Morgunblaðið - 23.07.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 23.07.1989, Qupperneq 21
ATVINNU RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR A TVINNUAUGL YSINGAR Framkvæmdastj óri Félag ráðgjafarverkfræðinga óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í hálfa stöðu. Framkvæmdastjórinn á meðal annars að sjá um skrifstofu félagsins og daglegan rekstur, halda utan um félagatal og færa bókhald. Leitað er að ein- staklingi með háskólamenntun og góða tungumála—, bók- halds— og tölvuþekkingu. Deildar stj óri í blaðinu í dag er staða deildarstjóra í fjármáladeild félags- málaráðuneytisins auglýst laus til umsóknar. Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur rennur út 11. ágúst næstkomandi. Forstöðumaður Staða forstöðumanns við félagsmiðstöðina EKKO í Kópavogi er laus tii umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur séu mennt- aðir á sviði félags— eða tómstundamála eða hafi starfað við þau. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst og á að skila umsókn- um til félagsmálastofnunar Kópavogs. Ástralía Netagerðarfyrirtæki í Ástralíu óskar eftir áð ráða tvo neta- gerðarmenn með sérþekkingu á botn— og flotvörpugerð. Mennirnir þurfa að geta unnið sjálfstætt og er starfið aðal- lega fólgið í uppsetningu og viðgerðum á trollum. Laun eru sögð eins og þau tíðkast fyrir sambærilega vinnu í Ástralíu og eru fríar ferðir og atvinnuleyfi tryggð af hálfu fyrirtæks- ins. Hægt er að semja um starf til eins árs eða lengri tíma. rÁðÁÍjglýsÍngÁr T ölvufyrirtæki í blaðinu í dag er auglýst til sölu fyrirtæki sem annast inn- flutning, heildsölu og smásölu á einmenningstölvum og auka- hiutum auk rekstarvara íyrir tölvur. Sagt er að fyrirtækið geti hentað einstaklingum með tölvuþekkingu eða jafnvel tölvufyrirtæki sem vill auka vöruúrval og þjónustu við eigend- ur einmenningstölva. Sendiráð Erlent sendiráð óskar í blaðinu eftir að taka á leigu stórt og glæsilegt einbýlishús, helst 300—400 fermetra. Leigutím- inn þarf að vera að minnsta kosti þijú ár. Þeir sem áhuga hafa eiga að senda upplýsingar um staðsetningu, leigu og fleira til auglýsingadeildar blaðsins fyrir 1. næsta mánaðar. Y arahlutaver slun I blaðinu er auglýst til sölu bílavarahlutaverslun á höfuð- borgarsvæðinu. Fram kemur að velta fyrirtækisins hefur farið vaxandi undanfarið og er fyrirtækið sagt í fullum rekstri. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við auglýs- ingadeild blaðsins. SMAAUGLYSINGAR Útivist Kassagerð Reykjavíkur Atvinnuástand Minni hreyfing á ófaglærðu verkafólki Útivist auglýsir í dag nokkrar ferðir sem farið verður í um verslunarmannahelgina. Farið verður meðal annars í Þórs- mörk, Núpsstaðarskóga, Skaftártungur og boðið verður upp á nýja ferð í Hólaskóg, Landmannalaugar og að Gljúfurleitar- fossi. FYRIRTÆKJUM virðist hafa haldist betur á ófaglærðu verkafólki síðustu mánuði en oft áður, til dæmis á árinu 1987. Forsvars- menn nokkurra iðnfyrirtækja sem Morg- unblaðið hafði tal af voru flestir þeirra skoðunar að sífellt algengara væri að verkafólk ílentist hjá sama fyrirtækinu. Sumir viðmælenda blaðsins höfðu orð á því að þetta hefði það í fór með sér að þjálfunarkostnaður minnkaði og jafhvel mætti sjá þess merki að vöruvöndun og hráefhisnýting batnaði. Siguijón Siguijónsson verkstjóri hjá Plastprenti sagði að tals- vert hefði verið spurt um vinnu hjá fyrirtækinu undanfarið, aðal- lega skólafólk, en fæstir hefðu sótt um vinnu til frambúðar. Hann sagði að þeir ófaglærðu verka- menn sem ráðnir væru störfuðu mun lengur að jafnaði hjá fyrir- tækinu. „Ég hef aðeins orðið var við það að fólk er farið að hugsa lengra fram í tímann,“ sagði Sig- uijón. Sigurjón sagði það vera rnikinn kost fyrir Plastprent að þurfa ekki sífellt að þjálfa nýtt fólk til starfa. „Það kemur niður á bæði gæðum framleiðslunnar óg nýtingu hráefnis," sagði Siguijón. Hörður Kristinsson hjá Kassa- gerð Reykjavíkur sagði að nú væri mikið af skólafólki í vinnu hjá fyrirtækinu en allt frá síðasta hausti hefði verið betra að fá fólk til starfa en áður og greinilega minni hreyfing á ófaglærðu verka- fólki. Stefán Haraldsson skrifstofu- stjóri hjá Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki sagði að talsverð ásókn væri í störf hjá verksmiðj- unni enda væri hægt að hafa gott upp úr vaktavinnu í henni. Hann sagði að núorðið héldist verksmiðj- unni vel á starfsfólki en nokkuð hefði verið um að fólk stæði stutt við fyrst eftir að hún tók til starfa fyrir fjórum árum. Jón Sigurðsson framkvæmda- stjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga sagði að fyrirtækið hefði aldrei átt í erfiðleikum með að fá hæft starfsfólk. Hann sagði þó að fyrirtækið hefði orðið vart við meira framboð væri af háskóla- gengnu fólki en þegar þenslan var mest. Jón sagði biðlista vera af ófaglærðu fólki sem vildi komast í störf hjá fyrirtækinu og hefði svo alltaf verið. „Við höfum alla tíð getað fengið alla þá menn sem við höfum viljað,“ sagði Jón. Hann sagði að hjá fyrirtækinu störfuðu nú á milli 80 og 90 ófaglærðir verkamenn og sagði hann sáralitl- ar mannabreytingar verða í hópi þeirra. „Þær hafa raunar aldrei verið miklar en eru nú minni en áður,“ sagði Jón. Jón Guðmann Pétursson fram kvæmdastjóri Hampiðjunnar sagði að fyrirtækinu gengi mun betur að halda á hæfu fólki en áður, sérstaklega samanborið við árið 1987. Hann sagði að þó væri ekki mjög mikið um það að fólk sækti um vinnu og að alltaf væri eitt- hvað um það að fólk hætti. Jón Guðmann sagði að nú væri tals^ vert af skólafólki í vinnu hjá fyrir- tækinu og erfitt væri að áætla hvernig myndi ganga að manna stöður þeirra í haust. Hann bjóst þó við því að það yrði auðveldara en síðasta haust. Dalvík Atvinna stöðug Dalvík Atvinnuástand á Dalvík hefur verið stöðugt og jafiit það sem af er þessu ári. Blikur eru þó á lofti þar eð bátar eru að verða búnir með kvóta. Ef ekki á að koma til stöðvunar hjá Frystihúsi KEA í haust þarf að samræma vel veiðar og vinnslu báta sem þar leggja upp afla sinn. Eru menn sæmilega bjartsýnir á að það tak- ist. Björgúlfur, annar togari Utgerð- arfélags Dalvíkinga, hefur nú klárað kvótann og er áætlað að hann verði bundinn við bryggju út ágúst. A meðan mun Björgvin afla hráefnis fyrir frystihúsið og þá mun Baldur sem er í eigu KEA koma meira inn í hráefnisöflun. Eftir nokkurt uppihald í byijun árs hefur vinna haldist stöðug í rækjuverksmiðju Söltunarfélags Dalvíkur. JÞrír heimabátar hafa land- að þar. Á næstunni mun Dalborg, skip félagsins, hefja rækjuveiðar eft- ir að hafa gert út á bolfisk. Pólstjarnan hefur átt í erfiðleikum vegna sölutregðu á lagmeti. Að jafn- aði starfa 10—11 hjá fyrirtækinu en vinna hefur verið stopul til þessa. Fyrirtækið er nú að prófa nýja vöru en enn er óljóst hver árangurinn verður. Mikill fjörkippur hefur hlaupið í byggingariðnað á síðustu árum enda húsnæðisskortur. A undanförnum tveimur árum hafa á milli 40 og 50 íbúðir verið í byggingu. Á þessu ári er byrjað á heldur færri en atvinna er þó enn næg. Áukinn ferðamannastraumur hef- ur einnig komið fram á Dalvík og hafa umsvif aukist hjá Sæluhúsinu. Húsið hefur heimavist skólans á leigu og býður þar gistingu. Auk þess er það með veitingasölu. Fréttaritari Ólafsvík Lítið unnið umfrain dagvinnu Atvinna er ekki mikil í Ol- afsvík um þessar mundir en öll fiskvinnslufyrirtækin eru þó í gangi. Litið er unnið umfram dagvinnuna. Tvær rækjuvinnslur eru starfandi hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur og Stakkholti. Rækjuveiðin hefur verið góð en nú gengur á kvótana. Nókkrir bátar eru búnir eða eru að ljúka við þorskkvótann. Dragnótabátar reyna mikið við skarkola en lítið veiðist af honum. Veiðar smábáta með handfæri ganga allvel þegar á sjó gefur. Þeir þurfa að sækja djúpt því að lítt er fiskvart á grunnslóð- inni. Fáeinir aðkomumenn og út- lendingar eru í vinnu hér sem stend- ur en óljóst er hvernig ástandið verður með haustinu. Atvinna við iðnað og þjónustu er hér hverfandi og fyrirtækin eíga í vök að veijast. Helgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.