas Aðalsteinsson
heldur áfram:
„Ef löggjöf okkar og
annarra þjóða um þetta
efiii er lesin, sést að for-
senda lagavemdar er sú,
að á einhveiju stigi, yfir-
leitt upphafsstiginu, hafi
rikt leynd um viðkom-
andi hugvit. Það má
segja í raun að leyndin
sé sú umgjörð, sem geri
hugvitið, þessi óáþreifan-
legu gæði, að gæðum
sem unnt. sé að vemda
samkvæmt löggjöfinni.
Sama má i raun segja um
alla verkþekkingu, svo-
kallaða „know how“ á
ensku eða tækniþekk-
ingu á íslensku. Ef hún
er almennt þekkt verður
hún ekki vemduð einum
aðila til hagsbóta. Aðeins
með leyndinni er unnt að
gera hana að markaðs-
vöm. Samkvæmt lögun-
um er það oftast for-
senda lagavemdar að
viðkomandi uppgötvun
sé ekki þekkt — það sé
ekki búið að birta upplýs-
ingar um hana i opin-
berum ritum.
Þetta er kjami máls
að minu mati. Þama ligg-
ur skýringin.
En hvað er til ráða?
Ég tel besta ef ekki eina
ráðið, að við íslendingar
verðum að læra að hemja
okkar meðfedda mont
og lausmælgi ef okkur á
að reynast unnt að virkja
íslenskt hugvit og þekk-
ingu sem markaðsvöm.
Við verðum markvisst að
byggja upp leyndarhjúp
umhverfis starfeemi okk-
ar á þessu sviði, innan
opinbera geirans, innan
fyrirtækjanna, hjá ein-
staklingum sem em að
reyna að hasla sér völl.
Við verðum að reyna að
virða þessa viðleitni hjá
samstarfemönnum og
fyrirtækjum og hætta
innbyrðis þrefi, tækni-
þjófnaði og tækniiyósn-
um. Við verðum að meta
hugvit þetta viðkomandi
hugvitsmönnum til verð-
leika — við verðum að
fara að vei\ja okkur við
verslun með þessi gæði.
Við verðum að játa rétt-
mæti þess að greiða fyrir
gæði þessi ekki eingöngu
til útlendinga heldur
einnig tíl íslendinga. Ef
okkur íslendingum tekst
að umgangast þessi óá-
þreifanlegu gæði eins og
siðaðir menn, er kominn
grundvöllur til þess að
unnt verði að byggja
þann vamargarð um
gæðin sem er forsenda
þess að einhver vilji
kaupa þau af okkur. Með
einkaleyfisvemd, með
ýmsum öðrum ráðstöfim-
um getur þetta verk tek-
ist. Þá fyrst verður kom-
inn grundvöUur til samn-
ingagerðar á jafhréttis-
grundveUi.“
Honda 89
Civic
3ja dyra
16 ventla
SIEMENS -gæði
ÁREIÐANLEG OG HAGKVÆM
ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS
SIEMENS þvottavélar eru traustar, endingargóöar og
þægilegar í notkun. Það sannar áratuga reynsla.
Verð frá 715 þúsund,
miðad við staðgreiðslu á gengi 1. ap. 1989
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
ÍHONDA
VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
WV2852
B Vinduhraöi 600 og 800 snún./mín. m Sparnaðarhnappur
og hagkvæmnihnappur a Frjálst hitaval og mörg þvotta-
kerfi a Þægilegt og aðgengilegt stjórnborð. a Verð kr. 53.500,-
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300