Morgunblaðið - 09.05.1989, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 09.05.1989, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1989 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Yiljum ekki að okkur verði skákað úr taflinu Til Velvakanda. Ég er einn af þessum ólánssömu nemendum í einni af menntastofnun borgarinnar, sem á það yfir höfði sér að fara í stúdentspróf. Ég sótti um þennan umrædda skóla fyrir fjórum árum af fúsum og ftjálsum vilja, og ég, eins og án efa allir aðrir nemend- ur framhaldsskólanna, hafði bæði viljann og löngunina til þess að læra. Ég gerði þó ekki ráð fyrir því að eftir þessi fjögur ár skylli á verkfall sem kynni á einhvem hátt að brengla og jafnvel eyðileggja alla vinnuna sem lögð hefur verið að baki. Ég veit það vel að kennarar okkar eru allflestir dugnaðarforkar og eiga lof skilið fyrir vel unnin störf. Eg veit líka að þeir vilja fá hærri laun fyrir þessi störf sín, sem í sjálfu sér er gott og blessað, en hver vill ekki kjarabætur og launahækkun? Nú er svo komið að verkfall kenn- ara hefur staðið í 3 vikur, þegar þetta bréf er skrifað, og ég þori'að fullyrða það að nemendur eru orðnir mjög kvíðnir. Enn sér ekki fyrir end- ann á þessari deilu, enginn veit í hvaða röð prófunum verður skellt á okkur, enginn veit hvernig þeim verður skellt á okkur og raunar veit enginn hvort hann útskrifast með raunhæft stúdentspróf. Nú kann einhver gamall stúdent að glotta við tönn og segja: „Já, hér í gamla daga fengum við bara nokkr- ar vikur til upplestrar og síðan fórum við galvösk í prófin dag eftir dag, Hnakkur í óskilum? Til Velvakanda. Nylega var nýr svartur þýskur hnakkur frá Versluninni Astund tekinn í misgripum í hesthúsahverfi Andvara á Kjóavöllum. Hnakkurinn er af gerðinni Görsh tölt PRO- FESSIONAL og ber skráninga- númerið 2946-018818. Hér er trúlega um mistök að ræða. Hestamenn góðfúslega at- hugið þetta og viðkomandi er beð- inn um að skila hnakknum á sinn stað eða hafa samband í síma 22971. og þetta var alls ekkert vandamál." Ef einhver hugsar svona, þá vil ég minna hinn sama á að nú eru breytt- ir tímar. Nu tekur maður próf sín með nokkurra daga millibili og þegar einu er aflokið tekur næsta við. Þess- um prófmáta eru nútíma stúdents- efnin vön. Ég er þó ekki að segja að hinn prófmátinn sé neitt verri, en án efa hafa nemendur þeira daga hagað lestri sínum á einhvem hátt samkvæmt þessu allan veturinn. Þeir hafa vitað á hvað þurfti að leggja meiri áherslu en annað og síðast en ekki síst hafa þeir vitað í hvaða röð prófin yrðu lög fyrir þá. Nú er óvissan svo mikil að mörgum gersamlega fallast hendur. Ég þori að fullyrða að við reynum öll að lesa eins mikið og við mögulega getum en eins og áður segir erum við óvön þessum lestrarmáta og mjög erfitt er að skipuleggja allan lestur, yegna þess hve allt er í lausu lofti. I einu orði sagt er allt í einni flækju og þar á meðal andleg líðan nemenda. Hvemig endar þetta allt saman. Það getur ekki endað nema á einn veg, og það illa, nema að eitthvað sé gert til þess að koma til móts við okkur, því við emm mjög örvænting- arfull. Við vissum ekki þegar við hófum nám, að við yrðum aðeins peð í tafli kennara gegn stjómvöldum. Ef að við hefðum vitað það, hefðum við hugsað málið vel og vandlega áður en við hófum nám, því það er ekki hægt að láta bjóða sér hvað sem er. Því er öðmvísi farið með okkur nem- endur en peðin í taflihu. Peðunum er teflt fram á móti peðum andstæð- inganna og síðan detta þau út eitt af öðra, því sigurvegarinn getur víst aðeins orðið einn ef ekki semst um jafntefli. Við nemendur viljum og látum ekki tefla okkur svona fram. Við hljótum að rísa upp og mótmæla því að við viljum ekki detta út eins og peðin, við viljum heldur beijast þar til yfir lýkur og sigurvegarinn er orðinn einn — Nemandinn sjálfur! Nú er kominn tími til að hlustað sé á okkur. Leið kennara til kjarabaráttu er ranglát og er beint eingöngu gegn þeim sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Því verkfall kennara hefj- ast nær alltaf á þeim tíma þegar lítið er eftir af kennslu og prófin em framundan þ.e. á þeim tíma sem kemur nemendum hvað verst. Þeir kalla þessa aðferð sína tækni til þess að pressa á stjórnvöldum en margir nemendur kalla þetta hreina hryðju- verkastarfsemi gegn sér. Þessi að- ferð kennara verður að breytast ef nemendur eiga ekki að fara að líta á kennarana sem fjandmenn sína og sú virðist því miður vera raunin í mörgum tilfellum. Því vil ég benda kennuram á þá leið að hefja sína kjarabaráttu í ágúst eða byijun september og neita að hefja kennslu fyrr en úrbætur hafa fengist. Á þann hátt komast nemend- ur í sín próf, sína sumarvinnu, sem er nauðsynleg mörgum sem þurfa að sjá fyrir sér sjálfir, og kennarar fyrirgera ekki trausti nemenda sinna,' sem ég vona að skipti þá einhveiju máli því lengi vel hefði maður viljað trúa því að kennarar bæra velgengni okkar fyrir bijósti. Með þessum verk- fallsmáta sem áður segir, glatast kennsla framan af kennslutíma, sem ég tel þó skömminni skárri. Stúdentsefnin vilja taka sín próf en ekki nema þau séu réttlát og sam- rýmist okkar lágmarksrétti. Menn verða að muna að við eram þolend- urnir. Ef á engan hátt er hægt að kom- ast til móts við okkur þá munum við vissulega hefja baráttu, sú barátta verður fyrir réttum stúdentsprófum. Við eigum þó rétt til þess að taka stúdentspróf sem era raunhæf! Það sem við viljum ekki, er að sjá fjögurra ára strit okkar fara í vask- inn. Við viljum sjá þetta strit okkar á prófskírteini sem við getum verið stolt af, því stolt er jú víst það sem við eigum nóg til af. Það sem mig langar hvað síst til, er að hljóma eins og einhver kolbijál- aður verðandi stúdent sem þarf að leita til sálfræðings, En svona líður mér og án efa mörgum hundruðum öðram verðandi stúdentsefnum. Við viljum bara biðja fólk um að ljá okk- ur eyra og hlusta á það sem við höfum að segja. Við eram framtíðin, það er nokkuð sem allir vita, við eram þau sem munu (meðal annarra) erfa þetta land. Við óskum eftir bjartari framtíð og seinna meir viljum við jgeta bent á skólana okkar og sagt: „Ur þessum skóla útskrifaðist ég eitt sinn og svo sannarlega er ég stolt(ur) af útkom- unni!“ Áfram nemendur! Verðandi stúdentína. Yíkveiji Deilumar um Fossvogsdalinn eru að verða býsna harðar. Skynsamlegt væri af deiluaðilum að setjast niður og finna sáttaleið. Um það verður hins vegar ekki fjall- að hér, heldur grein eftir Stefán Hermannsson, aðstoðarborgarverk- fræðing, sem birtist í Morgunblað- inu sl. laugardag. Þar er komið inn á atriði, sem er dálítið forvitnilegt. Stefán segir:“Þess vegna væri nú þjóðráð að sameina vesturbæ Kópa- vogs, Reykjavík, en færa Breið- holtin í Kópavog, taka svo Foss- vogsbraut (sem þá liggur úr einu sveitarfélaginu í annað, en ekki á mörkum þeirra) í þjóðvegatölu.“ Víkveiji spyr: hvers vegna ekki að ganga skrefi lengra og sameina Reykjavík, Kópavog og Seltjarnar- neskaupstað í eitt sveitarfélag? Og Hafnarfjörð, Garðabæ og Bessa- staðahrepp í annað sveitarfélag? Deilur um landamæri og sameigin- lega nýtingu landsvæða yrðu úr sögunni en í þess stað yrði gert út um vegamál og umhverfisvernd í yfirstjórn hins sameinaða sveitarfé- lags. Útsvarsgreiðendur í þessum sveitarfélögum mundu spara um- skrifar talsverða fjármuni vegna þess, að kostnaður við yfirstjórn yrði marg- fallt minni. Forráðamenn Kópavogs settu fram hugmynd um sameiningu við Reykjavík fyrir nokkram áratugum. Þá var henni hafnað af Reykvíking- um, sennilega vegna þess, að Sjálf- stæðismenn hafa óttast afleiðingar þess í kosningum þar sem Kópa- vogsbúar hafa löngum þótt vinstri sinnaðri en Reykvíkingar! xxx Hvað segir hinn herskái borgar- stjóri Reykvíkinga um þetta? Vafalaust mundu forystumenn Selt- jamameskaupstaðar og Kópavogs- bæjar hafa ýmislegt við slíka sam- einingu að athuga. En fer ekki bezt á því, að fólkið í þessum sveitarfé- lögum ákveði þetta sjálft i al- mennri atkvæðagreiðslu? Höfuð- borgarsvæðið er orðið að einu sam- tengdu byggðarlagi. Þótt það hafi byggzt upp sem 6-7 sveitarfélög er það ekkert lögmál, að því megi ekki breyta. Deilurnar milli Kópa- vogs og Reykjavíkur nú um Foss- vogsdalinn era kannski aðeins upp- hafið að frekari ágreiningsefnum á milli byggðarlaga á þessu svæði. Það kann ekki góðri lukku að stýra. XXX Evrópusöngvakeppnin er orðin ótrúlega ómerkilega keppni. Eða er það misskilningur, að lögin hafi yfírleitt verið betri fýrir tveim- ur áratugum? íslenzkir þátttakend- ur í þessari keppni hafa ekki gert garðinn frægan. Er nokkurt vit í að verja miklum fjármunum til þátt- töku í þessari skemmtidagskrá? Hver er tilgangurinn? Hver er ár- angurinn? Ef svonefnd “landkynn- ing“ er það, sem að er stefnt verð- ur að segja eins og er, að þátttaka okkar hefur ekki orðið til þess að kynna land okkur með sérstökum hætti. Áhuginn á þátttöku okkar í Evrópusöngvakeppninni var gífur- legur fyrst i stað. Nú virtist hann nánast enginn. Ríkisútvarpið þarf að endurskoða afstöðu sína. Þessum peningum má veija betur til ann- arra hluta. HÖGNI HREKKVÍSI //SAA1KEPPNIM harðmar stö&u&tí ¥

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.