Morgunblaðið - 11.08.1989, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989
33
Skuldarar og skuldlausir
Til Velvakanda.
Það er fáum gefið í þessu landi,
þar sem allt flýtur ekki í mjólk og
hunangi - heldur bjór og fjármagns-
kostnaði, að kunna að finna til með
öðrum en sér og sínum. Það grám-
ar einna helzt í þessa gömlu góðu
tilfinningu hjá góðskáldum eða
einni og einni aldraðri sál með óend-
anlegt langlundargeð. Samkennd
einstaklings með öðrum einstakl-
ingi verður aftur á móti sterk þegar
viðkomandi „fatlast“ sjálfur. Þá á
hann það stundum til að fyllast eld-
móði, eins og hver annar ofsatrúar-
maður, safna í hvelli um sig liði og
krefjast úrbóta!
Mér er að detta þetta í hug þeg-
ar ég les um eignarskattinn, sem
lagður hefur verið á hina skuld-
lausu, og þeir hafa verið að kveinka
sér undan sem von er, á opinberum
vettvangi undanfarið.
En ágætu lesendur. Það sem eru
ólög í dag, voru líka ólög í gær og
verða það líkast til á morgun. Eða
hvað um blóði drifinn feril láns-
kjaravísitölunnar, okurvaxta og
verðbóta síðastliðin níu ár? Hvað
haldið þið að margir eigi um sárt
að binda, sem léðu veð í skjólinu
sínu, tóku á sig lífeyrislán til hjálp-
ar börnum sínum, sem misstu ofan
af sér samt? Gjalda ár eftir ár keis-
aranum það sem keisarans er, án
vaxtabóta og miklu meira en það,
því að skuldin litla vex og vex með
hveiju ári og allur lífsstíll viðkom-
andi endurspeglar skuldina og
óréttlát vaxtalög.
Hinir brosandi gestgjafar í dag
eru ekki þeir sem lifa og deyja fyr-
ir skuldina sína heldur hinir skuld-
lausu, sem hafa allt sitt á hreinu
og hafa í gegnum árin, löghlýðnir
í andlitinu, sagt við skuldarann:
„Hvaða væl er þetta? Þetta eru lög!
Skuld á að borga!“
Borgaraflokkurinn vill lækkun á
matarskattinum, gefi hann kost á
aðstoð sinni við ríkisstjómina. Það
hefur ekkert að segja, þótt matar-
skatturinn lækki um einhver pró-
sent, því að hér hækkar allt frá
degi til dags, sama hvað það er og
hvort eitthvað lækkar á heimsmark-
aðnum eða ekki. Það sem þarf að
taka á eru vaxtakjörin í þessu landi.
Að skuld lækki þegar borgað er af
henni og að ekki sé lagður eignar-
skattur ofan á óheyrileg fasteigna-
gjöld. íslenzkur Aðall, sem kominn
er á efri ár á betra skilið en það!
Rikisstjórnin á að beita sér fyrir
einhveijum öðmm gjörningum til
bjargar þjóðarbúskapnum en þeim
að hrekja fólk af lögmætum eignum
sínum, og feta þannig í fótspor
banka og annarra lánasjóða síðustu
ár, sem reyndar eru nú loksins farn-
ir að finna smjörþefinn af eigin
vaxtaokri. Meðal annarra orða, búa
ijármálafræðingar og aðrir fjár-
málaráðgjafar frítt heima hjá sér?
Áframhaldandi eignaupptaka í
nafni „laganna", kemur ekki til með
að blása nýjum lífsanda í land-
búnaðinn, loðdýraræktina, frysti-
húsin, útgerðina eða þann mýgrút
af fyrirtækjum, sem endanlega eru
komin á hausinn!
Guðrún Jacobsen
Þessir hringdu . .
Kvenúr
Kvenúr týndist úti í Dyrhólaey
föstudaginn 4. ágúst milli kl. 19
og 20. Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hafa samband við
eiganda í síma 37850.
Gullarmband
Gullarmband fannst á Lokastíg
í Reykjavík. Eigandinn er beðinn
um að hafa samband við Maríönnu
í síma 20379 eftir kl. 19.
Seðlaveski
Grænblátt seðlaveski tapaðist í
sal 2 í Bíóhöllinni í Breiðholti á
dögunum. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn um að hafa samband
við eiganda í síma 44281. Fundar-
laun eru í boði.
Tvíburakerra
Tvíburakerra með bláu áklæði
tapaðist nýlega á Hofsvallagötu,
rétt við Landakot og er hennar
nú sárt saknað. Finnandi er vin-
samlegast beðinn um að hafa
Kristinu í síma 26439.
Týndur köttur
Blágrár, tveggja ára högni tap-
aðist í Vesturbænum. Hann er
með græna ól og er merktur eig-
anda sínum. Finnandi hafi sam-
band við Ásthildi í síma 10014.
Fækkum þingmönnum!
Ingimundur Sæmundsson
hringdi:
„Eg vil þakka Brynjólfi Jóns-
syni, hagfræðingi, fyrir grein þá,
er hann ritaði í DV 31. júlí um
nauðsyn þess að fækka þing-
mö.nnum. Hann útskýrir vel hvers
vegna og ég vil taka undir með
honum enda hef ég lengi verið á
sömu skoðun. Þingmenn eru nú
alltof margir og spara mætti mik-
ið með því að fækka þeim. Til
dæmis myndi sparast byggingar-
kostnaður vegna Alþingis. Auk
þess ætti að gera landið að einu
kjördæmi og láta þingið starfa í
einni deild. Þá yrði yrði ekki eins
mikið um óþarfa þref.“
Hver á kettlinginn?
Þrílitur kettlingur, um það bil
tveggja mánaða gamall, fannst í
Norðurmýrinni. Eigandinn er beð-
inn um að hringja í Álfheiði í síma
611560.
Enn einn skatturinn
Bóndi hringdi:
„Það er ekki fagurt, sem Ó.
Grim. hefur í hyggju um þessar
mundir. Hann ætlar nú að fara
að ráðast á ellilifeyrisþega eina
ferðina enn með því að skatt-
leggja vaxtatekjur. Mér hefur
verið tjáð að eldra fólk eigi meiri-
hluta alls sparifjár f landinu en
nú fær það ekki lengur að spara
í friði. Það er ekki bara Ó. Grim,
sem ber ábyrgð á þessu heldur
líka Steingrímur."
mmmn
„ vopol. ou5 þú sért eklci einn af þeim'
5em ei'9o. i erfiÁleikum meÁ abgleypa p)lLur
Ást er...
stundam hindruð.
TM Reg U.S. Pat Ott.—aU rights reserved
® 1909 Los Angeles Times SyncJicate
Mér hefúr láðst, vinur, að
segja þér frá því, að húsið
okkar er til sölu ...
Með
morgunkaffinu
Ef við ætlum að fara í
hnattferð, förum við þá til
vinstri eða hægri?
HÖGNI HREKKVÍSI
í — “■ £ já & Ir F «■!’