Morgunblaðið - 09.05.1989, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989
Samstarf kaupfélaga á Norðausturlandi:
40 millj. sparast við
fækkun sláturhúsa
Rætt um fækkun úr sex í þrjú
UM 40 miiljóna króna sparnaður myndi nást í rekstri sauðfjárslátur-
húsa á Norðausturlandi ef í framtíðinni yrði aðeins slátrað í þremur
sláturhúsum á svæðinu í stað sex eins og gert var síðasta haust. Gert
er ráð fyrir að ekki verði slátrað í öðrum húsum en þeim sem hlotið
hafa löggildingu árið 1990 og miðast þessi sparnaður við að ekki þurfí
að ráðast í firamkvæmdir á þeim húsum sem ekki hafa hlotið löggild-
ingu. A fundi fulltrúa fimm kaupfélaga, frá Eyjafirði til VopnaQarð-
ar, sem haldinn var i gær var lögð fram bráðabirgðaniðurstaða þar
sem þetta kom fram.
Kaupfélögin hafa kannað mögu-
leika til samstarfs um slátrun á
umræddu svæði, með það að mark-
miði að ná hagkvæmni og spamaði
fyrir svæðið í heild. Samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðu myndi veru-
leg hagkvæmni nást með því að
slátra fé á Akureyri, Húsavík og
Þórshöfn, en á síðasta hausti var
einnig slátrað á Dalvík, Kópaskeri
■« og Vopnafírði.
Á næstunni verður unnið að nán-
ari útfærslu þessara hugmynda og
verður m.a. kannað hugsanlegt sam-
starfsform félaganna um þetta mál,
en enn hafa engar ákvarðanir verið
teknar um slíkt samstarf. Jóhannes
Geir Sigurgeirsson starfsmaður sam-
starfsnefndar kaupfélaganna á
Norðausturlandi sagði að lausn þessa
máls byggjast á því að úrelding feng-
ist á þau sláturhús sem ekki yrðu
nýtt og ennfremur að víðtæk félags-
leg samstaða næðist um þetta mál.
Hann sagði að ekki hefði verið tekin
afstaða til þess hvort um yrði að
ræða eitt félag eða hvort þau yrðu
fleiri. „Við höfum haft að leiðarljósi
í þessu máli, að tryggja framleiðend-
um á svæðinu örugga slátrun á sem
hagkvæmastan hátt sem einnig
kæmi neytendum til góða,“ sagði
Jóhannes Geir.
Ef þessi hugmynd næði fram að
ganga er gert ráð fyrir og á það
lögð áhersla að frystigeymslur á
Kópaskeri yrðu nýttar eftir sem áður
og að þar færi fram einhver vinnsla
á kjöti og innmat.
v
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gunnar Ragnars íramkvæmdasljóri Útgerðarfélags Akureyringa
og Gísli Konráðsson fráfarandi framkvæmdastjóri takast í hend-
ur að loknum fyrsta vinnudegi Gunnars og síðasta vinnudegi
Gisla. Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastjóri fylgist með.
Gunnar Ragnars íramkvæmdaslj óri UA;
Líst vel á nýja starfið
„MÉR líst ágætlega á þetta nýja starf, ég hef verið í náinni snert-
ingu við sjávarútveginn og þekki því ýmsar hliðar þess vel, en
annað þarf ég að kynna mér. En það er enginn eðlismunur á því
að reka fyrirtæki og það hef ég gert um árabil, á því sviði eru
það sömu lögmálin sem gilda,“ sagði Gunnar Ragnars fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa, en hann tók við starf-
inu af Gísla Konráðssym siðast
Gunnar sagði fyrsta dag sinn
í vinnu hjá Útgerðarfélaginu hafa
verið afskaplega ánægjulegan.
Hvað framtíðina varðar sagði
hann að ætíð væri á brattan að
sækja. Útgerðarfélag Akur-
eyringa hefur um 18.900 tonna
kvóta og er þegar búið að veiða
tæplega helming af úthlutuðum
kvóta fyrir þetta ár. Útvegun við-
bótarkvóta er eitt brýnasta verk-
efni félagsins nú. „Það kemur í
hlut okkar að skyggna þær gáttir
Jmn fostudag.
allar," sagði Gunnar.
„Ég hef í gegnum tíðina oft
horfst í augu við erfiðleika, ég
hef hingað til ekki siglt lygnan
sjó. En ég býst við að það verði
erfíðara nú en oft áður að útvega
kvóta. Bæði kemur til skerðing
og auk þess hafa aflabrögð verið
góð að undanförnu þannig að sala
á kvóta verður eflaust minna í
boði nú en áður. En þetta er bara
verkefni til að takast á við,“ sagði
Gunnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Haraldur Bessason rektor Háskólans á Akureyri tók fyrstu skóflustunguna að stúdentagörðum við
Skarðshlíð á sunnudaginn.
Fyrsta skóflustungan að stúdentagörðum tekin:
Mikilvægt skref í uppbygg-
ingu Háskólans á Akureyri
- segir Sigfús Jónsson bæjarstjóri
FYRSTA skóflustungan að stúdentagörðum við Skarðshlíð var tekin
á sunnudag og var það Haraldur Bessason rektor Háskólans á Akur-
eyri sem fékk það hlutverk að taka skóflustunguna í gaddfreðinni
jörð. Á föstudag var undirritaður samningur milli Félagsstofnunar
stúdenta og verktakanna SS-Byggis hf. og Malar og sands hf. og
hljóðar samningurinn upp á tæpar 70 milljónir króna, en að með-
töldum ýmsum gjöldum og kostnaði við útboð og fleira verður heild-
arkostnaðurinn um það bil 75 milljónir króna.
Sigurður P. Sigmundsson for-
maður Félagsstofnunar gerði grein
fyrir húsinu, en það verður á þrem-
ur hæðum, samtals 1.533 fermetr-
ar. í húsinu verða 14 einstaklings-
herbergi, 4 paríbúðir, 4 tveggja
herbergja íbúðir og 2 þriggja her-
bergja íbúðir, en gert er ráð fyrir
vistarverum fyrir 34 íbúa. Verktaki
skal skila íbúðum fullfrágengnum
1. október næstkomandi, en sam-
eign á fyrstu hæð og frágangi lóðar
mánuði síðar.
Húsnæðisstofnun ríkisins lánar
85% af byggingarkostnaði, en laus-
ir hlutir, s.s. rúm, borð, stólar og
rafmagnstæki, eru ekki lánshæfír
og þarf FS því að fjármagna u.þ.b.
16 milljónir króna, eða 21% af
byggingarkostnaði.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri sagði
stórt skref stigið varðandi upp-
byggingu Háskólans á Akureyri
með byggingu stúdentagarðanna,
með tilkomu þeirra myndi margt
atgerfisfólk flytjast til bæjarins og
ef til vill setjast hér að. Hann
minnti á þá baráttu sem háð hafði
verið fyrir því að fá Háskólann til
Akureyrar og líkti henni við baráttu
Akureyringa fyrir að fá að útskrifa
stúdenta. Tilkoma Háskólans hefði
verið afar mikilvæg fyrir bæjarfé-
lagið og nefndi hann sérstaklega
hversu kærkomið það væri að heíja
hér nám á sjávarútvegsbraut innan
tíðar, en slíkt nám hefði ekki áður
verið til staðar á íslandi jafnvel þó
svo að þjóðin byggði afkomu sína
á sjávarútvegi. Sagði Sigfús ekki
ólíklegt að í framtíðinni yrðu flestir
forystumanna í íslenskum sjávarút-
vegi menntaðir á sjávarútvegs-
brautinni við Háskólann á Akureyri.
I Dii ■ ■ llllllllllllllllllllll] lllllllllllllllll ■ " lllllllllll m
] 13 i 113 i am 3®
1114 iníi
n IHB IfHI j| iilllii
yujijuuuj
Kaupþíng Norðurlands flytur
KAUPÞING Norðurlands flutti skömmu. Skrifstofan var flutt númer 1, þar sem Almennar
starfsemi sína um set fyrir frá Ráðhústorgi númer 5, að tryggingar voru áður til húsa.
Glerárprestakall:
Staða prests auglýst
SÓKNARNEFND Glerárpresta-
kalls hefur ákveðið að auglýsa
stöðu prests lausa og er umsókn-
arfrestur til 5. júní næstkomandi.
Glerárprestakall samanstendur af
Lögmannshlíðarsókn annars veg-
ar og Miðgarðssókn í Grímsey hins
vegar.
Marínó Jónsson formaður sóknar-
nefndar sagði að mjög fljótlega eftir
að umsóknarfrestur rennur út myndi
verða gengið frá ráðningu prests að
prestakallinu. Sem kunnugt er var
Sr. Pálmi Matthíasson sóknarprestur
kallaður til starfa við Bústaðasókn í
Reykjavík og mun hann láta af störf-
um á Akureyri um miðjan júlí næst-
komandi.
Skrifstofuaðstaða batnar til
muna fyrir starfsmenn Kaupþings
eftir flutninginn og sagði Jón Hall-
ur Pétursson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins að í kjölfarið yrði þjón-
ustan aukin. Tekin verður upp svo-
kölluð fjárvörsluþjónusta, þ.e. fyrir-
tækið tekur að sér að geyma verð-
bréf, innheimta þau og endurfjár-
festa, sé þess óskað. „Þessi þjón-
usta hentar sérstaklega þeim sem
ekki hafa mikinn tíma til að sýsla
með sín fjármál sjálfír," sagði Jón
Hallur.
eítír CJuðmuod
St
«inSSon
11. sýning föstudaginn
12. maíkl. 20.30
12. sýning laugardaginn
13. maíkl. 20.30
iQKFéLAG AKURGYRAR
sími 96-24073
Næst síðasta sýningarhelgi