Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 17

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 17
m a? FÓLK i jjölmiðlum ■ Blaðakóngurinn Eddie Shah heftir að mestu sagt skilið við blaðaútgáfu og hyggst snúa sér að sjónvarps- og útvarpsrekstri. Mestan áhuga heftir hann á því að taka við leyfi Granada til að reka stöð sjónvarpssamsteyp- unnar ITV í Norður-Englandi. Fyrir skömmu gafst Shah upp á að gefa út blaðið Post, sem átti að valda byltingu í brezkri blaða- útgáfu, aðeins fimm vikum eftir að það hóf göngu sína. Aðeins 150.000 eintök seldust daglega að sögn blaðsins og jafhvel enn færri ef trúa má keppinautum Shahs. Shah stefndi að því að salan yrði 370.000 eintök á dag og taldi að hann mundi koma sléttur út ef hann næði því marki, en það tókst sem sé ekki. Árið 1986 stofiiaði Shah blaðið Today, sem nú er í eigu fjöl- miðlafyrirtækis Ruperts Murdochs, News International. Og nú fyrir skömmu seldi Shah fyrirtækinu Reed International útgáfufyrirtæki sitt Messenger fyrir tæpar 30 milljónir punda. Messenger-fyrii’tækið gefúr út rúmlega 20 svæðisblöð í Norð- vestur-Englandi. Shah hefur þegar sett á laggim- ar sjónvarpsstöðina Messenger Television. Hann hefúr látið í ljós áhuga á fimmtu brezku sjón- varpsrásinni, sem kemst i gagnið 1993, og hefúr einnig áhuga á svæðisútvarpi og auglýsingaút- varpi fyrir allt Bretland. ■ Aðstoðarráðherra i brezka menntamálaráðuneytinu, Angela Rumbold, hvatti ekki alls fyrir löngu brezka foreldra til að leyfa börnum sínum að liorfa á tiltekna sápuóperu á BBC, TheNeigh- bours — Nágrannana — þar sem hún „veiti góða innsýn í venju- legt flölskyldulíf‘. Hins vegar telur hún að aðrar sápuópemr, einkum þær sem gerist að miklu leyti í bjórkrám, „gefi ekki rétta mynd af lífinu". Frú Rumbold sagði þetta á fúndi þrýstihóps, sem vill tryggja vand- aðra barnaefni í sjónvarpi. Bæði sjónvarpssamsteypan ITV og BBC hafa spáð því að barnaefni verði út undan, ef nýjar tillögur í svokallaðri „hvítri bók“ brezku stjórnarinnar um sjónvarpsmál verða að lögum. Líta nið- ur á Sky Stór hluti þeirra Breta, sem hafa komið sér upp „disk- um“ til að taka á móti sjón- varpsefni frá gervihnöttum, hafa unnið til verðlauna í íþróttum og „eiga sand af pen- ingum, en hafa lítið vit í kollin- um“. Þeir eru í „þotuliðinu“ og óvinsælir vegna þess að nágrannar þeirra skammast sín fyrir að búa í námunda við áhorfendur gervihnatta-sjón- varps. Þannig hljóðar niðurstaða nýlegrar markaðskönnunar í Bretlandi. Hún er talið mikið áfall fyrir Sky-sjónvarpið, sem hefur reynt að sannfæra sjón- varpsáhorfendur um að það sé„fint“ að horfa á gervi- hnatta- sjónvarp og að móttökudiskar séu „stöðutákn.“ Könnunin sýnir að diskarnir eru taldir umhverfislýti og álitshnekkir fyrir íbúðahverfi, þar sem þeir eru áberandi. ____-M<»':<;[ Niu.Amy FJÖLMIÐLAR .íru _ Japanir ríða á vaðið með háskerpusjónvarp Japanir hafa nú hafið sendingar á svonefndu háskerpusjónvarpi (High Definiton Television), en tækni þessi gefúr sömu myndgæði og kvikmyndir og hljómgæði á borð við geisladiská. Efni frá Olympíu- leikunum í Seoul var meðal annars sent út með þessari tækni írá japanska sjónvarpinu (NHK) og fleiri tilraunasendingar eru fyrir- hugaðar á þessu ári. Japanir stefna að því að hefja reglulegar send- ingar háskerpusjónvarps til heimila þegar á næsta ári. IBretlandi er nú unnið að því að hefja sendingar háskerpusjón- varps í árslok 1990, á vegum hins nýja sjónvarpsfyrirtækis British Satellite Broadcasting og sendum verður komið fyrir á öðrum Astra- sjónvarpshnettinum, þótt ekki séu líkur á að að sjónvarpstækin sjálf, sem taka eiga við háskerpusending- unum verði komin í gagnið fyrr en eftir fjögur ár. Ýmsir hafa gert því skóna að hin nýja tæknibylting í sjóhvarpsmálum á Vesturlöndum kunni að leiða af sér „tæknilegt járntjald" milli aust- urs og vesturs og þar af leiðandi hafa Sovétmenn sýnt þessari nýju tækni mikinn áhuga. Fulltrúum frá 11 stærstu sjónvarpsstöðvum heims var nýlega boðið til Moskvu til skrafs og ráðagerða vegna þessara mála og var niðurstaðan sú að til- raunasendingar Sovétmanna á há- skerpusjónvarpi ættu að geta hafist árið 1995. Mönnum til nánari glöggvunar má geta þess að munurinn á venju- legu PAL-sjónvarpi, eins og við höfum nú, og háskerpusjónvarpi er sá, að í Pal-sjónvarpi er myndin með 625 þverlínum á skjánum, en háskerpusjónvarp gerir ráð fyrir * mynd með allt frá 1.100 upp í 1.300 þverlínum. aöí húsnæðíslána 16. ágúst leggjast dráttarvextír á lán með íánskjaravísitöíu. 1. september leggjast dráttarvextír á lán með bYggíngarvísitöIu. Gjalddagar húsnæðislána eru: 1. febrúar— 1. maí — 1. ágúst— 1. nóvember. Sum lán hafa íjóra gjalddaga á ári, önnur aðeíns einn. Greiðsluseðlar fYrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendí í öllum bönkum og sparísjóðum landsins. Ún HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURUNDSBRAU 108 REYKJA\ Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. Þegar kemur aíborgunum lána er það í þínum höndum að borga á réttum tí ar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttar- vaxta, svo ekki sé minnst á innheímtukostnað. ÞU STJOKN C

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.