Morgunblaðið - 09.05.1989, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAI 1989
I
fclk f
fréttum
Ljósm./Atli Steinarsson
Frá þorrablóti í Fort Lauderdale. Frá vinstri: Anna Bjamason, Erla Ólafsson Gröndal, Þórir Gröndal
og Dóra Þórhallsdóttir.
BANDARÍKIN
Um 2.000 manns blótuðu þorrann
Síðasta hönd lögð á veisluborðið í San Fransiskó undir stjóm Hall-
dórs Vilhelmssonar matreiðslumanns í Glæsibæ. Honum til aðstoðar
em Sigríður og Hanna.
Arai Arnason, Bjami Jónsson og Sveinn Sveinsson
I
!
.*
i
I
i
!
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl.
M
Imarsmánuði síðastliðnum voru
haldin þorrablót íslendingafélag-
anna í Bandaríkjunum. Þau eru
oftast fjölmennustu skemmtanir
sem félögin gangast fyrir ár hvert.
Félögin fá veisluföngin, matreiðslu-
menn og hljómlistarmenn frá ís-
landi til þess að hressa upp á
stemmninguna.
í San Fransiskó mættu um 150
HVERVANN?
1.014.896 kr.
Vinningsröðin 6. maí:
112-X11-112-X1X
12 réttir = 710.436 kr.
2 voru með 12 rétta - og fær hvor í sinn hlut kr. 355.218,-
11 réttir-304.460 kr.
76 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 4.006-.
-ekkibaraheppni
manns á þorrablót íslendingafé-
lagsins. Maturinn kom frá Glæsibæ
í Reykjavík og sá hljómsveitin
Kaskó um fjörið. Meðal vinninga í
happdrætti var flugferð til íslands
og til baka aftur, frá Flugleiðum,
og ýmsir smærri vinningar, meðal
annars brennivín. Útlagarnir vilja
færa viðkomandi aðilum innilegar
þakkir fyrir sýnda vináttu.
Á þorrablótinu í Suður-Flórída
hélt ræðismaðurinn, Þórir Gröndal,
ræðu kvöldsins. Hann ræddi á gam-
ansaman hátt margháttuð vanda-
mál sem ólaunaðir ræðismenn verða
að glíma við og leysa, en stakk jafn-
framt upp á því að Reykjavík yrði
auglýst upp sem hjónabandsmið-
stöð heimsins, og reynt að koma
því í tísku að fólk hvaðanæva úr
heiminum færi þangað til að láta
gefa sig saman í hjónaband. Taldi
hann Reykjavík hafa ótvíræða kosti
í slíkt hlutverk, fjöldi fallegra
kirkna og frábær hótel og þjónusta.
Best af öllu fyrir brúðhjón væri þó
allt að 18 tima náttmyrkur á dimm-
asta tíma ársins, en á þeim stutta
tíma sem dagsbirtu nyti væri margt
að sjá fyrir nýgifta og jafnvel gesti
þeirra.
Blótið sem haldið var í Fort Laud-
erdale sótti á annað hundrað manns
og fór það fram með miklum sóma.
Ymis önnur félög íslendinga
efndu til þorrablóta og má ætla að
allt að 2.000 manns í Bandaríkjun-
um hafi blótað þorrann á nútíma
íslenska vísu.
GAÐ TIL VEÐURS
Að lesa veðrið úr skýjunum
Ameðan veðurfræðingar eru í
verkfalli og engar veðurspár
sendar út kemur það mjög illa
niður á sjómönnum sérstaklega.
Við þessu er aðeins eitt svar. Það
eru gömlu mennirnir sem geta
lesið veðrið úr skýjunum. Þeir eru
því miður ekki nógu margir, en
alltaf leynist einn og einn á hverj-
um stað og mega menn vera
þakklátir fyrir að hafa þessa
spjátrunga í byggð. Nú leita
margir á spáskyggnigáfu þessara
manna og vilja fá vitneskju um
tíðarfarið næstu vikumar.
Einn af þessum gömlu góðu
sþámönnum, hann Leifi, Þorleifur
Guðnason fyrrverandi bóndi á
Norðureyri, er nokkuð veður-
glöggur maður. Hann er þekktur
fyrir að vera ekki of bjartsýnn,
heldur þvert á móti. Leifi segir
að það séu nokkur hret eftir; far-
mannahretið, uppstigningarhretið
og hvítasunnuhretið. Áður en
þessi hret koma, kemur sumar-
hretið að sjálfsögðu. „Ég held að
þetta endi allt saman í einu alls-
heijar hreti,“ sagði Leifí. „Frá
bamæsku hafa menn lært að lesa
úr skýjunum og oftar en ekki
hafa þessar spár ræst,“ sagði
Leifí að lokum.
Því miður vilja ekki allir trúa
á þessar veðurspár gömlu mann-
anna, enda eru þeir margir hveij-
ir ansi svartsýnir. Þegar þetta er
nefnt þá neita þeir því harðlega
og brosa síðan út i annað þegar
Leifi horf-
irtilskýj-
anna og les
úr þeim að
maí mán-
uður verði
eitt alls-
herjar
hret, eða
hvað?
maðurinn er farinn burtu. Já, þeir
eru gamansamir enda taka menn
þessum spám með fyrirvara. Við
skulum vona að spáin hans Leifa
rætist ekki, heldur vona að nú
Morgunblaðið/Kóbert Schmidt
fari sumarið að koma og ferming-
arböm hér á Suðureyri þurfi ekki
að klæðast dúnúlpum við altarið
á hvítasunnunni.
- R. Schmidt