Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.05.1989, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAI 1989 Varnarskuldbindingar Bandaríkjamanna í V-Evrópu: Reuter Sprengjutilræði á Grikklandi George Petsos, fyrrum dóms- málaráðherra Grikldands, slapp með naumindum úr sprengjutil- ræði í héraðinu Paleo Psychico í norðurhluta landsins í gær. Geysiöflugri sprengju hafði ver- ið komið fyrir í bíl í um 150 metra Qarlægð frá heimili Pets- os og sprakk hún í sama mund og hann ók framhjá. Petsos slapp lítillega meiddur. Rúður sprungu í nærliggjandi húsum og rafmagns- og símalínur fóru í sundur. Sprengjutilræðið minnir á aðferðir maóista- hópsins 17. nóvember sem í fyrra stóð að baki morði á erind- reka bandaríska hersins á Grikklandi, William Norden. Lögreglan kveðst hafa borist yfirlýsing þar sem vissir aðilar lýsa ábyrgð á hendur sér. Pets- os var nefhdur í grískum dag- blöðum í sömu andrá og höfúð- paurarnir í miklu banka- hneyksli sem teygir anga sína inn í grísku ríkisstjórnina. Pets- os var látinn vílqa þegar breyt- ingar voru gerðar á ríkisstjórn- inni í mars sl. Bandaríkin: Misstu vetn- issprengju í Kyrrahaf fyrir 24 árum New York. Reuter. VETNISSPRENGJA, sem var um borð í bandaríska flugmóður- skipinu Ticonderoga féll í hafíð í um 320 km fjarlægð frá jap- önsku eynni Okinawa fyrir 24 árum. Sprengikraftur umræddr- ar sprengju er talinn jafhgilda einni milljón tonna af sprengi- efninu TNT. Frá þessu er greint í nýjasta hefti tímaritsins News- week sem kom út á sunnudag. í grein tímaritsins segir að full- trúar bandaríska sjóhersins hafi reynt að hylma yfir atburðinn. Í greininni er vitnað til skjala sem stjómmálafræðistofnunin í Wash- ington komst yfir í skjóli banda- rískra laga um fijálst upplýsinga- streymi. Flugvélin sem hafði sprengjuna innanborðs rann út af þilfari flug- móðurskipsins þegar það var á leið frá Víetnam til japönsku hafnarinn- ar Yokosuka, og sökk á um 5.000 metra dýpi. Verðum að geta treyst á fæl- ingarmátt kjarnorkuvopna - segir Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Washington, Bonn. Reuter. RICHARD Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í sjón- varpsviðtali á sunnudag að tæpast yrði séð hvernig Bandarikjamenn ættu að geta staðið við vamarskuldbindingar sínar í Vestur-Evrópu ef ekki væri tryggt að bandarískir hermenn í álfunni gætu reitt sig á fælingarmátt skammdrægra kjamorkuvopna. Cheney tók undir þá skoðun George Bush Bandarikjaforseta að ná þyrfti fram verulegum niðurskurði i hinum hefðbunda herafla í Evrópu áður en unnt yrði að hefja viðræður um fækkun skammdrægra kjamorkuvopna. „Við fáum ekki séð að þær aðstæð- ur geti skapast í Evrópu að þar verði bandarískir her- menn án þess að jafnframt verði unnt að treysta á fælingarmátt skammdrægra kjarnorkuvopna," sagði Cheney og HITAMÆLAR sm &z ©cq) Vesturgötu 16, sími 13280. lýsti þeirri skoðun sinni að þetta væri „einföld staðreynd". Sagði hann helsta verkefnið á vettvangi afvopn- unarmála vera það að ná fram um- talsverðum niðurskurði á sviði hins hefðbundna herafla til að draga úr gífurlegum yfirburðum Sovétmanna og bandamanna þeirra í Austur- Evrópu. Ríkisstjóm Helmuts Kohls, kansl- ara Vestur-Þýskalands, hefur hvatt til þess að hafnar verði viðræður um fækkun skammdrægra kjarnorkueld- flauga í Evrópu en skammdrægar teljast þær flaugar sem draga allt að 500 kílómetra. Bretar og Banda- ríkjamenn hafa Iýst sig andvíga þes- asari tillögu Vestur-Þjóðveija. Stjórnvöld í Bretlandi og Banda- ríkjunum óttast að slíkar viðræður muni á endanum snúast um algera útrýmingu þessara vopna en sú hug- mynd hefur verið nefnd „þriðja núll- lausnin". í Washington-sáttmála risaveldanna frá árinu 1987 er kveð- ið á um að útrýma beri tveimur gerð- um meðaldrægra landeldfluga er draga 500 til 5.500 kílómetra og hefur það samkomulag verið nefnt „tvöfalda núlllausnin". Bretar og Bandaríkjamenn telja að yrði „þriðja núllausnin" að veruleika yrðu yfir- burðir Sovétmanna á sviði hefð- bundins vígbúnaðar ógnvænlegri en ella. Cheney ítrekaði þetta sjónarmið í viðtalinu á sunnudag og kvaðst telja óráðlegt að hefja viðræður um fækkun skammdrægra kjarnorku- vopna. Hans-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra Vestur-Þýskalands, ítrekaði hins vegar afstöðu vestur- þýsku ríkisstjómarinnar í ræðu er hann flutti í Bonn á sunnudag og kvað ekki unnt að undanskilja til- teknar vopnagerðir í viðræðum aust- urs og vesturs. Lýsti Genscher yfir því að kalda stríðinu væri lokið og að Járntjaldið væri tekið að riða til falls. Les Aspin, formaður hermála- nefndar fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, sagði í viðtali á sunnudag að líklegt mætti telja að þingmenn á Bandaríkjaþingi myndu taka að hvetja til þess að herlið Bandaríkja- manna í Vestur-Evrópu yrði kallað heim ef hafnar yrðu viðræður á grundvelli „þriðju núllausnarinnar". Vetur — sumar — yor — haust XX ELCIS“ Litgreining og andlitsförðun - aðeins fimm í hóp Sími 36141. Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum fyrir börn 7-12 ára og unglinganámskeið í ágúst. Innritun er hafin á skrifstofu SH verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði. Sími: 65-22-21 Reiðnámskeið, íþróttir, leikir, siglingar.ferðalög, sund, kvöldvökur, og fleira. Richard Grænland: Skipa- smíða- stöðvum lokað Narsarsuaq. Frá Nils Jörgen Bru- un, fréttaritara Morgnnblaðsins. Grænlenska heimastjórnin ætlar að loka tveimur af sex skipasmíðastöðvum á næst- unni. Það verða að öllum líkindum skipasmíðastöð í Frederiksháb og önnur á vest- urströnd Grænlands. Ástæð- urnar eru verkefnaskortur og mikill hallarekstur. í fyrra var halli á rekstri skipasmíða- stöðvanna um 28,8 milljónir ísl. króna. Kanadamenn fá námuleyfí Kanadíska námufyrirtækið Platinova hefur fengið leyfi til að grafa eftir kríólíti og öðrum málmum í Ivigut á Suðvestur- Grænlandi. A staðnum er kríólítnáma sem danska fyrir- tækið Öresund lokaði í fyrra vegna óhagkvæmra rekstrar- skilyrða. Heimastjórnin hefur slegið eign sinni á byggingam- ar og leigir þær út til Kanada- mannanna. Að rannsóknum loknum gera þeir upp við sig hvort hagkvæmt sé að hefja vinnslu á ný í Ivigut. Selaskinn á uppboð í fyrsta sinn í fjögur ár sendir grænlenska heimastjómin selaskin á uppboð í Danmörku. Danskir uppboðshaldarar hyggjast selja 10.000 sela- skinn í maí, en að sögn Jens Baggers, forstjóra grænlensku sútunarverksmiðjanna, er ráð- gert að selja 30.000 skinn á þessu ári. Heimastjómin fékk aðeins um 252 ísl. kr. fyrir hvert selskinn á uppboði sem haldið var árið 1985 vegna herferðar grænfriðunga gegn selveiðum Grænlendinga. Heimastjórnin greiðir selveiði- mönnum um 2.160 ísl. kr. fyr- ir hvert skinn. Finnland: Opna ekki skrifstofii í Tallinn Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttarit- ara Morgnnblaðsins. MAUNO Koivisto, forseti Finn- lands, sagði um helgina í samtali við sænska útvarpsstöð að ólík- legt væri að Finnar myndu opna ræðismannsskrifstofú í Tallinn, höfúðstað Eistlands. Eistar hafa sýnt áhuga á því að fá að opna eigin ræðismannsskrif- stofu í Helsinki og að Finnar opni einnig ræðismannsskrifstofu í Tall- inn. Koivisto sagði að ræðismanns- skrifstofa Finna í Leníngrad væri með útibú í Tallinn og áformað væri að efla starfsemi þess. Hins vegar væri ekki tímabært að opna sérstaka ræðismannsskrifstofu, þar sem Eistland væri ekki sjálfstætt ríki. Koivisto sagði að Finnar hefðu hins vegar áhuga á samvinnu við Eista í umhverfismálum. Finnar hafa oft lýst yfir áhyggjum vegna mengunar frá eistneskum verk- smiðjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.