Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
Sýningin Vorið ’89 1 Reiðhöllinni 25.-28. maí
Sviðsmynd Jurgens Rose úr „Onegin“.
Attu leið um Kaup-
mannahöfii á næstunni?
Óperu- og balletthátíð í Konung-lega leikhúsinu
Vísast munu einhverjir þeirra,
sem þetta lesa, eiga leið um Kaup-
mannahöfn síðari hluta maí-
mánaðar. Og ef þið eigið þá kvöld
laust, er ekki úr vegi að huga að
hvað er boðið upp á í Konunglega
leikhúsinu það kvöld, því frá 16.
maí til 2. júní er haldin hátíð í
húsinu, nánar tiltekið ballett- og
óperuhátíð. Og auk þess verða
dansdagar 24.-27. maí, þar sem
er lögð áhersla á nútímadans. Það
er því sitt lítið að hafa þessa dag-
ana, auk góða veðursins, sem von-
andi verður, því danshátíðardag-
ana verða uppákomur á hverju
kvöldi fyrir framan leikhúsið við
Kóngsins nýja torg.
En víkjum þá að, hvað þarna verð-
ur að sjá og heyra. Fyrst er að nefna
ballettinn Onegin, við tónlist Tsjaj-
kovskíjs, líkt og samnefnd ópera
hans, en þó ekki heilsteypt verk eft-
ir tónskáldið, heldur er tónlistin sett
saman úr verkum eftir Tsjajkovskíj.
Ballettinn var frumsýndur fyrir
skömmu og fékk einróma góða dóma,
sem ekki hefur alltaf verið um bal-
letta hússins undanfarin ár. Sá sem
samdi dansana var enskur dansari
að nafni John Cranko, en hann starf-
aði lengi í Stuttgart í Þýskalandi og
kom þar upp hóp, sem þykir einn sá
merkasti í því landi. í Onegin er öllu
tjaldað til, sem hægt er, því næstum
allur Konunglegi ballettinn dansar í
sýningunni og búningar og sviðs-
mynd eru yfirþyrmandi glæsileg, svo
það er vart annað hægt, en að grípa
andann á lofti með jöfnu millibili út
alla sýninguna og þá ekki síður yfir
dansinum sjálfum og frammistöðu
dansaranna.
Nokkrar sýningar á styttri ball-
ettum verða líka þessa dagana, með-
al annars þrír, ballettar við tónlist
Igors Stravinskís, ballettamir Agon,
Appollon Musagetes og Jeu de cart-
es, ballett við Rhapsody in Blue eftir
George Gershwin og síðast en ekki
síst Síðdegi skógarpúkans við tónlist
Claude Debussy. Knudaage Riisager
er danskt samtímatónskáld og við
tónlist eftir hann samdi sænski dans-
höfundurinn og fyrrum dansarinn
Birgit Cullberg ballett, sem heitir
Mána-hreinninn. í Svíþjóð hefur
Cullberg um árabil rekið ballettflokk,
sem er víst einn fárra hópa þar í
landi, sem ekki er ríkisrekinn. Sá
flokkur hefur meðal annars heimsótt
ísland og því gleyma víst ekki þeir,
sem sáu flokkinn þá. Tveir mjög
hefðbundnir ballettar verða einnig
sýndir þama, en það eru Koppelía
og svo La Sylphide. Sá síðastnefndi
er eftir Danann Bournonville, en
danski ballettinn er einmitt þekktur
fyrir að varðveita og halda við dans-
hefð, kenndri við Boumonville. Flest-
ar litlar stelpur í Danmörku dreymir
einhverntímann um að dansa ballett,
ekki síst eftir að hafa séð þessa tvo
síðastnefndu balletta. Og talandi um
böm, þá verður bamasýning sunnu-
daginn 21. maí kl. 14, þar sem böm
úr ballettskólanum sýna.
Af óperam er fyrst að nefna tvær
Puccini-óperur, Madömu Butterfly
og Toscu, sem hafa gengið í leik-
húsinu í vetur. Nýlega voru fram-
sýndar tvær stuttar óperar, sem era
sýndar saman. Það era óperarnar
Didó og Eneas eftir Henry P’urcell,
sem var uppi á síðari hluta 17. ald-
ar, og Kastali Bláskeggs hertoga
eftir Ungveijann Béla Bartók og
þessi sýning verður einnig sýnd hát-
íðardagana. í vetur sýndi Islenska
óperan og Þjóðleikhúsið Æfintýri
Hoffmanns, sem kunnugt er, en hér
verður Vores Hoffmann, Hoffmann
okkar sýndur. Þetta er gestasýning
frá Jósku óperanni, þeirra eigin út-
gáfa af ópera Jaques Offenbach og
sem hefur verið sýnd víða um landið
við rífandi undirtektir.
Á flestum hótelum og víðar í borg-
inni liggur frammi bæklingur yfir
viðburði mánaðarins og þar með yfir-
lit yfir sýningar Konunglega leik-
hússins. Laugardagsblöðin birta allt-
af lista yfir sýningar leikhússins
mánuð fram í tímann og í leikhúsinu
liggur frammi skrá yfir þær, svo það
ætti ekki að vera erfitt að komast
að, hvað þar er boðið upp á hvern
dag. En annars er hægt að panta
miða í síma 01 14 10 02 og upplýs-
ingar um hvað er verið að sýna er
að fá í síma 01 15 22 20.
hinn eini og sanni
Vorið ’89 er sýning sem kemur á óvart.
Allt fyrir sumarið á einum stað.
FJOLBREYTT SYNING
Þessa dagana er sumar í Reiðhöllinni í Víðidal.
Á sýningunni Vorið ’89 eru á fjórða tug sýnenda með
allt það helsta fyrir sumarið. Fjölbreytnin er mikil á
sýningunni, bæði í sýningardeildum og í skemmtiatrið-
um. Þú getur gert góð kaup í mörgum sýningardeildum
sem bjóða sýningarafslátt meðan á sýningunni stendur.
SKEMMTIATRIÐI í SÉRFLOKKI
Breskir hjólabrettasnillingar í fyrsta sinn á íslandi.
Dans- og sportfatasýningar á sviðinu og hljómsveitin
Sex-menn ásamt Látúnsbörkunum.
FJALLAHJÓLAKYNNING UM HELGINA
I dag klukkan 14 mun Geoff Apps leiða reiðhjólaferð á
fjallahjólum með þátttöku sýningargesta. Eina skilyrð-
ið fyrir þátttöku er að viðkomandi eigi fjallahjól og
treysti sér í 3 tíma skemmtiferð á reiðhjóli utan vega.
Á morgun verður hindrunarkeppni á fjallareiðhjólum.
Breski fjallahjólafrömuðurinn Geoff Apps mun stjórna
keppninni. Öllum sem eiga fjallahjól er boðið til þátt-
töku og byrjar keppnin klukkan 14. Veitt verða verð-
laun.
ÞÚ GETUR UNNIÐ SEGLBRETTI
Aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiðar, og eru
vinningar m.a. seglbretti, fjallareiðhjól og hjólabretti.
Dregið verður í lok sýningarinnar.
Upplýsingasími 673620
OPIÐ
laugardag og sunnudag
frá kl. 10-22
Sýningunni
lýkur á morgun.
3ja daga
RYMINGARSALA
—■— hefst í dag---
amerískar gæðavörur á algjöru botnverði
opið í dag 10-16
VoYleikur'89
ármúla 23 (í húsi landsmiðjunnar)
sími: 686204 & 686337