Morgunblaðið - 27.05.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
17
Gleymdist
UmhveriSsmálaráð?
Enn sorglegri er þó sú stað-
reynd, að Umhverfismálaráð borg-
arinnar var aldrei spurt álits á
þessari umdeildu lokun olíufélag-
anna. Þó er algerlega ótvírætt, að
borgarkerfinu ber að leita eftir
skoðun ráðsins áður en endanleg-
ar ákvarðanir sem varða skipulag
borgarinnar eru teknar. Þetta er
skýlaust tekið fram í samþykkt
borgarstjómar um hlutverk ráðs-
ins. Hugsunin að baki þessu er
vitanlega sú, að veita framtaks-
sömum einstaklingum og fyrir-
tælqum aðhald og koma í veg fyr-
ir að athafnagleðin leiði til að
gengið sé of nærri útivistarsvæð-
um í borginni. Umhverfismálaráð
er þannig líka einskonar varð-
hundur kerfisins gagnvart sjálfu
sér, það á fyrir hönd borgarinnar
að gæta þess að aðrar stofnanir
hennar kunni sér hóf í umgengni
við náttúru borgarlandsins.
í þessu tilviki var hins vegar
gengið algerlega framhjá Um-
hverfismálaráði. Það var aldrei
spurt. Það er því vafasamt, að
lokunin á norðurhluta eyjarinnar
sé formlega rétt.
Miðað við þann ágæta skilning
sem hefur ríkt í Umhverfismála-
ráði á þessu kjörtímabili á um-
hverfísmálum, þá dreg ég raunar
mjög í efa að ráðið hefði sam-
þykkt lokunina einsog hún hefur
nú verið ákveðin.
Skilningxir olíufélaganna
Það er að sönnu umdeilanlegt,
hvort það hafí í upphafi verið vitur-
leg ráðstöfun að vista olíufélögin
í Orfírisey. Sjálfur tel ég það hafa
verið rangt. En þangað eru þau
einu sinni komin, og munu víst
ekki hafa hratt á hæli úr þessu.
Ég get heldur ekki neitað því, að
tankamir vaxa undarlega vel inn
í landslagið. Þegar þá ber upplýsta
við rökkvaðan kvöldhimin og
fjallahringurinn bakvið, þá skynja
ég í þeim vissa fegurð, líkt og
rússnesku fúturistamir sem ortu
um fegurðina í stálinu. En ég vil
samt geta gengið minn hring í
Örfirisey einsog ég er búinn að
gera nokkmm sinnum í viku um
Ný plata með
Stuðmönnum
eftir tveggja
ára hlé
Hljómsveitin spil-
ar í öllum lands-
flórðungum í júlí
NÝ hjjómplata er væntanleg frá
Stuðmönnum en um þessar
mundir eru tvö ár liðin frá því
síðast heyrðist frá hljómsveit-
inni. Platan, sem hlotið hefur
nafnið „Listin að lifa“, kemur
út á vegum Skíftinnar hf. í fyrri-
hluta júní. Stuðmenn munu
kynna lögin á plötunni í þjóðhá-
tíðardagskrá á Stöð 2 þann 17.
júní en í júlí mun hljómsveitin
koma fram í öllum landsfjórð-
ungum.
Við gerð þessarar hljómplötu
hafa allir þeir komið við sögu, sem
samið hafa fyrir Stuðmenn frá því
þeir komu fyrst fram á sjónarsvið-
ið. Á plötunni kennir ýmissa grasa
en í tónlist hljómsveitarinnar hefur
gætt fjölbreyttra stílbragða.
Fyrstu smáskífur Stuðmanna -
komu út árið 1974 og næstu tvö
árin sendu þeir frá sér hljómplöt-
umar „Sumar á Sýrlandi“ og
„Tívolí“. Hlé varð á starfi hljóm-
sveitarinnar frá 1976 til 1981, en
þá stóð hún að gerð kvikmyndar-
innar „Með allt á hreinu“ og hljóm-
plötu með sama nafni. Hafa Stuð-
menn starfað nær óslitið síðan.
Upptökur á nýju plötunni hafa
staðið yfir s.l. tvo mánuði. _ • S
árabil.
Það hlýtur að vera vilji olíufé-
laganna að búa í Örfirisey í góðu
nábýli við aðra Reykvíkinga. Og
það ættu þau auðveldlega að geta.
Hvað mælir á móti því, að þau
opni aftur hringinn um Örfíri-
seyna, að minnsta kosti fyrir fót-
gangandi og skokkara? Ef til vill
myndi það kosta þau svolítið af
peningum, en sá herkostnaður yrði
vel þess virði til að halda sátt við
góða granna.
Púlsinn á reykvísku mannlífí er
einfaldlega hvergi hægt að taka
einsog með því að ganga einn
hring á Örfirisey og setjast svo
inná Kaffívagninn á eftir.
Það hljóta olíufélögin að skilja,
og vonandi er því hægt að ná við
þau sátt í þessu óþarfa ágreínings-
máli.
Sölutjöld 17. júní 1989 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöidum á þjóðhátíðardaginn
17. júní 1989 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
að Fríkirkjuvegi 11, opið ki. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
mánudaginn 5. júní kl. 12.00.
Höfundur situr í UmhverBsmála-
r&ði Reykjavíkur.
V.
GMDHUSG
Fyrsta sendingin af NOVA-garðhúsgögnunum seld-
ist upp á svipstundu enda býður enginn vandaðri
garðhúsgögn á eins góðu verði.
Nú er ný sending
komin.
NOVEUA STOLLINN
ER KONIINN AFTUR
AÐEINS
ms
kr. stk.
1989
BEST UNDIR SÓLINNI
Til viðskiptavina sem lagt hafa inn
pantanir:
Þeir, sem hafa tök á að sækja
pantanir sínar, ættu vinsamlegast
að gera það hið fyrsta.
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
Kannt þú nýja símanúmerið?
Steindór Sendibílar
ama ar -s- y
3 6: 7
| ! i