Morgunblaðið - 30.07.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
C 15
það orð á sér að vera einn af betri
tónleikastöðum borgarinnar fyrir
óreyndar sveitir og þar koma fram
tíu til fimm(án hljómsveitir í viku
hverri. Eigandinn, sem ekki virtist
tala ensku að néinu marki, var á
staðnum og sat við dyrnar allt
kvöldið til að fylgja því eftir að
enginn færi inn án þess að borga.
• Ohætt er að segja að mönnum
ieist ekki á blikuna þegar komið
var inn í staðinn til að koma fyrir
hljóðmögnunartólum síðdegis á
laugardag, enda er staðurinn all
óhijálegur í björtu. Það hýrnaði þó
bráin eftir því sem leið á kvöldið
og þegar bandarísku sveitirnar,
Back Room Revolution og Current,
hófu leik sinn mátti heyra.að hljóm-
burður var með besta móti. Ekki
var það þó nóg til að gera tónlistina
sem þær sveitir fluttu áheyrilegri
og vinvaningsbragurinn var slíkur
að einhver spurði hvor hér færu
fram Músíktilraunir.
Haraldur Thorsteinsson kynnti
ísveitirnar íslensku og það var ekki
jskrum þegar hann sagði áheyrend-
jur eiga von á tónlist í nokkuð öðrum
jgæðaflokki. Fyrsta íslenska sveitin,
iBless, staðfesti það; greinilega mun
[betur undir tónleikahald búin en
sveitirnar sem á undan komu. Hef
! ég reyndar fyrir því heimildir að
íslensku sveitirnar hafi allar æft
daglega síðustu vikurnar áður en
farið var út.
Næstir á svið voru drengirnir í
Ham og gaman var að sjá hvernig
áheyrendur skiptust í tvo hópa nán-
ast um leið og sveitin hóf leik sinn;
þeir sem höfðu gaman af og þeir
sem óskuðu henni alls hins versta,
sem eru einmitt þau viðbrögð sem
sveitin segist vilja fá. Á eftir Ham
tróð Jón Gnarr upp og las kafla úr
skáldsögu sinni um óþokkann
Runka, en Risaeðlan var síðasta
sveit á svið.
Þegar Eðlan hóf leik sinn stóð
gamla konan upp að stól sínum við
dyrnar og tróðst að sviðinu til að
hlýða á leikinn og áheyrendur fóru
alíir á ið og skelltu sumir uppúr af
skemmtan. Að öðrum ólöstuðum
átti Risaeðlan áheyrendur þetta
kvöld, enda að leika tónlist sem
spannar víðara svið en hinar.
Pyramid
Tónleikabúllan Pyramid er
líklega þekktust sem ein helsta
hommabúlla í Greenwich Village
og þar er til siðs að barþjónar séu
klæðskiptingar til að lífga upp á
yfirbragð staðarins. Ekki var þó sá
háttur á þetta kvöld; í það minnsta
var ekki annað að sjá en að stúlkan
sem afgreiddi væri stúlka.
Á þessum tónleikum lék með
hljómsveitin Alice Doughnut, sem
er á vegum Alternative Tentacle.
Sú sveit lék þriðja í röðinni, en Ham
lék fyrst,Jþá Risaeðlan og Biess rak
lestina. Á meðal áheyrenda voru
sjónvarpsmenn frá bandarískri
sjónvarpsstöð sem tóku upp nokkur
lög til að nýta í fréttaútsendingu,
en einnig voru ýmsir blaðamenn og
útgefendur á staðnum, sem benti
til þess að tónleikarnir myndu bera
tilætlaðan árangur. Ekki skemmdi
fyrir að hljómsveitirnar léku allar
eins og þær ættu lífið að leysa og
sem fyrr var það Risaeðlan sem
vakti mesta hrifningu, enda í mikl-
um ham þetta kvöld.
Kynnir á tónleikunum í Pyramid
var breska ljóðskáldið og blaðamað-
urinn Steven Wells, sem kom fram
undír nafninu Seething Wells og
flutti ljóð á milli Eðlunnar og Alice
Doughnut. Hann var líflegur vel og
setti einkar skemmtilegan blæ á
það sem fram fór, þó kímnisögur
hans um ísbirni og fiskstauta hafi
fallið í misfijóan jarðveg. Ekki má
gleyma Jóni Gnarr, sem las enn úr
skáldsögu sinni og var gerður góður
rómur að lestrinum.
Uppskera
Það er Ijóst að ferð sem þessi
er ekki farin í skammtímahagnað-
arskyni og óhugsandi er annað en
að nokkuð tap hafi verið. Tapið
greiðir Smekkleysa líklegast því
ekki fæst Ijárstuðningur frá hinu
opinbera þegar rokktónlist er ann-
ars vegar. Sá árangur varð þó af
ferðinni að fimm fyrirtæki, Rough
Trade, Important Records, Alterna-
tive Tentacle, One Little Indian og
Enigma, lýstu áhuga á því að gefa
út plötu með Risaeðlunni; Alterna-
tive Tentacle lýsti einnig áhuga á
að gefa út Ham og Bless og óskaði
eftir því að fá að vera dreifingarað-
ili á ljóðasafninu Kráarljóðin, sem
Smekkleysa gaf út fyrir nokkru á
íslensku, ensku og spænsku. (Þess
má geta að One Little Indian gefur
út LP-plötu með Ham í september
nk.) Allt er þetta þó enn á frum-
stigi og ekki hafa verið nefndar
neinar fjárupphæðir nema í einu
tilfelli. Einnig samdiOne Little Indi-
an um það við Smekkleysu að gefa
út safnplötu með Smekkleysuhljóm-
sveitunum fimm á næsta ári í Bret-
landi og víðar. Sveitirnar fóru einn-
ig í blaða- og útvarpsviðtöl, sem
er jú fyrsta skrefið uppávið í Banda-
ríkjunum. Það má því segja að búið
sé að sá, en of snemmt er að segja
til um hver uppskeran verður þó
horfur séu óneitanlega góðar.
Risaeðlur. A ínnfelldu myndinni er sér-
stakur aðdáandi Risaeðlunnar, Steven
„Seething" Wells, sem var kynnir á Pyr-
amid-tónleikunum.
Jon Gnarr
SPORTVÖRU-
UTSALA
Spörtu, Laugavegi 49
heldur áfram
Stórkostleg veriMkun
Krumpugallar nr. S-M-L-XL.
Verð frá kr. 2.990-5.900.
Mjög mikið úrvai af barnaskóm.
Númerfrá 21.
Skór í skærum litum.
Markmannshanskar — Fótboltar — töskur.
Sundfatnaður og margt margt fleira.
Apaskinnsgailar
Nr. 150-192
Verð kr. 5.900 (áður kr. 8.325).
Bómullargallar
Allarstærðir.
Verð frá kr. 1.400.
Touch uppháir leðurskór
Nr. 31-41.
Verðkr. 1.790 (áðurkr. 2.550).
Adidas - Bamba
Fótboltaskórf/rhöl og gervi-
gras.
Nr. 36-48.
Verð kr. 2.490 (áður kr. 3.590).
Við rúllum boltanum til ykkar.
Nú er tækifærió til þess aú gera góú kaup
tyrir versiunarmannahelgina.