Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989 Morgunblaðið/Bjami Guðmundur SigurðSson úr trimmnefhd ÍSÍ og Eymundur Matthías- son framkvæmdastjóri Heimshlaups ’89 með merki hlaupsins. Friðarhlaup hefst eftir messu biskups og páfa FRIÐARHLAUP ’89 er yfirskrift boðhlaups sem hefst á Islandi að lokinni sameiginlegri messu Jó- hannesar Páls páfa og Péturs Sigurgeirssonar biskups á Þing- völlum 3. júni næstkomandi. Friðarhlaupið hófst í New York þann 21. april síðastliðinn og GENGISSKRÁNING Nr. 97 26. maí 1989 Ki. Kr. Toll- Ein.Kl. 09.15 K«up S*U flengi Dollarí 56,37000 56,53000 53.03000 Steríp. 90,11900 90,37500 89,78000 Kan. dollari 46.76800 46,90100 44,60600 Dönsk kr. 7.34940 7,94070 7.26440 Norsk kr. 7,91820 7,94070 7.78940 Sænskkr. 8,48950 8.51360 8,32500 Fi. mark 12,81430 12,85060 12,66840 Fr. franki 8,44940 8.47340 8,36240 Belg. franki 1,36700 1,37090 1,35110 Sv. franki 32,53680 32,62910 31.94110 Hol!. gyUim 25.38670 25,45880 25.06320 V-þ. mark 28,60990 28,69110 28,27810 it. lira 0,03946 0,03957 0,03861 Austurr. sch. 4,06960 4,08110 4,01670 Port. escudo 0,34550 0.34650 0.34180 Sp. peseti 0,45630 0,45760 0.45570 Jap. yen 0.40236 0,40350 0.40021 Irskt pund 76,53400 76.75100 75.49100 SDR (Sérst.) 70.66090 70,86150 68.78630 ECU, evr.m. 59,52670 59,69570 58,82090 Tottgengi fyrir maí er sölugengi 28. aprfl. Sjáltvirkur símsvari gengisskrámngar er 62 32 70. stendur til 7. ágúst og er búist við að þátttakendurnir hlaupi 50 þúsund km. í 73 þjóðlöndum. Sri Chinmoy maraþonliðið sér um framkvæmd hlaupsins. íslendingar taka þátt í þessu hlaupi eins og gert var árið 1987 er hlaupið var í fyrsta sinn. Biskup íslands hleypur fyrstur og verður farið til Reykjavíkur fyrsta daginn. Daginn eftir byrjar hlaupið við Lækjartorg með stuttri athöfn þar sem upphafsmaður friðarhlaupsins Sri Chinmoy verður viðstaddur ásamt íslenskum ráðamönnum. Síðan verður hlaupið hringinn í kringum landið, alls um 3000 km, og endað í Reykjavík þann 25. júní. Tekna verður aflað með merkja- sölu, áheitum fyrirtækja og fram- lögum einstaklinga á giróreikning sem opnaður verður. Eymundur Matthíasson framkvæmdarstjóri fiðarhlaupsins sagði á blaðamanna- fundi þar sem hlaupið var kynnt að vænst væri góðrar þátttöku al- mennings í hlaupinu og að minnsta kosti fleiri hlaupi en síðast en þá hlupu um 3500 manns. Fram- kvæmd hlaupsins er í náinni sam- vinnu við ungmenna- og íþróttafé- lögin á hveijum stað. Fiskverð ð uppboðsmörkuðum 26. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 67,00 49,00 57,75 26,661 ■1.539.664 Ýsa 93,00 60,00 78,48 6,094 478.240 Karfi 32,00 28,00 31,43 5,654 177.731 Steinbítur 45,00 41,00 43,97 1,414 62.178 Grálúða 53,00 50,50 51,90 20,925 1.086.100 Skötuselur 150.00 145,00 148,33 1,150 170.503 Samtals 56,76 67,889 3.853.307 Selt var aðallega úr Arnari HU og Stakkavík ÁR. Á mánudag verða meðal annars seld 30 til 50 tonn af þorski, ýsu, lúðu, skötusel og fleiri tegundum úr ýmsum bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 57,00 26,00 48,14 3,975 191.345 Ýsa 94,00 32,00 67,60 1,808 122.217 Karfi 39,00 30,00 31,36 0,662 20.760 Blálanga 29,00 29,00 29,00 2,180 63.213 Lúða 265,00 190,00 200,35 0,565 113.195 Grálúða 55,00 44,00 52,91 34,926 1.847.761 Samtals 52,85 45,507 2.404.870 Selt var úr Höfðavík AK og bátum. I dag verða m.a. seld 100 tonn af grálúðu úr Breka VE og hefst uppboðið klukkan 13. FISKMARKAÐUR SUÐORNESJA hf. Þorskur 61,50 30,00 54,97 7,889 433.688 Ýsa 81,00 52,00 67,14 12,670 850.602 Karfi 34,00 25,50 31,22 14,430 450.433 Ufsi 36,50 20,50 35,22 11,036 388.741 Skarkoli 57,00 45,00 50,93 1,001 51.045 Háfur Samtals 10,00 10,00 10,00 46,21 0,810 48,953 8.100 2.262.321 Ekki verður boðið upp í dag en á mánudag verða m.a. seld 40 til 50 tonn, aðallega af þorski, úr Eldeyjar-Hjalta GK og óákveð- ið magn úr Hrungni GK og Sighvati GK og hefst uppboðið kl. 11. GÁMASÖLUR í Bretlandi Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Koli Blandað Samtals 22. til 26. maí. 85,73 142,710 12.233.836 85,51 281,760 24.093.410 33,88 28,210 955.688 48,80 23,525 1.147.971 71,07 141,900 10.085.533 84,19 63,940 5.383.088 79,03 682,045 53.899.543 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 22. til 26. maí. Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Grálúða Blandað Samtals 55,40 22,223 1.231.226 105,53 0,291 30.710 56,17 3,450 193.783 56,82 253,424 14.400.466 63,69 136,803 8.712.705 58,29 11,324 660.125 59,01 427,515 25.229.016 Selt var úr Ásgeiri RE í Bremerh. 22. og Engey RE í Bremerh. 24. Edna Chapman varaforseti fímmta svæðis alþjóðanefindar ITC: ITC-Hreyfíngin sterk á íslandi Morgunblaöið/Júllus Hjördís Jensdóttir bladafulltrúi ITC á Islandi, Edna Chapman varafor- seti fimmta alþjóðasvæðis ITC og Halla Gísladóttir, fyrsti varafor- seti ITC á íslandi. Alþjóðlegt þing ITC stendur nú yfir á Hótel Sögu og er gestur þingsins Edna Chapman, vara- forseti fimmta svæðis alþjóða- nefndar ITC. í tengslum við þing- ið heldur frú Chapman námskeið í alhliða framsögn. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið, að ITC-hreyfingin á íslandi væri afar sterk og alltaf í sókn, styrk- ur hennar lægi ekki síst í því, að auk þess að flytja þinghald sitt á íslensku, væru íslendingar að því er virtist jafnvígir á móð- urmál sitt og ensku. ITC er að öllu jöfnu 20.000 manna hreyfing og er mikil hreyf- ing á félögum, margir hætta og nýir koma inn. „Við viljum að fólk sé innan vébanda ITC eins lengi og það kærir sig um, sumir eru þar alla ævi, en aðrir eru eitt ár, tvö ár, fimm ár, tíu ár, það fer allt eft- ir eftir hveiju menn eru að leita,“ sagði frú Chapman. Hún útskýrði hreyfinguna sem þjálfunarfyrir- tæki, fólk væri þjálfað í að standa upp og segja hug sinn og sannfær- ingu með þeim hætti að áheyrendur taki eftir því sem sagt er. Skýr framsögn, réttar áherslur og rök- semdarfærsla. „Það er almennt mál þátttakenda, að hreyfingin geri sitt gagn og takast iðulega sterk vin- áttubönd meðal þáttakenda. Þess er ekki síst þörf í okkar nútíma- heimi,“ sagði frú Chapman. Upprunalega er ITC kvenna- hreyfing, en karlmenn eru ekki úti- lokaðir, þvert á móti eru þeir allir velkomnir. Að sögn frú Chapman fer þeim fjölgandi í hreyfingunni og eru nú um 2000 karlmenn í ITC vítt og breitt um heiminn. Á íslandi er breytingin hægfara, Hjördís Jensdóttir blaðafulltrúi ITC á ís- landi sagði karlmenn mikið spyija um hreyfinguna og láta í ljós áhuga á að gerast félagar, en annað hljóð komi í strokkinn er þeir frétta að aðeins einn karlmaður sé í ITC á íslandi. Hann heitir Vilhjálmur Guðjónsson, þrítugur stoðtæknir. Musica Antiqua: Tónleikar í Krístekirkju TÓNLEIKAR verða haldnir á vegum Musica Antiqua í Krists- kirkju sunnudaginn 28. maí nk. Flutt verður renaissance- og bar- okktónlist. Flytjendur eru Camilla Söder- berg, sem leikur á ýmsar gerðir af blokkflautum frá endurreisnar- og barokktímanum, Snorri* Öm Snorrason, sem leikur á renaiss- ance-lútu og Ólöf Sesselja Óskars- dóttir leikur á violu da gamba. Hljóðfærin eru nákvæmar eftirlík- ingar af hljóðfærum frá fyrrgreind- um tíma. Á árunum 1981-1985 stóðu að- standendur Musica Antiqua ásaml öðru tónlistarfólki, sem hefur sér- hæft sig í túlkun renaissance- og barokktónlistar, fyrir tónleikaröð- um til að kynna tónlist frá þessuir tíma, leikna á upprunaleg hljóðfæri. Þau Camilla Söderberg, Snorri Ólöf Sesseþ'a Óskarsdóttir, Snorri Óm Snorrason og Camilla Söderberg. Öm og Ólöf Sesselja em á næst- unni á fömm til Austurríkis þar sem þau munu halda tvenna tónleika. Tónleikamir í Kristskirkju hefj- ast kl. 17 og verða aðgöngumiðar seldir við innganginn. Víkingamir hressir við upphaf maraþonleiksins. Morgunbiaaið/Ámi Sæberg Víkingur: Maraþonleikur til fláröflunar ÞRÍR flokkar Víkings í Reykjavík vinna nú að því að setja nýtt met í handknattleik. Þeir hófii leikinn klukkan 18 í gærdag og hyggjast spila til sama tíma í dag, laugardag. Þetta em þriðji flokkur karla og kvenna og fjórði flokkur karla, sem reyna við metið. Tilgangur leiksins er að safna fé fyrir keppn- isferð til Danmerkur. Unglingamir hafa safnað áheitum og munu gera svo áfram meðan á leiknum stendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.