Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 10
rior) c
MOKUUNBMiW) IVIAI^MLÍFSSTRAilMAR fjUNNffÖAGUK 30. JÚM,1^89
MATUR OG DRYKK«R///;«/ on in Reykjavík?
Regnhátíðin í Vatnsmýrinni ’89
The Great Rain Festival of Reykjavík ’89 verður fram haidið í
Vatnsmýrinni alla næstu viku, þá þar næstu o g þá þar þar næstu.
Mest í miðri viku. Æskilegt er að þátttakendur séu varðir grænu
gúmmíi frá toppi til táar og útbúnir grænum Tuborg, grænu ferðagr-
illí eða prímus í sama lit (svart gengur — en alls ekki rautt), grænu
tjaldi, efvill, grasatínu, (stjörnu)kíki og nýútkominni heildarútgáfú
af verkum Jónasar Hallgrímssonar (4 bindi = 3/i kg; munið að veija
hana grænu plasti áður). Hinn græni litur viðleguútbúnaðar er að
sjálfsögðu til varnar því að hátíðargestir verði hundeltir af lögreglu
eins og Birkiland og fleiri góðir menn hafa orðið fyrir á gleðistund-
um í Vatnsmýrinni og nágrenni.
Aregnhátíðinni gefst einstakt
tækifæri til að drekka í sig
reykvíska náttúru í dæmigerðu
sumarveðri í samvistum við dæmi-
gerð dýr, menn og jurtir. í vikunni
sem nú fer í hönd
verður lífríki
Tjarnarinnar
kannað ítarlega og
gestum gefinn
kostur á að
smjúga að hætti
álsins úr 'Tjörn —
undir ráðhús-
grunninn — og út
eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur
í Atlantsála. (Þeir sem það hyggj-
ast reyna verða að sjálfsögðu að
klæðast fullkomnustu kafarabún-
ingum. Hinir halda áfram að þjálfa
sig í hundasundi eftir Lækjargöt-
unni og veiða lækjalontur í leiðinni.)
Köld ást og súldanorn
Á Vatnsmýrarhátíðinni miklu
verða jafnframt stundaðar saman-
burðarrannsóknir á fuglum og fisk-
um annars vegar og mönnum og
fiskum hins vegar, með dýrafræði
Jónasar Hallgrímssonar til grund-
vallar. T.d. verður forvitnilegt að
kanna eftirfarandi staðhæfingar
samanborið við manninn:
„Ástin fiskanna er köld eins og
afsláttur á takmörkuðum fjölda véla
í skamman tíma
Cylinda
ÞVOTTAVÉLAR FRAMHLAÐNAR §
GERÐ 9S00NÚKR. 55.900." I
GERÐ 11000 NÚ KR. 59.800." ncpn lonon NIJ KR ö4*4UU«a' mflnCL
UCKU 1 4UUU riu AR. W ■ • ■ w w ■ Cylinda j
ÞVOTTAVÉLAR
TOPPHLAÐNAR
GERÐ 13000 NÚ KR. 55.500.
GERÐ 16000 NÚKR. 58.700.
Cylinda
GERÐ 1302 NÚ KR. 52.700.-
GERÐ 1402 NÚ KR. 58.900.-
GERÐ 1500 NÚ KR. 59.900.-
CYLINDA nafnið er trygging fyrir fyrsta flokks vöru og
sannkallaori maraþonendingu.
ath.
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDU ÚTSÖLUVERÐI
GOÐIR GREIOSLUSKILMALAR, M.A. yiSA RAÐGRELÐSLUR OG EURO
KREDIT ( ENGIN UTBORGUN )
3JA ARA ABYRGÐ TRAUST ÞJONUSTA
sjálfír þeir; hún er ekkert annað en
stundarþörf einstaklingsins. Það
eru ekki nema fáeinar tegundir sem
maka sig; af öllum hinum ijöldanum
vitja hvötu fiskarnir um eggin frem-
ur en hinir blauðu. Þeir verða að
gjöra sig ánægða með að frjóvga
þau egg sem þeir þekkja ekki móð-
urina að, og sjá aldrei ungana úr.“
Og:
„Til hvurs hafa fiskarnir þegið
fegurð málmanna og alls konar
gimsteina — sem á þeim ljómar? til
hvurs hafa þeir þegið friðarbogans
skínandi litu sem leiftra af þeim í
böndum og blettum og bylgjóttum
línum með óumræðanlegri fegurð
og reglu í samblandi Iitanna? til
hvurs hafa þeir þegið allt þetta sem
með naumindum geta grillt hvur til
annars í djúpinu þar sem þeir búa
— því örðugt á ljósið með að kom-
ast þangað niður; og enda þótt þeir
sæju hvur annan, hvuijar tilfinning-
ar mundi fegurð litanna geta kveikt
í þessum fáráðlingum?"
Ó, Jónas, þú sem líka spurðir:
Hví svo þrúðp þú
þokuhlassi
súldanom
um sveitir ekur?
Krydduð kjötsúpa kennd
við brúðkaup
Þar sem gera má ráð fyrir að
samanburðarrannsóknirnar á
Vatnsmýrarhátíðinni leiði i ein-
hveijum tilfellum til pörunar — og
mikið lambakjöt þarf að eta á næstu
vikum — kem ég hér á framfæri
uppskrift að tyrkneskri brúðkaups-
súpu. Meginuppistaða hennar er
svipuð og íslensku kjötsúpunnar,
þ.e. lambakjöt og grænmeti, en
kryddið ólíkt. Kryddkeimur þessar-
ar súpu er nokkuð sérstæður og
eggjarauðurnar fríska upp á bragð-
ið og gefa súpunni gullinn lit. Upp-
skriftin er handa sex — margfaldist
eftir þörfum.
500 g meyrt, magurt, beinlaust
lambakjöt, t.d. lærvöðvi
1 dl hveiti
3 msk. ólífuolía
1 1 vatn
2 miðlungsstórir laukar
2 miðlungsstórar gulrætur
1 tsk. salt
/2 tsk. nýmalaður, svartur pipar
1 tsk. cayennepipar
3 eggjarauður
2 msk. sítrónusafi
‘A dl bráðið smjör
2 tsk. paprikuduft
'/> tsk. kanell
1 msk. þurrkuð mynta
1. Skerið kjötið í munnbita, u.þ.b.
2/2 sm, og veltið þeim upp úr
hveitinu. Saxið laukinn gróft og
sneiðið gulræturnar.
2. Hitið olíuna við miðlungshita í
stórum potti. Steikið kjötbitana
upp úr henni í 4-5 mín., þar til
þeir hafa brúnast lítillega. Hellið
þá vatninu í pottinn og látið
suðuna koma upp. Þá þarf að
fleyta froðuna vandlega ofan af.
Bætið að því búnu gulrótum,
lauk, salti, pipar og cayennepip-
ar út í pottihn.
3. Minnkið hitann og látið súpuna
malla í u.þ.b. 45 mín. eða þar
til kjötið er orðið vel meyrt.
4. Þeytið eggjarauðurnar í skál og
hrærið svo saman við þær sítrón-
usafa og 2 msk. af soðinu úr
pottinum.
5. Takið pottinn af hellunni og
hrærið eggjablöndunni hægt og
varlega út í súpuna. Setjið pott-
inn aftur á helluna og hitið súp-
una hæfilega og hrærið stöðugt
í henni á meðan. Hún má ekki
sjóða, því þá hleypur hún í kekki.
6. Takið pottinn af hellunni, hellið
súpunni í skál. Hrærið saman
bræddu smjörinu, paprikudufti,
kanel og myntu og hellið blönd-
unni yfir súpuna. Berið fram
ásamt góðu brauði.
Indverskt karrí
Önnur lambakjötsuppskrift —
miðlungssterkur karríréttur, handa
fjórum. Hann stendur alveg fyrir
sínu með hrísgijónum og kókosmjöli
einum saman, en ef þið viljið hafa
meira við berið þá fram í litlum
skálum bananasneiðar, bleyttar
rúsínur, gúrkusneiðar, þeyttan
ijóma, saxaða papriku, salthnetur
og annað sem ykkur kemur í hug.
800 g magurt og meyrt lambakjöt
2 stórir laukar, saxaðir
2 hvítlauksrif, marin eða smátt
söxuð
3 msk. smjör
3 dl vatn
1 súputeningur
1 kanelstöng
'/2 tsk. karrí
% tsk. cayennepipar
2 meðalstórar kartöflur
200 g kókosmjöl
soðin hrísgijón
salt eftir smekk
1. Hitið smjörið í potti 0g steikið
lauk og hvítlauk upp úr því
örstutta stund. Bætið út í kanel,
cayennepipar, karrí og vatni.
2. Skerið kjötið í 2&-3 sm þykka
bita og setjið i pottinn ásamt
súputeningnum. Látið sjóða við
vægan hita í u.þ.b. hálftíma.
3. Á meðan afhýðið þið
kartöflurnar og skerið í litla
teninga. — Leggið kókosmjölið
í skál og hellið yfir það sjóðandi
vatni, nægilega miklu til að
þekja kókosmjölið. Látið standa
þar til rétturinn er tilbúinn.
4. Hafið nú til annað meðlæti.
Vænlegast er að bleyta
rúsínurnar, þ.e. setja þær í pott
ásamt vatni, láta suðuna koma
upp og sía vatnið strax frá. —
Sjóðið hrísgijónin.
5. Þegar rétturinn hefur mallað í
u.þ.b. hálftíma eru
kartöflubitarnir settir út í og
allt látið sjóða í 15 mín. til
viðbótar. Smakkið þá á sósunni
og kryddið frekar ef þurfa þykir.
6. Síið vatnið frá kókosmjölinu og
hellið vatninu í pottinn og berið
fram ásamt ásamt ijúkandi
réttinum og öðru meðlæti.
VZterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Eldri borgarar \m «• f •
Styttið skammdegið. Komið með okkurtil Portúgals íhlýuna ívetur. Fararstjóri: Jóhanna G. Möller, söngkona. Hinn sívinsæli Guðni Þ. Guðmundsson organ- isti verður hjá okkur í Portúgal í október. %•••*■*
Verið velkomin
EVRÓPUFERÐIR ' r \ jr \ - áý
Klapparstíg 25, Reykjavík. Símar 628181 og 27830
• •• • 5* * •■*.....l :■
-
Fmeie
KAFFt
Pú sérð
ekkí
muninn!
HANN FINNST Á BRAGÐINU....
HEILDSÖLUB. JOHN LINBSAY HF.