Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASTOFAN JURTI
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAI 1989
SUMARBOÐ
OPUS
VERDMEÐ
GEISLASPILARA
AÐEINS
29.900 STGR.
HUÓMTÆKJASAMSTÆÐA MEÐ 50 VATTA
MAGNARA, TVÖFÖLDU KASSETTUTÆKI,
STAFRÆNU ÚTVARPI MEÐ STÖÐVAR-
MINNUM, FJARSTÝRINGU, TVÖFÖLDU
KASSETTUTÆKI MEÐ RAÐSPILUN OG
TVÖFÖLDUM „COPY“ HRAÐA.
GEISLASPILARA OG HÁLFSJÁLFVIRKUM
PLÖTUSPILARA.
<Ws
SNORRABRAUT29
SÍMI 62-25-55
Skortur á nauðsynjum
vegna þvingana Indveija
- segir sendiherra Nepals á Norðurlöndum
„INDVERJAR hafa stöðvað aðflutninga á nauðsyi\javöru til Nepal,
líklega í því augnamiði að neyða okkur til að ganga að þeirra skil-
yrðum,“ sagði Bahrat Kesher Simha, sendiherra Nepals á Norður-
löndum með aðsetur í Lundúnum, á fundi með fréttamönnum í
gær. Sendiherrann átti í gærmorgun fund með Jóni Baldvin Hanni-
balssyni utanríkisráðherra og lýsti þeim vanda sem upp er kominn
í samskiptum Nepals og Indlands eftir að Indverjar neituðu að
endumýja viðskipta- og samgöngumálasamninga ríkjanna.
Konungsríkið Nepal á hvergi
land að sjó og er því mjög háð vin-
samlegri sambúð við nágrannaríkin
tvö, Indland og Kína. Innflutningur
hefur að mestu komið frá Indlandi
enda eru torfær fjöll á landamær-
unum við Tíbet og þúsundir km til
næstu stórborgar í Kína. Frá árinu
1978 hafa samskipti Indlands og
Nepals að mestu byggt á tveimur
samningum, annars vegar um við-
skipti og hins vegar um samgöng-
ur. 1. mars s.l. tilkynntu indversk
stjórnvöld að þau hygðust ekki
endumýja samningana þegar þeir
rynnu út 23. mars og nauðsynlegt
væri að semja um einn samning
er lyti bæði að viðskiptum og sam-
göngum. Stuttu síðar lokuðu Ind-
veijar 13 af 15 samgöngumiðstöðv-
Morgunblaðið/Júlíus
Bahrat Kesher Simha, sendi-
herra Nepals á Norðurlöndum.
um á landamærunum við Nepal.
Að sögn Bahrats Keshers Simha,
sendiherra Nepals, eru þær skýr-
ingar sem Indveijar hafa gefíð á
þessu athæfí léttvægar þ.e. vopna-
kaup Nepals frá Kína og hert eftir-
lit í Nepal með útlendum verka-
mönnum. Þegar sendiherrann var
spurður álits á ásökunum Indveija
um stórfellt fíkniefnasmygl frá
Nepal sagði hann þær ekki stand-
ast. Engin valmúarækt væri í Nep-
al en verið gæti að smyglarar not-
uðu landið sem áningarstað á leið-
inni til Indlands. Hann sagði yfír-
völd í Nepal gera allt sem þau
gætu til að uppræta slíkt smygl.
Bahrat Kesher Simha taldi nokk-
uð augljóst að stórveldisdraumar
Indveija réðu gerðum þeirra í þessu
máli og minnti á samskipti Ind-
lands við Sri Lanka og Maldíva-
eyjar. íbúar Nepal væru hins vegar
of stoltir til að gefast upp fyrir
slíkum kúgunum.
Jón Baldvin Hannibalsson lýsti
því yfír eftir fundinn með sendi-
herranum að hann hvetti nágrann-
aríkin tvö, Indland og Nepal, til
að leita lausnar á deilunni. Hann
sagðist mundu senda utanríkisráð-
herra Indlands orðsendingu þessa
efnis.
HOTEL
HVOLSVÖLLLR
Hlídarvegi 7, 860 Hvolsvelli sími (98) 78187
Hressilegt
kompcmí
á Hótel Hvolsvelli
Hvítasunnutilboó: Gisting með morgunverði kr. 1800 - á mann.
Þú getur komist í góðan félagsskap á Hvolsvelli um helgina.
Djass og sveiflusnillingarnir Björn R. Einarsson,
Jónas Þórir Dagbjartsson, Þorvaldur Steingrímsson og
Herbert Ágústsson koma blóðinu ó hreyfingu og þeir bræður
Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir spila og syntjja öll lögin
sem þig langar til að heyra.
Matreiðslumeistarar hótelsins reiða fram kræsingar
frá morgni til kvölds og kjallarameistarinn lætur sitt ekki eftir liggja.
Nuddpotturinn, gufan og sólarbekkurinn sjá um að
hita og lita og sundlaugin er í næsta nágrenni.
Ekki mó heldur gleyma golfvellinum,
einum þeim stærsta og skemmtilegasta á landinu.
Á Hvolsvelli kemst þú líka í sögulegan félagsskap
við kappann á Hlíðarenda, hárprúðu konuna hans
og annað frægt fólk úr Njálu, -
og ekki síður í náttúrulegan félagsskap
við víðfeðmasta og eitt tignarlegasta hérað landsins.
Hótel Hvolsvöllur er aðeins 106 malbikaða kílómetra
frá Reykjavík, - og kemur þér stórlega ó óvart.
Verió velkomin í hvítasunnuhópinn,
síminn er 98-78187.
Breski Verka-
mannaflokkurinn:
Fallið frá
einhliða
afvopnun?
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímanns-
syni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
ROY Hattersley, varaformaður
breska Verkamannaflokksins,
sagði um helgina að næstu vikur
og mánuðir myndu skera úr um
möguleika flokksins á sigri i
næstu kosningum. Fram-
kvæmdasH'órn flokksins tekur
afstöðu til nýrra tillagna um
stefnumál hans, m.a. á vettvangi
vamarmála, í dag, þriðjudag.
Vonir Verka-
mannaflokksins
um sigur í næstu
kosningum glædd-
ust mjög við niður-
stöður auka- og
sveitarstjómar-
kosninganna á
fímmtudag. Þá
vann Verkamanna-
flokkurinn ein-
hvem mesta sigur
á Ihaldsflokknum í aukakosningum
í áratugi.
Framkvæmdastjóm Verkamanna-
flokksins fjallaði í gær um tillögur
að breyttri stefnu flokksins í ýmsum
mikilvægum málaflokkum og tekur
afstöðu til þeirra í dag. Mikilvægast-
ar eru tillögur um breytta stefnu í
varnarmálum og verkalýðsmálum. í
vamarmálum er lagt til að flokkurinn
falli frá því stefnumáli sínu að Bret-
ar fækki kjamorkuvopnum sínum
einhliða en hvatt er til þess að kjarn-
orkuherafli Breta tengist afvopnun-
arviðræðum stórveldanna. I verka-
lýðsmálum eru lagðar fram tillögur
sem hrófla einungis að litlu leyti við
þeim breytingum, sem ríkisstjóm
Margaret Thatcher hefur gert á vald-
atíma sínum.
Vitað er að mikil andstaða er inn-
an flokksins við breytingar á vamar-
málastefnunni. Þó er talið að
Kinnock fái vilja sínum framgegnt í
framkvæmdastjóminni. Hattersley
telur að það muni skipta sköpum,
ef samstaða næst um þessa breyttu
stefnu.
Talsmenn íhaldsflokksins gera
lítið úr sigurlíkum Verkamanna-
flokksins og benda á að gengi stjóm-
arinnar á miðju kjörtímabili nú sé
betra en á sama tíma á síðustu tveim-
ur kjörtímabilum.