Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 37

Morgunblaðið - 09.05.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 37 Félagshyggja í framkvæmd eftir ViktorA. Guðlaugsson I dag barst mér í hendur bref frá menntamálaráðuneytinu, þar sem gert er kunnugt að skerða skulu kennslu og ýmsa þjónustu í grunn- skólum á komandi skólaári og skuli sá niðurskurður nema um 126 millj- ónum króna. Sparnaðaráætlunin er í 6 liðum og í þessu greinarkorni ætla ég að fara nokkrum orðum um hvern þeirra. 1. Frestað verður að auka kennslu 6 ára bama sem gert hafði verið ráð fyrir og átti að kosta heil- ar 10 milljónir króna. Þennan mikla sparnað verður að skoða í ljósi þess að menntamálaráð- herra hefur á undanförnum mánuð- um riðið um héruð, og m.a. boðað einsetinn skóla og aukna kennslu einkum til handa yngri bömum, heimilum í landinu til mikils léttis. Það er heldur ekki útilokað að ráðherrann hafi fengið þessa snjöllu hugmynd þegar hann var búinn að lesa sér til ánægju alla óskalistana, sem hann sendi skólum og foreldra- félögum sem jólaglaðning og inni- héldu forgangsverkefnin í íslenskum skólamálum. 2. Dregið verður eins og kostur er úr framlögum til forfallakennslu, sérstaklega í 7.-9. bekk. Þetta er mikið snjailræði enda ætlar ráðherrann að spara hvorki meira né minna en 4 milljónir með þessu tiltæki. Þetta þýðir í raun að veikist kenn- ari, skuli börnin annaðhvort send heim eða þau látin ráfa um skólann milli stunda (e.t.v. án eftirlits) hvort sem forfallakennari fæst eður ei. Þetta hlýtur að stórbæta skólastarf- ið og virkilega vera sinna 4 milljóna virði. 3. Svoköiluð „kvótastörf" verða skert um 4%. Skerðingin verður meiri seinni hluta ársins þar sem þegar er víðast búið að fullnýta kvót- ana frá janúar—maí. Á mannamáli merkir þetta, að það á að draga úr möguleikum skólanna til að halda uppi félags- og tóm- stundastarfi meðal nemenda, skerða þjónustu skólasafna ofl. Með þessu ætlar ráðherrann að spara hvorki meira né minna en 2 milljónir. Það munar um minna í ríkishítinni og þetta fellur eins og flís inní meistarastykki félags- hyggjuflokkanna um þessar mundir. 4. Orðrétt segir í þessum lið bréfsins: Metsöludraumur Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Martröð á Álmstræti („A Night- mare on Elm Street 4: The Dream Master"). Sýnd í Laugar- ásbíói. Leikstjóri: Renny Harlan. Rétt þegar þú hélst að óhætt væri að halla sér á það græna snýr Freddi aftur til að hrella þig í nýj- ustu unglingamartröðinni sem vill svo til að er metsöludraumur fyrir vestan. Það er búið að drepa hann þrisv- ar en þið þekkið Fredda; dauðinn er tæknibrellubrandari fyrir hans svínslega skopskyn. Ungur drengur sofnar oná vatnsrúminu sínu og vaknar inní því. Blautur draumur í lagi, hvæsir Freddi sem er alltaf glotti eða tveimur á undan öllum svölu, kaldhæðnislegu gæjunum í salnum. Það er auðvelt að sjá af hveiju þessi fjórða martröð er vinsælust. Hún er miklu meira skemmtileg en skelfileg, ekki bara af því að tækni- brellumar og hugmyndaflugið eru hvor tveggja í yfírvinnu heldur líka af því við þurfum ekki lengur að óttast Fredda (ef við einhvern tímann gerðum það) heldur hlökk- um við til að sjá hvað hann og tæknideildin fínnur uppá næst. Það hlýtur að vera ákveðinn sigur þessa viðbrennda Gláms. Freddi IV. er undir sterkum áhrifum bíómenningarinnar og not- ar hana mikið í hrekkjum sínum. Hann hefur m.a. séð myndir eins og Ókindina og Fluguna (Cronen- berg-útgáfuna) og helling af Bruce Lee-myndum. En hann er líka svo- lítið alveg sér á báti. Martraðirnar hans Fredda em gamanhrollvekjur. TÖLVUSKÓLI STJÖRNUNARFÉLAGS ISLANDS . n 1 tolmkoiarA TÖLVUSKÓLl GlSLA J. JOHNSEN ÖFLUG OG co AUÐLÆRÐ RITVINNSLA Byrjendanámskeið: Stund og staður: 16.-19. maí, kl.: 1300- 1700 að Ánanaustum 15, Reykjavík cc Q Framhaldsnámskeið: Stund og staður- 2. - 5. maí. kl.: 13ö0 -1700 cc að Ánanaustum 15, Reykjavík o Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen. SKRÁNING I SÍMUM 621066 og 641222 „Með því að færa sundkennslu inní viðmiðunarstundaskrá er gert ráð fyrir að spara megi um 18 millj- ónir króna. Sjá hjál. bréf.“ Það er hér sem orðsnilld Svavars Gestssonar rís hæst, svo hátt að jafnvel reyndustu skólamenn líta upp í orðvana hrifningu. Engum sem ekki kann ráðherra- reikning gæti dottið í hug að með því einu að breyta staðsetningu umræddra sundtíma á viðmiðunar- skránni mætti spara heilar 18 millj- ónir. En svo var það þetta hjálagða (hjáróma) bréf sem vitnað er í, sem eyðileggur áhrif þessarar hugljóm- unar. Þar er nefnilega sagt að um leið og umræddir sundtímar em færðir til á viðmiðunarstundaskránni skuli skera almenna kennslu niður um eina stund á hveija bekkjardeild grunnskólans frá 1.—9. bekk. Jafnframt er skólunum falið að ákveða hvar skorið skuli. í sparnaðar-skyni hefði því mátt orða þennan fjórða lið svo: Almenn kennsla í gmnnskólum skal skorin niður um 1 kennslustund á hvetja bekkjardeild skóla. í öllum þessum orðaflaumi virðist ráðherrann hrein- lega hafa verið að dmkkna og því gripið til sundtakanna í von um björgun. Það þarf ekki mikið hugvit til að sjá, hvernig þessar aðgerðir ráð- herrans fglla inní boðskap hans um samfelldan skóladag. Því styttri sem skólinn er, þeim mun auðveldara er að hafa skóladaginn samfelldan. Þetta um lengingu skóladagsins, sem ráðherrann hefur boðað á sínum tíðu fundum verður hins vegar ekki skýrt nema setja það í samband við 2. lið sparnaðarherferðinnar, þ.e.a.s. að börn og unglingar gangi sjálfala í skólum. Fækkun kennslustunda í gmnn- skólum hlýtur hins vegar að fara að teljast til einkaframlags Alþýðu- Viktor A. Guðlaugsson „Það er ekki tekið út með sældinni að eiga að spara 126 milljónir í grunnskól- unum, síst af öllu, þegar á sama tíma verður að borga 250 milljónir fyrir geymslu á kindakjöti vetrarlangt eða þar til það verður urðað.“ bandalagsins til íslenskra skólamála, því í raðherratíð Ragnars Arnalds var einnig gripið til þessa ráðs. Þannig hafa menntamálaráðherrar Alþýðubandalagsins skert kennslu í efri bekkjum gmnnskóla um 3 kennslustundir á viku frá því sem gmnnskólalög gera ráð fyrir og við- tekið var. Það þarf því ekki að rækta nema fáein eintök til viðbótar af þessum sérstaka ráðherrastofni til að kennsla í grunnskólum leggist að mestu af. Slíkt yrði þjóðarbúinu vemleg lyftistöng. 5. Ráðuneytið ætlar að spara á ótilteknum liðum 35 milljónir króna. Þetta lo.far góðu og er rúmlega helm- ingsaukning á þeim niðurskurði, sem þegar hefur verið tíundaður. Við hljótum að bíða í ofvæni eftir þessum nýja félagshyggjupakka. 6. Fræðslustjómm er ætlað að fínna leiðir til að spara 57 milljónir til viðbótar því sem að ofan er talið. Fræðslustjórinn í Reykjavík á t.d. að spara 17 milljónir. Það er auðvit- að skiljanlegt að skörð séu komin í blaðið á niðurskurðarhníf ráðherrans eftir að hafa sargað svo grýttan efnivið. Því er brugðið á það ráð að reyna að beita bakkanum. Það er nú svo að möguleikar fræðsluskrifstofanna til sparnaðar em helst á sviði sér- kennslu, og sálfræðiþjónustu skóla. Sé það hugmynd félagshyggju- stjórnarinnar að leggja þar til at- lögu, fer nú stjama hennar fyrst að skína skært. Menntamálaráðuneytið sendir skólum bréf í mars mánuði, þar sem þeir em beðnir að gera grein fyrir lausum kennarastöðum. Það hlýtur því að vera skólunum mikill léttir að þurfa ekki að sinna þessu bréfi ráðuneytisins fyrr en í maí, þegar ákvarðanir þess um kennslumagn liggja loks fyrir. En það er ekki tek- ið út með sældinni að eiga að spara 126 milljónir í grunnskólunum, síst af öllu, þegar á sama tíma verður að borga 250 milljónir fyrir geymslu á kindakjöti vetrarlangt eða þar til það verður urðað svo eitthvað sé nefnt af þeim félags- og menningar- legu verkefnum, sem ein vesæl fé- lagshyggjustjóm þarf að standa straum af. llöfundur er skólastjóri Árbæjar- skóla í Reykjavík. Heildsala og smásala: Olíufélagið hf SUÐURLAIMDSBRAUT 18 SfMI 681100 Green Power rafhlööurnar eru lekafríar og endast lengur en venjulegar rafhlööur. Stuölum að hreinu umhverfi - notum Green Power rafhlöður. Nýju Wonder rafhlöðurnar, Green Power, eru algerlega kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar „hreinni" orku og vaida engri umhverfismengun. Þess vegna má að skaðlausu henda þeim að notkun lokinni. Lífrænt efni hefur nú komið í stað kvikasilfurs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.