Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAI 1989 1‘1 Island og Atlantshafsbandalagið; Íslenska stjórnkerfið ekki búið undir hættutíma - segir í nýrri skýrsju Alberts Jónssonar, framkvæmdastj óra Öryggismálanefhdar SÖKUM þess að Islendingar hafa ekki tekið þátt í stj órnkerfisæfing- um Atlantshafsbandalagsins vegna hættutíma né viðbragða- og stjórnunaræfmgnm í varaar- stöðinni í Keflavík er þekking á þeim málum mjög takmörkuð inn- an íslenska stjómkerfisins. Þetta kemur m.a. fram í riti er nefnist „Island, Atlantshafsbandalagið og Keflavíkurstöðin" sem út er komið á vegum Öryggismálanefiidar. Höfúndur skýrslunnar er Albert Jónsson, framkvæmdastjóri Ör- yggismálaneftidar. Skýrslan Qall- ar einkum um áætlanir, skipulag og ákvörðunartöku bæði innan Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjahers og er ítarlega fjallað um þátt íslendinga í þeim. Höfúndur skiptir ritinu í tvo hluta og fjallar sá síðari um varnarstöð- ina í Keflavík, hlutverk hennar og starfsemi, skipulag hennar innan Atlantshafsbandalagsins og sam- ráð við íslensk stjórnvöld. Er þetta í fyrsta skipti í þau 40 ár sem Is- lendingar hafa verið aðilar að Atlantshafsbandalaginu sem tjall- að er svo ítarlega um skipulag og starfsemi Keflavíkurstöðvarinnar og hvernig staðið er að ákvörðun- um um öryggismál í íslenska stjómkerfinu. í inngangi höfundarins, Alberts Jónssonar, segir að flest það sem fram kemur í skýrslunni og varðar ísland og Keflavíkurstöðina finnist ekki í bókum eða öðrum opinberum heimildum. Við gerð skýrslunnar átti höfundurinn m.a. viðtöl við innlenda og erlenda embættismenn og for- ingja í Bandaríkjaher bæði hér á' landi og erlendis auk þess sem stuðst er við erlendar heimildir og formleg og óformleg viðtöl við sérfræðinga austan hafs og vestan. Fullt samráð Höfundurinn gerir grein fyrir ákvörðunartöku innan bandalagsins á óvissu- og átakatímum. Fram kem- ur að fullt samráð yrði haft við Is- lendinga bæði hvað varðar liðsafla í Keflavíkurstöðinni og framkvæmd varnaráætlana í Evrópu. Höfundur- inn skýrir frá því hvernig staðið er að ákvörðunartöku innan bandalags- ins m.a. hvað varðar beitingu kjarn- orkuvopna. Fram kemur að beiðni um hvers kyns beitingu þess háttar vopna yrði þegar í stað send öllum ríkisstjórnum bandalagsríkja og varnaráætlananefnd bandalagsins og yrðu íslendingar þannig þátttakend- ur í ákvörðunum um beitingu gereyð- ingarvopna. Er niðurstaða höfundar sú að sökum þess að íslendingar hafi ekki tekið þátt í stjómkerfisæf- ingum Atlantshafsbandalagsins vegna hættutíma né viðbragða- og stjórnunaræfingum í Keflavíkurstöð- inni sé þekking á þessum málum innan stjórnkerfisins mjög takmörk- uð. „Hvemig farið yrði í stjómkerf- inu með beiðni um að hrinda áætlun- um í framkvæmd á hættutíma er mál sem hefur verið rætt en skipu- lagsleg vinna þar að lútandi hefur ekki átt sér stað,“ segir í skýrsl- unni. Höfundurinn vitnar í samtal við ónefndan starfshiann utanríkis- ráðuneytisins sem segir: „Utanríkis- ráðherrar og forsætisráðherrar hafa ekki vitað gagnvart hveiju þeir kynnu að standa á hættutíma nema í grófustu aðalatriðum. Þetta hafa verið feimnismái". Aukin þátttaka Fyrri hluti ritsins fjallar um skipu- lag Atlantshafsbandalagsins, mótun herfræðistefnu og áætlanagerð á vettvangi þess. Þá er og ijallað sér- staklega um þátttöku Islendinga i Atlantshafsbandalaginu. Fram kem- ur að á undanförnum ámm hefur verið stefnt að því að auka þátttöku íslendinga í starfsemi bandalagsins og er vikið að því að þátttaka í pólitísku samráði innan bándalagsins hafi verið aukin auk þess sem íslend- ingar hafi sent áheyrnarfulltrúa á fundi hermálanefndar bandalagsins og kjarnorkuáætlanahópsins.í þess- um kafla kemur fram að starfsmenn utanríkisráðuneytisins telja að þörf sé á mun meiri mannafla og fleiri 21150 -21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON solustjóri LARUS BJARMASON HDL. LOGG. FASTEIGNASALI Til sýnis og sölu auk annarra eigna: Skammt frá Háskólanum járnkl. timburhús hæð og ris á steyptum kj. alls 151,4 fm nettó. Mik- ið endurnýjað. Bílskréttur. Gróin lóð fylgir. Laust 1. sept. nk. Á góðu verði við Maríubakka 3ja herb. íb. á 2. hæð, vel umgengin. Búr við eldhús. Sérþvottah. Sólsvalir. Góð sameign. Hverfið er sérhannað fyrir barnafjölsk. Útsýni. Verð aðeins kr. 4,6-4,7 millj. Endurnýjuð við Hraunbæ 4ra herb. íb. á 1. hæð 90,4 fm auk geymslu í kj. Nýtt eldhús. Nýtt gler. Góðir skápar. Sólsv. Ágæt nýmáluð sameign. Skuldlaus. Gott verð. 2ja herb. íbúðir við: Álftamýri 4. hæð 58,2 fm. Suðuríb. Sólsv. Nýl. parket. Vélaþvottah. Mikið útsýni. Endurnýjun fylgir á sameign utanhúss. Stelkshóla 2. hæð 58 fm. Vel með farin. Nýleg teppi. Stórar sólsv. Mjög góð sameign. Bílsk. 21,7 fm. Góð lón fylgja. Bjóðum ennfremur til sölu við: Norðurbrún. Glæsil. parh. á tveimur hæðum um 340 fm. Útsýni. Fljótasel. Glæsil. endaraðh. m/6 herb. íb. og séríb. á jarðh. Móaflöt. Steinhús. Tvær séríb. báðar m/sérinng. Stór bílskúr. Sólvallagötu. 3ja herb. ib. í kj. Sólrík. Laus strax. Úrvalsíbúðir í smíðum 3ja og 4ra herb. óvenju rúmg. við Sporhamra. Hverri ib. fylgir sér- þvottah. og bílsk. Öll sameign frág. íb. afh. fullg. u. trév. í byrjun næsta árs. Húni sf. byggir. Mjög hagkvæm greiðslukjör. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti möguleg. Fjölmargir bjóða útborgun fyrir rétta eign. Opiðídag kl. 10-16 Lftil og góð einstakiíb. til sölu ígamla bænum. ALMENNA FASTII6HASAIAH LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370 sérfræðingum á þessu sviði til að unnt sé að auka hlut fslendinga í starfsemi NATO þar sem fulltrúar íslands hafa sömu stöðu og sendi- menn annarra ríkja. Segja starfs- mennirnir einnig að almennt séu ís- lendingar ekki í aðstöðu til þess vegna skorts á mannafla að hafa með tæknilegri tillögugerð áhrif á stefnu Atlantshafsbandalagsins og gildi þetta bæði um stefnumótun á sviði hermála og afvopnunarmála. Höfundur getur þess að fulltrúar íslenskra stjómvalda hafi ekki tekið þátt í stjómkerfisæfingum á vegum bandalagsins eða undirbúningi þeirra og ber ástand mála hér á landi sam- an við fyrirkomulagið í nágranna- löndunum, einkum Noregi. Keflavíkurstöðin Síðari hluti ritsins fjallar um Keflavíkurstöðina, þann herstyrk sem þar er að finna og hlutverk henn- ar á friðar- og hættutímum. Höfund- urinn ræðir einnig ítarlega um áætl- Albert Jónsson, framkvæmda- stjóri Öryggismálanefiidar. anir Bandaríkjahers og Atlantshafs- bandalagsins vegna hættutíma. Þá er í þessum kafla skýrslunnar einnig að finna tölur um ferðir sovéskra flugvéla inn á loftvamarsvæði Keflavíkurstöðvarinnar og kemur þar fram, að ferðir sovéskra flugvéla sem búnar eru kjamorkuvopnum hafa aukist í kring um landið á und- anfömum áram á sama tíma og dreg- ið hefur úr umsvifum flota Sovét- manna á norðurslóðum. Höfundur segir að stærstur hluti herstyrksins í Keflavíkustöðinni yrði færður undir Atlantshafsherstjóm Atlantshafsbandalagsins ef til þess kæmi á óvissu- eða átakatímum að nauðsynlegt reyndist að setja her- styrk frá bandalagsríkjunum undir stjórn Atlantshafsbandalagsins. Seg- ir í skýrslunni að gagnkafbátaflug- vélar, orrustuþotur og landhersveitir yrðu undir stjórn NATO en ratsjár- og eldsneytisþotur yrðu áfram undir bandarískri stjóm. Að auki er fjallað um liðsaukáætlanir vegna Keflavík- urstöðvarinnar. Varaflugvöllur Höfundurinn gerir ítarlega grein fyrir hugmyndum um leggja hér á landi varaflugvöll sem kostaður yrði af Atlantshafsbandalaginu. Segir í skýrslunni að flugvöllur af þessu tagi hér á landi myndi hafa í för með sér að unnt yrði að anna mun meiri umferð flutningavéla og her- véla um ísland á leið frá Banda- ríkjunum til Evrópu á óvissu- eða átakakatímum. Niðurstaða höfundar er sú að mun meiri áhugi sé fyrir því innan NATO að leggja slíkan flug\'öll hér á landi en í Grænlandi og segir í skýrslunni að þetta bendi til þess að áhugi á því á fá varaflug- völl hér á landi skýrist ekki af áætl- unum Bandaríkjamanna umhugsan- legar sóknaraðgerðir norður í höf heldur sé völlur af þessu tagi talinn mikilvægur óháð slíkum áætlunum. Má bjóða þér nýja, ódýra íbúð í hæsta gæðaflokki á besta stað við gamla miðbæinn? \y .......... -nimi’pei ^ jg ^ • í . Sambyggðin Ás við Laugaveg 148 er bæði sérbýli og fjölbýli. Litlar íbúðir og stórar. Gróðurskálar, útsýni, húsvörður, lokaður garður. Bílskýli fyrir 1-2 bila fyrir þá sem vilja. Langtímastæði. ALLT VERÐUR AFHEISIT FULLBÚIÐ, BÆÐI SAMEIGN OG ÍBÚÐIR Göngufjarlægð í allar helstu verslanir, stofn- anir, söfn, skemmtistaði og skóla. GERÐU VERÐSAMANBURÐ - GERÐU GÆÐASAMANBURÐ Með stærðinni, reynslunni og góðri skipu- lagningu getum við boðið íbúðir, sem við leyfum okkurað halda fram að skari framúr. Við höfum haft að leiðarljósi að fólki geti liðið vel í þeim íbúðum, sem við höfum hannað hér og erum að byggja. Á sýningu þeirri, sem við höfum sett upp í þjónustumiðstöð okkar á Funahöfða 19, getur þú kynnt þér nánar undirþúning okk- ar og hvernig við stöndum að framkvæmd- um. Vertu velkominn. Opið í dag laugardag frá kl. 9 til 15 og sunnudag frá kl. 10 til 17 Ármannsfell ht. Funahöfða 19, Ártúnshöfða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.