Morgunblaðið - 23.07.1989, Side 36

Morgunblaðið - 23.07.1989, Side 36
 ÆWÆFJFÆAÍáSr wmmiiWwÁP &3nsr-4tÆFÆF Efstir á blaði SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S FLUGLEIDIR JSÍ MORGUNBLAÐW. ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJA VÍK TELEX 2121, PÓSTFAX 681811, PÓSTUOLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. { Silfurhnapp- ar frá 1600 í FÓRUM Guttorms Þormars, ,_Jjónda að Geitagerði og hrepp- stjóra í Fljótsdalshreppi, eru tveir útflúraðir silfurhnappar, sem jafnvel er talið að hafi verið smíðaðir fyrir árið 1600. Guttormur sagði í samtali við Morgunblaðið að bandarískur miðill hefði skoðað hnapp- ana og haldið því fram að þeir hafi verið smíðaðir í Þýskalandi árið 1585, af silfursmið sem lært hefði list sína á Ítalíu. Hingað sagði miðill hnappana hafa komið árið 1621, þá á einkennis- -.búningi dansks eftirlitsmanns. Faðir Guttorms, Vigfús heitinn Þormar, fann hnappana á fjalli í Fljótsdal laust eftir síðusti^aldamót og voru þeir í hans vörslu allt til þess er hann andaðist, en eftir það í vörslu Guttorms. Sjá nánar Leyndardómur silf- urhnappanna bls. lOc. Brotist inn á skrifstof- ur Alþingis FJÖGUR innbrot voru fram- in aðfaranótt laugardagsins. Þar á meðal var brotist inn á skrifstofur Alþingis í Kirkjuhvoli. Fáu mun hafa verið stolið þaðan en sá, eða þeir, sem brutust þar inn fóru um allt húsið, rótuðu í innanstokksmunum og skemmdu. Einnig var brotist inn í Vonarstræti 4, þar sem Félagsmálastofnun er til húsa. Litlu var stolið þaðan en mikið rótað og skemmt. Þá var brot- ist inn í verslunina Blómalist í Ingólfsstræti og bátinn Ólaf Bjarnason SH í Daníelsslipp. Úr bátnum var stolið sjón- varpstæki. Laxá í Kjós: Morgunblaðið/Einar Falur Vandræði á vinnupalli Mörg erlend skemmtiferðaskip hafa komið hingað til lands í sum- ar. Þessi skip eru oft hin glæsilegustu, enda er þess vel gætt að hvergi sé að finna á þeim ryðtauma eða óhreinindi. Þegar Ijósmynd- ari Morgunblaðsins átti leið um Sundahöfn í vikunni lá hvítmálað skemmtiferðaskip þar við festar og var verið að snurfúsa það. Það virtist þó ekki tekið út með sældinni og málarinn virtist um tíma eiga í einhveijum vandræðum með vinnupallinn. Allt fór þetta þó vel og skipið hefúr eflaust verið óaðfinnanlegt þegar farþegarnir komu aftur um borð, eftir að hafa spókað sig í landi um tíma. Norðlingafljót í Borgarfírði: Slepping hafbeitarlax bönnuð Yiljum verja vatnasvæðið fyrir aðkomufíski, segja forsvarsmenn veiðiréttareigenda LEIGUTAKAR Norðlingafljóts í Borgarfirði, sem hafa flutt haf- beitarlax frá Lárósi i ána og selt stangveiðimönnum aðgang, hafa fengið synjun frá Landbúnaðar- ráðuneytinu um undanþágu frá nýrri reglugerð sem bannar flutn- ing á laxi landshluta á milli. Leigu- takarnir hafa þegar selt öll veiði- leyfi í ána og standa frammi fyrir því að endurgreiða þau öll, auk þess sem þeir hafa lagt í mikinn kostnað við mannvirki bæði við ána og í Lárósi. Meðmæli fisksjúk- dómanefndar og viðkomandi veiðifélags þarf til að fá undan- þágu frá umræddri reglugerð, en Veiðifélag Borgarfjarðar var ekki reiðubúið að veita undanþágu. Sveinn Jónsson, einn leigutaka Norðlingafljóts, sagði að þessi niðurstaða væri reiðarslag fyrir þá Nóra í snúningum fyrir laxveiðimenn NÓRA heitir einn af aðstoðar- „mönnum" erlendra veiðimanna við Laxá í Kjós. Hún er eins árs en þótt aldurinn sé ekki hár sæk- ir hún háfinn þegar stangaveiði- mennirnir setja í lax, sækir laxa- plastið í bílinn og ber síðan afl- ann afitur til bílsins hvort sem hann er í plasti eða ekki. Nóra er labrador-hvolpur, en eigandi hennar er Asgeir Heiðar, staðar- leiðsögumaður við Laxá. Heiðar sagði í samtali við Morg- unblaðið, að Nóra væri ein- stakur hundur, hann hefði átt sex hunda aðra og enginn hefði komist j hálfkvisti við Nóru að greind. Hún “hefði sótt fyrir sig ijúpur á fjöllum frá 3. mánaða aldri og alls yfir 500 Nóra ber aflann frá ánni. ijúpur síðasta haust. „Þetta var erfitt og neyðarlegt fyrir hana um tíma, því hún missti hvolpatennurn- ar á miðju ijúpnatímabilinu og þá vildu ijúpurnar leka út úr henni á hlaupunum," sagði Heiðar. Tíkin unga er til margra hluta Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson Búin að sækja laxaplastið og færa Ásgeiri Heiðari það. nytsamleg, þannig leyfði hún að eigandi sinn klippti úr sér fáein hár á föstudagskvöldið og úr þeim hnýtti hann veiðifluguna Nóru. í gærmorgun veiddust svo fyrstu lax- arnir á fluguna í Laxfossi og á Fossbreiðu. „Nei, hún fær ekki að landa löx- unum og ég veit ekki hvað verður í þeim efnum. Hún er enn svo ung að maður veit varla enn hvað hún kemur til með að geta,“ sagði Heið- ar, en bandarískur veiðikappi sem sat á steini og hvíldi sig iæddi að þeirri kenningu sinni að staðarleið- sögumaðurinn stefndi að því að þjálfa hundinn svo vel í leiðsögn, að sjálfur gæti hann sofið út á morgnanna meðan Nóra sæi um viðskiptavinina. félaga, því þeir hefðu lagt í kostnað upp á milljónir.. „Það sem gerir þessa afgreiðslu enn fáránlegri er að á þessu svæði starfa tvær laxeldisstöðvar sem fá klaklax frá Lárósi og Veiðifélag Borgarfjarðar taldi að ekkert væri við það að athuga þótt við fengjum lax frá Hafnará. Þar veit ég ekki betur en að um aðkeyptan Láróslax sé að ræða,“ sagði Sveinn. Davíð Aðalsteinsson formaður stjórnar Veiðifélags Borgarfjarðar sagði að sér virtist sem Norðlinga- fljótsmenn hefðu ætlað sér að halda áfram á sömu braut, en þetta hefði verið þriðja árið sem þeir slepptu hafbeitarlaxi í ána. Ekkert benti til þess að þeir hefðu sótt um undan- þágu fyrr en í óefni var komið í byijun júlí. Forsvarsmenn félagsins hefðu ekki treyst sér til þess að veita undanþágu. „Það er ekki að ástæðulausu sem umrædd reglugerð var samin, vegna mikillar hættu á stofnablönd- un og sjúkdómum. í Hafnará eru hins vegar borgfirskir stofnar," sagði Davíð. Jón Höskuldsson hjá Landbúnað- arráðuneytinu sagði að ráðherra hefði ekki getað veitt undanþágu í blóra við óskir Veiðifélagsins. „Fisksjúkdómanefndin setti sann- gjörn skilyrði og þar tel ég að kom- ið hafi fram ákveðinn vilji hjá hinu opinbera til að leysa málið,“ sagði Jón.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.