Morgunblaðið - 27.05.1989, Page 47

Morgunblaðið - 27.05.1989, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989 47' BRASILÍA Fljúg’andi furðu- hlutir gera árás Lögreglan í bænum Moujui dos Campos í Brasilíu hefur sent frá sér skýrslu þess efnis að fljúg- andi furðuhlutir hafi sést við skóg- arjaðarinn, ósýnileg öfl verið að hrella íbúa bæjarins og þeir séu logandi hræddir eftir árásir sem valdið hafa tímabundinni lömun, blindu og höfuðverk. Lögreglustjórinn, Raimundo Vil- anova, trúði fyrst ekki eigin eyrum en ákvað að fara út að bæjarmörk- um til þess að fá sögur þessar stað- festar, eða réttara sagt; hann taldi líklegast að „skæru ljósin" væru frá herþyrlum. „Nótt eina sá ég geysi- lega skært ljós bera við sjóndeildar- hringinn. Ég nuddaði augun en allt kom fyrir ekki, ljósið fór fram og aftur með ógnarhraða. Síðan lýstist allt umhverfið upp í heilar þrjátíu mínútur" segir Raimundo. Maður að nafni Luiz de Souza, 32ja ára, hefur þessa sögu að segja: „Ég var í veiðiferð þegar skyndilega birtist skært ljós eins og bolti í lag- inu, aðeins fimm metra fram undan mér. Ég reyndi að skjóta en riffill- inn stóð á sér þrátt fyrir að hann væri í góðu lagi. Skyndilega var mér lyft upp og eitthvað sem líktist sterkum vindhviðum lék um líkama minn. Ég sá ekki neitt en vissi næst af mér þar sem ég lá í gras- inu og virti fyrir mér þetta ljós. Eftir að það hvarf var ég blindur í hálftíma og næstu þijár vikur hafði ég óbærilegan höfuðverk." Bóndi að nafni Euzebio Lima var á gangi nálægt heimili sínu þegar hann fékk skyndilega furðulegt högg frá geisla sem hitti hann beint í ennið. „Ég missti sjónina augna- Luiz de Souiz var einn þeirra sem komst i kynni við fljúgandi flirðu- hluti. blik og lamaðist. Eftir drykklanga stund fékk ég máttinn, stóð á fætur og fór heim. Ég kastaði upp og hafði mikinn höfuðverk í viku og var óvinnufær í heilan mánuð.“ Kona að nafni Maria dos Santos var eitt fórnarlambanna. „Tveir ljósgeislar fóru með ógnarhraða beint fyrir framan augun á mér, sikksökkuðu bæði fyrir framan og aftan mig. Óbærilegur hiti fór um líkama minn, líkt og ég væri á glóð- um. Ég hélt að ég væri að deyja en skyndilega lá ég á jörðinni." Lögreglustjórinn tók það skýrt fram í skýrslum að hann hafi aldrei upplifað neitt þessu líkt. Flestir myndu ekki trúa sögum þessum en hann hefði nú séð með eigin augum hvað íbúar við skógaijaðarinn hefðu mátt þola. ÁSTRALÍA Indjáni og kóalabjörn Indjánaleiðtoginn Raoni frá Amazon-skógunum í Suður- Ameríku, sem er á ferð um heim- inn með poppstjörnunni Sting, hitti kóalabjörn er hann var í Sydney í Ástralíu nýverið. Hænd- ist kóalabjörnin mjög að indján- anum, eins og sjá má, og virti hann vel og Iengi fyrir sér. Ra- oni hefiir ferðast til 17 landa til að kynna baráttuna gegn eyð- ingu Amazon-regnskóganna og snýr senn til heimkynna sinna. Kóalabjöminn verður áfram á dýragarði í Sydney. FYLKISVÖLLUR 1. DEILD FYLKIR VOLVO í dag kl. 14.00 Fylkishlaupið hefst kl. 11. ÞOR □AIHATSU GARÐEIGENDUR - TRJÁRÆKTARFÓLK Ný trjáplöntustöð Yfir 100 tegundir trjáa og runna, ennfremur garðskálaplöntur. Afar hagstætt verð og greiðslukjör. Sértilboð á glansmispli, greni o.fl. Trjáplöntusalan Núpum Ölfusi, við Hveragerði. Opið um helgar frá kl. 10-20, virka daga frá kl. 8-19, símar: 985-20388 og 98-34388. 10-15% afmælisafsláttur á reyrhúsgögnum á sýningunni Vorið í Reiðhöllinni og versluninni Sumarhús, Háteigsvegi 20. Laugard. og sunnud. 27/5-28/5 í Reiðhöllinni og á venjulegum verslunartíma í versluninni laugard. frá kl. 10-14 og mánud. frá kl. 9-18. SKÓVERKSMIÐJAN IÐUNN LOKA-LOKAUTSALA Laugavegi91 (kjallara Domus) Kuldaskór Herraskór Dömuskór Spariskór Sumarskór Barnaskór Sportskór Inniskór Opið virka daga fro kl. 13 til 18. íaugardaga frá ki 10 til 14. ALLIR SKOR A 500 TIL 1.000 KRONUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.