Morgunblaðið - 23.06.1989, Síða 27
MORGl'NBLAÐH) FÖSTUDAGL’R 23, JÍINÍ 19S9
27
Garðar Karls-
son - Minning
Fæddur 10. september 1920
Dáinn 14. júní 1989
í dag er kvaddur í hinsta sinn
mágur minn og góður vinur fjöl-
skyldu minnar, Garðar Karlsson, til
heimilis á Kleppsvegi 48, Rvk. Þeg-
ar við venslamenn hans fylgdumst
ásamt honum með framgangi
knattspyrnulandsliðs íslands 14.
júní sl. full vonbrigða yfir úrslitun-
um vissum við ekki að þau voru
léttvæg miðað við þau úrslit í lífi
eiginkonu og sonar Garðars að á
þeirri stundu og þeim stað misstu
þau sinn ástkæra eiginmann og
föður.
Garðar var einn af 9 börnum
hjónanna Karls Lúðvígssonar kaup-
manns og konu hans, Maríu Thejll.
Nú er aðeins einn eftir lifandi af
þeim systkinahópi, Lárus, vistmað-
ur á elliheimilinu Grund. Garðar
____________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Hermann og Jakob
sigurvegarar á Klaustri
Önnur Alslemman, helgarmót í
brids, var spiluð á Kirkjubæjar-
klaustri nýlega. 36 spilarar tóku
þátt í mótinu, sem var afar vel skip-
að spilurum, aðallega af höfuð-
borgarsvæðinu. Þátttaka af Suður-
landi var með eindæmum léleg eða
aðeins eitt par.
Sigurvegarar mótsins að þessu
sinni urðu Hermann Lárusson og
Jakob Kristinsson, en sigurvegarar
Gerðubergs-mótsins, þeir Anton R.
Gunnarsson og Friðjón Þórhallsson
urðu í 2. sæti.
Röð efstu para varð þessi:
Hermann Lárusson —
Jakob Kristinsson 732
Anton R. Gunnarsson —
Friðjón Þórhallsson 717
Bragi Hauksson —
Sigtryggur Sigurðsson 705
Sveinn R. Eiríksson —
Þröstur Ingimarsson 705
Hrólfur Hjaltason —
Bjöm Halldórsson 704
Stefanía Skarphéðinsdóttir —
Aðalsteinn Sveinsson 673
ísak Örn Sigurðsson —
Sigurður Vilhjálmsson 670
Páll Valdimarsson —
Magnús Ólafsson 659
Dúa Ölafsdóttir —
Véný Viðarsdóttir 649
Murat Serdar —
Þórður Bjömsson 648
Mótið fór afar vel fram við góðar
aðstæður á Hótel Eddu á Kirkju-
bæjarklaustri. Vom keppendur
ánægðir með heildarfyrirkomulag á
mótsstað, en að sjálfsögðu hefðu
mátt vera fleiri keppendur mótinu
að skaðlausu.
I framhaldi af fádæma lélegri
aðsókn, em uppi ráðagerðir um að
fella niður tvö mót af átta, á ísafirði
og á Húnavöllum.
Næsta Alslemmumót verður spil-
að á Hrafnagili v/Akureyri um
næstu helgi. Skráning er hafin í
símum 91-673006 (Ólafur) og
96-24171 (Jakob). Mikill áhugi er
fyrir því mótií Reykjavík og von-
andi munu norðanmenn ekki láta
sitt eftir liggja. Hugmyndir eru
uppi um að hækka verðlaun úr kr.
100 þús. í kr. 150-160 þús., ef
þátttaka fer vel yfir 30 pör. Að
auki er spilað um fjölda silfurstiga
í hveiju móti.
missti móður sína 3ja ára gamall
og hélt elsta systir hans, Sigríður,
heimili með föður sínum og systkin-
um í fyrstu eftir það aðeins 18 ára
gömul. 6 ára gamall var Garðar
tekinn í fóstur af föðurbróður
sínum, Lárusi G. Lúðvígssyni skó-
kaupmanni, og konu hans, Ingu.
Hann rak auk skóverslunar stóra
skóverksmiðju og hneigðist Garðar
til þeirrar iðju. Hann sigldi til Kaup-
mannahafnar 1938 og nam þar
skósmíði til ársins 1939 og starfaði
eftir það við skósmiðju Lárusar G.
Lúðvígssonar og rak hana um nokk-
urra ára skeið. Garðar kvæntist
eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrafn-
hildi Þorbergsdóttur frá Þingeyri í
Dýrafirði, 17. júlí árið 1948. Þau
voru afar samrýnd og samtaka um
uppeldi og velferð sonarins Harðar
Þorbergs, sem er fæddur 1956,
verkfræðingur að mennt. Gunnar
bróðir Garðars bjó einnig á heimili
þeirra allt frá árinu 1951, þar til
hann varð bráðkvaddur fyrir 14
árum, á knattspyrnulandsleik ís-
lands og Austur-Þýskalands. Sam-
an mynduðu þau fjögur kjarnafjöl-
skyldu þar sem Hörður var ávallt
sá sem allt snerist um, augasteinn-
inn þeirra.
Svona skyndilegt fráfall ástvinar
án nokkurs fyrirvara kemur eins
og reiðarslag yfir fjölskyldu og vini,
en það skal þó þakkað að sá látni
er firrtur öllum banagrun og þján-
ingu, sem fylgja oftast þeim áföllum
sem varð þeim að aldurtila.
Mér er það ljúft og skylt að minn-
ast þeirra mannkosta sem Garðar
var gæddur, geðprýði, hjálpfýsi og
heiðarleika, aðalsmerki þessa Ijúfa
+
Faðir okkar,
SUMARLIÐI EYJÓLFSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. júní kl.
15.00.
Börn hins látna.
gáfumanns. Það reyndist öllum létt
að lynda við hann. Hann var lista-
kokkur af guðs náð og oft með til-
raunir á nýjum réttum er okkur bar
að garði og urðum við að bragða á
fyrir áeggjan hans og auðvitað með
uppskrift af góðgætinu með heim.
Þannig vann hann af alúð við það
fag sem hann lærði til og aldrei
datt Garðari í hug að framleiða skó
úr öðru en úrvalsskinni, það sam-
ræmdist ekki hans eðlislæga heiðar-
leika. Enn í dag gengur fjölskylda
mín á skóm smíðuðum og gefnum
af Garðari þótt hann hafi fyrir löngu
látið af þeirri iðju, já, þeir endast
eins og minningin um góðan dreng.
Síðustu starfsmánuðina vann Garð-
ar fyrir Volt hf. þar sem hann ann-
aðist innheimtu fyrir fyrirtæki.
Tími kveðjustunda er runninn
upp, sá taktur tilverunnar sem
reynist mér hvað þungbærastur og
sú samkennd með þeim sem hana
sárast skynja.
Elsku Hilla og Höddi, guð styrki
ykkur og styðji á erfiðri stundu.
Blessuð sé minning ykkar ástkæra
Garðars Karlssonar.
Helga Kristjánsdóttir
+
Jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur
og systur,
ERNU SIGURLÁSDÓTTUR,
fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 24. júni
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið
eða aðrar líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ævar Karlesson.
+
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinaáttu við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
JÓHANNS SVERRIS JÓHANNSSONAR.
Sæunn Kristjánsdóttir,
Þorvaldur Kristján Sverrisson, Helga Eysteinsdóttir,
Baldur Jóhann Þorvaldsson,
Sverrir Kristján Þorvaldsson.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afinælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafiiarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og stuðn-
ing við fráfall
ÞÓRUNNAR SÍMONARDÓTTUR,
Suðurgötu 65,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins sem annaðist hana af alúð og
umhyggju á sjúkrahúsi Akraness.
Einar Helgason,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR KJARTANSDÓTTUR
frá Völlum.
Gíslina Björnsdóttir,
Kjartan Björnsson,
Jónas Björnsson,
Ingvar Christiansen,
Sigríður Sigurðardóttir,
Ásdís Frímannsdóttir
og barnabörn.
+ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HERMANNS JÓHANNESSONAR frá Saurum, Eyjabakka 10. Guðbjörg Guðbrandsdóttir, Guðbrandur Hermannsson, Hjálmfríður Hafliðadóttir, Þorsteinn Hermannsson, Sigriður Gunnarsdóttir og barnabörn.
Móðir okkar, MARGRÉT ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR, Miðfelli, Hrunamannahreppi, sem lést 16. júní sl., verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju laugar- daginn 24. júní kl. 14.00. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30 með viðkomu í Fossnesti á Selfossi. Synir hinnar látnu.
+ +
Móðir mín, amma og langamma, ÁSDÍS ÁGÚSTSDÓTTIR frá Birtingaholti, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag, föstudaginn 23. júní, kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Þökkum öllum þeim er veittu aðstoð og sýndu hlýju og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJARNA HALLDÓRSSONAR, Borgarbraut 3, Hólmavík.
Sigurður Skúlason, Ásdfs M. Sigurðardóttir, Árni G. Árnason, Skúli Sigurðsson, Hlíf Matthíasdóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Elías Kristjánsson og barnabarnabörn. Halldóra Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Bjarnadóttir, Einar Njálsson, Gunnlaugur Bjarnason, Guðbjörg Stefánsdóttir, Rut Bjarnadóttir og barnabörn. V
m
POLERTORKí bilin