Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAI 1989
23
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Jón Ragnar, kokkur á Ófeigi VE,
við löndun á humri á þriðjudag.
V estmannaeyjar:
Humarver-
tíðin hafin
Vestmannaeyjum.
Humarvertíðin er nú liafín. A
mánudag og þriðjudag var fyrsta
humrinum landað í Eyjum og er
humarvinnsla nú hafín af krafti
í frystihúsunum.
Eyjabátarnir Sæfaxi, Ófeigur og
Jökull lönduðu þokkalegum afla á
mánudag. Á þriðjudag fékk síðan
frystihúsið Frostver humar fluttan
í gámum frá Hornafirði, en Frost-
ver mun í sumar vinna humar frá
tveimur Hornafjarðarbátum og
verður aflinn fluttur til Eyja með
gámum.
Mestur hluti humars er nú heil-
frystur, með haus og klóm, en ekki
slitinn eins og mest hefur verið
gert undanfarin ár.
Grímur
Páll Pampichler Pálsson
Austurríki:
Páll P. Páls-
son fær próf-
essorstitil
FORSETI Austurríkis, Kurt
Waldheim, veitti Páli P. Páls-
syni, tónskáldi, prófessorstitil við
hátíðlega athöfíi í menntamála-
ráðuneytinu í Vín 19. maí síðast-
liðinn, segir í fréttatilkynningu.
Viðstaddir athöfnina voru, meðal
annarra, Helmut Neumann formað-
ur Austurrísk-íslenska félagsins í
Vín og Werner Schulze ritari félags-
ins. I heiðursræðunni voru meðal
annars nefnd helstu verkefni Páls
P. Pálssonar og þátttaka hans í
menningarsamskiptum íslands og
Austurríkis. Páll þakkaði heiðurinn
og sagði að hann myndi áfram
vinna að góðu menningarsambandi
á milli íslands og Austurríkis.
-------------|—-
mmmm
bHB
iÍÍÍ
i
I
GÓÐAN DAGINN
HREINSUM BÆ.INN!
í DAG BYRJAR SÉRSTÖK HREIN SUNARVIKA
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA!
Nú stendur yfir allsherjar hreinsunarátak í Reykjavík.
Til að auðvelda starfið hefur borginni verið skipt í
fjóra hluta. Megin þungi hreinsunarþjónustu á vegum
borgarinnar verður í dag og næstu viku í Breiðholti.
ÖFLUGT SAMSTARF ÍBÚA OG BORGAR
Gripið verður til margvíslegra ráða til að ná settu marki
m.a. í samvinnu við einstaklinga, íbúasamtök og félög
sem hafa forystu um hreinsunarstarf í sínu hverfi.
STUTTI NÆSTA RUSLAGÁM.
Fólk getur gengið að ruslagámum vísum á 17 stöðum í
borginni næstu vikur. Á fjórum þessara staða verða
einnig gámar fyrir rafgeyma og rafhlöður eins og sést á
kortinu.
RUSL HIRT DAGLEGA AF GANGSTÉTTUM
Ruslapoka er hægt að fá í hverfabækistöðum gatnamála-
stjóra. Þeir verða hirtir daglega í þeim hluta borgarinnar
þar sem hreinsunarvika stendur yfir.
HVERFABÆKISTÖÐVAR ÞJÓNA BORGARBÚUM
Hafið samband við hverfabækistöðvarnar ef ykkur vantar
upplýsingar eða aðstoð vegna hreinsunarátaksins. Til
þeirra er einnig hægt að koma ábendingum er varða um-
hverfið í borginni: Skemmdir á yfirborði gatna og gang-
stétta, ónýt umferðarmerki eða vöntun á götumerking-
um, holræsastíflur, brottflutning bílgarma og hreinsun
gatna og lóða.
STAÐSETNING OG SÍMANÚMER HVERFABÆKl-
STÖÐVA
Vesturbær: Njarðargata, Skerjafirði, sími 29921.
Miðbær: Miklatún við Flókagötu, sími 20572.
Austurbær: Á horni Sigtúns og Nóatúns, sími 623742.
Breiðholt: Við Jafnasel, sími 74482 & 73578.
Árbær, Selás og Grafarvogur: Við Stórhöfða, sími
685049.
■■KðHKÍif'XiSi:
Sléttuvegur
Sundlaugavegur Vatnagaröar Bústaöavegur
viö tjaldsvæöi við Holtaveg viö Fák
Vikan13. -19. maf
Sigtún
Austurbæjarskóli
Meistaravellir
Hamrahlíö
Njaröargata,
Skerjafirði'
Vikan 3. júni - 9. júnf
Fjallkonuvegur
viö Foldaskóla
Stórhöföi'
Rofabær
viö Ársel
Selásbraut
viö Suðurás
Vikan 27. maf - 2. júnf
Austurberg
-viö Hólabrekkuskóla
Arnarbakki
viö Breiöholtsskóla
Öldusel
við skólann
Jafnasel *
Kortið sýnir borgarhlutana, dagsetningar sérstakra hreinsunarvikna og staösetningu rusla-
gáma meðan á hreinsunarvikunum stendur. Laugardagur er upphafsdagur og aðal hreins-
unardagur sérstakrar hreinsunarviku í hverjum borgarhluta.
* Gámar fyrir rafgeyma og rafhlöftur
HREIN BORG, BETRI BORG!
ARGUS/SIA